Morgunblaðið - 09.02.1961, Side 17
Fimmtudagur 9. febrúar 1961
MORCUNBLAÐIÐ
17
Þórhallur Vilhjálms
son — Minninqarord
ÞAÐ ER eitt af lögmálum lífsins
að menn koma og fara. Nú hefur
Þórhallur Vilhjálmsson horfið til
moldar, eftir langan og starfsam-
an dag. Fráfall manna vekur alt-
af söknuð, þó við vitum að hver
stund færir okkur öll nær því
sem koma skal — það er eitt af
því sem við vitum með fullri
vissu að þangað liggur leiðin.
Þórhallur Vilhjálmsson var
fæddur að Hánefsstöðum við
Seyðisfjörð 25. júlí 1899. Hann
var sonur hjónanna Vilhjálms
Arnasonar og Bjargar Sigurðar-
dóttur er bjuggu að Hánefsstöð-
um, og var Þórhallur fjórði í röð
sjö systkina, sem öll eru lands-
kunn og áhrifafólk á sínum stöð-
um.
Það er misjafnlega bjart yfir
minningu samferðamannanna, en
yfir minningu Þórhalls Vil-
hjálmssonar er bjart, og gott að
hugsa til liðinna stunda. Þór-
hallur kom til Keflavíkur sem
roskinn maður með mikla
reynslu og viðburðaríkan feril,
bæði á sjó og landi. Hann var
áræðinn brautryðjandi í eigin
starfi og forustumaður hvar sem
hann fór. Hann var skapfastur
og gjarnan óvæginn þegar á
þurfti að halda, en skoðanir hans
yiru reistar á gjörhylgi og oft
harðsóttri reynslu. Manndómur
Þórhalls stóð föstum fótum góðr-
ar og dugmikillar ættar.
Þegar Þórhallur kom til Kefla-
víkur hafði hann farið víða um
höf, sem skipstjóri stserri skipa,
sjálfur átt sína útgerð og öðrum
unnið.
Eftir að hann hætti skipstjórn
og tók upp störf á landi, gerði
hann sér til dundurs að sækja
erlendis frá nýja fiskibáta, og
alltaf var hann jafn gíaður yfir
framförum og bættri aðbúð sjó-
manna á nýjum skipunum — þar
heyrðist aldrei neitt nöldur eða
eftirsjá yfir því hvað aðrir hefðu
það betra en var á hans sjómanns
árum. Það lýsir manninum vel,
hann var framfaramaður og trúði
á framtíðina. Hann vissi að gæfa
og gengi Islands var hnýtt órofa
böndum, við giftu og dugnað
þeirra er sjóinn sækja, til að
skapa verkefni þeim sem í landi
eru.
Þórhallur var lánsmaður í lífi
og starfi, aldrei varð slys á skip-
um hans, en mörgum varð hann
til að bjarga.
Starf sitt sem hafnarstjóri
landshafnarinnar í Keflavík, sem
hann gengdi um árabil, rækti
hann sem önnur störf, með festu
og dugnaði.
Kona Þorhalls er Sigríður
Jónsdóttir, ættuð af Fljótsdals-
héraði, þau eignuðust 4 börn.
Son sinn Braga, misstu þau er
hann var að námi í Menntaskóla
Akureyrar, hin börn þeirra eru
Guðbjörg og Vilhjálmur lögfræð
ingur, bæði í Keflavík og Birgir
deildarstjóri hjá Flugfélagi Is-
lands. Þau hjón hafa sannarlega
skilað góðum arfi í börnum sín-
um.
Þegar við nú kveðjum Þórhall
Vilhjálmsson, þá eru honum
þökkuð störf hans og forusta á
svo mörgum sviðum, en öllum
sem til hans þekktu, verður rík-
ust í huga minningin um mann-
inn glaðlynda, stefnufasta, sam-
vinnuþýða og velviljaða mann-
inn, sem lagði hverju máli það
bezta og var mestur málsvari
þeirra, sem báru skarðastan-
hlut í baráttu lífsins. Með Þór-
halli er til moldar genginn góð-
ur drengur, sem gleymist ekki.
Keflvíkingar kvöddu Þórhall
með þökk og virðingu og fáar
jarðarfarir hafa þar fjölmennari
verið. —hsj—•
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa
Hagabuðin
Hjarðarhaga 47 — Sími 19453
Foroyingafélagið
heldur fastalávints-skemtan leygarkvöldið
11. febr. kl. 9 í Silfurtunglinu.
Stjórnin
Verzlunarstjóra
vantar að matvörubúð nú þegar eða 1. marz.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist afgr. Mbl. fyrir 11. febrúar, merkt:
„1404“.
Þér lítið aðeins vel út —
að yður líði vel
heilsan er fyrir öllu gerið jbvi allt til að viðhalda henní.
Þegar Jbér farið i bað, Jbó hafið B AD E D AS i baðið
Jbað inniheldur vitamin
Bað þarf að gera meira en þvo líkaman.
★ Fólk hefur heyrt og vitað árum saman, að eitt bezta ráð til
að viðhalda góðri heilsu er að fara reglulega í bað.
★ Nú hafa hinar heimsfrægu U. H. U. verksmiðjur í Þýzkalandi
sent á markaðinn vítamínerað freðiblað, Badedas, sem
hressir, styrkir og veitir vellíðan.
★ Eftir Badedas Vítamínbað mun yður líða sérstaklega vel. —
Húð yðar mýkist og verður fersk og lífleg, og blóðið rennur
eðlilegar um líkamann. Ef þér farið aðeins eftir Badedas
baðaðferð, þá er baðið fullkomlega Vítamínerað.
Vitamin steypibað
Bleytið allan líkamann. — Látið síðan einn skammt af
BADEDAS á svampinn og berið á allan líkamann, þar til
freyðir.
Nofið BADEDAS
ævinlega án sápu. Venjuleg sápa minnkar hin hressandi og
hreinsandi áhrif BADEDAS og einnig hin nærandi og
verndandi áhrif þess á húðina.
BADEDAS fæst
í snyrtivörubúðum og víðar
HEILDSÖLUBIRGÐIR
H.A. TULINIUS