Morgunblaðið - 19.01.1961, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.01.1961, Qupperneq 12
12 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. janúar 196f Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. mkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Joháhnessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. HAGKVÆMARI UT ANRÍKISVIÐSKIPTI IjORVARÐUR J. Júlíusson,^ framkvæmdastjóri Verzl unarráðs fslands, ritar grein í Morgunblaðið í gær um utanríkisviðskipti 1960. Kem- ur þar fram sem raunar allir vissu, að grundvallarbreyt- ing hefur orðið til hins betra á árinu. Að vísu fæst ekki fullkom- in mynd af því hvers ávinn- ings íslendingar njóta af við- reisnarráðstöfununum með því að bera saman allt árið 1960 við fyrri ár, vegna þess að áhrifa viðreisnarinnar fór ekki að gæta fyrr en nokkuð var komið fram á árið. Samt sem áður er niðurstaðan sú að greiðslujöfnuðurinn 1960 er 315 milljónum króna hag- stæðari en 1959, ef ekki er meðtalinn innflutningur skipa og flugvéla, sem var óeðlilega mikill á síðasta ári. Greinarhöfundur ræðir einnig um jafnvægi á láns- fjármarkaði innanlands og bendir á að útlánaaukning hafi verið 166 nijllj. kr. minni sl. ár en ário á und- an. Jafnframt hafi spari- fjárinnlög aukizt frá apríl- lokum til áramóta um 202 millj. kr. í stað 157 milljóna árið á undan. Þorvarður J. Júlíusson tel- ur, að þróunin í fjárhags- og viðskiptamálum þjóðarinnar hafi mjög stefnt í rétta átt á síðasta ári, þrátt fyrir ó- vænt óhöpp, vegna aflabrests og verðfalls. — Hann lýkur grein sinni á þessum orðum: ■ „Ef kaupgjald helzt stöð- ugt mun grundvöllur sá, sem lagður hefur verið að ör- uggri atvinnu, vaxandi fram leiðslu og bættum lífskjörum treystast og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar efl- ast.“ Áður hefur hann bent á að gjaldeyristekjurnar verða að vera a.m.k. 300 millj. kr. umfram almenna gjaldeyris- notkun, ef takast eigi að greiða umsamdar afborganir af föstum lánum. Telurhann því augljóst, að ekkert megi út af bregða og ekki megi gera ráð fyrir aukinni eyðslu landsmanna á næstunni, ef takaát eigi að treysta efna- hagslegt . sjálfstæði þjóðar- innar. ÞÓRARINK FLYT- UR GOTT MÁL IjÓRARINN þingmaður ..rarinsson, Framsóknar- flokksins og ritstióri Tím- ans, hefur flutt a Alþingi frumvarp til laga um að af- nema einkarétt Ferðaskrif- stofu ríkisins til að reka ferðaskrifstofu fyrir erlenda menn. Þennan rétt hefur Ferðaskrifstofan haft í 25 ár og telur flutningsmaður að hann hafi verið miðaður við allt aðrar aðstæður en þær nú eru. Svipaðar tillögur hafa Sjálfstæðismenn áður flutt á Alþingi en þær ekki náð fram að ganga. En fagna ber því að frumvarp um þetta efni skuli enn koma fram,1 því að enginn efi er á því að það stefnir í rétta átt og við getum haft meiri tekjur af ferðamönnum, ef fleiri aðil- um er gert kleift að reka þennan atvinnurekstur í frjálsri samkeppni, eins og erlendis tíðkast. SAMSTARFS- NEFNDIR ll|ORGUNBLAÐIÐ hefur margbent á, að leiðin til að afla raunverulegra kjara- bóta hérlendis væri sú, að launþegar og vinnuveitendur kæmu sér saman um skipun samstarfsnefnda í atvinnu- fyrirtækjunum, sem rann- sökuðu á hvern hfátt væri hægt að koma fyrir betri vinnuhagræðingu, gerði rannsókn á því hvort tekjur fyrirtækjanna þyrftu að skerðast við það að viku- launafyrirkomulag yrði upp tekið, athuguðu hvort ekki kynni víða að vera hægt að hækka nokkuð dagvinnu- kaup gegn því að lækka yfirvinnu- og næturvinnu- álag o.s.frv. Gegn slíku fyrirkomulagi berjast kommúnistar vegna þess að þeir vita að það mundi leiða til kjarabóta án verkfalla en þeir vilja um- fram allt verkföll án kjara- bóta. Hagfræðingur Alþýðusam- bands íslands hefur hins veg ar lýst því yfir, að hann telji að launþegar þurfi að fara nýjar leiðir til að afla sér kjarabóta og í sama streng tók norski hagfræðingurinn, Dragland, sem hér var á veg- um launþegasamtakanna. — Engum dettur þó til hugar að þessir menn beri ekki hag launþega fyrir brjósti, er þeir eru að störfum fyrir þá. En leiðtogar kommúnista í verkalýðshreyfingunni forð ast að fara eftir þessum ábendingum. E F þjóðaratkvæðagreið an, sem de Gaulle Frak landsforseti gekkst fyrii Alsír og í heimalandino byrjun mánaðarins hei snúizt upp í ósigur fyi hann (en stefna hans hla mikið meirihlutafylgi, st kunnugt er af fréttun og hann hefði gert alvö úr þeirri hótun sinni segja af sér embætti þe ar í stað, þá hefði það öllum líkindum vei blökkumaður, sem nú sa á forsetastóli í Frak landi. — Fáir, jafnvel Frakklandi sjálfu, höf leitt hugann að þessr möguleika fyrir atkvæ? greiðsluna — en nú, ef sigur de Gaulles, hafa menn tekið að ræða nokk- Gaston Monnerville, forseti öldungadeildar franska þingsins. — Myndin er tekin fyrir framan Elyséehöllin í París, og er Monnerville að ræða við fréttamenn . . . sem gæti orðið forseti Frakklands uð, hvernig farið hefði, ef meirihluti kjósenda hefði vísað Alsírstefnu for setans á bug. ★ Samkvæmt stjórnarskrá fimmta lýðveldisins, skal for- seti öldungadeildar þingsins taka við sem æðsti maður ríkis ins, ef forsetinn segir af sér eða fellur frá. — Forseti öld- ungadeildarinnar er nú (og hefir raunar verið um langt skeið) Gaston Monnerville, 64 ára gamall blökkumaður, upp runninn í Franska Guyana í Suður-Amerík-u, en fæðingar- bær hans var Cayenne. Monn- erville mun þó ekki vera hreinræktaður negri, a. m. k. hefir hann hörundslit sem múl atti. • MIKILL FRAMI Monnerville á allmerkan stjórnmálaferil, og hefir veg- ur hans stöðugt farið vaxandi. A dögum fjórða lýðveldisins var hann kjörinn forseti lýð- veldisráðsins (sem þá var nafnið á öldungadeildinni), og gegndi hann þeirri stöðu frá 1947 til 1958. — Eftir valda- töku de Gaulles og stofnun fimmta lýðveldisins, en Monn- erville reyndist drjúgur samn inga- og sættarmaður, meðan á þeim atburðum stóð — var hann endurkjörinn forseti öld ungadeildarinnar, og varð þar með annar æðsti maður lands- ins, samkvæmt hinni nýju stjórnarskrá. Þannig stendur hann sem raunverulegur vara forseti, ofar forsætisráðherr- anum, þótt ekki sé hann veru- legur valdamaður í stöðu sinni. • „FYRIRRENNARINN" André Trocquer — sem taldist næstæðsti maður landsins og sá, er taka skyldi við af for- setanum, ef hann léti af em- Forseti ölungadeildar franska þingsins, Gast on Monnerville, e»r annar mesti virðingar- maður Frakklands. Hann er blökkumaður, fæddur í S.-Ameríku. bætti eða félli frá. — Það var líka svo, að Trocquer taldist í hópi þeirra, sem harðast börð ust gegn hinni nýju stjórnar- skrá — og upphefð negrans Monnervilles. , Trocquer, sem hefði getað orðið forseti Frakklands á dögum fjórða lýðveldisins, ef fyrrgreindar aðstæður hefðu skapazt, hefir hlotið harla dapurleg örlög á gamals aldri. — Fyrir um það bil tveim ár- um var nafn hans þanið yfir síður blaða víða um heim sem aðalpersónunnar í hinu víð- tæka og mikla hneykslismáli, sem gekk undir nafninu „Ijós rauðu ballettarnir". Málsókn á hendur Trocquer í þessu sam bandi var reyndar látin niður falla — en ástæðan mun ein- ungis thafa verið aldur hans, ekki það, að hann væri talinn sýkn saka.... • NÝTUR TRAUSTS Alit Gaston Monnervilles 1 fjórða lýðveldinu var það hefur aftur á móti farið sívax forseti þjóðþingsins — þá andi á undanförnum árum. Hann nýtur óskoraðs trausts, jafnt andstæðinga sem fylgis- manna í stjórnmálum — og er kunnur að því að geta átt samstarf við hvern sem er og borið sáttarorð milli andstæð- inga. Og hann er einn þeirra fáu, sem de Gaulle raunveru- lega virðir og metur mikils — af þeim, sem eru jafnnátengd- ir þingræðisskipulaginu í land inu og Monnerville vissulega er. Sambúð hvítra og svartra er enn í dag mikið og illt vanda- mál víða um heim, svo- sem óþarft er að rekja frekar. A slíkum tíma getur staða blökkumannsins Monnervilles sem annars mesta virðingar- manns meðal 45 milljóna manna þjóðar í einu mesta menningarríki hins vestræna heims vissulega orðið mönn- um nokkurt umhugsunar- efni .... (Lausl. þýtt.) Dregið úr útgjöldum KAUPMANNAHÖFN: — Dönsk blöð segja, að forsetaráð danska þjóðþingsins hafi ákveðið að draga verulega úr kostnaði í sambandi við fund Norðurlanda^ ráðsins, sem haldinn verður f Kaupmannahöfn 18.—25. febrú« ar. Hefur það sætt talsverðri gagnrýni á undaníörnum árum, hve mikið hefur verið um veizlu höld í sambandi við fundi Norð- urlandaráðsins. Hefur forsetaráð. þjóðþingsins fallizt á þetta. Það hefur verið ákveðið a'ð fella niður miðdagsverðinn, sem þingið hefur að jafnaði boðið fulltrúum No|rðurlandariáðs til. 1 stað þess verður aðeins lítið „pulsugildi“ f Kristjánsborgiar- höll þann 21. febrúar. Eina veizl an, sem Danir munu efna til að þessu sinni verður miðdagsverð- ur ríkisstjórnarinnar og því næst verður fulltrúunum boðið öllum með tölu að sjá Macbeth í kon- unglega leikhúsinu. Blökkumaðurinn,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.