Morgunblaðið - 08.02.1961, Side 2
2
MORGVTSBLÁÐIÐ
MiðviKudagur 8. februar 1964
.
Afvopnun Kongóhers
jafngildi stríðsyfirlýsingu
Mobutu undirbýr mótleik
Elisabethville, Leopoldville,
7. febrúar (Reuter—NTB)
MOISE TSHOMBE, forsætis-
ráðherra Katanga-fylkisins,
sagði í dag, að hann teldi
jafngilda stríðsyfirlýsingu,
ef Sameinuðu þjóðirnar sam-
þykktu að afvopna her
Kongó. Hann sagði, að Kat-
anga gæti ekki afsalað sér
sjálfstæði sínu — heldur
mundi hann vopna sérhvern
íbúa héraðsins.
í Leopoldville er talið, að
Varði doktorg
ritgerð við
Cambridgeháskóla
*
1 FYRRADAG varði Gunnar G.
Schram doktorsritgerð í lögum
við háskólann í Cambridge.
Andmælendur luku lofsorði á
ritgerðina og lögðu til að hún
yrði gefin út á prenti.
Gunnar G. Schram lauk stú-
dentsprófi 1950, lögfræðiprófi
frá Háskóla Islands 1956. Hann
nam lögfræði við háskólann í
Heidelberg eitt ár 1957—8, en
síðastliðin tvö ár hefir hann num
ið við háskólann í Cambridge.
Gunnar G. Schram hefir verið
ráðinn ritstjóri Vísis og mun
innan skamms taka við þeim
starfa.
Dagskró Alþingis
SAMEINAÐ ALÞINGI heldur fund kl.
I, 30 I dag. A dagskrá eru:
1. Rannsókn kjörbréfs.
2. Fyrirspurn: ASild ríkisstofnana að
Vinnuveitendasambandi íslands —
Ein umr.
3. Skóli fyrir fiskmatsmenn o. fl., þál-
till. — Hvemig ræða skuli.
4. Reiðvegir, þáltill. — Frh. einnar
umr. (Atkvgr. um nefnd).
5. Radíóviti á Sauðanesi, þáltill. —
Frh. einnar umr. (Atkvgr. um
nefnd).
S. Skattar námsmanna og bætur sam-
kvæmt almannatryggingalögum, þál
till. — Frh. einnar umr. (Atkvgr.
um nefnd).
7. Sjálfvirk símstöð i Borgarnesi, þál-
till. — Frh. einnar umr. (Atkvgr.
um nefnd).
t. Rafvæðing Norðausturlands, þáltill.
— Frh. einnar umr. (Atkvgr. um
nefnd).
S. Vaxtakjör atvlnnuveganna, þáltill.
— Frh. einnar umr. (Atkvgr. um
nefnd).
10. Hafnarframkvæmdir, þáltill. —
Frh. einnar umr.
II. Lánsfé til Hvalfjarðarvegar, þáltill.
— Frh. einnar umr.
12. Umferðaröryggi á leiðinni Reykja-
vík—Hafnarfjörður, þáltill. — Frh.
einnar umr.
13. Rykbinding á þjóðvegum, þáltill. —
Frh. einnar umr.
14. Fiskveiðar með netjum, þáltill. —
Frh. einnar umr.
15. Rannsókn fiskverðs, þáltill. ■— Frh.
fyrri umr.
16. Vitar og leiðarmerki, þáltill. — Ein
umr.
17. Sjálfvirk símstöð á Siglufirði, þál-
till. — Ein umr.
38. Akvæðisvinna, þáltill. — Ein umr.
19. Læknaskortur, þáltill. — Ein umr.
20. Brottflutningur fólks frá Islandi.
þáltill. — Ein umr.
NA /5 hnúfor / SV 50 hnútor X Snjóiomo > 06 i V Shirir K Þrumur WÍS, KutíasM Hitaski! H Hasi L L<m9S
Mobutu undirbúi mótleik
sinn við mögulegri afvopnun
Kongóhers.
Tshombe las fyrir fréttamönn-
um í Elisabethville í dag bréf,
sem hann kveðst hafa ritað
Hammarskjöld, frkvstj. i>ar er
því harðlega mótmælt að Kongó
her verði afvopnaður. I bréfinu
segir ,að Katanga sé eina Af-
ríku-„ríkið“, sem hafi verið neit
að um viðurkenningu sem sjálf-
stæði ríki, en Katanga muni
ekki afsala sér sjálfstæði sínu.
Tshombe sagði ,að yrðu her-
menn og lögregla Katangafylkis
afvopnuð myndu íbúarnir hverfa
frá vinnu sinni á ökrunum og
í námunum og framleiðsla hér-
aðsins stöðvast. Hann tilkynnti
að hann hygðist flytja ávarp
á geysifjölmennum útifundi í
Elisabethville á morgun og
skýra þjóðinni frá þeirri fyrir-
ætlan stjómarinnar að búa alla
íbúa alvæpni til þess að þeir fái
varið frelsi og sjálfstæði þjóðar
sinnar, ef Sameinuðu þjóðirnar
samþykki að afvopna herinn. —
Um Lumumba, sagði Tshombe,
að hann væri á lífi og lifði vel,
en hann hefur undanfarið verið
í haldi í Katanga. Jafnframt
sýrði Tshombe frá því, að
franski fallhlífarhermaðurinn,
Trinpuier, ofursti, væri vænt-
anlegur til Elisabethville til að
verða ráðgefandi herlögreglu-
flokkum fylkisins. Ekki kvað
Tshombe þó líklegt, að harm
yrði skipaður yfirmaður þeirra.
★ Motbutu býzt um
Þá skýrði talsmaður Samein-
uðu þjóðanna frá því í Elisa-
bethville í dag, að vænzt væri
flugvéla til þess að flytja á brott
Frh. á bls. 23.
Evrópuráðsteina
um tfeimiiug
Skallábíl
og fótbrotnaði
NESKAIJPSTAÐ, 7. febr. — Bif
reiðarslys varð hér í dag er fólks
bifreið ók á hægri ferð austur
aðalgötu bæjarius. Átta ára göm
ul telpa renndi sér á sleða þvert
fyrir bílinn og skall á hann og
fótbrotnaði.
UM síðustu mánaðamót var hald
in ráðstefna í aðalstöðvum Ev-
rópuráðsins í Strasbourg um
samstarf Evrópuríkja um að gera
tæki til að koma á loft gervi-
hnöttum í friðsamlegum tilgangi.
Ráðstefnan var haldin að frum-
kvæði ríkisstjórna Bretlands og
Frakklands. Forseti hennar var
Thorneycroft, flugmálaráðherra
Breta.
Fulltrúar voru frá Noregi, Sví-
þjóð, Danmörku, Hollandi,
Belgíu, Þýzkalandi, Sviss og
Spáni auk brezku og frönsku full
Spiluöu
ekki spilið
MARGIR urðu furðu lostnir
af fréttinni, sem birtist hér
í blaðinu í gær um konurn-
ar í Neskaupstað, sem voru
að spila bridge og fengu
sinn litinn hver. Við nánari
eftirgrennslan í gær var
okkur sagt að Irtgibjörg Sig
urðardóttir, sem gaf að
þessu sinni, hafi ekki hafið
sagnir af undrun yfir þeim
spilum, sem hún hafði á
hendinni. Féll þvi spila-
mennska í þessu einstæða
spili niður.
trúanna. Einnig Voru á'heyrnar-
fulltrúar frá Austurríki Grikk-
landi, Tyrklandi og Kanada.
♦ ★ ♦
Ræddar voru tillögur frá Bret-
um og Frökkum. Kom fram
mikill áhugi á máli þessu, sem
rætt var frá sjónarmiðum stjóm-
mála, vísinda, tækni og fjármála.
1 tillögunum er lagt til, að kom-
ið verði á fót sérstakri stofnun,
sem hafi það í fyrst í stað að
markmiði, að gerð verði þriggja
þrepa eldflaug. Veri fyrsta þrep-
ið brezka eldflaugin Bláa rákin,
annað þrepið frönsk eldflaug, en
þriðja þrepið eldflaug gerð í öðru
Evrópuríki. öll aðildarríki stofn-
unarinnar eiga að fá tækifæri
til að kynna sér árangur rann-
sókna, sem önnur aðildarríki
hafa gert, og að fylgjast með þvi,
sem fram kemur við rannsóknir
á vegum stofnunarinnar sjálfrar
a sínum tíma.
♦ J EINS og skýrt var frá í blað-
inu í gær, kemur ein af stærstu |
og kunnustu hljómsveitum.
bandaríska f lughersins hingað '
til bæjarins í dag. Mun hljóm-
sveitin halda þrenna hljóm-
leika hér á vegum Lionsklúbbs
ins Baldurs, en allur ágóði af
þeim rennur til Barnaspítala-1
sjóðs Hringsins.
Þetta er fimmtiu manna
hljómsveit, þekkt undir nafn-
inu „The USAFE Band“, og
er ísland 23 landið sem hún
heimsækir. Stjórnandi er Arn
old Gabriel höfuðsmaður.
Hljómleikarnir verða haldn
ir í Austurbæjarbíói á fimmtu
dag og föstudag kl. 7,10 e.h.
og á laugardag kl. 3 e.h. og
eru aðgöngumiðar seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar og í Anisturbæjar-
bíói.
í GÆR var blika á lofti suð-
vestan lands. Þessi blika var
fyrsta sýnilega merki lægðar-
innar og skilanna, sem sjást á
kortinu suðvestur af íslandi.
Sjálfsagt hefur ýmsum „lil?-
izt illa á blikuna", og þégar
leið á daginn, leit út fyrir, að
lægðin mundi komast það
nærri landinu í dag, að eitt-
hvað mundi hlýna í veðri og
gera úrkomu sunnanlands.
í gær-
Veiðurspáin kl. 10
kvöldi.
SV-mið: Allhvass SA í nótt,
hvass sunnan á morgun, rign-
ing öðru hverju.
SV-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið og Breiðafj.mið: ••
Austan stinningskaldi og dá- i
lítil snjókoma eða slydda í S
nótt, allhvass SA og skúrir á •
morgun. ^
Vestfirðir og miðin: Vax- i
andi austan átt, stinnings- )
kaldi með morgninum, hvasst (
og snjókoma síðdegis. s
Norðurland til Austfjarða, )
norðurmið og NA-mið: Þykkn ^
ar upp með austan kalda í s
nótt, dálítil snjókoma árdegis, )
léttir til með SA átt og hlýnar ^
síðdegis. s
SA-land, Austjarðamið og )
SA-mið: Allhvass SA þegar ^
líður á nóttina, rignihg öðru s
hverju. j
31 biðu
bana
LISSABON, Portúgal, 7. febr.
fReuter) — Tilkynnt var í
dag, að 31 maður hefði látið
lífið í óeirðum þeim, er urðu
í portúgölsku nýlendunni
Angola á vesturströnd Afríku
um helgina. Áður hafði verið
tilkynnt, að 24 Afríkumenn og
þrír hvítir menn hefðu beðið
bana þar af sex lögreglumenn
og einn hermaður.
Stjórnarblaðið Diario De
Manha sagði í dag, að sumir
þeirra, sem handteknir voru
vegna aðildar að óeirðunum,
hefðu verið undir áhrifum á-
fengis eða eiturlyfja. Aðrar
heimildir herma, að margir
þeirra, sem stóðu að óeirðun-
um, hafi verið klæddir á sama
hátt og uppreisnarmennimir,
sem tóku lystiskipið „Santa
Maria".
Dagblöðin hér skýrðu frá
því í dag, að þrír andstæðing
ar Salazars hefðu gengið á
fund Americo Tomas forseta
í gærkveldi. Talsmaður stjórn
arinnar sagði í dag, að þeir
hefðu ekki haft annað erindi, *
en að segja forsetanum að I-
búum Portúgal væri frjálst að
skýra frá skoðunum sínum.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI. — Félags-
vist Sjálfstæðisfélaganna er
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst kl. 8,30. — Verðlaun
verða veitt og síðar heildar-
verðlaun.
Góður afli
í Neskaupstað
NESKAUPSTAÐ, 7. febr. — Sjð
stórir bátar róa nú béðan, þar af
þrír á útilegu. Tveir útileguibát-
ar komu inn í gær og dag, Hafald
an með 25 tonn í 5 lögnum og
Pálína með um 65 tonn og hafði
10 tonn að meðaltali í lögn. Þess
ir bátar voru báðir að veiðum
suður í Skaftárdýpi. Landróðrar
bátarnir höfðu í dag 7—8 tonn
hver. Sóttu þeir stutt og er
þetta óvenjugóður afli hér um
þetta leyti árs.
Einn stór bátuir að auki, sem
æltað var að gera út frá Snæ-
fellsnesi, er nú að hefja róðra
héðan. Næg vinna er nú hér í
Neskaupstað. — S. L.
Vantar kvenfólk
SÍÐUSTU DAGA hafa Akureyr
artogararnir landað þessum afla.
Sléttbakur á föstudag 78 tonn.
Harðbakur á mánudag 138 tonn.
Kaldbakur á Sauðárkróki 88
tonn. Von er Svalbak á fimmtu-
dag. Fólksekla mikil er nú I
frystihúsinu, og er það einkum
kvenfólk sem vantar.
Fjálrhagsörðugleikar félagsina
eru miklir um iþessar mundir en
reynt mun þó að koma togurun
um út í næstu veiðiferð.
Málfundanám-
skeið Heimdallar
Eins og áður hefur verið til
kynnt, verður 2. fundur mál-
fundanámskeiðs Heimdallar hald
inn í Valhöll í kvöld fel. 8,30.
Þá mun Ævar Kvaran, leikarl
flytja erindi um framsögn. Einn
ig verður á fundinum tilkynnt
um efni næsta fundar, en hann
verður haldinn annað kvöldl.
Heimdellingar oru eindrcgið
hvattir tU að mæta vel og stund
vislega.