Morgunblaðið - 03.02.1961, Síða 23

Morgunblaðið - 03.02.1961, Síða 23
Föstudagur 3. febr. 1961 MORCVN VT 4fíTÐ 23 — Sanfa Maria Framh. af bls. 1 ur portúgalska orrustuskipið „Lima“ um 40 mílur undan Recife, ásamt spánska tund- urspillinum „Canarias“, og mun ákveðið, að herskipin stöðvi Santa Maria, ef hún leggur í haf á ný. Virðist Galvao og menn hans því vart eiga undankomu auðið. 1 Þrátt fyrir það, hefur Galvao ekki látið bilbug á sér finna — en lýst yfir, að hann muni sigla, þegar farþegar eru komnir í land. Teiur hann ekki enn von- laust, að hann fái að taka vistir og olíu í Recife. __ •* INN I HÖFNINA Santa Maria sigldi haegt og hátíðlega inn á innri höfnina í Recife um hádegi í dag, að stað- artíma. Farþegarnir stóðu í þéttum hópum á þilfarinu í steikjandi sólarhitanum — og horfðu óþreyjufullir til lands. Skipið lagðist ekki að bryggju, heldur renndi það akkerum um 500 metra frá landi — og lagð- ist þannig, að það getur á skammri stundu komizt út úr höfninni. — Fjölmennt lögreglu- og herlið hélt vörð við höfnina og bægði þúsundum forvitinna áhorfenda nokkuð frá. Til að byrja með var aðeins einn sjúkur maður af áhöfninni íluttur til lands, svo og kona, sem alið hafði bam um borð fyrir fjórum dögum. — Tveir menn af hinni upphaflegu áhöfn, sem reynt höfðu í gær- kvöldi að koma af stað upp- reisn um borð gegn Galvao og mönnum hans, köstuðu sér í höfnina, skömmu eftir að skipið lagðist við festar, og voru þeir teknir upp í brasilískan bát. Kváðust þeir hafa óttazt hefnd- araðgerðir Galvao-manna. — Þeir sögðu, að mjög mikil ólga hefði ríkt um borð í Santa Maria síðustu dægur. ★ MISJAFNAR SÖGUR Ofsagleði ríkti meðal far- þeganna, þegar loks var tekið að flytja þá til lands eftir nokkrar klukkustundir. Mátti þá sjá heit gleðitár á mörgum vanga — en aðrir hlógu og mös uðu, böðuðu út öllum öngum, ©g réðu sér ekki af kæti. — Bandarísk hjón frá San Franc- isco, herra og frú Egbert Batey, urðu fyrst til að stíga fæti á brasilíska grund. Þegar herra Batey var hjálpað upp á bryggj una, hrópaði hann upp yfir sig: — Ég held, að við höfum aldrei verið jafnhamingjusöm og nú! — Svo virðist af frásögnum farþega, að uppreisnarmenn hafi gert nokkuð misjafnlega við fólkið, eftir því á hvaða far rými það ferðaðist. — Þeir Sveltu okkur, þó að þeir deildu út matvælum til Bandaríkja- mannanna á fyrsta farrými, gagði frú Fernandes frá Madrid, *em verið hafði á 3. farrými. | Þegar henni var hjálpað í land virtist hún að því komin að fá taugaáfall og þrýsti lítilli dótt- ur sinni að brjósti sér, eins og hún yiídi verja hana fyrir brasil ísku liðsforingjunum, sem tóku á móti farþegunum. — John Dietz og frú frá Florida, sem ferðuðust á fyrsta farrrými, Bögðu að allir farþegarnir þar hefðu notið fulls frelsis um borð Og haft nóg að bíta og brenna. Aðeins síðustu dagana hefði vatn verið skammtað svo naumt að þau hefðu ekki getað þvegið Bér sem skyldi. — Ung og falleg Btúlka frá Venezúela sagði, að uppreisnarmenn hefðu ávallt verið mjög kurteisir og elsku- legir í framkomu. Ekki vildi þó roskin, bandarísk kona, Dorothy Grainer, skrifa undir það — og sagði að menn Galvaos væru Bamvalin fífl! ★ TILGANGINUM NÁÐ? Það er yfirleitt álit frétta- manna, að enda þótt Santa Maria-ævintýrinu kunni nú að vera lokið að því leyti, að Gal- vao og menn hans verði að Iáta skipið af hendi og þiggja hæli í Brasilíu, megi þeir þó vel una við þann árangur, sem tiltæki þeirra (sem sumir hafa viljað kalla sjórán — en þeir sjálfir segja „Iöglega“ uppreisn gegn einræði Salazars) hefur þegar borið. Málið hefur vakið feikna- athygli um allan heim — og rifjað það rækilega upp, sem ekki hefur svo mjög verið á lofti haldið að undanförnu: að mögnuð einræðisstjóm ríkir í Fortúgal — og að til eru sterk öfl, sem vinna að þvi að steypa henni af stóli. Það er því engan veginn séð fyrir endi „Santa Maria-málsins“ (í víðari merk- ingu), hvað sem um skipið og uppreisnarmenn verður nú. Mál Magnúsar lögregluþjóns MUNNLEGUR málflutningur fór fram í Sakadómi Reykjavíkur í gær í málinu „Akæruvaldið gegn Magnúsi Guðmundssyni". Sækj- andinn, Páll S. Pálsson, hóf mál sitt kl. 10 um morguninn og lauk ræðunni rétt fyrir nón. Þá tók verjandinn, Guðlaugur Einars- son, til máls. Talaði hann til kvölds, er dómarinn, Halldór Þorbjörnsson, frestaði réttarhöld um til næsta morguns. Eiga þau að hefjast kl. hálftíu í dag, og gerðu lögmennirnir ráð fyrir að hafa lokið sókn og vörn um há- degisbil. Dómur í mólinu verð- ur svo kveðinn upp einhvern næstu daga. Engar varúðar- ráðstafanir FREGNIR hafa borizt frá frétta- stofum um að Asíu-inflúensa væri komin upp í Bretlandi. Blaðið leitaði í gær fregna af þessu hjá borgarlækni. Sagði hann að engar tilkynningar mundu hafa borizt heilbrigðis- yfirvöldum hér frá miðstöð inn- flúensuvarna í London. Liggja því engar opinberar skýrslur fyrir um gang veikinnar, svo vit að sé. Ennfremur sagði borgarlæknir, að ekki væri vitað til þess að nokkursstaðar erlendis hafi ver- ið gerðar opinberar varúðarráð- stafanir, enda mundi veikin vera talin væg. Hér yrði að sjálfsögðu fylgst vel með gangi veikinnar. Norstad áfram hjá NATO Washington, 2. febrúar. ÞAB var tilkynnt í Hvíta hús- inu í dag, eftir aS þeir Kenne- dy forseti og Lauris Norstad hershöfðingi höfðu setið á fundi, að Norstad muni áfram gegna embætti yfirhershöfð- ingja Atlantshafsbandalags- ins — um óákveðinn tíma. — Lét forsetinn svo um mælt, að það væri sér mikið gleði- efni, að Norstad hefði ákveðið að gegna áfram yfirhershöfð- ingjastarfinu. Kampmann ræðir við Kennedy Kaupmannahöfn, 2. febrúar (Reuter) ÞAÐ var opinberlega tilkynnt hér í dag, að Viggo Kampmann forsætisráðherra fari til New York eftir nokkra daga í opin- bera heimsókn. Þá mun hann m. a. hitta John Kennedy, hinn nýja Bandaríkjaforseta, að máli. Aætlað er, að Kampmann komi til New York hinn 11. febrúar, en þar opnar hann danska list- sýningu. Hann mun ræða við Kennedy 14. febrúar — og síðan hverfa aftur heim til Danmerk- ur eftir stutta heúnsókn til Chirago. — Sjóslysið Framh. af bls. 1 uppi á Ióðarbelgjum. Var það Borgþór Guðmundsson. Hann hafði verið á hvalbak. Hina mennina tvo var hvergi að sjá: Einar Jónsson og Ingi- berg formann. Það kom síð- ar íram, að Einar hafði verið niðri í lúkar bátsins en Ingi- bergur við stýri hans er ólag- ið reið yfir. ★ 1 lífshættu Skipsmenn á Olafi voru eins lengi í Sundinu og fært þótti, en mikil hætta var fyrir bátinn í því ægilega brimi, sem komið var. Þeir sáu hvergi mennina tvo og slógu því undan og héldu upp að bryggjunni. Grindvíkingar munu hafa tal- ið báða ménnina af, þá Einar og Ingiberg. Var fátt manna eftir til af fylgjast með því, sem gerðist á Sundinu, enda voru menn sem þrumulostnir og héldu hver til sinna starfa eða heim til sín, en fregnin um sjóslysið barst óð- ara út frá Grindavík. ★ Sást í kíki En tveir starfsmenn Land- helgisgæzlunnar höfðu komið til Grindavíkur rétt í þann mund og slysið varð. Var ann ar þeirra Árni Valdimarsson, skipstjóri. Hafði hann með- ferðis að vanda góðan sjón- auka. Leit Árni í hann og svip aðist um eftir rekaldi úr hin- um týnda báti. Munu um það 30 mín. hafa verið liðnar frá því að slysið varð er hann allt í einu kom auga á mann á sundi alllangt frá landi, hinu megin í Sundinu. Það er maður á sundi, köll- uðu þeir, er þeir komu hlaup andi fram ál bryggjuna, þar sem skipsmenn á m.b. Ólafi voru að losa aflann. Formað- urinn, Einar Dagbjartsson, var fljótur að láta losa bátinn og sigla af stað, og komu þeir brátt auga á manninn í sjón um. Hann stakk sér alltaf i brimgarðinn er ólögin riðu yfir. ★ Þungt haldinn. Þessi för Ólafsmanna var í sjálfu sér engu minni glæfra för en sú fyrri, en enn sem fyrr tókst hún vel. — Þeir voru brátt komnir að Einari Jónssyni — björguðu hon- um upp í bátinn og sneru að Iandi. Hafði Einar þá verið i sjónum í allt að 45 mín. Þegar báturinn kom að með Einar, var þangað kominn læknir úr Keflavík, sem þegar tók við honum og hóf hjúkrun. Var hann síðdegis i gær fluttur til Kefla- víkur í sjúkrahúsið þar. Var Ein ar allþungt haldinn í gærkvöldi. Er hann orðlagt þrekmenni, mað- kvæntur og mun eiga 6 börn. Ingibergur heitinn Karlsson frá Karlsskála í Grindavík var um þrítugt. Hann lætur eftir sig móður. Bergþór Guðmundsson var rúm liggjandi með sótthita í gær- kvöldi. Trillubátur þessi var einn af fyrstu Tindumun í happdrætti DAS. _ Rétt fyrir áramótin kom 1 nýr fiskibátur til Rifs. heitir hann Skarðsvík SH 205, 87 smál. að stærð. — Báturinn var smíðaður í Friðriksund í Danmörku. Er hann með öllum nýj- ustu og fullkomnustu tækj um sem nú tíðkast. Skipstjóri á heimsiglingu var Kristján Guðmundsson, Rifi, en skipstjóri á honum verður hinn kunni aflamað ur, Sigurður Kristjánsson. Vegtyll fækkar um — Danskt þýfi Framh. af bls. 24. izt hafði að rekja nokkuð slóð- ina, tóku böndin að berast að farmanni einum, sem svo var handtekinn. Hann skýrði frá því að seinnipartinn í ágúst, nokkru eftir að innbrotið var fram- ið, hafi hann verið í Kaup- mannahöfn. Til sin hafi kom- ið maður með 70 úr og boðið sér þau til kaups fyrir hag- stætt verð. Hann hafi keypt þau og smyglað þeim inn hér og komið þeim í umferð. En við Ieit rannsóknarlög- reglunnar að þessum úrum, hefur henni tekizt að finna 37 þeirra. Voru ekki öll hér í Reykjavík, því sækja varð þau til Vestmannaeyja, tU Akureyrar og austur í Nes- kaupstað. ★ Stolnu úrin Af gögnum sem rannsókn- arlögreglan fékk að utan, kom í Ijós af verksmiðjunúmerum og gerðum, að hér voru komin úr- in sem stolið var þegar inn- brotið var framið í Istedegade í Kaupmannahöfn í sumar er leið. Þess skal að lokum getið að máli farmannsins er ekki lokið fyrir dómstólum hér. FORSETAKOSNING fór fram í gær í bæjarstjórn Húsavíkur. Það vakti athygli, að Karl Kristjánsson alþingismaður náði ekki kosningu, sem forseti bæj- arstjórnar. Hann hlaut aðeins tvö atkvæði af sjö. Velta menn þvi fyrir sér hvort þetta sé vís- bending um minnkandi pólitízkt gengi hans þar nyrðra og jafn- framt svar við Móðuharðinda- væli hans á Alþingi. Forseti bæjarstjórnar var kjörinn Jó- hann Hermannsson. — Kasper 'SI 'Siq JB -qutBJj Þeir segjast sannarlega ekki sjá eftir þeim tíma, sem þeir hafi eytt í undirbúning því að þeir skemmta sér konunglega á hverri sýningu við áhuga barnanna — telja sig enda mega halda á spöðunum í nán ustu framtíð við að hafa á takteinum svör við þeim f jöl- mörgu spurningum, sem hin- ir fróðleiksfúsu Oig forvitnu borgarar geta látið sér detta í hug að leggja fyrir sóma manninn Kasper. Kærar kveðjur og þakkir sendi ég öllum sem glöddu mig og heiðruðu á sjötugs afmæli mínu. Þura Árnadóttir frá Garði. Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar OLAFlA VILBORG HANSEN andaðist 2.þ.m. Halldór Hanscn og böm Maður minn, faðir og tengdafaðir KRISTÓFER F. JÓNSSON frá Galtarholti andaðist 2. febrúar að heimili sínu Nýlendugötu 15 A. Útförin verður ákveðin síðar. Guðbjörg Jónsdóttir, börn og tengdasynir Móðir okkar KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR frá Neðra-Dal andaðist 30. janúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 1,30. Blóm afþökkuð. Marta Gísladóttir, Guðríður Gísladóttir Útför MARlU BRYNJÓLFSDÓTTUR fyrrv. Ijósmóður í Hrunamannahreppi, sem lézt að heimili sínu Hrepphólum 27. f.m. fer fram laugardag. 4. febr. n.k. Jarðsett verður frá Hrepphóla- kirkju kl. 2 e.h. Bíll fer frá Búnaðarfélagshúsinu í Lækjargötu kl. 10 fyrir hádegi. Fyrir hönd aðstandenda. Elísabet Kristjánsdóttir, Jón Sigurðsson Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÓNS NORDQUIST Eiginkona, börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.