Morgunblaðið - 01.02.1961, Side 6

Morgunblaðið - 01.02.1961, Side 6
8 MORGUIVBLAÐIÐ Miðvikudagur 1. febr. 1961 Tómas Zoega í hlutverki Seifs. Herakles og vinur hans og vopnabróðir, Þesevs eru komnir í Themiskiri, land skjaldmeyj- anna, og á Herakles að leysa þar sjöttu þrautina, að ná í beltið góða, sem er vandlega geymt. Themiskiri er kvennaríki í fyllstu merkingu þess orðs, því að þar ráða drottningar tvær ríkjum, þær Antiope og Hippolyte, báðar fagrar og glæsilegar og önnur embætti ríkisins eru skipuð kon. um eingöngu. Hinsvegar eru Herranótt Menntaskólans: Beltisránið eftir Benn W. Levy Leikstjóri: Helgi Skúlason ÞAÐ er alltaf gaman að sitja i Iðnó gömlu þegar Herranótt Menntaskólans ræður þar húsum. Fer þá venjulega saman furðu- góður leikur og innileg leikgleði hinna ungu leikenda og kæti skólafélaga þeirra á áhorfenda- bekkjunum. Oftast nær eru allir leikendurnir algerir nýliðar á leiksviði og svo mun einnig vera að þessu sinni. Verða leikdóm- arnir vitanlega að miðast við það og skal þó sagt að Menntaskóla- leikirnir hafa tekið miklum fram förum á síðustu árum undir leik. stjóm góðra kunnáttumanna. Að þessu sinni sýnir Herra- nóttin gamanleikinn „Beltisrán- ið“ eftir enska rithöfundinn Benn W. Levy. — Höfundurinn hefur samið allmörg leikrit, en Beltis- ránið mun vera nýjasta verk hans, samið 1957. Var það frum- sýnt í Leeds sama ár og gekk þar hátt á annað ár, en nú er verið að sýna það á Broadwaý í New York. Efni leiksins er sótt í grísku goðsögnina um sjöttu þraut Heraklesar. Fer höfundur- inn mjög skem'mtilega með efnið og umgengst hina miklu Olymps- guði og goðbornu hetjur ekki sér lega hátíðlega. karlmenn allir geymdir á „bú- garði“ og gegna ekki öðru hlut- verki en því að halda við kyn- stofninum. Áður en sýningin hófst gekk fram fyrir tjaldið formaður leik- nefndar, Inffólfur Árnasojnr, og bauð leikhúsgesti velkomna með nokkrum velvöldum orðum. Þegar fortjaldið er dregið frá sést á stalli vinstra megin fremst á sviðinu marmarabrjóstmynd af Heru, Hægra megin er líka stall- ur, ætlaður Seifi — en sá stallur er auður, því Seifur gamli hefur brugðið sér frá, kannski í vafa- sömum erindum, því að hann er ærið kvenhollur, svo sem heyra má af orðum Heru, þegar hann kemur.á stall sinn skömmu síð- ar. Áður en hinn eiginlegi leikur hefst ávarpar Hera leikhúsgesti í bundnu máli. Síðan fara fram nokkur orðaskipti milli þeirra hjúanna. Ásakar Hera Seif fyrir lauslæti og minnist þá á Herakl- es, sem Seifur hafði getið með jarðneskri konu og segir að með því hafi hann tekið smánarlega niður fyrir sig, en Seifur tekur rausi hennar með stökustu ró og glettnislegum svörum. Þegar þessum orðaskiptum lýkur, er innra tjaldið dregið frá og nú erum við komnir í Themiskiri, ríki hinna tveggja drottninga. Herakles og Þesevs klifra yfir hallarmúrinn.og hitta fyrir konu eina kröftuga og vígalega, enda er hún járnsmiður og auk þess liðþjálfi ríkisins. Fer henni og hinum óboðnu gestum ýmislegt á milli unz Antiope drottning kem. ur og heilsar gestunum og síðar kemur Hippolyte drottning til sögunnar. Er ekki að orðlengja það, að hinar grísku hetjur fá Guðfinna Ragnarsdottir, Guðrun Hallgnmsdottir og Kristin H. Jónsdóttir í hlutverkum sínum. ekki staðizt fegurð drottninganna og þeim líst einnig mæta vel á þá þá að þeir séu bara „menn“. Gengur nú á ýmsu, — ástin ann- arsvegar, en þrautin, sem Her- akles verður að vinna, að ná í beltið, hinsvegar. En ekki er vert að rekja hér nánar gang þeirra mála, — en Herakles náði þó beltinu að lokum, svo sem kunn. ugt er. Það skal þó sagt að leik- urinn er bráðskemmtilegur og í honunj er fólgin ádeila á ýmis fyrirbæri okkar tíma. Helgi Skúlason hefur sett leik- inn á svið og annazt leikstjórn- ina. Er auðséð að hann hefur kunnað tökin á hinum ungu og óvönu leikurum, því að heildar- svipur leiksins er furðugóður. Held ég að þetta sé jafnbezti Menntaskólaleikur sem ég hef séð. Seif og Heru leika þau Tómas Zoéga og Þóra Johnson. Leikur Tómas af ágætri kímni og með skemmtilegum svipbrigðum, ekki sízt þegar hann er að gefa kven- fólkinu á sviðinu auga. Þóra fer einnig rösklega og vel með hlut. verk sitt og er prýðileg marmara- stytta. Markús Örn Antonsson leikur Herakles og er kempulegur svo * Ýmsar framfarir Símaþjónusta hér á landi fer að ýmsu leyti batnandi. Má þar t. d. nefna beina samband- ið, sem nú er komið á milli Reykjavíkur og kaupstaða í nágrenningu. Er óneitanlega mikið hagræði að því að geta hringt beint milli númera stöðvanna og losna við bið meðan kvaðningin er afgreidd. Eins er farið að gefa síma- skrár út tíðara en áður, til þæginda fyrir símnotendur. Ber að þakka það. En mörgum finnst að á ýmsum sviðum .sé þjónustan enn ekki nógu liðleg og of lítil miðuð við það sem hagkvæm- ast er fyrir símnotandann, þ.e.a.s. ef hann þarfnast ofur- lítið afbrigðilegrar þjónustu. Hafa ýmsir kvartað undan því við Velvakanda. • Leiga greidd aftengli Ef símnotandi þarf á auka- sambandi að halda í sama húsi eða sömu íbúð getur hann feng ið aukatalfæri, annað hvort þannig að hægt sé að tala á milli eða ekki. Eða þá tengil, þannig að hann færir þetta eina tæki sem hann hefur milli herbergja, kippir úr sam bandi á einum stað og tengir á öðrum, þar sem hann þarf á símanum að halda í það og það skiptið. Þetta kemur sér vel fyr-ir marga. En fyrir hvern þessara síma eða hvern tengil greiðir maðurinn. leigu ársfjórðungslega, auk leigunn ar á fyrsta símaáhaldinu og afnotagjald. Að vísu á ekki að greiða fyrir tengilinn nema 12 kr. ársfjórðungslega, skv. síma skránni, þ.e.a.s. 48 kr. á ári. En hugsið þið ykkur ef ætti að greiða leigu fyrir alla raf- magnsrofa í hverju húsi. Því er ekki hægt að kaupa svo ein faldan hlut eins og símatengil 1 íbúðina í eitt skipti fyrir öll, í stað þess að greiða af honum leigu alla ævi. Tengillinn er ekki notaður nema einhver sími sé í íbúðinni, sem hvort sem er greiðist fyrir. Aukatal- færin svokölluðu eru miklu dýrari, allt upp í 140 kr. á árs- fjórðungi í leigu, eftir því hvernig þau eru útbúin. Af slíku tæki fæst því drjúg leiga FEROIIMAIMH sem bezt verður á kosið og tekuf engum vetlingatökum hinar fögru konur þegar því er að .skipta. — Þesevs leikur Helgi Havaldsson. Er leikur hans léttur og skemmti- legur og bendir ótvírætt til þess að hann sé gæddur góðri kímni. gáfu. — Einna athyglisverðastur þótti mér leikur Elfu Bjarkar Gunnarsdóttur í hlutverki Anti- opu, framsögn hennar og látbragð allt eðlilegra og frjálslegra en bú- ast má við af óvönum leikara. Ásdís Skúladóttir fór einnig prýðilega með hlutverk Hippo- lyte, ekki sízt þegar Hera hafði hlaupið í hana. Er ieikur hennar þá þróttmikill og skapið þannig að jafnvel hinn mikli Herakles fær ekki við neitt ráðið. — Guff. rún Hallgrímsdóttir, sem leikur járnsmiðinn og liðþjálfann, fer einnig skemmtilega með hlutverk sitt. Smærri hlutverk leika þær Gufffinna Ragnarsdóttir, Valgerff- ur Tómasdóttir og Kristín Halla Jónsdóttir og fara laglega með þau hlutverk. Teiknun, smíði og málun leik- tjalda, sem voru einkar góð, ann. aðist leiknefndin. Þeir Stefán Benediktsson og Tómas Zoéga hafa þýtt leikinn. Prologus þýddi Hjörtur Halldórs- son, kennari, en Einar Magnús- son, yfirkennari er ábyrgðarmað. ur sýningarinnar. Hefur hann vafalaust lagt hér margt gott til málanna. Þess skal getið að frumsýning á leiknum fór fram í byrjun janú- ar, en sýningum varð síðan að fresta af sórstökum ástæðum. Leiknum var ágætlega tekið og leikstjóra og leikendum þökkuð með blómum og dynjandi lófa- taki skemmtileg kvöldstund. Sigurffur Grímsson. Ágæt síldveioi um helgina HAFNARFIRÐI: — Nokkrir bát- ar héðan fengu síld í Miðnessjón- um núna um helgina og var unn- ið við að salta og frysta hana á sunnudaginn og í gær. G. E. á 50 árum, t. d. auk greiðsl- unnar fyrir afnotin. • Snúrurnar sparaðar Annað atriði hefur verið minnzt á við mig, og það er tregða símans til að hafa snúr- urnar eins langar og bezt hentar hverjum viðskiptavini og í hverri íbúð. Símasnúrurn ar skulu vera af ákveðinni lengd alls staðar. Er mér sagt að þetta sé gert til sparnaðar fyrir símann og til að fólk slíti ekki of löngum snúrubút. Oneitanlega kemur þetta atriði dálítið ankanalega fyrir nú á tímum þegar sjálf&agt þykir að allt sé gert sem auð- ið er fólki til þæginda í dag- lega lífinu. Þá eru margir óánægðir með að geta ekki kippt síma sínum úr sambandi, ef þeir vilja fá frið og ekki svara. Það er aftur á móti atriði, sem deila má um, því slíkt veldur mikilli truflun á símakerfinu, T. d. getur sá sem hringir ekki heyrt að síminn er ekki í sam. bandi. Hann trúir ekki að eng inn sé heima, kvartar við sím stöðina, og segir símann bil- aðan. Af þessu verður mikiff um kvartanir og rannsóknir á hvort kvörtunin hefur vi3 rök að styðjast. Og það veldur truflunum á borðunum, ef mismargir eru í sambandi. Þannig hefur fólk ýmislegt út á símaþjónustuna að setja. (Það skal tekið fram að Vel- vakandi sjálfur hefur nýiega fengið sérlega lipurlega þjón- ustu þegar um afbrigðilega beiðni var að ræða). Sumt hefur vafalaust við rök aíl styðjast, annað er erfitt í fram kvæmd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.