Morgunblaðið - 13.01.1961, Side 24
Vikuyfirlit
erl. frétta — Sjá bls. 10.
Stœrsta skip
Norðmanna — Sjá bls, 6.
10. tbl. — Föstudagur 13. janúar 1961
Kálfsmagar
til útflutnings
Á SL. ári flutti SIS út nokk-
urt magn af kálfamögum
(vinstur). Hér í sýslunni
hafði Kaupfélag Eyfirðinga
forgöngu um söfnun mag
anna. Þessi útflutningur var
gerður í tilraunaskyni og
reiknað með að fá 10 kr. fyr-
ir stykkið. En reyndin varð
sú, að 25 kr. voru greiddar
fyrir hvert stykki. Þetta eru
verðmæti, sem ekki hafa
verið nýtt til þessa, a. m. k.
ekki til útflutnings.
ic t ostahleypi
Magarnir eru hertir, en síð-
an bleyttir upp aftur og unnin
úr þeim ostahleypir, en hann er
mjög nauðsynlegur fyrir öll
mjólkurbú. Áður fyrr mun það
hafa þekkzt hér á landi, að
sveitakonur byggju til sinn eig-
in ostahleypi, einmitt úr kálfa-
mögum. Því er þó löngu hætt.
Verð ostahleypis hefur hækk-
að mjög á heimsmarkaðinum á
síðasta ári og af því stafar
þetta góða verð. Það mætti því
Ástríður
prinsessa
frú Ferner
ASKGRS, Noregi, 12. jan.
(Reuter). — Síðdegis í dag
gaf biskupinn af Niðarósi,
Arne Fjellbu, Ástríði prins-
essu og kaupsýslumanninn
Johan Martin Ferner saman í
heilagt hjónaband við mjög há
tíðlega athöfn í hinni 150 ára
gömlu kirkju hér. Þar með
afsalaði prinsessan sér öllum
réttindum sínum sem meðlim
ur konungsfjölskvldunnar —
og er titill hennar framvegis:
Ástríður prinsessa, frú Ferner.
Þegar prinessan hafði sagt
hið ábyrgðarmikla „já“ og
biskupinn hafði lýst þau Fern
er hjón fyrir guði og mönn-
um, yfirgáfu hin nýgiftu hjón
kirkjuna, en fyrir utan var
þeim fagnað af fjölda manns,
sem beðið hafði þar á meðan á
á athöfninni stóð — í allhörðu
frosti og snjókomu. Óku brúð-
hjónin síðan til „Skaugum“,
sveitaseturs Ólafs konungs.
Um 550 tignir gestir voru
kirkjunni, þar á meðal Mar-
grét Rós, prinsessa af Eng-
landi og maður hennar,
Armstrong-Jones Ijósmyndari,
Margarethe, krónprinsessa
Danmerkur, og fleira kónga-
fólk.
fyrir bændum að
um kálfamagana
sem út hefur verið
farið til Danmerk-
brýna það
hirða vel
sína. Þetta,
flutt, hefur
ur. —
I Éyjafjarffarsýslu eru nú
3800 kýr, skv. up ' iingum
írá Ólafi Jónssyni, raðunaut
hér á Akureyri. Má ætla aff
500 kálfar séu látnir lifa og
3300 sé lógaff. Ef 25 kr. fást
fyrir stykkiff ættu bændur í
Eyjafirffi aff fá 82.500 kr., ef
þeir koma kálfamögum sín-
um í verff. — St. E. Sig.
M
Fleiri stangir í Elliðaár
og laxauppeldið aukið
SAMNINGAR milli Reykja-
víkurbæjar og Stangveiði-
félags Reykjavíkur um leigu
Elliðaánna til næstu fimm
ára, eru nú á lokastigi. For-
maður félagsins, Óli J. Óla-
son, sagði í samtali við Mbl.
í gær, að vonir standi til að
næsta vor, þegar stangaveið-
in hefst á ný, verði hægt að
bæta við stöngum á vatna-
svæðum þessarar miklu lax-
ár. —
ÍC Nýju svæffin
í fyrrasumar, þegar Elliða-
árnar voru opnaðar, voru tekin
til reynslu ný veiðisvæði milli
Árbæjarstíflu og stöðvarhúsanna.
Kalla laxveiðimenn þetta svæði
Hraunið. Varð reynsla veiði-
manna góð, og vegna þessarar
stækkunar á veiðisvæðinu, verð-
ur hægt að leyfa laxveiðimönn-
Sátta-
fundir
í GÆR boffaði sáttasemjari til
fundar vegna sjómannadeilunn-
ar. Á fundinum í fyrradag hafffi
veriff skipuð nefnd 3ja manna
frá hvorum deiluaðila til að ann-
ast ákveðna útreikninga. Sú
nefnd lauk störfum í gær og
boffaði þá sáttasemjari til fundar
kl. 5. Stóff fundurinn í tvo tíma,
án þess aff samkomulag næðist.
Næsti fundur er boðaður í dag
kl. 5,30.
um að vera með allt að 4 stang-
ir á dag.
it Uppeldi laxa
Laxauppeldið sem stundað
hefur verið í Elliðaánum áratug-
um saman og nú er undir stjórn
Eriks Mogensen, mun verða auk-
ið og laxaeldisstöðin stækkuð.
Hefur þetta starf borið slíkan ár-
angur að nú ganga sannanlega í
Elliðaárnar ár hvert 5000—6000
laxar. Veiðin í ánum byggist á
því að slíkt laxauppeldi haldi
áfram, enda er Mogensen for-
Fyrsti
viðrœðu
fundur
Dagshrúnar og
vinnuveifenda
F Y R S T I viffræffufundur
Dagsbrúnar og Vinnuveit-
endasambands íslands um
kaup og kjör verkamanna
hefur veriff ákveðinn næst-
komandi mánudag kl. 4 e.h.
Sem kunnugt er lagffi
Dagsbrún fram kröfur á
gamlársdag, sem síffan hafa
veriff í athugun hjá Vinnu-
veitendasambandinu, og hef
ur viðræffufundur nú veriff
ákveffinn, eins og áður er
sagt.
Fékk á siff sjó
í iyrsta róðri
ESKIFIRÐI, 12. jan. — Fyrsti
róðurinn á vertíðinni var farinn
10. þ.m. Það var vélskipið Sel-
ey. Hreppti hún hið versta veð
ur, tapaði svo til allri línunni,
fékk á sig sjó, sem braut inn
■ hurð á beitingaskýli og aflagaði
, ýmislegt annað.
1 Frétzt hefur af bátum á Suður
^fjörðunum, sem róið hafa undan
farna daga, og munu hafa fiskað
mjög vel 7—11% lest í róðri.
Á Eskifirði hafa sjómenn boð
að vinnustöðvun frá 15. þ.m., ef
ekki verður samið.
í fyrrinótt gerði hér SA-veður
með úrhellisrigningu, sem stóð
fram á næstu nótt. Var geysi-
legt vatnsveður, en ekki mun
hafa orðið neitt tjón af þv
Hitaveita
í Hlíðaliverfi
BÆJARRÁÐ RVÍKUR hefur nú
tekið tilboði í framkvæmdir fyr
ir Hitaveitu Reykjavíkur, þriðja
áfangann við lagningu á tvö-
földu hitaveitukerfi í hverfi
þessu.
Tilboð þessi voru frá fyrir-
tækjunum Verklegar fram-
kvæmdir og Véltækni h.f. Er hér
um að ræða lagningu hitaveitu í
Hlíðarnar, norðanverðar, milli
Háteigsvegar og Miklubrautar.
Eru á þessu svæði alls um 90
hús.
Fyrirtækin tvö, sem voru
lægst bjóðendur í þetta verk
eiga að skila því af sér ári eftir
að framkvæmdir hefjast, sem
væntanlega verður á næstunni.
stöðumaður stöðvarinnar mjög
fær maður í starfi sínu.
Á fundi bæjarráðs á þriðjudag-
inn, var lagt fram frumv. að
leigusamningi um árnar og var
það samþykkt. Samkvæmt því
verða Elliðaárnar leiðar Stanga-
veiðifélaginu fyrir 125.000,00 kr.
á ári næstu fimm árin.
Þá verður félagið að kosta
vörzlumenn við árnar. Eru leigu-
kjörin sízt lakari en þau sem
úrvals laxveiðiár hér Suð-Vest-
anlands eru nú leigðar á.
Þá gat Óli J. Ólason þess að
Stangveiðifélag Reykjavíkur
gangi jafnan ríkt eftir því við
félagsmenn sína að þeir sýni í
verki alla umgengni að hætti
góðra veiðimanna.
Ja, hvaff orsakaði þessa bíla-
bendu, sem1 stöffvaði alla um
ferff eftir Laugaveginum
laust eftir hádegi í gær
Myndin er tekin rétt innan
viff Barónsstígshorniff. Þaff
sem gerffist er þetta.-: Fólks
bifreiff var á leiff niffur
Laugaveg og stanzaði viff
Barónsstígshorniff. Næsti
bíll fyrir aftan, sá sem er
á miffri myndinni, dró úr
ferff, og ökumaður traktors-
ins, sem var aff líta aftur
fyrir sig og svipast um eftir
félaga sinum á öffrum trakt-
or, lenti aftan á bílnum og
sneri honum á götunni. öll
umferff stöffvaðist og bif-
reiffastjóri Coca-cola bílsins
reyndi aff leysa vandann
meff því aff smeygja sér
framhjá, en stöffumælir varff
á vegi hans, svo hann komst
ekki lengra. Þetta er tals-
vert flókinn árekstur, en
nær engar skemmdir urffu á
fararætkjunum. — Ljósm.
Sveinn Þormóffsson.
Skreið til Kongó
Hún vinnur gegn sjúkdómi sem herjar þar
í LOK næstu viku mun
Rauði kross íslands senda
eina lest af skreið frá ein-
hverri Miðjarðarhafshöfn til
Kongó, en j>ar er nú mikil
hungursneyð. í fréttastofu-
fregnum er sagt að 300 þús.
manns svelti heilu hungri,
einkum í Kasai-héraði.
Sjúkdómur, sem nefnist Kwas
Kosningu i
Sjómannafélag
inu að Ijúka
KOSNINGU í Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur er að
Ijúka. Aðalfundur félagsins
hefur verið auglýstur nk.
sunnudag á öðrum stað í
blaðinu. Kosið verður í
skrifstofu félagsins í dag kl.
3—22 e.h. og á laugardags-
morgun kl. 10—12. Er kosn-
ingu þá lokið.
Listi lýðræðissinna er A-
listi. Eru sjómenn hvattir til
að greiða atkvæði og nota
þannig kosningarétt sinn.
hiorkor og stafar af eggjahvítu-
skorti, hefur jafnan verið land-
lægur í Kongó og mun belg-
íska stjórnin alltaf hafa notað
skreið til að vinna gegn hon-
um. Þessi sjúkdómur hefur eink
um herjað Baluba-ættkvíslina I
Kasai. í því öngþveiti, sem nú
er í landinu, herjar þessi sjúk-
dómur að sjálfsögðu enn meir
en nokkru sinni á þjóðina. Hafa
Norðmenn þegar gefið 25 lestir
af skreið og sent til Kongó.
Ekki hefur borizt nein hjálp-
arbeiðni til Rauða krossins á
Islandi, að því er Gunnlaugur
Þórðarson, ritari hans, upplýsti
í gær. En ákveðið var fyrir
nokkru að reyna að veita ein-
hverja hjálp. Mun þessi lest af
skreið, sem Rauði krossinn hef-
ur yfir að ráða, vera allt að 25
þús. kr. virði. Verður skreiðin
send til kongóska Rauða kross-
ins í Leopoldville í samráði við
alþjóðlega Rauða krossinn. —
Einnig áformar Rauði krossinn
að efna til söfnunar, svo að
hægt verði að senda meira
magn af skreið til Kongó og er
ávarp þar að lútandi annars
staðar í blaðinu, undirritað af
formanni Rauða kross deildar
Reykjavíkur, sr. Jóni Auðuns.