Morgunblaðið - 19.01.1961, Side 17
Fimmtudagur 19. janúar 1961
MORGUNBLAÐIÐ
17
ísleifur Guðmimdsson yfir-
fiskimatsmaður — Minning
1 DAG fer fram, hér í Dómkirkj-
unni, útför Isleifs Guðmundsson-
ar fiskimatsmanns frá Hafnar-
firði, sem lézt 11. þ. m. vegna
aneiðsla, er hann hlaut þegar
ekið var á hann gangandi á þjóð
veginum milli Hafnarfjarðar og
Silfurtúns í hálfrökkrinu 6. jan.
s.l. Daginn áður en það skeði,
5. janúar, hafði Isleifur náð 76
ára aldri.
Þetta fyrsta banaslys hins ný-
byrjaða árs er okkur öllum sorg-
leg og hræðileg viðvörun og
áminning um það, hve hætturn-
ar eru ætíð nálægar og hversu
erfitt það oft er að umflýja þær,
jafnvel þó að um svo sérstak-
lega athugula menn sé að ræða
sém Isleifur heitinn var.
Þannig lauk athafnasamri ævi
þessa ágæta fulltrúa íslenzkrar
sjómannastéttar, sem fyrir löngu
'hafði brýnt báti sínum í naust.
1 áratugi hafði hann glímt við
hvítfextar öldur hafsins á stór-
um skipum og smáum, þolað
erfiði, voshúð og storma, hættur
og harðrétti, en ávallt sloppið frá
því óskemmdur, reynslunni rík-
ari, í hljóðri þökk við máttar-
völdin fyrir handleiðsluna. En
nú, á beinni og breiðri braut-
inni skammt frá heimili hans,
sem tengir saman Reykjavík og
Hafnarfjörð, beið hans skapa-
dómur.
1 mörg undanfarin ár höfum
við Isleifur setið saman í stjórn
Sjómannadagsráðs Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar, þessum sam-
tökum, þar sem allar starfsgrein
ar sjómannastéttarinnar hafa
unnið saman að áhugamálum sín-
um án tillits til stjórnmálaágrein
ings og fengið komið í verk
merkilegum verkefnum, er ann-
ars hefði vart verið vinnandi veg
ur að framkvæma. Isleifur var
alla tíð fulltrúi Skipstjóra og
stýrimannafélagsins Kára, Hafn-
arfirði. I þessum samtökum hef-
ur hann ætíð verið hin traust-
asta stoð. Ahugi hans og löngun
til að vinna þessum málefnum
sem mest gagn hefur verið hvatn
ing og styrkur fyrir okkur hina.
Isleifur hafði mikinn áhuga á
að efla íþróttir Sjómannadags-
ins, sérstaklega kappróðurinn, og
var hann lífið og sálin við að fá
sem flesta til að taka þátt í þeim.
1 tvísýnnÞ keppni komst enginn
hjá að veita því athygli, hversu
brennandi áhuga hann hafði á
þessum málum. Þá var bygging
Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna honum mikið hjartans
mál, enda átti hann sæti í bygg-
ingastjórninni. Hann var farinn
að tala um að sjálfur hefði hann
éhuga á að fá inni í nýju álm-
unni, sem nú er verið að byggja,
en ekki var hann enn búinn að
ákveða sig, hvort hann settist í
helgan stein og segði að fullu
skilið við fiskimatið, og þannig
er það enn með svo marga sjó-
menn á hans aldri, að þeir eiga
bágt með að skilja sig frá vinn-
unni meðan þeir geta vinnu hald-
ið. Þess vegna er það Sjómanna-
dagsráði kappsmál að skapa á
Hrafnistu atvinnuskilyrði við
hæfi aldraðra sjómanna.
Eg hef sjaldan kynnzt manni,
eem betra er að vinna með að
góðum málefnum, en Isleifi heitn
um og fyrir það vil ég flytja hon
um beztu þakkir mínar og okkar
allra, sem með honum störfuð-
um í Sjómannadagsráði. Við mun
um ávallt minnast hans sem hins
trausta og góða félaga, er ávallt
var reiðubúinn til starfa og
aldrei brást. Þess vegna söknum
við hans innilega. Sem örlítinn
þakkarvott Sjómannasamtak-
anna var Isleifur sæmdur heiðurs
merki Sjómannadagsins á 75 ára
afmæli sínu.
Eg er ekki það vel kunnugur
yngri árum Isleifs, að ég geti mik
ið um þau skrifað. Hann mun
hafa byrjað sjómennsku mjög
ungur eins og títt var í þá daga,
og hefur mér verið tjáð að hann
hafi byrjað sjómennsku sína á
kútter Haraldi, þar sem kátir
voru karlar. A togurum mun
hann lengstum hafa verið með
Tryggva Oíeigssyni, skipstjóra
og síðar útgerðarmanni. Hjá hon
um var hann lestarstjóri, eða
saltari eins og kallað er, en það
er eitt ábyrgðarmesta starfið um
borð, að vernda það, sem aflað
er með miklum tilkostnaði og
fyrirhöfn.
Eftir að Isleifur kom í land,
gerðist hann vel metinn fiski-
matsmaður í Hafnarfirði, starf
sem hann stundaði af kostgæfni
fram á síðasta dag.
Isleifur Guðmundsson var
fæddur þann 5. janúar 1884
að Meiðastöðum í Garði. Kvænt-
ur var hann Björgu Gísladóttur
frá Bakka í Reykjavík, ágætis-
konu, er hann missti fyrir nokkr-
um árum og saknaði mikið. Þau
áttu eina dóttur, Jórunni, ekkju
Gunnars E. Benediktssonar hrl.
Fyrir hönd Sjómannsamtak-
anna sendi ég henni og börnum
hennar innilegustu samúðar-
kveðjur.
-er- Henry A. Hálfdánarson.
t
ísleifur Guðmundsson, fiski-
matsmaður í Hafnarfirði, andað
ist 11. þ. m., þá nýorðinn 77 ára
gamall, og verður útför hans
gerð í dag.
ísleifur var fæddur að Meiða-
stöðum í Garði 5. jan. 1884, og
voru foreldrar hans þau hjónin
Málfríður Árnadóttir og Guð-
mundur Jónsson.
Á uppvaxtarárum sínum dvald
ist ísleifur í Garðinum, en um
aldamót fluttist hann til Reykja
víkur, en árið 1915 kom hann til
Hafnarfjarðar, og hér lifði hann
og starfaði til síðustu stundar.
Á sínum yngri árum stundaði
ísleifur sjómennsku og hafði þá
m.a. á hendi skipstjórn um
nokkurra ára bil, en árið 1920
var hann skipaður fiskimats-
maður í Hafnarfirði, og gegndi
hann þeim störfum á meðan
heilsa entist. Jafnhliða gegndi
ísleifur störfum sem fulitrúi
yfirfiskmatsins.
Störf dómarans eru oft óvin-
sæl, hvort heldur það eru störf
dómara hinna æðri dómstóla eða
störf hinna mörgu matsmanna.
Það var því oft vandasamt verk,
sem ísleifur hafði með höndum,
en ég held, að af loknum starfs-
degi séu allir sammála um, að Is
leifur hafi ætíð unnið störf sín
af mestu prýði, og jafnam kapp-
kostaði hann að gera það, sem
hann taldi sannast og réttast.
ísleifur var félagslyndur mað
ur. Hann tók mikinn þátt í
félagsmálum Hafnfirðinga m.a.
í samtökum sjómanna, og í sjó-
mannadagsráði átti ísileifur sæti
undanfarin ár.
Þá lét tsleifur ekki þjóðfélags-
málin afskiptailaus. Hann skipaðj
sér ungur í raðir þeirra manna,
sem berjast fyrir framgangi og
áhrifum stefnu Sjálfstæðis-
manna, og var hann þar ætíð
traustur og góður liðsmaður, og
urn langan tíma í sveit forystu-
manna þeirra.
ísleifur var kvæntur BjörgU
Gísladóttur, sem lézt fyrir
nokkru. Eignuðust þau hjónin
eina dóttur, frú Jórunni, ekkju
Gunnars E. Benediktssonar hrL
Þau hjónin Björg og tsleifur
nutu mikillar umhyggju dóttur
sinnar og fjölskyldu hennar,
sem nú kveðja góðan föður og
afa, sem hefur fengið hvíld að
loknum starfsdegi.
Þegar Isleifur, vinur minn,
hefur kvatt, þakka ég honum
trausta og góða vináttu, og bið
honum velfarnaðar á ókunnum
stigum.
Matthías Á. Mathiesen,
Kvelja ird Þór
ísleifur Guðmundsson, fiski-
matsmaður, er látinn.
Við félagar hans úr Sjálfstæð-
isfélaginu Þór kveðjum góðan
félaga og söknum vinar í stað,
en ísleifur var einn af forystu-
mönnum félags okkar og for-
maður um margra ára bil og
vann félaginu margvísleg og þýð
ingarmikil störf fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn í þágu lands og þjóð-
ar.
Fyrir þessi störf hans og vin-
áttu viljum við í dag, þegar
hann er kvaddur hinnztu kveðju
færa honum pakkir og vottum
aðstandendum hans samúð okk-
ar.
Guðmundur Finnbogason.
Sigurður G. Thorarensen
Minningarorð
F. 8. júni 1907 — D. 12. jan. 1961
UNDIR Fangbrekku á Þingvöll-
um er síðast háð glímukeppni
árið 1930 á Alþingishátíðinni.
Aldrei munu svo margir áhorf-
endur hafa 'horft á glímuviður-
eignir né á meðal þeirra verið
svo margt erlendra sem inn-
lendra fyrirmanna. Sextán
fræknustu glímumenn þjóðar-
innar gengu þá saman til glímu
og einn varð þeirra fræknastur,
Sigurður Grímsson Thorarensen.
Lagði hann alla viðfangsmenn
sína og hlaut að verðlaunupm
hin veglegustu siguflaun, sem
hér hafa verið gefin. Auk verð-
launanna fékk hann bikar frá
Kristjáni konungi X. að gjöf.
Þeir glímufélagar Sigurðar,
sem undanfarin ár höfðu oftast
glímt við hann, munu hafa
bezt lýst hug sínum til hans
á þessari stundu með orðurrt
þeim, sem mælt voru eitt sinn
til Skarphéðins Njálssonar: „Lítt
dró enn undan við þik, Skarp-
héðinn, ok ert þú vár frækn-
astr.“ Þessarar einkunnar um
glímumennsku nýtur Sigurður
í nær 10 ár. Tvítugur hlýtur
hann fyrstu verðlaun fyrir fagra
glímu á Skarphéðinsmóti að
Þjórsártúni. Árið 1928 verður
hann handhafi Ármannsskjald-
arins. Glímukappi íslands verð-
ur hann 1929 og heldur Grettis-
beltinu tvö næstu ár. Á íslands-
glímu 1932 verður hann ann-
ar, 1933 vinnur hann Stefnis-
hornið (— glímusnillingur ís-
lands —). Árin 1934—’36 er
hann * handhafi Grettisbeltisins.
Síðast glímir hann kappglímu
1936 og hlýtur þá í annað sinn
konungsbikar. Á þessu keppnis-
tímabili er hann því glímukappi
íslands sex sinnum, glímusnill-
ingur íslands einu sinni og
skjaldarhafi Ármannsskjaldar-
ins þrisvar. Á þessum árum
ferðast Sigurður í hópi glímu-
og leikfimjsmanna Glímufélags-
ins Ármanns undir stjórn Jóns
Þorsteinssonar víða innanlands
og um Þýzkaland. Með glímu-
færni sinni hefur Sigurður unn-
ið sér frægðarljóma, sem mun
varpa birtu á nafn hans svo
langt fram um aldir, sem afrek-
um er unnað. Eftir Íslandsglím-
una 1936 hvarf Sigurður af
kappglímuvelli.
Þann 12. janúar sl. bar and-
lát Sigurðar að, er hann var
við vinnu sína sem bátsmaður.
á sjó úti um borð 1 m.s. Skjald-
breið.
Sigurður var fæddur í Kirkju
bæ á Rangárvöllum 8. júní
1907. Foreldrar hans voru þau
merkishjónin Jónína Egilsdóttir
og Grímur Thorarensen. Sig-
urður átti því að telja til hinna
ágætustu bændaætta 1 Rangár-
valla- og Árnessýslum. Hin
sterku svipmót þessara ætta
sameinuðust í Sigurði. Hann var
manna hávaxnastur. Ekki
hnarreistur en þó með bratta
bringu. Breiður um bak en
herðar frekar afsleppar. Há-
fættur og armlangur. Allt vaxt-
arlag bar. vott um mýkt. Mjúk-
ar hreyfingar hans földu aflið,
sem bjó með honum, svo það
varð á engan hátt áberandi í
fasi hans. Þeir, sem glímdu
lengst og oftast við hann róm-
uðu hve mjúkur hann var í
hreyfingum og fimur í leikn-
um. Yfirlitið var bjart og hárið
ljóst. Augun voru snör en í
þeim bjó glettni. í öllu viðmóti
var Sigurður glaður og reifur
en þó orðstilltur, skemmtinn,
orðheppinn og hugþekkur lags-
bróðir. Sigurður var um margt
ímynd hinnar fornu stórlátu
hetju, sem frekar kýs bana en
missa marksins og hins góða
orðstírs.
Sigurður var yngstur systkina
sinna og naut lengi atlætis
þeirra. Hugur bræðra hans stóð
til athafna í sveit og við sjó
en lengi virtist Sigurður óráð-
inn, nema hve sjómennskan
heillaði hann og hreif hann að
lokum til sín. En ávallt fannst
mér sterk taug vera í honum
til sveitarinnar. Þessi þrá fannst
mér koma fram á langri sam-
verustund er við áttum í marz
sl. á leið framan við annes
Vestfjarða. Við Bjargtanga sleit
hann samtalinu við mig uppi á
þiljum með frásögn um laxána
í Bæjarhreppi, sem hann þráði
að dvelja við á komandi sumri.
Árið 1928 lauk Sigurður námi
við Verzlunarskóla íslands. —
Bókhneigður var Sigurður. Las
mikið, safnaði bókum og átti
gott bókasafn, sém hann lét sér
mjög annt um. Um borð í
Skjaldbreið annaðist hann út-
lán bóka til skipsfélaga sinna.
Fram um 1930 vann Sigurður
að landbúnaðar- og verzlunar-
störfum, t. d. var hann um skeið
starfsmaður Kaupfélags Ámes-
inga. Upp úr 1930 fer hann að
stunda sjó meira eða minna og
1939 ræðst hann til Skipaútgerð
ar ríkisins. Er hann fyrst á
e.s. Súðinni og verður þar báts-
maður. Þegar Súðin er seld
1948 verður hann bátsmaður á
m.s. Skjaldbreið þegar það skip
hefur hér strandsiglingar og er
þar bátsmaður til dánardægurs.
Til sjómennsku Sigurðar
þekkti ég ekki, en þau skipti,
sem ég ferðaðist með honum,
fannst mér hann ánægður með
hlutskipti sitt og milli hans og
skipsfélaganna ríkir svipaður
andi og var í þeim hópi glímu-
manna er hann skipaði Einn yf-
irmanna á skrifstofu Skipaút-
gerðar ríkisins lét þess getið
við mig, að í hinu erfiða starfi
lestarstjóra, hefði aldrei komið
fram skekkja hjá Sigurði og
hefði hann sem bátsmaður ver-
ið einn bezti starfsmaður, sem
hjá félaginu hefði unnið.
- Hinn 20. nóv. árið 1935
kvæntist Sigurður Ingu Rakel
Jónsdóttur, ættaðri frá Stokks-
eyri. Þessi myndarlega og
gjörvulega kona hefur búið
manni sínum gott heimili. Kjör-
son eiga þau hjón, sem nú er
5 ára.
I dag er útför Sigurðar G.
Thorarensen gerð frá Fossvogs-
kapellu.
Minning þessa góða drengs og
frækna glímumanns mun lengi
varðveitast.
Félagar hans og vinir senda
honum hinztu kveðju og votta
ástvinum samúð.
Þorst. Einarsson.
Vélritunarstúlka
sem getur skrifað á ensku, óskast til starfa á Rann-
sóknarstofu Háskólans við Barónsstíg. Stúdents-
menntun æskileg. Umsókn ásamt mynd og upplýs-
ingum um menntun og fyrrir störf sendist Rann-
sóknarstofu Háskólans sem allra fyrst.
Ú'sa'a Útsala
Dömupeysur verð frá kr. 195/—. Náttföt kr. 59/—.
Kvenbuxur kr. 22/—. Flauelsbuxur á börn 1—3 ára
kr. 65/—. Kvenblússur kr. 100/—. Ullarpeysur á börn
kr. 115/—. — Mikið úrval af slæðum verð frá kr.
25/—. Gjörið svo vel og lítið inn.
Verzlunin ÁSA
Skólavörðustíg 17 — Sími 15188.