Morgunblaðið - 09.02.1961, Side 8

Morgunblaðið - 09.02.1961, Side 8
8 MORCVNBLADIÐ Fimmtudagur 9. febrúar 1961 Um arðsemi búgreina Huglei^ing urn landbunaðarmá! Efiir Bjorn Stefánsson ÁÐUR en lengra er haldið, vil ég vekja athygli á því, að í greinaflokknum Landbúnaður í deiglu er víða farið skakkt með heimildir. Svo að nokkuð sé nefnt, er þetta tekið með: Á bls. 56 nefnir Breirem, að kjúk- lingakjöt í Bandaríkjunum sé ó- dýrara en annað kjöt og kosti enskt pund haustið 1958 30— 35 sent. Á bls. 58 nefnir hann, að verð til framleiðenda vorið 1959 hafi ekki verið svo lágt síðan í stríðsbyrjun eða 16,3 cent á enskt pund. Gunnar slær saman verði framleiðenda og neytenda, og við fáum þessar andrku setn- ingar: „þensluævintýri þessa kapítalíska bandalags kornsins og hænunnar stöðvaðist sl. ár (1959) með illþyrmislegum á- rekstri á vegg offramleiðslu og verðhruns. Verðið á kg kjúk- lingakjöts féll skyndilega úr 60 sentum niður í 33 sent-------“! Auðvitað verða þarna eins og annars staðar tvö ensk pund eitt kg! Tafla um útflutning eggja og hænsnakjöts frá Hollandi verð- ur tafla um framleiðslu eggja og kjúklinga í Hollandi. Sirkula- sjonssykdommer er þýtt nær- ingarsjúkdómar. Tafla um verzl. un með kjarnfóðurblöndur verð- ur hjá Gunnari tafla um notkun kjarnfóðurs. Þó að vitað sé, að ekki nema nokkur hluti kjarn- fóðurs í kornræktarlöndum er í verzlun og að aðeins hluti kjarn- fóðurs í verzlun er seldur í blönd um. 2% fólksfjölgun á ári í 10 ár verður auðvitað 20 %. Sagt er í 5. grein, að sam- kvæmt skýrslu ríkisstjórnarinn- ar til OEEC hafi vinnumönnum í sveit á íslandi fækkað á árun- um 1940 til 1950 úr 9894 í 7197 og síðar er sagt, að ef til vill séu vinnumenn jafnmargir og bændur. Ég veit, ekki, hvort þetta er sagt til að skemmta fólki eða hæðast að ríkisstjórn- inni fyrir skýrslugerð. Ríkis- stjórnin hefur væntanlega látið í té tölur um fjölda þeirra, sem þiggja laun fyrir landbúnaðar- störf, og er því alsaklaus af vit- leysunni. Siðan er þessi „vinnu- manna“-fjöldi lagður við tölu bænda og sýnt fram á, að held- ur litlu sé afkastað í sveitum landsins! Fleira mætti til tína, en þó er verst, að víða eru dregnar álykt- anir, án þess að séð verði, að nokkur fótur sé fyrir þeim. Er þar kominn hrossaræktaáðu- nauturinn með sinn andlega á- burðarhest, klyfjaðan öðrum megin andríki og hugmynda- flugi, en hinum megin rökvísri hugsun, og hallast heldur á, enda snarast fljótt á klárnum. Síðar verður gerð tilraun til að hjálpa ráðunautnum að búa betur upp á klárinn og vikið að nokkrum fullyrðingum hans. Sæluríki neytenda f greinaflokk Gunnars Bjarna- sonar er nokkrum sinnum vik- ið að erfiðleikum bandarískra bænda vegna verðfalls á afurð- um þeirra. Síðan er gjarna bætt við, að þetta sé „sæluríki neyt- enda“, kjör neytenda batni og verðfall á vörunum komi neyt- endum til góða. Okkur, sem aldir eru upp í trú á ágæti frjálsrar verðmyndunar, sýnist þetta ósköp sjálfsagt. En í reyndinni stígur verð til neyt- enda þar vestra, þó að verðfall verði til framleiðenda. Sam- kvæmt rannsókn í Bandaríkjun- um (U. S. News and World Re- port, June 8, 1959) hafði smá- söluverð á matvöru hækkað um 20% frá 1949 til 1958, en verð til framleiðenda féll um 8%. Frá Kanada er sömu sögu að segja, og í Frakklandi er vanalegt, að verð til bænda faíli, án þess að það hafi áhrif á smásöluverð. Eina leiðin, sem reynzt hefur fær til að tryggja hagstæðari verðlagsþróun er að samvinnu- félög bænda taki að sér verzlun- ina. Bandarískir bændur hafa nú hinn mesta áhuga á að efla með sér samvinnu og hafa m. a. sent menn hingað tií Noregs til að kynna sér málið. í Bandaríkjun- um styrkjr það aðstöðu bænda • • Onnur grein í baráttu þeirra, að þeir geta bent neytendum á, að verðfali- ið komi þeim ekki til góða. Það er eðlilegt, að menn spyrji, af hverju hin frjálsa verð myndun nái ekki til milliliðanna. Til að skýra það mætti nefna eftirfarandi: Hin frjálsa verð- myndun er takmörkuð af hvers konar samtökum. Launþegar hafa sín verkalýðssamtök, sem banna mönnum að taka lægri laun en samið er um, þótt þeir séu atvinnulausir, iðnaðarmenn hafa sín bréf, háskólafóík sín sérréttindi, bæði iðnaðarmenn og háskólafólk reyna að takmarka aðsókn í stéttir sínar, iðnrekend ur mynda hringa, sem enginn lagabókstafur fær náð til, og að lokum hafa kaupmenn þegjandi samkomulag sín á milli um að halda ákveðnu verði. Komið hefur í ljós hér í Noregi, að flestar verzlanir fylgja leiðbein. ingum frá verksmiðjum um verð. Þar með er ekki sagt, að öíl verðsamkeppni sé horfin, og er auðvelt að nefna dæmi þess, en minnt á þær hömlur, sem lagðar eru á samkeppnina, af því að þeim er oft haldið leyndum. Hvar er þá samkeppni? Sam- keppnin hefur að miklu leyti færzt yfir frá samkeppni um verðlag og er nú orðin sam- keppni um þjónustu, um legu verzlunar o. s. frv., og ekki má gleyma garminum honum Katli, auglýsingatækninni. Bandarísk auglýsingastarfsemi er sam- kvæmt mörgum samfélagsfræð- ingum þar vestra öfl, sem ógna óháðri skoðanamyndun og ala á stöðugri óánægju meðal al- mennings til þess að koma út vörunum (Aldous Huxley í Brave New World Revisited o. fl.). Hv.ar standa svo bandariskir bændur í þessum heimi samtaka ,og ófrjálsrar verðmyndunar? Þeir hafa engin samtök um sölu á afurðum sínum, en sláturhús og verzíanir láta þá rífast um að fá að losna við þær. * Hér má bæta því við, að bandarískir hagfræðingar játa, að bændur hafi rétt fyrir sér, þega þeir benda á, hvernig kreppt er að frjálsri verðmynd- un í Öðrum greinum atvinnulífs- ins, en þeir svara bændum og segja, að þeir eigi heldur að reyna að höggva á fjötrana í stað inn fyrir að reyna að færa at- vinnulífið í fastari fjötra. Ann- að er, hvort það er kleift. Afköst í landbúnaði Það er nokkuð algent, að menn geri samanburð miíli landa á afköstum í landbúnaði. Þetta gerir Gunnar einnig í 5. grein sinni. Dæmið er gjarnan sett upp þannig: í Bandarikjunum geta 5% af þjóðinni við ríkjandi að stæður fullnægt búvöruþörf þjóð arinnar. Á íslandi er þessi tala um 15%. Þó er framleiðslan vestra svo margfalt fjöíbreytt- ari. Ályktunin verður þá ein- föld: Islenzkir bændur eru bú- skussar, bornir saman við stétt- arbræður í Bandaríkjunum, Hér verða gerðar nokkra athuga semdi við slíkar ályktanir. 1. f rauninni starfa 12% af bandarísku þjóðinni við landbún að. Talan 5% er þannig fengin: 44% af bændum framleiða yfir 90 % af búvöruframleiðslunni. (Hér ætti að standa af seldri framleiðslu. Bæði Gunnar og Breirem gera sömu villuna. Þetta skiptir nokkru máli). Auk þess er nokkur offramleiðsla. Á sama hátt mundi talan 15% lækka, ef aðeins væru teknir með þeir, sem miklu afkasta og þeir dregnir frá, sem svarar til vinnu við framleiðsíu á sauð- fjárafurðunj, til útflutnings (10 —15% af verðmæti heildarfram- leiðslunnar). 2. Þær búgreinar, sem Banda- fríkjamenn stunda umfram ís- lenzkar búgreinar, þarnast í eðli sínu mjög lítils vinnuafls (akur- yrkja). 3. Ef við höldum okkur við töluna 5%, ber að draga frá þá bændur á íslandi, sem hafa önn- ur störf með búskapnum.. Sverr- ir Gíslason í Hvammi upplýsti á aðalfundi Stéttarsambands bænda í haust, að 217 bændur hefðu yfir 50 þús. kr. í tekjur utan bús (kennarar, prestar, vegaverkstjórar o. fl.) I verð- 'lagsgrundválli eru launatekjur áætlaðar um 8% af tekjum bóndans. 4. íslenzkir bændur hafa með höndum ýmis störf, sem eru nánast borgarleg skylda og eru ólaunuð. Vegna lítilla sveitar. félaga og fámenns þjóðfélags verður þátttaka í opinberum störfum almennari en vestan hafs (og um leið stendur lýð- ræðið fastari fótum). Vestra eru slik störf í stærri stíl en á ís. landi unnin af launuðu fólki. 5. Hér í Noregi heyrist oft slagorðið: Varan er ekki fram- leidd, fyrr en hún er seld. Á fslandi stjórna bændur sjállfir milliliðastarfseminni. I Banda. ríkjunum láta bændur aðra um þá hluti. Þessi munur verður ekki metinn í ársverkum eða til fjár. 6. íslenzkur búskapur er ekki eins hreinn viðskiptabúskapur og bandarískur, þ. e. a. s. á ís- landi vinnur bændafólk ýmis störf að meira eða minna leyti, sem bændur vestra láta aðra gera fyrir sig í stærri stíl. Þetta er margt smávegis, sem engin leið er að mæla, en skiptir máli, þegar saman er dregið. Til skýr. ingar má nefna matvælageymslu og matseld (tilbúinn matur vestra), slátrun til heimilis, strokkun og skyrgerð, barna- kennsla o. fl. í sambandi við heimilisstörf, og við búskapinn má nefna byggingar og viðgelð- ir (langt á verkstæði). 7. Á íslandi neyta menn meira af þeim landbúnaðarafurðum, sem í eðli sínu eru vinnufrekari í framleiðslu en þær afurðir, sem menn neyta vestan hafs. Þessu til skýringar birtist tafla, sem sýnir brúttótekjur í dollurum fyrir 100 vinnustundir: Mjólkurkýr 180 Eggjaframleiðsla 444 Sláturgrísir 784 Kjúklingar 726 Holdanaut 2805 Það er rétt að leggja áherzlu á, að hér er um brúttótekjur að ræða. Tölurnar segja því ekkert um arðsemi einstakra búgreina. Gera verður ráð fyrir, að arðsemi búgreina sé lík, þar sem flestir bændur geta valið á milli fram- leiðslugreina. Einnig er rétt að minna á, að tölurnar eru banda- rískar, svo að menn dragi ekki of ákveðnar ályktanir um vinnu þörf við holdanaut á íslandi. Taflan sýnir, að mjólkurfram- leiðsla er í eðli sínu vinnufrek. Samkvæmt íslenzkum athúgun- um er sauðfjárrækt nokkurn veg inn eins vinnufrek og mjólkur- framleiðsla miðað við brúttó- tekjur, en eins og sýnt er fram á í kaflanum Kjarnfóðurbúskap- ur fyllilega samkeppnisfær við framleiðslu á öðrum kjöttegund- um. íslendingar neyta af kjöti fyrst og fremst dilkakjöts, en Bandaríkjamenn nautakjöts, svínakjöts og hænsnakjöts. Þetta veldur því, að miklu fleiri hendur tiltölulega fá_ verkefni við kjötframleiðslu á íslandi. Af mjólk neyta Bandaríkja- menn 300—350 kg á mann, þeg- ar smjör og ostur er umreiknað í mjólk, en íslendingar 500— 550 kg. (Orsakir: Margt barna og unglinga, vörugæði, bjórleysi o. fl.) Ef við hugsum okkur, að 3/5 af starfi bænda sé við mjólk urframleiðslu eða um 9% af þjóðinni, mundi sú tala lækka niður fyrir 6%, ef mjólkurneyzl- an minnkaði niður í það, sem er vestan hafs. Sennilega vegur þetta atriði þyngst af öllum og er auðvitað ómetanlegt fyrir landbúnaðinn. 8. Prófessor Westermarck í Helsinki hefur útskýrt fræðilega, hvernig hagkvæmd við vélvæð- ingu er háð verðhlutfalli milli framleiðsluþáttanna, vinnu og fjármagns. Á einfaldan hátt má skýra fyrirbrigðið þannig: Ef við gerum ráð fyrir, að vinnuafl í bandarískum landbúnaði sé helmingi dýara en á íslandi, en traktor sé jafndýr í rekstri (sennilegar'forsendur), og að á íslandi borgi sig að kaupa trakt. or, ef hann sparar sem svarar % úr ársverki (ágizkun), þá borg- a sig að kaupa traktor vestan hafs, ef hann sparar sem svarar i/i úr ársverki. Samtímis hækk- ar kjörstig bústærðar við stíg- andi verðhlutfall milli vinnu og fjármagns. Þetta skýrir, að á íslandi borg ar sig að nota vinnufrekari vinnubrögð en vestan hafs. 9. Að lokum má nefna, að í Bandaríkjúnum eru vélar og verkfæri oft notað meira en talið er borga sig, og þess vegna verða eftir verkefni fyrir færri hendur. Þetta á eflaust við um íslenzkan landbúnað, en er væntanlega í stærri stíl vestan hafs. Hin óhóflega vélvæðing er Þá er skreiðin, sem íslend ingar senda suður til Kongó, á förum þangað. Skreiðarpakk arnir, sem merktir eru sem gjöf frá Rauðakrossi Íslands, var skipað í Reykjafoss á laugard., en hann flytur þá til Rotterdam. Þar er alls um rúml. 15 tonn að ræða að verð mæti um 360 þús. kr. Frá Rotterdam fer skreiðin til Matadi, hafnarborgar í Kongó. Síðar verða send til viðbótar um 4 tonn af skreið, þannig að alls verður íslenzka skreiðin um 20 tonn. Tíl Kongósöfnunarinnar safnaði Rauðikrossinn alls 425 þús. kr. í peningum og eru meðal síðustu gjafa 10 þús. kr. frá Akranesi, rúml. 18 þús. frá Akureyri, 6,300 kr., sem safnað var á Hótel Vík í Keflavík, R.X.-deildinni á fsa- firði kr. 5,300 og hjá Kópa- vogsbúum . 3,500 kr. Þá gefur Eimskipafélagið flutninginn á skreiðinni til Rotterdam. Gamli maðurinn á myndinni er aldursforseti hafnarverka- manna í Reykjavík, Þórarinn á Melnum. (Ljósm.: Mbl. Ól. K. M.) mikið rædd af hagfræðingum. Þekktur bandarískur hagfræðing ur komst svo að orði: Ef menn íhuga að hagnýta sér sjálfvirkni við búskap, ættu menn að hugsa sig vel um, og þá mun oft fara svo, býst ég við, að menn hverfa frá því að taka upp sjáít’virkni. Prófessor Breirem segir: „Það er hins vegar skiljanlegt, að full trúar iðnaðarins hafa áhuga á áróðri fyrir vélvæðingu og ann» ars konar tækninýtingu. Iðnað- uinn hefur nefnilega oft jafn- mikinn hag af aukinni tækm og landbúnaðurinn". Bent er á, að ofþensla í banda- rískum landbúnaði valdi því, að reynt sé að selja bændum meira af tækjum en þeim er i hag. Til þessa er beitt áhrifa. miklilli auglýsingatækni. Hér í Noregi eru sölumenn hálfgerð píága í sveitum, og þeir fá fólk oft til að kaupa tæki, sem engin. skynsemi er í að kaupa. Á ís- landi ber sennilega lítið á þess háttar, en ástandið í öðrum lönd- um er áminning um, að þess sé g«ett, að ráðunautar bænda og samtaka þeirra séu látnir hafa síðasta orðið, þegar bændur leita ráða. Áhrif þeirra atriða, sem hér eru nefnd, verða ekki metin í ársverkum. Augljóst er, að sá samanburður, sem getið er um í upphafi, er út í hött. Það er hagvísindum til tjóns, að menu dragi ályktanir svo gagnrýnis- laust sem raun ber vitni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.