Morgunblaðið - 08.02.1961, Qupperneq 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 8. febrúar 1963
Handknatf leikur:
Landsliðið
gegn blaðaliði
IJndiy búní^gur utanfarar
á lokastigi
LANDSLIDIÐ í handknatt-
leik hefur nú endanlega ver-
ið valið en það heldur utan
eftir hálfa þriðju viku til
úrslitakeppni heimsmeistara-
keppninnar. Utan fara 13
leikmenn auk farastjóra og
þjálfara. Áður höfðu 12 menn
verið valdir til fararinnar en
nú hefur verið ákveðið að
Erlingur Lúðvíksson ÍR
verði og í landsliðiinu.
4 Vel æft
Þjóðverjar, sem sjá um keppn-
ina, kosta fargjöld íslendinganna.
Vilja þeir að liðið fari utan 27.
febrúar, en HSÍ vinnur nú að því
að fara með ferð hinn 26. febr.,
þar sem sú ferð er miklum mun
hagkvæmari og ekki eins erfið
vegna færri viðkomustaða flug-
vélarinnar.
Æfingar hafa verið stundað-
ar af kappi að undanförnu
bæði í Reykjavík og eins hefur
verið farið suður á Keflavík-
urflugvöll og æft í húsinu þar
sem hefur fullstóran leikvöll.
Benedikt Jakohsson hefur séð
um þrekþjálfun piltanna en
Hallsteinn Hinriksson hefur
þjálfað þá í listum handknatt-
leiksins. Þá hefur og verið
ákveðið að Hallsteinn sjái um
skiptingtu leikmanna í leikun-
um úti, en hann ásamt for-
manni landsliðsnefndar, Hann
esi Sigurðssyni, mun annast
um val liðsmanna hverju
sinni. Þó verður liðið í fyrsta
leiknum ákveðið hér heima
áður en haldið verður af stað.
4 Keppnin
Eins og kunnugt er verða 12
landslið í úrslitakeppninni. Er
þeim skipt í 4 riðla 3 í hverjum.
Leikirnir í riðlunum fara fram 1.,
2. og 3. marz. ísland er í riðli
með Danmörku og Sviss og verð-
ur leikurinn við Dani 1. marz en
gegn Sviss 2. marz. Fyrri leikinn
leika íslendingar í Karlsruhe, en
þann síðari í Wiesbaden. Tvö
efstu lið hvers riðils fara í loka-
umferðina — 8 liða keppni.
Ásbjörn Sigurjónsson form.
HSÍ sagði að sambandið hefði ósk
að eftir aukaleikum úti ef ísland
kemst ekki áfram í keppninni.
Þjóðverjar hafa svarað og segjast
reiðubúnir að greiða fyrir slíkum
vinaleikum, en taka það jafn-
framt fram að þeir búist við því
að ísland verði í 8 liða keppninni.
♦ „Pressuleikur“
Einn siðasti liður æfinga
landsliðsins er æfingaleikur á
sunnudaginn kemur gegn liði
er iþróttafréttamenn velja. —
Verður leikurinn á Keflavík-
urvelli og hefst kl. 3. Liðin
verða væntanlega tilkynnt á
morgun.
AB. BAHCO
Stockholm
BAHCO fyrirtækið sænska, sem framleiðir
heimsfræg verkfæri, hefir nú mjög aukið
starfsemi sína.
Framleiðsla þess nær nú yfir þessar vörur:
bahco —
PRIMUS
E.A. BERGS
suðutæki
og áhöld
sporjárn, tengur,
hnífar o. fl.
ESKILSTLMA
hnífar,
allar teg. o. fl.
Allt eru þetta þekktar gæðavörur
Umboðsmenn fyrir AB. BAHCO
Þórður Sveinsson & Co. hf•
Reykjavík
Úr leik Fram og ÍR. — Karl Benediktsson hefur brotizt í gegn og flýgur að ÍR-markinu. —
(Ljósín- Sveinn. Þormóðsson)
FH „burstaði" Val og
L JT _
Fram vann IR 30—16
U M helgina fóru fram sjö
leikir íslandsmótsins í hand-
knattleik. Mestur var spenn-
ingurinn á sunnudagskvöld-
ið en þá mætti FH Val og
Merki þetta gerði Halldór Pét-
ursson listmálari. Er það 50 ára
afmælismerki ÍSÍ, sem gert
verður og selt til ágóða fyrir
afmælishátíðina á næsta ári.
Danskur fimleika-
kennari kynnir
Island
DANSKUR maður, leikfimis
kennarinn A. Kalsbþll, sýnir um
þessar mundir litkvikmynd frá
Islandi og flytur fyrirlestur fyrir
skóla og félög í Danmörku, þeim
að kostnaðarlausu, aðeins af
áhuga fyrir að vekja athygli
Dana á þessari fallegu eyju.
1 desembermánuði var mynd
þessi sýnd í fyrsta skipti fyrir
menntaskólann í Hadeslev, og
hafði blaðið Dannevirke, það þá
eftir rektor, að þetta væri bezta
landfræðilega kvikmyndin, sem
nokkurn tíma hefði verið gerð.
Kvikmyndin heitir „This is
Iceland", er tal- og litmynd, sem
hálftíma tekur að sýna. Hrósar
ofarnefnt blað myndinni mjög,
eínkum fyrir fallegar myndir úr
náttúrunni og yndislegar dýra-
Framhald á bls. 23.
Fram og ÍR mættust einnig.
Sem vænta mátti fór FH með
yfirburðasigur af hólmi, skor
aði 25 mörk gegn 8 mörkum
Valsmanna. En óvæntari' var
stórsigur Fram yfir ÍR 30
mörk gegn 16.
★ Yfirburðir FH
Vörn Vals stóð sig allvel í
byrjun gegn leiftursnöggum F*H-
mönnum, en smám saman náði
FH algerum tökum á leiknum.
I hálfleik stóð 11—3.
í síðari hálfleik náði FH glæsi-
legum leik á köflum og yfirburð
ir liðsins voru enn meiri á vell-
inum en markatalan segir til
um. Sólmundur í Valsmarkinu
stóð sig vel og bjargaði mörgu
góðu markskotinu. Beztir FH-
manna voru Ragnar, Einar og
Kristján að ógleymdum Hjalta í
markinu.
★ Óvæntur sigur Fram
Fram sýndi það gegn IR að
það kann vel að notfærg sér
veilur í vörn mótherjans. Með
yfirveguðum leik náði Fram er
leið á fyrri hálfleikinn algerum
tökum á leiknum og sigraði með
,,bursti‘ 30—16.
Það var fyrst og fremst gott
línuspil sem færði Fram þennan
yfirburða sigur. Notfærðu Fram-
arar sér vel opna vöm ÍR-liðs-
ins smeygðu sér í skotfærið og
skoruðu úr dauðafæri. Beztir
Framara voru Guðjón og Agúst
en hjá IR bar að venju mest á
Gunnlaugi og Hermanni.
Þetta sama kvöld léku Vík-
ingur og Armann í 2. flokki
kvenna. Höfðu Víkingsstúlkurn-
ar yfirburði og unnu 6—1.
★ Laugardagurinn
A laugardagskvöldið fóru fram
4 leikir. I 2. flokki kvenna mætt-
ust fyrst Valur og Breiðablik
Kópavogi. Náðu Kópavogsstúlk-
urnar yfirburðum og unnu með
10 gegn 1. I sama flokki mættust
FH og KR og unnu FH-stúlkurn-
ar með 6 gegn 3.
Þá mættust Valur og Fram i
2. flokki karla og sigraði Fram
með 8 gegn 7. Var leikurinn mjög
spennandi og tvísýnn undir lok-
in.
Þá fór fram leikur milli Akur.
nesinga og Armanns í 2. deild
meistaraflokks. Var leikurinn all
góður og á köflum vel leikinn
af báðum. Svo fór að Armann
sigraði með 26 gegn 21.
Stórsvigsmót Ármanns
í Jósepsdal
STÓRSVIGSMÓT Ármanns var
haldið í Jósefsdal sl. sunnudag.
Skráðir voru um 40 manns til
leiks, frá ÍR, KR, Ármanni og
Skíðafélagi Siglufjarðar. Veður
vár gott, frost og sólskin. Keppn-
in var í Suður-gili. Brautirnar
lagði Stefán Kristjánsson. Mót-
stjóri var Bjarni Einarsson. Um
40 hlið voru í karlabraut og held
ur minna í kvennabraut. Mótið
byrjaði laust eftir hádegi og fór
hið bezta fram.
Eftirtaldir keppendur voru
fyrstir í mark:
Kvennaflokkur
1. Karolína Guðmundsdóttir KR .... 31,6
2. Marta B. Guðmundsdóttir KR .... 31,8
3. Arnheiður Arnadóttir Á ..... 34,5
4. Sesselja Guðmundsdóttir Á ........ 41,5
5. Halldóra Árnadóttir A ........ 45,5
6. Guðríður Guðmundsdóttir Á .... 74,6
Karlaflokkur
1. Ölafur Nilsen KR ............ 57,5
2. Valdimar Örnólfsson ÍR ...... 58,3
3. Marteinn Guðjónsson KR ...... 60,4
4. Stefán Kristjánsson Á ....... 61,0
5. Bogi Nilson SS .............. 61,9
6. Asgeir Úlfarsson KR ......... 62,6
Mannmargt var í Jósefsdal um
helgina. Um 40 manns gistu í skál
anum um nóttina. 200 manns
sóttu Dalinn á sunnudaginn.
Stefán Kristjánsson íþrótta-
kennari annaðist kennslu fyrir
hádegi, við Ármannsskálann og
voru mjög margir, börn og ung-
lingar í kennslu hjá Stefáni. Bíl-
ferð var langt inn í Dal og auð-
velt að komast þangað.