Morgunblaðið - 09.02.1961, Blaðsíða 24
íþróttir
Sjá bls. 22
Vettvangur
er á bls. 13.
32. tbl. — Fimmtudagur 9. febrúar 1961
Verkfall yfirmanna
i R.vík og Akranesi
SAMNINGANEFNDIR Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins og útgerðarmanna sátu fund
frá kl. 5 á þriðjudag s.l. til kl.
6,30 í gærmorgun. Náðist ekki
samkomulag á þeim fundi. Verk-
fall hófst þá hjá yfirmönnum á
bátaflotanum í Keflavík, Sand-
gerði og Grindavík kl. 12 í fyrri
nótt.
Enginn fundur var haldinn í
gær, og hófst því verkfall hjá
yfirmönnum á bátaflotanum í
Reykjavík og Akranesi kl. 12 í
gærkvöldi.
Náist ekki samkomulag fyrir
Engin
síld
ENGTN síld hefur veiðzt frá því
í fyrrakvöld, og enginn bátur var
úti á miðunum í gærkvöldi, vegna
veðurs. Er blaðið safði samband
við Jakob Jakobsson fiskifræð-
ing í gærkvöldi sagði hann, að
veiðiveður væri ekki, en þó væri
hægt að leita. Ægir var þá stadd-
ur nokkuð djúpt út af Eldey. —
Fanney var enn við Vestmanna-
eyjar. Þar var ófært veiðiveður,
en óhemjumikið síldarmagn virð-
ist vera þar. Einn bátur fékk þar
afla í fyrrakvöld, en hinir
sprengdu allir. — Hann er fremur
hægur hérna, sagði Jakob, en
dálítill veltingur. Það er spáð
stinningskalda núna í stað hvass-
viðris, svo úthtið er heldur að
skána.
n.k. föstudag hefst verkfall Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins
Kára í Hafnarfirði. Þá hefur
Skipstjóra og stýrimannafélag
Norðlendinga boðað til verkfalls
15. febrúar n.k.
Dr. Kristinn Guð-
mundsson afhenti
trúnaðarbréf sitt
DR. Kristinn Guðmundsson am-
bassador afhenti Breshnev for-
seta Rússlands trúnaðarbréf sitt
í Kreml hinn 4. febrúar sl. Þeir
Breshnev og dr. Kristinn Guð-
mundsson skiptust á ræðum og
ræddust síðan við. Viðstaddir
viðræðuir þeirra voru forsetarit-
arj Sovétríkjanna og aðstoðar-
utanrikisráðherra Sovétríkjanna.
Lögreglan fann óvart
17 vínflöskur í bílnum
Hœstiréttur sakfelldi hílstjórann
sem undirréttur sýknaði
í HÆSTARÉTTI er genginn
athyglisverður dómur í sam-
bandi við áfengi er lögreglu-
þjónar fundu í leigubíl, er
þeir höfðu stöðvað hann í
Innan 6 vikna?
London og Sidney, Ástrálíu,
8. febrúar. — (Reuter) —
BANDARlSKUR vísindamað
ur, Warren J. Hook, lét svo
um mælt við fréttamenn í
Sidney í dag, að Bandaríkja-
menn myndu senda mann út
í geiminn innan sex vikna.
Ekki kvaðst hann geta sagt
um hvern dag það yrði, en
maðurinn yrði einn þeirra
sex, sem þjálfaðir hafa ver-
ið til slíkra ferða í Banda-
ríkjunum um alllangt skeið.
Sagði Hook, að nafn hans
yrði tilkynnt áður en hann
legði upp í ferðina.
Talsmaður stjórnar geim-
siglinga í Bandarikjunum
sagði síðar í dag, að upp-
Reru vegnu
misskílnings
SANDGERÐI, 8. febr.: — Verk
fall yfirmanna á vélbátum í
Sandgerði átti að hefjast á mið
nætti í gærkvöldi, en vegna
misskilnings reru bátarnir héð
an, bæði í gærkv. og í dag. Afl
inn í gærkv. var 10—13 tonn á
bát, en tregari í dag, 4—5 tonn
á bát. Enginn bátur fór út á
veiðar í kvöld, vegna verk-
fallsins.
lýsingar Hooks væru ekki
réttar og greinilega byggðar
á misskilningi.
Hook sagði, að maðurinri, sem
sendur yrði mundi fara þrjár
ferðir umhverfis jörðu í 150
mílna hæð og snúa síðan til
baka. Mundi tilraunin með ná-
kvæmlega sama sniði og til-
raunin, sem gerð var fyrir
nokkrum dögum, er simpansinn
var sendur út í geiminn. Tókst
hún afbragðsvel og læknar hafa
sagt, að manni hefði ekki orðið
hið minnsta meint af að vera í
sporum apans í þeirri ferð. —
Hook sagði, að ferð þessi ætti
að taka 4 klst. og 24 mín.
Warren Hook er fulltrúi radíó
deildar Bendix-félagsins. Hann
kom frá Canaveral-höfða á leið
til Woomera eldflaugastöðvar-
innar í Mið-Ástralíu. Hann sagði
að athugunarstöðvar þar mundu
hafa samband við bandaríska
geimfarann á leið hans um him
inhvolfið.
allt öðrum tilgangi en að
gera í honum leit að áfengi.
í undirrétti var bílstjórinn,
sem heitir Kristþór Zophoní-
as Sveinsson, Silfurtúni 6 í
Garðahreppi sýknaður. —
Hæstiréttur aftur á móti sak-
felldi bílstjórann og dæmdi í
verulegar fjársektir.
17 flöskur
Forsaga málsins er í stuttu
máli á þá leið að í júlímánuði
sl. stöðvaði umfeirðareftirlitsbill
frá lögreglunni leigubíl, G-1490,
suður á Hafnarfjarðarvegi. Til-
gangurinn var að ^anga úr
skugga um hvað skoðun bílsins
fyrir árið 1960 liði. Lögreglan
veitti athygli tveim töskum aftur
í bílnum. 1 þessum töskum reynd
ust vera 17 fl. af áfengi og
Aldraður maður
rir bíl
Gefur ekki á s]ó
í Grindavík
SANDGERÐI, 8. febrúar. —
Enginn bátur var á sjó frá
Grindavík í gær, vegna veðurs.
Búið var að taka bjóðin um borð
í bótana í fynrakvöld, en þá
hvessti af SA. Síðan hefur ekki
verið sjóveður.
kvaðst Kristþór eiga áfengið
sjálfur, og ætla að neyta þess
sjálfur. Lögreglan lagði hald á
vínið og færði bílstjóirann á lög-
reglustöðina í Hafnarfirði, sem
áfengið. i
Þegar málið var tekið til
dóms í héraði taldi rannsóknar-
dómarinn það koma til álita
(hvort hinair sérstæðu sönnunar-
reglur 4. gr. 3. mgr. 19. gr. áfeng-
islaganna nr. 58/1954 eigi hér
Frh. á bls. 23.
VERKFALL yfirmanna á vél-1
bátaflotanum stöðvaði þegar í J
gær nokkra báta úr verstöðv-
um hér við Faxaflóa, en all-
margir eru þó á sjó. Þeir höfðu
komið inn á þriðjudaginn, til
þess að losa þann afla sem
þeir voru þá komnir með, t.d.
útilegubátarnir. Var það gert
til að geta komizt út aftur áð-
«r en verkfaiiið stöðvaði þá.
Suður í Keflavík var handa-
gangur í öskjunni við að koma
bátunum út. Þessa mynd tók
Heimir Sigurðsson í Keflavík-
urhöfn, skömmu fyrir mið-
nætti í fyrrinótt. Þeir eru að
sleppa. Maðurinn hleypur „frá
springnum“ eftir að hafa losað
landfestar. Hver veit nema
þessi róður verði hinn síðasti
um ófyrirsjáanlegan tíma hjá 1
þessum Keflvíkingum. !
Dansk-ísl. menning-
arsjóður siofnaður
Stofnfé 1 milljón danskra kr.
VIGGO KAMPMANN, for-
sætisráðherra Dana, skýrði
frá því í hófi, er hann hélt
sendiherrum Norðurlanda í
Kaupmannahöfn og nokkr-
um öðrum gestum 5. f. m.,
að stofnaður hefði verið
dansk-íslenzkur menningar-
sjóður (Fondet for dansk-is-
landsk samarbejde), og er
stofnfé sjóðsins um 1 milljón
danskar krónur.
Sílclarafli fyrir 30
millj. í gjaldeyri
fy
Á SJÖTTA tímanum í gæcr varð
aldraður maður fyrir bíl á Lauga
vegi, á móts við hús númer 36.
Maðurinn, sem heitir Ólafur Ól-
afsson til heimilis á Eiríksgötu
9, var fluttur á Slysavarðstofuna.
Hann var meiddux á höfði. en
þó ekki alvarlega.
Akranesi, 8. febr..
HÖFRUNGHR kom hingað til
Akraness um kl. 9 í gærkvöldi
með 1470 tunnur. Síldina fékk
hann í 3 köstum, 5 mílur ASA af
Bjarnarey.
Veðrið var gott eftir kl. 5 í
fyrradag. Kastaði Höfrungur
einu sinni um kvöldið og tvisvar
um nóttina. Stærsta kastið var
900 tunnur. Hann var 12 tíma á
leiðinni hingað frá Vestmanna-
eyjum. Rúmar 400 tunnur fóru
í frystingu, hitt í bræðslu.
Höfrungur II mun nú vera búinn
að afia í haust og vetur 20.500
tunnur. Gjaldeyrisverðmæti síld-
arafla Akranesbáta á sama tíma
er lauslega átælað 30 milljónir
króna. Aðeins 1 bátur, Reynir,
kom í morgun til Akraness með
56 tunnur, sem fóru í frystingu.
Þetta var það eina, sem hann
náði af gríðarstóru kasti
Vísindalegar rannsóknlr o. fl.
Vöxtum af fé hins dansk-ís»
lenzka menningarsjóðs skal m. a.
varið til að efla vísindalegar
rannsóknir til hagsbóta fyrir
bæði löndin, einkum stærri rann
sóknarefni, sem ætla má, að eigi
verði innt af höndum með fjár-
styrk annars staðair frá. >á
verða veittir úr sjóðnum styrkir
til fræðiiðkana, námsmanna við
æðri menntastofnaniir, rit'höf-
unda og annarra listamanna og
æskulýðsleiðtoga, ennfremur til
skiptiheimsókna iðnaðarmanna,
vetkamanna og opinberra starfs-
manna, svo og til gagnkvæmira
heimsókna leikflokka og annarra
menningarskipta. í stjórn sjóðs-
ins eru fimm menn, skipaðir af
danska forsætisráðherranum.
Stríðsáhættugjöld
Dönsk stjórnarvöld hafa jafn-
framt gengizt fyrir stofnun noklc
urra fleiri sjóða til styrktar nor-
rænni samvinnu, og rennur til
þeirra fé, sem verið hefur í
vörzlu danska ríkisins og er að
stofni til stríðsáhættugjöld frá
heimsstyrjaldarárunum síðustu,
sem umfram varð eftiir reikn-
ingsskil við tjónþola.
Sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn hefur verið beðinn
um að flytja dönskum stjórnar-
völdum þakkir fyirir þessa þýð-
ingarmiklu sjóðstofnun.