Morgunblaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 9
Miðvik'udagur 1. febr. 1961 M ORCVN BL AÐIÐ 9 Samfelld atvinna á Rauðmagi á borð- E.O.G.T. St. Sóley nr. 242 Fundur í kvöld kl. 8,30. Inn- setning embættismanna, Hag- nefndaratriði annast Anna og Árni. Æðstitemplar. Stúkan Einingin nr. 14 Fundur í kvöld kl. 8,30. — Yngri stjórna. Flokkakeppnin er í fullum gangi. í kvöld verð ur 2. flokkur á sviðinu með sín atriði; stutt spjall, samtalsiþáttur og „leikrit“ í tveim þáttum. — Á 1. flokkskvöldinu mættu 43 félagar. Hvor flokkurinn verður fjölmennari í kvöld? Æðstitemplar Dalvík DALVÍK, 26. jan. — Það sem af er þessum vetri hlýtur að verða mörgum, einkum hinum eldri, minnisstætt. Ekki aðeins vegna hinnar óvenjulegu veðurblíðu, heldur hins að alltaf hefur ver- ið nokkur atvinna hér í þorpinu, aðallega við hagnýtingu sjávar- afla. Það hefur sem sagt aldrei verið neinn dauður tími, eins og jafnan er hér yfir skammdegis- mánuðina. Stærri bátarnir hættu að vísu veiðiskap um miðjan nóvember, en smærri bátarnir eða trillurnar reru allt til jóla. Heitingsafli var allan tímann og, skapaði það nokkra atvinnu í landi. Hófu þær aftur róðra upp úr áramótum og hafa róið síðan og veitt all sæmilega. Um hina bátana er það að segja að Björgúlfur stundar úti- legu með línu og er nú í þriðju veiðiferðinni. Hefur sú veiði geng ið vonum framar. Mun hann vera búinn að 'fá 70—80 tonn. Björg- vin stundar togveiðar og er nú í sinni fyrstu veiðiferð. Júlíus Björnsson og og Baldvin Þor- valdsson eru leigðir suður, Júlíus til Grindavíkur og Baldvin til Ólafsvíkur. Ráðgert er að Bjarmi og Hannes Hafstein stundi línu- veiðar fram eftir vetri, eða þar til netavertíð hefst. Byrjuðu þeir veiðar nokkru eftir áramót og hefur afli verið mjög sæmilegur eða allt að 10—12 skippund í róðri. Róið er á Skagafjarðar- og Siglufjarðarmið. Um % aflans er ýsa er fer í frystingu, en hitt Mynauð þér kaupa eftirlíkingu af málverki, ef frummyndin féhgist fyrir sama verð? Þegar um er að ræða tvöfalt einangrunargler, þá vitið þér hvað þér fáið, ef þér kaupið ORGINAL THERMOPANE, sem nú er notað þorskur og fer í salt. Hefur þetta skapað nokkra vinnu, bæði á söltunarstöðvunum og frystihúsunum og má heita að vinna hafi verið samfelld frá ára- mótum. Ekki hefur enn komið til neinn ar vinnustöðvunar hér, enda mundi slíkt hafa mælzt mjög illa fyrir meðal alls þorra almenn- ings og ekki sízt sjómanna sjálfra. En stöðvun hinna stærri báta hefði fyrst og fremst bitn- að á þeim. — S.J. um Húsvíkinga Húsavík, 30. janúar. ALLA síðastliðna viku hefur ver- ið hér óvenju góð rauðmagaveiði, miðað við árstíma. Venjulega er ekki byrja að leggja hér net fyrr en sainni hluta febrúar- mánaðar. En vegna hins góða tíð- arfars eru menn óvenju snemma á ferðinni með þessa útgerð, sem þó er ekki stunduð nema af fá- um, þar sem markaðurinn er ekki nema hér heima og eðlilega tak- markaður. — Silli. ★ útilokar móðu og frost ★ sparar kyndingarkostnað ★ sparar málningu á gluggum ★ dregur úr hávaða Tilboð Hér með er auglýst til sölu gamla póst- og símahúsið á Eskifirði (áður ,,Hermes“), ásamt tilheyrandi lóð- arréttindum. Tilboð, merkt: „Hústilboð Eskifjörð- ur“, sendist aðalskrifstofunni fyrir 1. marz og verða þau opnuð kl. 14.00 þann dag í skrifstofu póst- og simamájastjóra. Reykjavík, 31. janúar 1961. Póst- og símamálastjórnin. Samkomur Zion, Austurgötu 22, Hafnarfirði Samkoma í kvöld kl. 20,30. All ir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna Kristniboðssambandið Fórnarsamkoma í krvöld kl. 8,30 í kristniboð.shúsinu Betaníu Laufásvegi 13. Ólafur Ólafsson, kristniboði talar Allir eru hjart anlega velkomnir. Keflavík og Ytri-Njarðvík „Kristur einn er góði hirðir- inn, lff sitt gaf hann fyrir okk ur! — fylgjum við honum?“ Vel komin á samikomurnar annað kvöld í Tjarnarlundi, mánudags kvöld í skólanum, Ytri-Njarðvík kl. 8,30. Hjálpræðisherinn Verið hjartanlega velkomin á eamkomuna hvert kvöld þessa viku kl. 20,30 Cand theol. Erling Moe og söngprédikarinn Thor- vald Fröytland syngja og tala. Málmrammi Þverskurður af THERMOPANE rúðu tvær rúður þurrt loft hér á landi í þúsundir íbúða, í opinberar byggingar, skóla, sjúkrahús, verzlunarhús, verksmiðjuhús o. fl. Með því að nota THERMOPHANE eruð þér viss um gæðin og end* inguna. ORGINAL Th&unofuuie Verð og aðrar upplýsingar hjá umboðsmönnum verksmiðjunnar Eggert Kristjánsson & Co. hf. Símar 1-14-00 Verksmiðjuúfsalan í Eymundsson kjallaranum |]TSALA Krepsokkabuxur tízkulitir á börn kr. 135.00 — á fullorðna kr. 158.00 Karlmannasokkar kr. 15.00. Herrasportskyrtur kr. 95.00. Vinnuskyrtur. kr. 100.00. Herrafrakkar frá 390.00. Herra hálsbindi kr. 10.00. Greiðslusloppar kr. 100.00. Garðpils fyrir kvenfólk. — Amerísk Kakhi-pils aðeins kr. 20.00. Stálnœlon buxur á stráka Eymundsson kjallarinn Austurstræti 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.