Morgunblaðið - 19.01.1961, Blaðsíða 10
xo
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. Janúar 1961
■ ■
Vatnsmagn Olfusár
sexfaldaöist
I G Æ R brugðu frétta-
menn Mbl. sér austur í
Ölfus til þess að skoða
flóðasvæðið, en um helg-
ina flæddi Ölfusá yfir gíf-
urlega stórt svæði af Ölf-
usinu og má segja að öll
engjalönd bæjanna frá
Hrauni og upp fyrir Arn-
arbælishverfi, þar með
taldar allar Ölfusforir, séu
undir vatni. — Bæirnir
standa upp úr vatns-
flaumnum eins og vinjar
í eyðimörk.
ölfusáin sjólf minnir á skrið
jökul, þar sem hún er full af
jakaruðningi. Sigurgeir Jó-
hannsson á Núpum, sem þar
hefir dvalizt síðan 1927, segist
aldrei hafa séð jafn mikið
flóð í Ölfusá eins og nú.
Mikið flóð kom í Ölfusá
árið 1942 og drukknuðu þá
nokkrir brezkir hermenn, sem
voru í Kaldaðarnesi, er þeir
FBóðasvæðið
í Olfusi sem
hafsjór yfir
að líta
hugðust íorða séi undan flóð-
inu. Þá beindist flóðið hins
vegar meira austur úr ánni.
Eins og Sogið tífalt
Til þess að gefa nokkra hug
mynd um vatnsmagnið, sem
beljaði fram ölfusá um helg-
ina má geta þess að mæling-
ar voru gerðar á ánni þegar
frostin voru mest fyrir helgina
og reyndist rennslið þá 200
kíiólítrar en á sunnudag-inn
var það kcmið upp í 1200 kíló
lítra og jafngi.’dir það því að
Sogið hefði runnið tífallt að
vatnsmagni út í ölfusá.
Astæðan til þess að vatns-
magnið varð svo mikið nú er
asa hláka síðustu viku, sem
olli því að vatn beljaði ofan
af hálendinu, en þar hafði ver
ið frost lengi undanfarið og
vatn því flotið ofan á. Urkomu
Hgerði svo í sl. viku samfara
hlýindum og var þá sem flóð-
bylgja skylli samfara hlý-
indunum.
Ruddi sig í stórstraumsflóði
Orsök hinna miklu flóða í
ölfusinu er að mestu sökum
þess að áin ruddi sig í vest-
iægri átt samfara stórstraums
flóði, en sjávarfalla gætir
langt upp í ölfusá, allt upp á
móts við Amarbæli og Kald-
aðarnes. Myndast þá lygna þar
efra og íshrannirnar, sem áin
brýtur af sér, safnast þar fyr-
ir og stífla ána. Þegar vatns-
magnið eykst svo skyndilega
hefir það ekkert annað fram-
rennsli en um Olfusengjar og
Kaldaðanesengjar. Ain er
þarna grunn orðin af miklum
framburði og það svo að á
sumi'um geta flóð komið upp
á engjarnar þótt aðeins komi
skyndilega rigning. Eru þess
dæmi á Núpum að þar hafa
300 hestar af heyi flætt burt
úr engjaslægjum,
Flóðsins mun hafa gætt
einna mest í Arnarbælishverfi
og voru þar 6 bæir umflotmr
svo að ófært var þaðan nema
á bátum. Unnu bændur þar
að mjólkurflutningum á bát-
um í gær og fyrradag. 1 gær
var flóðið nokkuð tekið að
sjatna. Töldu bændur í Arnar-
bælishverfi að þar hefði það
lækkað um einn metra síðan
það stóð hæst um hádegi á
mánudaginn.
Man ekki svo mikil flóð
Fréttamenn ræddu við frú
Markúsínu Jónsdóttur á Egiis
stöðum, en maður hennar
Guðmundur Steindórsson var
ekki heima. Flóðsins gætti
þar einna mest og var
túnið allt umflotið, og mun-
aði minnstu að ekki
væri fært nema á háum stíg-
vélum milli bæjar og fjárhúsa.
Frú Markúsína sagðist ekki
muna annað eins flóð og sér-
staklega hefði jakaburðurinn
nú verið miklum mun meiri
en nokkru sinni áður. Vegur-
inn írá Auðsholtshjáleigu og
yfir í Arnarbælishverfið er
aliur undir vatni og er vist
að hann hefir stórlega
skemmst, því mikill straum-
ur beljar yfir hann. Stórir
jakar hafa og strandað á veg-
inum nú þegar flóðið er í
rénun og þarf jarðýtu til þess
að ryðja þeim- af veginum og
jafna í skörðin sem flóðið hef-
ir gert í hann.
Ekkert tjón á gripum
EkKert tjón varð á gr'.puro,
enda allar skepnur á húsi.
Ekkj hefir flóðið að ráði náð
upp á túnin, en allar engjar
eru undir vatni. Flóðgarðar
og áveitugarðar hafa og
skemmzt, einnig girðingar,
sem sópazt hafa burt á stór-
um köflum. Þótt ísinn sé ekki
mjög þykkur, þetta um 15 sm.,
hefir hann eigi að síður vald-
ið miklum skemmdum. Að
minnsta kosti 6 símastaurar
hafa brotnað og einn rafmagns
staur og aðrir skekkzt. Raf-
magnslaust var enn í gær á
tveimur bæjum í Arnarbsélis-
hverfi, Króki og Osgerði.
Símasambandslaust var á ein-
um bæ. Verið var að vinna að
viðgerðum þar eystra, en gekk
ekki vel þar sem flóðið er enn
svo mikið. Urðu viðgerðar-
menn að fara á milli í bátum.
Þegar flóðið fer að sjatna er f
ekki hægt að fara lengur á
bátum á milli og raunar ekki
heldur eftir veginum fyrr en
eftir nokkurn tíma. Ef frystir
hægt í flóðið eins og það er nú
verður algerlega óært milli
bæja þar til heldur ís er kom-
inn.
Börnin í Arnarbælishveríi
komast ekki í skóla þessa dag-
ana.
Tjón á engjavegum
Þá ræddu fréttamenn einnig
við Engilbert Hannesson á
Ðakka í Hjallasókn. Hann
sagði að verulegt tjón mundi
hafa orðið á engjavegum en
þeir eru víða langir þar um
slóðir. Erfitt er um ofaníburð
í vegina, en hætt er við að
mikið af honum skolist nú í
burt. A engjavegi Bakka var
í frostinu um daginn ekið •
ofaníburði, en hann mun nú
allur renna burtu, þar sem
straumurinn stendur þvert á
veginn. A Bakka nær flóðið
upp undir bæ, er um 30 metra
frá húsinu. Hinsvegar er bær-
inn ekki umflotinn. Víða er
giringarstaurum kippt upp á
haustin til þess að þeir ekki
brotni í vetrarflóðum, annars
mundu þeir kubbast við freð-
inn svörðinn. <
'
Talsverður engjaheyskapur
Þótt engjaheyskapur fari
mjög minnkandi er hann tals-
vert stundaður enn á starengj ,
unum í ölfusi, sem víða eru
véltækar. Ovenju mikið var
um engjaslátt í sumar í hinni
góðu tíð. Núpabændur áttu
uppsett hey á engjum sínum
og flaut vatnið alveg upp að
þeim, en Sigurgeir Jóhanns-
son sagðist vona að ekki hefði
drepið inn í sjálf heyin, hins
vegar hefði ekki verið hægt
að komast að þeim enn til þess
að kanna það. A Núpaengjum
náði flóðið hámarki á þriðju-
daginn.
★
Það var tekið að bregða
birtu er fréttamenn Mbl.
héldu á brott af hinu mikla
flóðasvæði, sem var til að sjá
sem hafsjór. Bændur þar
eystra telja að ekki sé hægt
að gera neitt til varnar þess-
um flóðum. Vetrarflóðin
valda minna tjóni en sumar-
flóð, þótt jafnan séu hin síð-
arneíndu minni.
' Ileimreiðin að Kaldaðane’si vár ófær bifreiðum í gær. — Hér sést bíll, sem snúið hefur frá
vegna flóðsins.
:
Þesái mynfl er tekin á niánuaafirtn, er flóðin vorU sem mest. Eru bændur á Egilsstöðum að
setja varning út í bát, sem er nú eina samgöngutækið úr Arnabælishverfi. Bærinn Auðsholt
sést handan flóðsins. Þessa mynd tók Ágúst Elíasson, en hinar myndirnar tók vig. í gær.