Morgunblaðið - 13.01.1961, Síða 22

Morgunblaðið - 13.01.1961, Síða 22
22 MORGUNBL AÐIÐ Föstudagur 13. janúar 196x Heimsmeisrarakeppnin í handknattleik; ísláhd — Danmörk 7 marz Sviss —^ísland 2 marz UM síðustu helgi var hald- inn í Basel í Sviss mikilvæg- ur fundur um lokaákvarðan- ir vegna úrslitakeppninnar um heimsmeistaratitilinn í handknattleik. Fundinn sátu fulltrúar úr tækninefnd al- þjóða handknattleikssam- bandsins — en hún ræður mestu um fyrirkomulag keppninnar — og fulltrúar Þjóðverja, sem sjá um úr- slitakeppnina. Það er því rangt, sem komið hefur fram í íslenzku blaði að Þjóðverj- ar hafi „breytt“ úrslitaleika- dagskránni á eigin spýtur. Slíkt er aldrei hægt. Á þessum fundi voru endan Iega samþykktir leikstaðir fyr ir leiki úrslitakeppninnar. Fyrir íslenzka landsliðið þýð- ir þessi fundur að liðinu er ætlað að leika tvo leiki í röð: þ.e.a.s. 1. marz gegn Ðön um og 2. marz gegn Sviss. Ðönum mæta íslendingar í Karlsruhe (nálægt svissnesku landamærunum) en Svisslend ingum í Wiesbaden. Auk þess að keppa tvö kvöld í röð verð ur liðið að taka á sig nokkurt i S erðalag. Á fundinum í Basel voru úr- elitaleikimir þar.nig ákveðnir og ieikstaðir: I Miðvikudaginn 1. marz. KI. 18, Svíþjóð — Brasilía, Stuttgart. KI. 18, Þýzkaland — Belgía (eða Holland) Berlín. ! KI. 17,30, Tékkóslóvakía — Japan, Karlsruhe. KI. 18,40, Danmörk — fsland, Karlsruhe. Fimmtudagur 2. marz. Kl. 18, Júgóslavía — Brasilía, Bietigheim. Kl. 18 Frakkland — Belgía (eða Holland) Wolfsburg. Kl. 18, Rússland (eða Rúmen ía) — Japan, Hassloch. KI. 18, ísland — Sviss, Wies- baden. Föstudagnr 3. marz. Kl. 18, Júgóslavía — Svíþjóð, Ulm. KI. 18, Frakkland — Þýzka- land, Kiel. Kl. 18, Tékkóslóvakia — Rúss- land (eða Rúmenía), Freiburg. KI. 18, Danmörk — Sviss, Sankt Ingbert. fe, • Setning. Það þykir undrun sæta að tveir leikir (fyrsta daginn) eru settir á sama stað og í sama hús. Orsökin er sú að það rúmar 5— 6000 áhorfendur og þama koma fram Tékkar og Danir tvö af sterkustu liðum heims og í öðr- um leiknum £sl. landsliðið. Og það er reikmað með að húsið verði þéttsetið þetta kvöld. Setning keppninnar verður í „Sportpalast“ í Berlín. Þar lýsir formaður alþjóðasambandsins keppnina setta kl. 17 og ör- skömmu síðar hefjast leikir í Berlín, Stuttgart og Karlsruhe. 99 stjörnurnar“ þar tíl gegn Sviss! Eins og sagt er frá á öðrum stað á síðunni er nú ákveðið að fsland heyi tvo landsleiki í handknattleik 1. og 2. marz n.k. Þetta verður erfið raun og h-' »ur óheppilegt að lands liíl -r skuli fyrst mæta Di,----- en síðan Svisslending um. Þegar Iiðin ganga til leikj- anna 1. til 3. marz er um það keppt í riðlunum hvaða 2 lið (af þremur í hverjum) fari í milliriðla. Keppikeflið fyrir okkar landslið hlýtur því að vera að verða ekki aft ar en í öðru sæti í riðlinum með Dönum og Svisslending- um. Allt bendir til þess af fyrri reynslu, að Danir séu nær ör uggir um 1. sætið. Það er því Sviss sem eru keppinautamir um annað sætið. Raunhæft mat á möguleik- nm ísl. Iiðsins verður >á það að liðið megi ekki sýna Sviss lendingum getu sina í leik fs lands og Danmerkur. Sviss- lendingar munu áreiðanlega verða á áhorfendapöllunum og læra aðferðir og kynnast hæfni okkar manna. ÖU skyn semi virðist því mæla með því — ef keppa á eftir fram- haldi í keppninni — að spara okkar beztu menn gegn Dön um. Að telja þann leik fyrir- fram tapaðan hvort sem er. Okkar stjömur kæmu þá ó- séðar fyrirfram gegn Sviss og það gæti ráðið úrslitum. Að þræla þeim út í tapleik við Dani með Svisslendinga sem áhorfendur virðist ekki skynsamleg leikaðferð. A.St. VERKSMIflJUÚTSALAIil Austurstræti 18 Seljttm í dag og næslu daga fyrir Vz virði. 80 stk. herra RYKFRAKKA nú á kr 490.00 100 — — REGNFRAKKAR ------ 490.00 140 — — RYKFRAKKAR 390.00 50 — — REGNKÁPUR 235.00 100 — — INNISLOPPAR Rayon- 325.00 50 stk. drengja RYKFRAKKAR -- 240.00 100 — telpu POPLÍN-KÁPUR ----- 240 00 75 — kven INNISLOPPAR 100.00 150 — kven INNISLOPPAR 165.00 2000 — Hr. SLIFSI nú aðeins — 25.00 Telpu nærföt — Drengja nærföt Kven nærföt og. fleira og- fleira. Herra nærföt Hér er einstakt tækifæri til jbess oð fá sér íólgóða gæðaflík fyrir gjafverð í kjallaronum hjó Eymundsson fslen zkir handknattleiksmenn þurfa á allri sinni tækni og leikni að halda í átökum vetrarins. -<5>- Stuti — og smútt ★ Enska 3. deildarliðið Hull City vonast eftir því að undir- ri-ta samning við annan bezta markmann Finna Olavi Lefkinen, sem verður í 3 ár í Englandi við nám. i. i , Á: Bobby Morrow hinn heims- frægi bandaríski spretthlaupari sem varð Olympíusigurvegari 1956 hefur nú verið ráðinn sem þjálfari bandarískra spretthlaup- ara. Þar með er hans áhuga- mannsferli lokið. 1 Skók Eftirfarandi staða kom upp í skák þeirra Sven Johannessen og G. Stáhlbergs í annarri um- ferð á: skákmótinu í Stokk- hólmi. „ Stahlberg A B C D E F G 1 • np ABCDE FGH Svein Johannessen 43. d6! Hótar He7 og svartur má ekki drepa á a6 vegna máts á e8. 43. — Kf8 Ef 43. — Rxe5 þá 44. Rxe5f Kf8 eða h8 45. d7 og vinnur. 44. He7! — Dxa6 45. Hxf7f — Kxf7 46. Re5t — Kf6 47. Rg4f — Gefið. Ingi R. Jóh. Hellisheiði ófær SAMKV. upplýsingum Vegamála skrifstofunnar gerði dimma ofan- hríð með skafrenningi á Hellis- heiði um kl. 8 í gærkvöldi. Hálfri stundu síðar var heiðin orðin ófær sroábílum, ~— • 11 Rússar geta mikið Rússar eru með í heims- meistarakeppninni í hand- knattleik. Þeir eru nýliðar í íþróttinni, en taka handknatt leikinn alveg jafn alvarlega og allar aðrar greinar sem þeir taka þátt í á alþjóðavett vangi. En miklar og mislitar sögur hafa farið af þeim í handknattleik — þeir voru óskrifað blað. Þeir eru í und anriðli með Rúmeníu og þessi lið mættust í fyrri leik sín- um í Moskvu á mánudag. Rússarnir komu Rúmenum algerlega á óvart, — og það svo að Rússar höfðu frum- kvæði leiksins frá upphafi til loka. Rússar náðu forystu 2:0, 3:2 og við hlé var 6:5 Rússum í vil. Leikurinn var geysiharð- ur. A-Þýzkur dómari vísaði mörgum af velli og 2 mín. fyrir leikslok dæmdi hann Rússum vítakast fyrir hindr- un Rúmena. Þá komust Rúss ar í 11:9 og á síðustu sekúnd um bættu þeir einu við — 12:9 urðu lokaúrslitin. Leikur Rússanna líkist mjög leik Norðurlandaliða. Það eru 4 menn í vörn á lín unni tveir framar og flest marka sinna skora þeir úr langskotum — geysiföstum. Rússneska liðið hafði verið í æfingabúðum algerlega ein angrað í mánuð áður en leikur inn fór fram. Á sunnudaginn verður seinni leikur landanna í Bukarest — og Rúmenar vonuðust til þess eftir leik- inn að þeim tækist að slgra með meiri mun á heimavelli og tryggja sig til Þýzkalands. 5000 manns sáu lelkinn — troðfullt hús — og æptu af miklum móð yfir rússneska sigrinum. Bandarík j amenu unnu létt í GÆRKVÖLDI fóru fram að Hálogalandi leikir úrvalsliða í körfuknattleik. Mættu íslenzk lið Bandaríkjamönnum af Kefla víkurvelli. ÍR og ÍKF mættu úrvalsliði vallarins. Unnu Bandaríkjamenn með 70:43. Ármann og ÍS mættu öðru liði og töpuðu einnig, 56:35. —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.