Morgunblaðið - 09.02.1961, Side 1
24 síður
■■
i j
Wtanríkisráðherra Belgiu sakar Sam->
Í S
| einuðu Þjódirnar um nýlendustefnu \
E K KI fer á milli mála, að eitthvað nýtt er á seiði í
Kongó-málinu. Telja menn líklegt, að Kennedy, forseti
Bandaríkjanna sé að reyna nýjar leiðir til þess að leysa
málið og friða Kongó. Samtímis því er talið, að hann reyni
einnig nýjar leiðir til lausnar Laosdeilunni.
Ekki er þó fyllilega ljóst hver afstaða Bandaríkjamanna
til Kongómálsins er, þótt ýmislegt bendi til þess að Kenn-
edy sé hlynntur tillögum Hammarskjölds, sem nú eru til
wmræðu í Öryggisráðinu. Er þar óskað eftir víðtæku um-
boði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir afskipti
Kongóhers af stjórnmálum landsins. Jafnframt er talið að
Kennedy hafi hug á að fá Lumumba lauslátinn, svo og
aðra pólitíska fanga, svo að unnt verði að mynda sam-
steypustjórn með aðild sem flestra stjórnmálaaðila lands-
ins. — Ennfremur mun Kennedy vera þess fýsandi, að
allir belgiskir ráðgjafar hverfi frá Kongó.
Timberlake, sérlegur sendi-
maður Bandaríkjastjórnar í
Leopoldville, sem þar hefur
dvalið um nokkurt skeið, er
nú staddur í Wasliington til
þess að gefa stjórninni
skýrslu um ástandið í land-
Inu. Hefur hann sagt, a®
stjórnin íhugi málið frá öll-
nm hliðum, en engin endan-
leg stefna hafi enn verið
tekin. Timberlake átti tveggja
klst. fund fyrlr luktum dyr-
um með Afríkumálanefnd
fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings og flutti þar skýrslu.
Á hinn bóginn herma fregn
|r NTB-fréttastofunnar, að
Fierre Wigny, utanríkisráð-
herra Belgiu, hafi í dag sak-
að Sameinuðu þjóðirnar um
nýlendustefnu í Kongómálinu
og jafnframt sakað Banda-
ríkjamenn um að taka af-
Btöðu til málsins, sem sam-
ræmist engan veginn hags-
munum bandalagsþj. þeirra.
I fréttum frá NTB segir, að
Wigny hafi setið fund utanrík-
jsmálanefndar belgíska þingsins
I dag, ásamt Gastons Eyskens,
forsætisráðherra, er svaraði fyr-
irspurnum.
Wigny sagði á fundi þessum,
að Belgir gætu á engan hátt fall-
izt á þá uppástungu Bandatríkja-
manna, að allir belgiskir stjórn-
málaráðgjafar fari á brott frá
Kongó. Hann kvaðst vilja benda
á, að Sameinuðu þjóðirnar ættu
erfitt með að hafast nokkuð að
í Kongó, sem gagn vætri að og
hélt því fram, að réttast væri að
byggja ekki svo mjög traust sitt
á samtökum hinna Sam. þjóða
í framtíðinni. Wigny lagði á-
Frh. á bls. 23.
Áríðandi skeyti, hljóð-
merki og rússnesk orð
Auka enn forvitni manna varSandi
rússneska gervihnöttinn
London og Bonn, 8. fébrúar.
-—• (Reuter) —•
í DAG barst stjörnuathugun-
arstöðinni í Edinborg „áríð-
andi“ skeyti frá Moskvu, þar
sem skýrt var frá því, að
hnötturinn færi væntanlega
yfir Edinborg um kl. 7 í
fyrramálið. Voru í skeytinu
ýmsar upplýsingar um braut-
argöngu gervihnattarins. Að
öðru leyti hafa Rússar enn
ekkert látið uppi um hnött
þennan. Hins vegar hafði
vestur-þýzki stjöfnufræðing-
urinn Heins Kaminski, heyrt
hljóðmerki í morgun, er hann
taldi vera frá hnettinum. —
Einnig hafði hann heyrt ein-
stöku rússnesku orð og setn-
iingabrot á sömu bylgjulengd.
Talsmaður athugunarstöðvar-
innar í Edinborg skýrði frá því
í dag, að upplýsingar um braut-
argöngu rússneska gervihnatt-
anna væru vanar að berast með
tveggja daga fyrirvara og aldrei
fyrr hefðu þær verið merktar
„áríðandi". Hann sagði, að
Frh. á bls. 23.
Mynd þessi er tekin í Belgín
um síðustu helgi, er gjall-
og öskuhaugur hafði hrunið
yfir nokkur hús og grafið
tuttugu manns lifandi.
Ellefu lík hafa fundizt í rúst
unum en unnið er að því að
hreinsa þær. Er talið að
hreisunin muni taka allt að
5—6 vikur. Baldvin kon-
ungur lagði þegar af stað
á slysstað er fregnir af slys
inu bárust til Brússel og
fylgdist með björgun-
arstarfinu fyrstu dagana.
Ummæli varaforseta Sambands
brezkra togaraeigenda
St}órninni ekki
settir úrslitakostir
Breytir Kenneúy um
stef nu í Kongd?
20 manns og nokkur hus
grófust undir óskuhaug
Engar samkomulagshorfur i
kjaradeilu Vestmannaeyinga
FULLTRÚAR í kjaradeilu fiHöfðu
atvinnurekenda og Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja
voru sem kunnugt er kallað-
fr til sáttafunda í Reykjavík.
Komu þeir til Reykjavíkur
með Herjólfi í gærmorgun.
Torfi Hjartarson, sátta
semjari ríkisins og Jónatan
Hallvarðsson, hæstaréttar-
dómari, sáttafund með deilu-
aðilum frá kl. 2 % til kl. 7
í gærkvöldi. Ekkert miðaði í
samkomulagsátt á þessum
fundL
Mbl. hefur fregnað, að
sáttasemjari liafi ekki mein-
að samninganefndarmönnum
að fara úr bænum, þar sem
hann hefði ekki ákveðið,
hvenær boðað yrði til næsta
fundar með þeim.
Togarar hefja ekki veiðar innan
tólf milna i næsta mánubi
í EINKASKEYTI til Mbl. frá
Grimsby, er skýrt frá því, að
J. R. Cobley, varaforseti sam
taka brezkra togaraeigenda,
hafi neitað fregnum um, að
brezkir togarar muni hefja
veiðar innan tólf mílna mark
anna við ísland í næsta mán-
uði, náist ekki samkomulag
fyrir þann tíma eða viðræð-
ur verði ekki hafnar. Cohley
segir, að togaraeigendur hafi
ekki sett brezku ríkisstjórn-
inni neina úrslitakosti en
málið sé vissulega afar knýj-
andi.
Segir Cobley að togaraeigend-
ur séu í stöðugu sambandi við
ríkisstjórnina, sem geri sér full-
komna grein fyrir því hverjar af
Frh. á bls. 2