Morgunblaðið - 19.01.1961, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 19. Janúar 1961
MORGUNBLAÐ1Ð
23
Vinstrimenn sækja
á í Laos-bardögum
yientiane, 18. jan. — (Reuter)
VINSTRISINNAR í Laos
náðu í nótt á vald sitt mikil-
vægum vegamótum á leið-
inni milli tveggja aðalborga
Laos, Vientiane og Luang
Prabang. Hafa bardagar um
þessi vegamót staðið síðustu
tíu daga. Hafa þeir stundum
verið harðir návígisbardag-
ar. Hefur ríkisstjórn hægri-
manna í landinu viðurkennt
að hún hafi beðið ósigur í
þessum bardögum. Mun að-
staða vinstrimanna styrkjast
verulega við þetta á Leir-
kerasléttunni.
FLUGVÉL TAPAST
í>á tilkynnir stjóm hægri
imanna, að hún hafi misst eina
af fjórum æfingaþotum, sem
hún átti og hafði útbúið eld-
flaugaskeytum til árása á vinstri
menn. Ekki er Ijóst, hvernig
flugvélin fórst, hvort hún var
skotin niður eða bilun varð í
henni.
Kong Lee, foringi vinstriherj-
anna heldur því fram, að loft-
árásir þessar valdi sáralitlu
tjóni á herjum hans, en hins-
vegar miklu tjóni á eignum og
lífi almennra íbúa landsins. —
Hefur Kong hótað að leita að-
stoðar „vinveittra ríkja“, ef
stjómin heldur áfram þessum
loftárásum með flugvélum, sem
Bandaríkjastjóm hefur útvegað
henni.
OFUREFLI KOMMÚNISTA
Ástralskur blaðamaður fékk
nýlega að fljúga með birgða-
flugvél stjómarliða til Xieng-
Khouang-héraðs í austurhluta
Laos. Hann hefur það eftir liðs
foringjum stjómarsinna, að
vinstrisinnar hafi 12 þúsund
manna lið í þessu héraði, en
stjórnin hafi þar aðeins um 2000
manna lið. Er því hætt við að
stjómarliðið verði skjótlega bor
ið ofurliði, ef í odda skerst. —
Herlið vinstrimanna er búið öfl-
ugum og nýtýzku sprengjuvörp-
um frá Rússum. Herforingjar
stjórnarinnar halda því statt og
stöðugt fram að vinstrimenn
fái gnægð vopna frá kommún-
istaríkinu Viet-nam. Hermenn
þeirra hafi og fengið þjálfun
þar og einnig séu menn frá
Norður-Vietnam í her vinstri-
ÆTTFLOKKAR VOPNAÐIR
Til þess að mæta þessari
hættu hefur stjórn hægrimanna
í Vientiane ákveðið að búa her-
skáa ættflokka í hæðum Mið-
Laos vopnum. Ættflokkar þess-
ir hafa byssur, en þá hefur
mjög skort skotfæri. Flugvélar
stjómarinnar eru byrjaðar að
varpa skotfærum til þeirra og
vonast menn þar til, að skæru-
liðahernaður þessara ættflokka
megni að hindra framsókn Pat-
het Lao, liðs kommúnista.
Nehrn og
Eisenhower
um Laos
London, 18. jan.
TVEIR frægir menn viku að'
LAOS-málunum í dag á sittl
hvorum blaðamannafundin- {
um. Eisenhower í Washington
og Nehru í Nýju Delhi.
Eisenhower sagði, að Banda
ríkin væru fús til að kalla
saman Laos-eftirlitsnefndina
ef Rússar vildu viðurkenna
ríkisstjórn Boun Oums í land-
inu. Eisenhower sagði að
Bandaríkin hefðu ekki talið á-
stæðu tii að fallast á tillögu
Kambodja um 14-velda ráð-
stefnu, af því að hún hefði
verið óraunhæf.
Nehru sagði á sinum fundi
með blaðamönnum, að Inda
land sem á formann Laos-
nefndarinnar, gæti ekkert að-
hafst til að kalla nefndina
saman, nema samkomulag
væri um það milli Rússa og
Breta, sem báðir eiga aðild að
málinu. En Bretar einir hafa
lýst sig fylgjandi því að nefnd
in komi saman.
Skákmótið i Hollandi:
Friðrik aftarlega
SUS-siða
Frh. af bls. 14
pressu utanríkisstefna Banda-
ríkjanna þróttmikil og hug-
myndarík. A valdatíma Eisen-
howers hefur ekki þumlimgur
lands fallið í hendur kommún-
istum. Forsetinn hefur notið að-
dáunar fyrir virðulega fram-
komu og trausta forystu. Hann
hefur ekki tekið þátt í stór-
yrðum, formælingum og fífls-
hætti Krúsjeffs. Afleiðingin er
sú ,að hann er stimplaður sem
„athafnalítill“ forseti í heims-
pressunni. „Athafnamikill“ for-
seti mxmdi þá væntanlega vera
sá, sem gæfi nógu mikið eftir
og tæki þátt í leikaraskap hins
rússneska einræðisherra, fyrir
augum alls heimsins.
Hin frjálsa pressa hefur þann-
Ig fyrir sitt leyti stuðlað að
því að rífa niður álit forystu-
ríkis hins frjálsa heim og þann
Ig stutt kommúnismann í kalda
Btríðinu.
Blöðin verða að gera sér þess
_skýra grein, að þau eru of mik-
ilvægur þáttur í því að skapa
almenningsálitið í vestrænum
ríkjum, til þess að þau megi
haga sér svo sem hér hefur
verið lýst. Baráttan sem nú er
háð, er háð upp á líf og dauða.
'Allir verða að gera skyldu sína.
Pressan verður að sýna meiri
ábyrgðartilfinningu og gera sér
hetur grein fyrir mikilvægi sínu
í þessari baráttu en hún hef-
ur gert. X.
BEVERWIJK, 18. jan. — I dag
var 6. umferð tefld og urðu úr-
slit, sem hér segir: Biðskák
varð hjá Friðrik Ólafssyni og
Ivkov og einnig hjá Larsen og
Griinfeld, Barendregt og van
der Berg gerðu jafntefli, Uhl-
mann vann Gereben, biðskák
hjá Donner og van Scheltinga.
Beverwijk, 17. jan. — Hér
koma nú úrslit eftir 5 umferðir
í skákmótinu, bæði í stórmeist-
araflokknum og meistara. — í
þeim fyrrnefnda fóru leikar
svo:
1. umferð: Larsen vann Frið-
rik Ólafsson, Uhlamann (V-
Þýzkal.) vann Barendregt (Hol-
land), Griinfeld (Austurr.) vann
Donner (Holl.), van Scheltinga
(Holl.) og van Den Berg (Holl.)
jafntefli, Ivkov (Júgósl.) vann
Gereben (fsrael).
2. umferð: Larsen vann Iv-
kov, van Den Berg vann Gere-
ben, Gruenfeld og van Schelt-
inga jafntefli, Donner vann
Barendregt, Friðrik og Uhl-
mann jafntefli.
3. umferð: Larsen vann Uhl-
mann, Friðrik vann Donner,
van Scheltinga og Barendregt
jafntefli, Gereben og Gruenfeld
jafntefli, Ivkov vann van Den
Berg.
4. umferð: Skák Larsens og
van Den Berg fór í bið, Ivkov
vann Grúnfeld, Barendregt og
Gereben jafntefli, Friðrik og
van Scheltinga jafntefli, Uhl-
mann og Donner jafntefli.
5. umferð: Larsen vann Donn-
er, Uhlmann vann van Schelt-
inga, Gereben vann Friðrik, Iv-
kov vann Barendregt, jafntefli
hjá van Den Berg og Gruen-
feld.
Nú er staðan þessi: Larsen 4
vinninga og eina biðskák, Ivkov
4, Uhlmann 3, Gruenfeld 2Vz,
van Den Berg 2 og eina bið-
skák. Númer 6, 7 og 8 eru van
Scheltinga, Gereben og Friðrik
með 2 vinninga hver. Níundi er
Donner með IV2 og Barendregt
hefur 1 vinning.
— Morðbréfin
Framh. af bls. 3
Gizur Bergsteinsson, eftir því í
gærkvöldi, hvenær vænta mætti
úrskurðar réttarins í málinu.
Hann kvað ekki hægt um það
að segja, nema vafasamt væri
að það yrði fyrir helgi.
• Margir áheyrendur
Aheyrendapallar Hæstaréttar
voru alþéttsetnir lengst af með-
an málflutningurinn stóð yfir í
gær. Margir lögregluþjónar, óein-
kennisklæddir, svo og laganem-
ar voru meðal viðstaddra.
Þorskurinn
úr Frey
VEGNA frásagnar Mbl. í gær af
afla þeim sem togarinn Freyr
landaði úr síðustu veiðiför sinni
á Grænlandsmið, hefur ísbjörn-
inn hf. beðið Mbl. að leiðrétta
missögn í þeirri grein varðandi
fiskinn. Sagt var að hann hefði
verið „frekar magur“. Þetta er
alrangt. Þegar frystihús fyrirtæk
isins fékk þennan þorsk til
vinnslu, var það í fyrsta skipti,
sem því er leyft 'að hraðfrysta
Grænlands-þorsk. Nýting hans
varð meiri og betri en úr nokkr-
um öðrum fiski sc|ni unnið hefur
verið úr í frystihúsinu á þess-
um vetri. Auk þess sem ^ieðferð
hans öll í togaranum var til fyr-
irmyndar, Sem og góð nýting
hans gefur til kynna.
— Fangelsi
Frh. af bls. 1
Pastemaks. Hefur hún nú
verið dæmd í 8 ára fangelsi.
Dóttir hennar hefur hlotið 3
ára fangelsi. Ekkert er vitað
með vissu um þær sakargift-
ir, sem eiga að valda dómi
þessum.
★
Brezka blaðið Daily Tele-
graph skýrir frá þessu í dag
og getur þess að frú Ivin-
skaya hafi verið ein af fá-
um, sem þorðu að taka
hanzkann upp fyrir Paster-
nak, er hann sætti mestum
ofsóknum og reynt að vernda
hann gegn þeim. Blaðið seg-
ir, að hún hafi verið illa
leikin í fangelsinu og segist
ekki skilja þessa framkomu
rússneskra yfirvalda. — Hér
virðist aðeins ráða einhver
óskýranleg hefnigirni og
kvalaralöngun.
- Alsír
Framh. af bls. 1
Alsír. Dregið hafi úr hernaðar-
aðgerðum í ýmsum héruðum og
kveðst stjórnin vona, að það viti
á gott.
Einnig er á það bent í tilkynn-
ingunni að svo virðist sem ábyrgð
artilfinning fari vaxandi í sam-
búð þeirra þjóða sem byggja
Alsír.
En auk þess sem segir í
má bæta við að öruggar heim-
hinni opinberu tilkynningu
ildir berma að komið hafi ver-
ið á fót leynilegu stjórnmála-
sambandi milli frönsku stjórn
arinnar og útlagastjórnar
Serkja og sé ætlunin að undir
búa gerð friðarsamninga.
MAUDUNSARUPPBOD
sem fram á,tti að fara á Norðurhlíð við Sundlauga-
veg, hér í bænum, eign Jákobs Jakobssonar, fellur
niður.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Skaftaframtöl
Tökum að okkur að telja fram. Viðtalstími kl. 10—5
og á kvöldin eftir samkomulagi.
Lögfræðistofa STEINS JÓNSSONAR, hdl,
Kirkjuhvoli símar 19090 — 14951 og 17739.
Námskeið í föndri
hefjast í næstu viku. INNRITUN er í kvöld og
annað kvöld kl. 7—9 að Fríkirkjuvegi 11 (bakhúsi).
Þátttökugjald er kr. 25.00.
TÓMSTUNDAHEIMILI UNGTEMPLARA.
Reykjavík.
IðnaÖar eða
geymsluhúsnœði
til leigu nú þegar við Laugaveginn.
Upplýsingar í síma 24323.
Húirvetrtingar 1 Reykjavík
Fjölmennum í Lido í kvöld kl. 20,30.
Félagsvist, skemmtiatriði^ bögglauppboð, dans.
Húnvetningafélagið Reykjavík.
Innilegt þakklæti flyt ég öllum þeim sem minntust
mín á 75 ára afmælisdegi mínum hinn 6. janúar s.l.
Reinhold Richter
Móðir okkar
ÞÓRA KJARTANSDÖTTIR
frá Súlúholtshjáileigu,
andaðist 17. þessa mánaðar í Landakotsspítala.
Börnin.
Jarðarför föður okkar
EGILS G. THORARENSEN
Kaupfélagsstjóra Selfossi, '
sem lézt í Landspítalanum í Reykjavík 15. þ.m. fer fram
laugardaginn 21. janúar. — Minningarathöfn frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík sama dag kl. 10 fyrir hádegi —
Jarðsett verður í Laugardælum og hefst athöfnin í Sel-
fosskirkju kl. 1 eftir hádegi. — Athöfninni í Dómkirkj-
unni verður útvarpað. — Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Þeim, sem vilja minnast hins látna er bent á líknar-
stofnanir.
Börnin
Útför móður okkar
ÞJÓÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR
Hrauni Kringlumýrarveg,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. jan. kL
1,30 e.h.
Guðm. Sigurþórsson, Jón Sigurþórsson.
Innilegar þakkir færum við þeim er sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát
SIGRlÐAR HELGADÓTTUR
Fájkagötu 27.
Sigvaidi Árnason, Helgi B. Magnússon,
Asgeir Magnússon, Gerður Magnúsdóttir,
Tómas Gíslason og barnabörn.