Morgunblaðið - 08.02.1961, Side 1
24 ssdur
48. árgangur
31. tbl. — Miðvikudagur 8. februar 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsin*
Fundur
fram á
nótt
KLUKKAN fimm í gær hófust
viðræðufundir með fulltrúum
L.I.U. og Farmanna- og fiski-
mannasambandi Islands um kjör
Skipstjóra og stýrimanna og vél-
etjóra innan Mótorvélstjórafélags
Islands á bátaflotanum. A það
bæði við um línu- og rekneta-
veiðar svo og síldveiðar. Um
miðnætti höfðu samningar ekki
enn tekizt. I>á átti verkfall að
hefjast hjá yfirmönnum í Kefla-
vík, Sandgerði og Grindavík.
A miðnætti næstu nótt hefst
verkfallið hjá yfirmönnum í
Beykjavík og á Akranesi hafi
ekki verið samið.
A sarna tíma hefir verið boðað
verkfall af hálfu Mótorvélstjóra-
félags Islands.
Að kvöldi 10. febrúar munu
yfirmenn báta frá Hafnarfirði
leggja niður vinnu og einnig
undirmenn.
Er blaðið fór í pressuna stóð
viðræðufundur enn yfir og var
því ekki vitað hvort samkomu-
lag næðist.
Enn þegja Rússar um
gervihnöttinn stóra
Vísindamenn telja, oð hann sendi á
leynilegri bylgjulengd
London, 7. febr. (Reuter-NTB)
VÍSINDAMENN á Vestur-
löndum eru nú farnir að hall
ast að þeirri skoðun, að gervi
hnötturinn stóri, sem Rússar
segjast hafa sent á loft á
laugardaginn, sendi merki á
leynilegri bylgjulengd. Enn
ríkir sama þögnin um hnött-
inn í Rússlandi. Síðan á
laugardag, er tilkynnt var að
hann hefði verið sendur á
loft með margþrepa eldflaug
Rússa sent hljóðmerki á 19.993
megariðum. Hljóðmerki hafa að
vísu heyrzt á þeirri tíðni í nokkra
daga, en starfsmenn Jodrell Bank
Frh. á bls. 23.
Áburðarverksmiðjan hf. er
10 ára I dag. Nær ssjö ár eru
liðin síðan starfræksla verk
smiðjunnar hófst og á þeim
tíma hefur hún sparað þjóð-
arbúinu tvö- til þrefalda þá
fjárupphæð, sem varið var
til byggingar hennar í er-
lendum gjaldeyri. Þessi
mynd var nýlega tekin úr
lofti af verksmiðjunni í
Gufunesi. Sjá nánar bls.
8.
Geta búizt við 4-7
ára fangelsisdómi
Öryggisráðið ræð-
ir Kongómálið
New York, 7. fébr. (NTB-AFP)
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu
þjóðanna kom saman til fund
ar í dag til umræðna um
Kongómálið. í forsæti var að-
alfulltrúi Bretlands Sir Pat-
rick Dean.
Fyrstur á mælendaskrá var
fulltrúi Líbýu, Fekini, sem lét
í ljós það álit sitt, að tillaga
Hammarskjölds væri raunhæf og
miðaði í rétta átt. Sagði Fekini
tillögu Hammarskjölds koma
heim við ályktun þá, er gerð
var á Casablanca ráðstefnunni á
dögunum, þar sem óskað var
eftir að Lumumba yrði lótinn
laus, þingið í Kongó kvatt sam-
an á ný, hersveitir Mobutus of-
ursta afvopnaðar, og allir Belg-
ir færu á brott frá Kongó.
Spaak til
Washington
BRÚSSEL, Belgíu, 7. febr. —
(Reuter) — Paul Henri Spaak,
eem í s.I. viku tilkynnti, að hann
hyggðist láta af emibætti aðalrit
ara Atlantshafsbandalagsins í
|>ví skyni að taka á ný þátt í
Etjórnmálum heima fyrir, hefur
nú fengið boð frá utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Dean Rusk
um að koma í heimsókn til Wash
ington 21. febrúaa: nk.
Fulltrúi Júgóslavíu, Pavisevic,
lagði áherzlu á að leysa bæri
Lumumba úr haldi án tafar, en
fulltrúi Guineu, Dialo Telli, tók
í sama streng og Fekini og
hvatti Sameinuðu þjóðimar til
þess að hafa hliðsjón af sam-
þykktum Casablanca-ráðstefn-
unnar til lausnar Kongómálsins.
Sagði hann, að yrðu samþykktir
ráðstefnunnar hundsaðar hlytu
þjóðir þær, sem að henni stóðu,
að sjá sig tilneyddar til þess að
gera sínar ráðstafanir. Spurði
Telli hver þjóð vildi taka á sig
ábyrgð á því að þvinga þjóðir
þessar til róttækra ráðstafana.
Telli réðist harkalega á fyrir-
ætlanir Moise Tshombe um að
bindast samtökum við franska
fallhlífarofurstann Roger Trin-
quier, sem hann sagði að hefði
verið kvalari alsírsku þjóðar-
iinnnar. Jafnframt lýsti Telli
yfir stuðningi sínum við stjórn-
ina í Stanleyville.
— ★ —
Adlai Stevenson, fastafulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ hefur und
anfama daga átt viðræður við
uflltrúa ýmissa þjóða um leið
til lausnar Kongómálsins. Síðast
í gær ræddi hann við rússneska
fulltrúann, Zorin. í dag ræddi
hann við Hammarskjöld og
skýrð,i frá því að Bandaríkja-
stjóm leitaði nú lausnar er all-
ir gætu fellt sig við.
og komizt á braut sína, hef-
ur hann ekki verið nefndur
einu orði, hvorki í blöðum
né innlendum fréttum
Moskvuútvarpsins.
Venjulega hafa gerfihnettir
Seldu tyrír
kr.
5,600,000
HAFNARFIRÐI — Fimm ís-
lenzkir togarar seldu afla sinn
í Þýzkalandi I gær og fengu
mjög gott verff fyrir hann.
Nam sala þeirra, sem svarar
5,6 millj. ísl. kr.
Agúst sesldi í Bremerhaven
139,5 lestir af síld fyrir 71,300
mörk og 63 lestir af öffrum
fiski fyrir 49,600 mörk. Júní
í sömu borg 131,5 lestir af
fiski fyrir 118,300 mörk, sem
er mjög gott verff. Surprise í
Cuxhaven 82 lestir af síld fyr
ir 35,179 mörk. og 118 lestir af
öðrum fiski fyrir 83,048 mörk.
Freyr í Bremerhaven 227 lest
ir af síld fyrir 115,000 mörk og
56 lestir af öffrum fiski fyrir
45 þús. mörk. Úranus seldi í
Cuxhaven 220 lestir fyrir
96,600 mörk.
Fjórir íslenzkir togarar selja
í Þýzkalandi í vikulokin, meff
al þeirra Maí, sem kom af veiff
um í gær. Tók hann hér síldl
til viffbótar viff afla sinn. Eld
borgin kom bá meff 1000 tunn
ur, Faxaborgin 850 og Álfta-
nesiff 150 tunnur.
London, 7. febr. (Reuter-NTB)
í DAG hófust í London rétt-
arhöld í máli þriggja manna
og tveggja kvenna, sem sök-
uð eru um njósnir. — Fólk
þetta var handtekið 7. janú-
ar sl. og var talið hafa veitt
erlendu ríki, hernaðarlegar
upplýsingar, einkum frá
flotastöðinni í Portland.
Tvennt hinna ákærðu, Harry
Houghton, 55 ára og unnusta
hans, Elisabeth Gee, 46 ára,
unnu bæði við birgðastöð brezka
sjóliðsins í Portland og höfðu
bæði aðgang að leyndarskjölum.
Aðrir úr hópnum eru Gordon
Lonsdale, 37 ára, sem líkur
þykja benda til að sé Rússi,
þótt hann segist vera Kanada-
maður, Peter Kroger, fimmtug-
ur bóksali og kona hans, Helen,
47 ára, en þau hjónin munu hafa
í fórum sínum kanadískt vega-
bréf.
Ef sakir þær, sem á fólk þetta
eru bornar reynast réttar, kann
refsing að verða allt frá fjög-
urra til sjö ára fangelsis.
Fyrir réttinn í dag voru
lögð fjöldamörg sönnunargögn,
meðal annars 3100 ljósmyndir af
herskipum og ýmsum leyndar-
skjölum, senditæki og átta síðna
sendibréf á rússnesku. Svo virðist
sem fólk þetta hafi bundizt
samtökum um að hefja njósna-
starfsemi þessa í júní sl. —-
Reyndist heimili þeirra Krogers
hjóna hin fullkomnasta njósna-
stöð.
Saksóknarinn Sir Reginald
Manningham Buller hefur látið
svo ummælt að mál þetta sé
afar alvarlegs eðlis. Allt að
fjörutíu vitni verða leidd í mál-
inu.
Kennedy vill hækkun
lágmarkslauna
Washington, 7. febrúar.
FYRIR bandaríska þinginu ligg-
ur nú frumvarp um hækkun lág
markslauna verkamanna í Banda
rfkjunum úr einum dollar upp í
1,25 dollara á klukkustund. Er
ráff gert fyrir aff hækkunin komi
til framkvæmda á næstu tveim
árum. y
Kennedy forseti hefur skrifað
forsetum beggja þingdeilda og
hvatt til þess að frumvarp þetta
verði íhugað mjög gaumgæfilega.
I bréfi sínu segir Kennedy, að
bandaríska þjóðin hafi ekki efni
á að launa nokkra stétt illa, því
að lág laun hafi í för með sér
minnkandi kaupgetu sem leiði til
almennrar rýrnunar lífskjara,
Segir ennfremur, að síðan laun
verkamanna voru seinast hækk-
uð hafi bæði framfærslukostn-
aður hækkað og framleiðslan
aukizt, og muni samþykkt frum
varpsins um hækkuð lágmarks-
laun því aðeins vera eðlileg af-
leiðing þessa,
Flytjandi frumvarpsins er
James Roosevelt, þingmaður
demókrata frá Californíu. Hann
bar samskonar frumvarp fram á
síðastliðnu ári, en það var þá
fellt.