Morgunblaðið - 09.02.1961, Side 23
Fimmtudagur 9. febrúar 1961
MORGVNBLAÐIÐ
23
— Kongó
Framh. af bls. 1
iherzlu á, að Kongómenn væru
því sjálfir mótfallnir, að afvopn-
ast og lagði fram þá spumingu
hvernig önnur Afríkuríki mjmdu
bregðast við ef komið yrði á
eftirlitsstjórn Sameinuðu þjóð-
anna í Kongó. Sagði Wigny að
slík stjórn yrði sem ný nýlendu-
stjórn. Ennfremur sagði hann að
stefna Bandaríkjamanna í máli
þessu væri langt £rá því að sam-
rýmast hagsmunum vestrænna
(þjóða. Wigny lauk máli sínu með
því að krefjast þess, að 200 bel.g-
ískir liðsforingjar og óbreyttir
hermenn yrðu áfram um kyrrt í
Katanga-fylki.
Ný Kóreustyrjöld
Gaston Eyskens lét orð falla
um Kongómálið, og sagði, að
hætta væri á nýrri Kóreustyrj-
öld, ef Belgir reyndu upp á eigin
spýtur að koma aftur á ró og
reglu í Kongó.
Fréttaritari Reuters í Washing
ton skýrir firá því, að áætlanir
þær, sem Bandaríkjamenn hafi
á prjónunum til lausnar Kongó-
málsins valdi nokkrum áhyggj-
um stjórnmálamanna á vestur-
löndum. Engu að síður muni
flest þau lönd styðja Bandaríkin
í tilraunum þeirra til að leysa
deiluna.
Ný ríkisstjórn
Frá hinu margumdeilda landi
er það að frétta, að Kasavubu
mun nú undirbúa myndun nýrr-
ar ríkisstjórnar imdir forsæti
Josephs Ileo, þess sem hann
hafði lýst forsætisráðherra áður
en Mobutu ofursti tók völd, í
sínar hendur. Ileo neitaði að
gefa endanlegar upplýsingair um
málið í dag, en sagði að tilkynn-
ing yrðj birt um það opinberlega
þegar hin rétta stund væri upp
irunnin.
Reutersfregnir frá Elisabeth-
ville herma hins vegar, að Moise
Tshombe hafi verið ákaft hyllt-
ur, er hann hélt ræðu á fundi um
það bil 6 þúsund manna í borg-
inni. Réðist hann þar ákaft á
Hammarskjöld og tillögur hans
um að „afvopna Kongóher“. —
Sagði hann, að þvi mundi aðeins
fylffja öngþveiti og stjómleysi.
Vakti mikinn fögnuð er hann
sagði: Afrika er fyrir Afríku-
menn, en hvorki Bandaríkjamenn
né Kínverja. Haldi Bandaríkja-
menn sig í Bandaríkjunum, Evr-
ópubúar sig í Evrópu, Kínverjar
í Kína og Afríkumenn í Afríku.
Þjóð vor er reiðubúin til þess að
verja sjálfstæði Katanga með
vopnavaldi. — Hún hræðist ekk-
ert. Tshombe lauk máli sínu með
því að tilk. að felldur yrði nið-
ur kosningaskatíur og að- ríkið
tæki nú að sér kostnað allan af
heilsugæzlu.
★
Philip Dean, fréttamaður
Lundúnablaðsins Observers,
segir í skeyti frá New York, að
Kennedy muni vera hlynntur
tillögum Hammarskjölds, f ram
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, um að stórauka vald
og álbirgð SÞ í Kongó. Aðal-
atriðin í tilögum Hammar-
skjölds eru sögð vera þau, að
Belgíumenn skuli á brott með
allt sitt lið úr Kongó. Þeir
verði að hætta stuðningl við
Mobuto hershöfðingja, Tshom-
be í Katanga og Kalonji í Kas-
aihéraði, og yfirhöfuð verði
Belgiumenn að hætta öllum
pólitískum afskiptum af
Kongó.
í stað þessa leggur Hammar-
skjöld til að allt herlið það, sem
blýtt hefir Mobuto, gangi undir
íána SÞ, og telur Hammarskjöld
að þau umskipti verði auðveld
með því að SÞ greiði hinum
Ikongósku hermönnum umsaminn
mála. Þá leggur Hammarskjöld
til að herstjórn SÞ fari alger-
lega með stjóm flugvalla, hafn-
armannvirkja og samgöngu-
tækja, og aðgerðir verði fram-
kvæmdar til að hindra algerlega
vopnaflutninga til landsins. —
Heyrst hefir að þjóðirnar í Af-
ríku og Asíu hafi heitið því að
koma í veg fyrir rússneska vopna
flutninga til landsins.
)
Nálgast stefnu Breta
Síðustu daga hefir Kennedy átt
langar viðræður við sendiherra
Bandaríkjanna í Laos og Kongó,
og segir Cyrel Dunn, Washing-
ton-fréttaritari Observers, að nú
sé mjög um það talað að Kennedy
vilji fara nýjar leiðir í vanda- t
málum beggja þessara landa, og
reyna beinlínis að semja við
Rússa um friðsamlega lausn. Til
þess virðast benda viðræður Stev
ensons, aðalfulltrúa Bandaríkj-
anna hjá SÞ, við Zorin fulltrúa
Rússa, og viðræður bandaríska
sendihr. í Moskvu við rússneska
ráðamenn. Sagt er að stórveldin
tvö ræði um eftirfarandi hugsan-
lega lausn:
Ef Rússar hætta vopnaflutn-
ingum til uppreisnarmanna í
Laos og taka saman höndum við
Vesturveldin um stuðning við
samsteypustjórn Vientiane, þá
munu Vesturveldin e'kkert hafa
á móti samsteypustjórn í Kongó,
sem fyrrverandi forsætisráð-
herra Patrice Lumumba mætti
sitja í.
Observer segir að samkvæmt
þessu virðist Kennedy vera far-
inn að nálgast stefnu Breta í
Laos-málinu um stuðning við
hlutlausa ríkisstjórn, en hins
vegar telur það að brezka stjórn
in sé ekkl hrifin af þeirri tillögu
að Lumumba fái sæti í nýrri rík-
isstjórn Kongó, né yfir höfuð
af tillögum Hammarskjölds í
Kongó-málinu. Eru Bretar þeirr-
ar skoðunar, að Kasavubu for-
seti hafi verið kominn vel á veg
með að koma á almennri stjórn-
málaráðstefnu í Kongó, en að til-
lögur Hammarskjölds muni gera
þá viðleitni að engu.
— Gervihnöttur
Framh. af bls. 1
hnötturinn yrði væntanlega lágt
yfir Edinborg og kynni ef til
vill að hafa óheppilega um-
ferðarbraut.
22 mínútur
Heinz Kaminski, sem er for-
stöðumaður Bochum-stjörnu-
athugunarstöðvarinnar, kveðst
hafa heyrt rússnesk orð og setn-
ingabrot, þegar hann var að
hlusta á hljóðmerki á tíðninni
19,994 megarið, sem að öllum
líkindum væru frá gervihnettin-
um rússneska. Ekki kvaðst hann
geta um það sagt, hvort svo
væri einnig um orðin. Hljóð-
merkin höfðu heyrzt í 22 mín-
útur samfleytt, en mismunandi
sterkt. Þegar þau voru sem
veikust komu orðin fram.
Starfsmenn lofskeytastöðvar
Reuters utan við London heyrðu
einnig rússnesk orð á sömu
tíðni, en þau reyndust brot úr
fjarskiptasamtali, sem starfs-
mennirnir segja að oft megi
heyra á þessari og nokkrum
öðrum bylgjulengdum.
Þá sagði Heins Ottens, stjörnu
fræðingur í Suður-Afríku í dag,
að hann hefði heyrt merki, sem
bentu til þess að maður kynni
að vera um borð í gervihnett-
inum. Eðlisfræðingurinn V. A.
Hopper í Ástralíu kveðst hafa
séð hnöttinn fara yfir Victoria
í gærkveldi.
Vinsœll
ráðherra
SíSustu fregnir frá Kongó
hcrma, að Kasavubu hafi
samþykkt myndun nýrrar
stjórnar undir forsæti Ileos,
svo sem ráð var fyrir gert.
f stjórninni munu eiga sæti
nokkrir af stjórnarmönnum
ÍMobutus, t. d. Justin Bom-
boko, og er þetta fimmta
ríkisstjórnin sem hann fær
sæti í.
De GouIIe hæhu forystumuður
sumeinuður Evrópu
Brússel, 8. febr. — (Reuter)
PAUL Henri Spaak sagði á
fundi í gærkveldi, að hann teldi
de Gaulle mjög hæfan til þess
Þáltill. samþykkt
ÞIN GSÁL YKTUN ARTILL AG A
Guðlaugs Gíslasonar og Sigurðar
Óla Ólafssonar um athugun á
hafnarframkvæmdum í Þykkva-
bæ og við Dyrhólaós var tekin
til framhaldsumræðu í samein-
uðu þingi í gær. Hafði fjárveit-
inganefnd fjallað um tillöguna
og lagt til að gerðar yrðu á
henni smávægilegar breytingar.
Guðlaugur Gíslason talaði fyr-
ir tillögunni af hálfu fjárveit-
inganefndar, en síðan var hún
samþykkt samhljóða sem álykt-
un Alþingis.
Ræðast við
18. febrúar
París, 8. fébrúar (Reuter-NTB)
DE GAULLE, forseti, hefur lagt
til að fundur hans og fbrseta
Túnis, Habib Bourguiba, verði
haldinn 18. febrúar n. k. Munu
þeir þá ræða ástandið í Alsír.
Er fundur þeirra forseta talinn
afar mikilvægt spor í áttina til
samningaviðræðna
—■ Dómur
Framh, af bls. 24.
við. Síðan segir m. a. svo
„Samkvæmt 3. mgr. 19. gr.
áfengislaga er lögreglumönnum
heimilað að rannsaka hvort bif-
reiðar hafi áfengi meðferðis þó
að það sé löglega keypt, enda
liggi fyrir rökstuddur grunur
um að áfengið sé ætlað til ólög-
legirar sölu. Hér verður ekki séð
að skilyrðum nefndra laga sé
fullnægt. Áfengið uppgötvaðist
nánast fyrir tilviljun. Brestur
því forsendur til að beita 3. mgr.
19. gr. áfengislaga um umrætt
tilvik og ber að sýkna ákærðan
af öllum kröfum
Dómur Hæstaréttar
í Hæstarétti var ekki fallizt á
sýknudóm undirréttar og segir
m. a. í forsendum dóms Hæsta-
iréttar:
„Ekki verður talið skipta máli
um refsinæmi verknaðar sam-
fcvæmt 4 sbr. 3. málsgr. 19. gr.
laga nr. •68/1954, þó að grunur
löggæzlumanna um ólögmætan
áfengisflutning komi þá fyrst til,
er þeir hafa stöðvað bifreið eða
hafið afskipti af henni í öðru
skyni en leit að áfengi.
Ákærði hafði meðferðis í bif-
reið sinni 17 flöskur af brenni-
víni, sem hann kveðst hafa
keypt í Áfengisverzlun ríkisins
í Reykjavík og ætlað til eigin
neyzlu. Eins og atvikum vair
háttað, svo sem nánar er greint
í 'héraðsdómi, þykir ákærði ekki
hafa leitt að því nægar líkur, að
áfengið hafi ekki verið ætlað til
sölu. Hefur hann því gerzt sekur
við ákvæði 4. sbr. 3. málsgr. 19.
gr. áfengislaga nr. 58/1954. Leitt
er í Ijós, að hinn 8. júlí 1960 nam
söluverð á 17 brennivínsflöskum
hjá Áfengisverzlun ríkisins sam-
tals fcr. 2890,00. í 2. málsgr. 42.
gr. greindra áfengislaga er
mælt, að brot gegn 4. málsgr. 19.
gr. laganna varði sektum, er
nemi í fyirsta sinni fimmföldu
f söluverði þess áfengis, sem ætlað
I er til ólöglegrar sölu. Samkvæmt
( því ber að ákveða refsingu á-
j kærða kr. 14.450,00 sekt, er renni
til Menningarsjóðs, og komi
vairðhald 45 daga í stað sektar-
innar, verði hún ekki greidd inn
an 4 vikna frá birtingu dóms
þessa.
Áfengi það, 17 flöskur af
brennivíni, sem tekið var af
ákærða, skal vera upptækt til
ríkissjóðs (samkvæmt 2. máls-
girein 42. gr. laga nr. 58/1954.)
Ákærða ber að greiða allan
kostnað sakaiinnar í héraði og
«hér fyrir dómi.
að verða forystumaður samein-
aðrar Evrópu. Öflugri samvinna
Evrópuríkja er mikið áhugamál
Spaaks og hyggst hann beita sér
fyrir henni nú er hann hverfur
frá starfi sínu hjá Atlanshafs-
bandalaginu til stjórnmálastarf-
semi í heimalandi sínu.
I hádegisverðarboði, sem Spaak
var haldið í Brussel í dag lét
hann svo um mælt, að hann hyrfi
nú frá starfi sínu, sem fram-
Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélags
Seltirninga
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Seltirninga var haldinn mið-
vikudaginn 1. þ.m. Mikill áhúgi
hefur ríkt innan félagsins fyrir
því að koma á ýmsum umbótum
mnan hreppsins. A fundinum
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt einróma:
Fundurinn ályktar að skora á
hreppsnefnd Seltjarnarneshrepps
að koma eftirtöldum umbótum í
framkvæmd svo fljótt sem verða
má:
1) Að fara þess á leit við
Reykjavíkurbæ, að Grandavegur
verði framlengdur að frystihús-
inu „Isbjöminn“ og þungaflutn-
ingum beint um þann veg, eftir
því sem unnt er.
2) Að komið verði upp bið-
skýlum á strætisvagnastöðlu’m,
þar sem þeirna er þörf.
kvæmdastjóri Atlanshafsbanda*
lagsins, sö'kum þess að hann ósk-
aði þess einlæglega að þjóna
landi sínu og teldi það skyldu
sína. Kvað hann Belgíu nú hætta
búin og yrði að sporna við órétt-
læti og röngum framkvæmdum.
Upplýsingar
um vörusýnin«ar
EINS og á undanförnum árum má
búast Við, að margir íslenzkir
kaupsýslumenn muni sækja vöru-
sýningar í Evrópu. Helztu vöru-
sýningar á þessu ári í Evrópu
eru í eftirtöldum borgum: Köln
24. febr.; Frankfurt 5. marz;
Leipzig 5. marz; Offenbach 4.
marz, Vien 12. marz; Milano 12.
apríl, Brússel 29. apríl og Hann-
over 30. apríl.
Ferðaskrifstofunni Sögu hefir
tekizt að útvega gistingu fyrir 20
manns á hóteli í Frankfurt, vel
staðsettu, og mun úthluta farþeg-
um sínurn þessum herbergjum,
séu pantanir sendar nógu
snemma.
Hvað viðvíkur Leipzig hefur
reynst ógérningur að útvega á-
kveðið hótel, en Saga mun veita
alla aðstoð við útvegun á gist-
ingu.
Búast má við að flogið verði beint
til Leipzig frá ýmsum borgum N-
Evrópu, en þar sem flugvélakost-
ur er nokkuð takmarkaður, er
mönnum ráðlagt að panta far hið
allra fyrsta.
Ferðaskrifstofan Saga mun á
næstunni eiga von á bæklingum
og nánari upplýsingum um allar
ofangreindar vörusýningar, og
geta kaupsýslumenn snúið sér til
hennar, til þess að skipuleggja
ferðir sínar í tíma.
Hjartanlegustu þakkir flyt ég öllum ættingjum og
vinum, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og
heillaskeytum á, 75 ára afmæli mínu 2. febrúar s.l.
Jóhannes Jónsson, Skeiðarvogi 93, Reykjavik.
DR. ÓLAFUR LÁRUSSON
prófessor
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 10.
þ.m. kl. 2 e.h. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Fyrir hönd vandamanna.
Lára Magnúsdóttir,
Sigríður Björnsdóttir,
Jón S. Ólafsson.
Móðir mín og amma
KONKORDÍA STEFÁNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 10.
febrúar kl. 10,30 fyrir hádegi. — Blóm og kransar afbeð-
in, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líkn-
arstofnanir.
Björg Sigurðardóttir, Margrét Sigurðardóttir.
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR JÓNSSON
bifreiðastjóri, Barmahlið 1
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 10.
febrúar kl. 1,30.
Kristín Lýðsdóttir, böm, tengdabörn og barnaböm
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför stjúpmóður okkar,
ÖNNU ÓLFJÖRÐ
Margrét Ölafsdóttir,
Páll Ölafsson,
Albert Ólafsson.
Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu vináttu og
samúð við andlát og jarðarför móður minnar
guðrUnar þorleifsdóttur
frá Vatnsholti
Fyrir hönd barna hennar og barnabarna.
Ingveldur Gísladóttir