Morgunblaðið - 17.02.1961, Síða 2
2
MORGVNBLAÐ1Ð
Föstudagur 17. febr. 1961
Kommúnistar í bæjarstjórn
ásaka barnaverndarnefnd
— af þvl oð álitsgerð hennar sýndi,
ab tillaga þeirra um uppeldisheimili
var óþörf
ÞAÐ bar til tíðinda á fundi
bæjarstjórnar í gær, að full-
trúar Alþýðubandalagsins
réðust harkalega að barna-
verndarnefnd fyrir það, að
hún skyldi ekki vera sam-
Hvað verði r um
Þjóðverjann?
1 DAG eru liffnir 20 dagar frá
því Þjóffverjinn Frank Franken
var handtekinn hér í bænum,
eftir ósk Hamborgarlögreglunn-
ar. Hefur hún óskaff eftir því aff
hann verffi framseldur svo hæ>gt
verffi aff stefna honum fyrir dóm
vegna lögbrota í heimalandi
sínu. Þegar Frank Franken var
tekinn, var hann úrskurðaffur í
20 daga varffhald. Er sá varff-
haldstími því útrunninn í dag.
I gærkvöldi var blaðinu ekki
kunnugt um hvort hann yrffi af-
hentur þýzkum yfirvöldum í dag
effa varffhaldsvistin framlengd,
sem hugsanlegt er, en hann sat
þá í ,,Steininum“.
Hallgrímur
á Halldórsstöðum
látinn
ÁRNESI, 13. febr. — Hallgrímur
Þorbergsson, Halldórsstöðum í
Laxárdal lézt á heimili sínu í gær,
81 árs að aldri. Hallgrímur var
landskunnur maður og einn mesti
fjárræktarmaður Þingeyinga um
langt skeið. Hann var mikill á-
hugamaður um landbúnaðarmál
Afmæli
FIMMTUGUR er í dag, 17. febr.
Lárus Scheving Ólafsson, Suður-
götu 108, Aikranesi.
mála þeim um að nauðsyn
bæri til að byggja uppeldis-
heimili fyrir 10—15 börn.
Tillagan reyndist óþörf
Bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins fluttu fyrr í vetur til-
lögu um slíka byggingu og nokkr
ar ráðstafanir í sambandi við
barnaheimilið að Reykjahlíð. —
Var tillögunni vísað til umsagn-
ar barnaverndarnefndar, þar
sem sex nefndarmenn af sjö
réyndust vera sammála um, að
bygging nýs heimilis væri ekki
aðkallandi — og flest hin atrið-
in í tillögu þeirra Alþýðubanda
lagsfulltrúa einnig óþörf.
Brugffust reiffir viff
Tóku bæjarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins allir til máís á
fundi bæjarstjórnarinnar í gær,
þegar málið var tekið fyrir á ný,
að þessum upplýsingum fengn-
um. Jusu þeir af skálum reiði
sinnar yfir nefndina og báðu
sérstakrar bókunnar á því, að
hún hefði „brugðizt hlutverki
sinu og því trausti, sem til nefnd
arinnar ætti að vera hægt að
bera í málefnum yngstu borgar-
anna“ og léti „umsagnir sínar og
afstöðu mótast af pólitískri hlífi-
semi eða þröngsýni sem kemur
niðui- á vamarlitlum börnum og
torveldar bætta aðstöðu þeirra og
uppeldisskilyrði".
Þessum ásökunum á starf nefnd
arinnar var af bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins gjörsamlega
vísað á bug sem pólitískum á-
róðri og lýðskrumi af verstu teg-
und. Þegar komið hefði í Ijós, að
með öllu skorti forsendur fyrir
tillöguflutning þeirra, væri ráð-
ist gegn kjörnum trúnaðarmönn-
um bæjarstjórnarinnar og þeir
bornir þyngstu sökum.
Óskuðu bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins eftir svohljóð-
andi bókun í þessu tilefni:
Einstakt háttarlag
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins harma bókun bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins og
taka eftirfarandi fram:
1) Ályktun barnaverndarnefnd
ar var samþykkt af 6 nefndar-
mönnum af 7 úr þrem pólitísk-
um flokkum, sem fulltrúa eiga í
bæjarstjórn.
2) Barnaverndarnefnd er kosin
af Bæjarstjórn Reykjavíkur og
umsögn nefndarinnar er trúnaðar
starf á vegum bæjarstjórnar. Bæj
arfulltrúum er því skylt að sýna
trúnaðarmönnum sínum þá virð-
ingu og kurteisi að geta rætt
skoðanamun án lágkúrulegra
persónulegra getsaka og árása“.
Tillaga um að vísa tillögu Al-
þýðubandalagsfulltrúa frá var
samþykkt með 11 atkvæðum gegn
f jórum. — Frá umræðunum verð-
ur sagt í blaðinu á morgun.
Stlórnar!i]ör ■ Múrara-
félaginu um næstu helgi
Listi lýðrœðissinna
STJÓRNARKJÖR fer fram
í Múrarafélagi Reykjavíkur
um næstu helgi. Kosið verð-
ur í húsi félagsins, Freyju-
götu 27 og hefst kosningin
kl. 1 á morgun og stendur
til kl. 9 sd. — Á sunnudag
verður kosið frá kl. 1 til 10
Sfór málefni
rædd á fulltrúaráðsfundi
Á FUNDI Fulltrúaráðs Sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavik í gær-
kvöldi ræddi Eyjólfur Konráð
Jónsson, ritstj. um almennings-
hlutafélög og Valdimar Kristins-
son, viðsk.fr. um erlent fjármagn.
Birgir Kjaran, form. Fulltrúaráðs
ins var fundarstjóri. Hvatti hann
fundarmenn til að hugleiða vel
þessi mál, því að þau mundu
verða ofarlega á baugi á næst-
unni og miklu gæti varðað fyrir
alla framtíð þjóðarinnar hver
framvinda þessara mála yrði.
Eyjólfur Konráð Jónsson taldi
almenningshlutafélög líklegustu
leiðina til að tryggja efnahags-
legt sjálfstæði sem allra flestra
þjóðfélagsþegna. Benti hann á,
að upplýst hefði verið, að íslend-
ingar greiddu árlega um 70 millj.
Dagskrá Alþingis
Dagskrá efrl deildar Alþingis í dag:
1. Sala lands jarCanna Stokkseyri I—
III, frv. 2. Sveitarstjórnarkosningar,
frv. 1 .umr. 3. Sveitarstjómarlög, frv.
Frh. 2. umr. 4. Sala eyðijarðarinnar
Hellnahóls, frv. 2. umr. 5. Lögskráning
sjómanna, frv. 2. umr. 6. Síldarútvegs-
nefnd o. fl., frv. 1. umr.
Dagskrá neðri deildar: 1. Alþjóðlega
framfarastofnunin, frv. 3. umr. 2. Sam
elning Áfengisverzlunar og Tóbaks-
einkasölu, frv. 2. umr. Ef leyfð verður.
3. Sala Hellu og Helludals i Breiðuvík-
urhreppi, frv. 1. umr. 4. Loðdýrarækt,
frv. Frh. 2. umr. 5. Fæðingarorlof, frv
Frh. 2. umr. 6. Verðflokkun á nýjum
fiski, frv. 1. umr. 7. Aimannatrygging
ar, frv. 1. umr. •
kr. fyrir happdrætti. Taldi hann
ekki óhóflegt að áætla að lands-
menn væru fúsir til að kaupa
hluti í almenningshlutafélögum
fyrir tvö til þrefalda þá upphæð
og þannig mundu flestar fjöl-
skyldur í landinu verða virkir
þátttakendur í atvinnulífinu.
Valdimar Kristinsson ræddi
um, að það myndi kosta mikið
átak og stöðuga framsókn í efna-
hagsmálunum, ef við ættum að
geta fylgt þeim þjóðum sem fram
sæknastar eru, enda þyrfti að búa
í haginn fyrir æ f jölmennari þjóð,
vegna hinnar öru fólksfjölgunar.
Núverandi atvinnuvegir lands-
manna ættu eftir að vaxa mjög á
næstu áratugum, en þó myndi
vöxtur þeirra ekki nægja. Nýta
iþyrfti auðlindir landsins í stór-
um stíl og því yrði að flytja er-
lent áhættufjármagn inn í land-
ið. Með þessu færum við sömu
leið til uppbýggingar og allar ná-
grannaþjóðir okkar hefðu gert
með góðum árangri. Hitt væri svo
annað mál hvort einhverjir vildu
festa fé í fyrirtækjum hér. Við
þyrftum að leita eftir því og gera
síðan skynsamlega samninga við
hina erlendu aðila.
Að loknum ræðum frummæl-
enda voru frjálsar umræður og
tóku til máls: Þorkell Sigurðsson,
vélstj., Svavar Pálsson, viðsk.fr.
og Davíð Ólafsson, fiskimálastj. i
er A-listinn
i kosningunni
er
sd. og
lokið.
Tveir listar eru í kjöri. A-Iisti,
sem skipaður er andstæffingum
kommúnista og studdur af lýð-
ræðissinnum og B-listi kommún-
ista.
A-listinn er þannig skipaður:
Einár Jónsson, form., Jón G.
S. Jónsson, varaform., Stefán B.
Einarsson, ritari, Hilmar Guð-
laugsson, gj.aldkeri félagssjóðs og
Pétur A. Þorgeirsson, gjaldkeri
styrktarsjóðs.
Varastjórn: Jón V. Tryggva-
son, Einar Guðmundsson og Þór-
ir Guðnason, Trúnaðarmannaráð:
Helgi S. Karlsson, Hreinn Þor-
valdsson, Jóhannes ögmundsson,
Jón R. Guðjónsson, Óli Bjarna-
son og Snæbjöm Þ. Snæbjörns-
son. Til vara: Svavar Höskulds-
son, Þorsteinn Einarsson og Sig-
urður Guðmann Sigurðsson.
Greinilegt er aff kommúnistar
leggja mikiff ofurkapp á kosning-
arnar í Múrarafélaginu og er því
nauffsynlegt fyrir andstæffinga
þeirra aff vera vel á verffi og
fylkja sér fast um A-listann.
"7\na /5 hnúiar\
»/ SVSOhnútar
X Snjó/como
9 Qói
7 Skúrír
lí Þrumur
v.svct&i
KultJasktZ
Hitaski/
H Hm$ 1*
L Lctgi y
MIKIL hæð hefur setzt að yf-
ir Vestur-Evrópu. Hún veitir
hlýju lofti norður um vestan-
vert Frakkland, Niðurlönd,
Þýzkaland, Bretlandseyjar og
Norðurlönd. Á þessu svæði er
hlýtt en víða þoka. Flugvell-
irnir í París, Amsterdam og
Osló voru t.d. lokaðir í allan
gærdag.
Skörp hitaskil afmörkuðu
þetta hlýja svæði. Þau lágu
skammt fyrir sunnan ísland og
þokuðust norður, svo að í dag
ætti mikill hluti íslands að
verða í þessu hlýja haflofti.
Veffurspáin kl. 10 í gærkv.:
SV-land og miðin: Hvass
suðaustan og sunnan. Rigning
öðru hverju.
Faxaflói til Vestfjarða og
miðin: Austan stinningskaldi
og rigning fyrst, en suðaustan
stinningskaldi og skúrir á
morgun.
N-land til Austfj. og miðin:
Austan eða suðaustan stinn-
ingskaldi og rigning í nótt, en
sunnan stinningskaldi og létt-
ir til á morgun.
SA-land og miðin: Allhvass
suðaustan og sunnan. Rigning
í nótt en smáskúrir á morgun.
Hin alþjóðietja
íramfarastolnun
FRUMVARP til laga um
þátttöku íslands í Hinni al-
þjóðlegu framfarastofnun var
til 2. umræðu í neðri deild
Alþingis í gær.
Jóhann Hafstein, framsögu-
maffur nefndarinnar, sagði í
ræðu sinni með frumvarpinu,
að nefndinni
hefði þótt það á
vanta, þ e g a r
henni barst frv.
að með frumv.
fylgdi ekki
samningurinn
um stofnunina,
svo sem venja
væri, þegar ís-
land gerist aðili
að alþjóðlegum stofnunum, en
nú hefði verið úr því bætt og
samningnum bætt við sem
fylgiskjali.
Sómi og hagur
Jóhann sagði, að það væri
engum vafa undirorpið, að Is-
landi væri mikill sómi og e. t.
v. nokkur hagur í að taka þátt
í slíku samstarfi sem þessu, en
um markmið stofnunarinnar
segði svo í samningnum um
hana, að það sé markmið henn-
ar „að stuðla að efnahagslegum
framkvæmdum, auka fram-
leiðni og bæta þar með lífskjör
í löndum þeim, er skammt eru
á veg komin og þátttakendur
eru í stofnuninni, einkum með
því að útvega fjármagn til þýð-
Yfirlýsing frá
VARÐANDI frétt í Þjóðvilj-
anum í gær þess efnis, að
form. Iðju, Guðjón Sigurðsson
hafi lagt bann við því að
safnað yrði fé á vegum Iðju
til verkfallsmanna í Vest-
mannaeyjumí vill stjórn Iðju
taka fram eftirfarandi.
Enginn úr stjórn Iðju hefur
fengið tilmæli um að félagið
gengist fyrir ofangreindri söfn
un, hvorki frá A.S.Í. né held-
ur söfnunarnefndinni og það-
an af síður lagzt gegn því, að
safnað yrði fé meðal Iðjufólks
í þessu skyni.
Aftur á móti hefur stjórn A.
S.f. skipað nefnd til að sjá um
fjársöfnun þessa og í þeirri
nefnd á m.a. sæti starfsmaður
fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík. Þar sem eng
in ósk um aðstoð hafði borizt
stjórn Iðju leit hún svo á, að
þessir aðilar sæju um fram-
kvæmd söfnunarinnar, enda
félagi eins og Iðju, sem hefur
aðeins einn starfsmann, algjör
lega ofviða að standa fyrir um
fangsmikilli fjársöfnun á fjöl-
mörgum vinnustöðum nokkr-
um dögum fyrir stjórnarkjör
og aðalfund.
Stjórn Iðju mælist til þess,
að allir Iðjufélagar, sem sjá
sér fært styðji söfnunina, og
hefur sjálf ákveðið að veita
henni nokkurn stuðning.
ingarmikilla framkvæmda með
kjörum, sem eru rýmri og
íþyngja ekki greiðslujöfnuðinum
jafnmikið og venjuleg lán, og
stuðla á þann hátt að þeim
markmiðum framkvæmda, sem
Alþjóðabankinn stefnir að, svo
og að auka við starfsemi hans“.
Leggjum fram 100 þús. dollara
Benti Jóhann á, að í greinar-
gerð frumvarpsins væri gerð
grein fyrir fjárhagslegum fram-
lögum íslendinga til stofnunar-
innar. Skv. því bæri okkur að
leggja fram 100 þús. dollara. —
1/10 hluta þeirrar upphæðar
bæri okkur að greiða 1 frjálsrl
mynt, en 9/10 mættum við
greiða í eigin gjaldeyri. Skyldu
báðar þessar upphæðir greiðast
á 5 árum.
Rétt væri að vekja sérstaka
athygli á því ákvæði samnings-
ins, þar sem segir, að eigi skuli
„stofnunin né starfsmenn henn-
ar hafa nokkur afskipti af
stjórnmálum nokkurs félagsríkig
og eigi skulu þeir heldur láta
stjórnmálaeðli félagsríkis eða
ríkja hafa áhrif á ákvarðanir
sínar, enda ber þeim í þessu
efni einungis að hafa hliðsjón
af efnahagsmálum og meta þau
af óhlutdrægni til þess að ná
markmiðum samnings þessa“.
Gerffardómur
Að lokum gat Jóhann þess, að
risi ágreiningur milli stofnun-
arinnar og félagsríkis, er hætt
hefur þátttöku eða vikið hefur
verið frá, þá „beri að leggja
hann undir úrsjcurð þriggja
manna gerðardóms. Skipar
stofnunin einn og landið annan,
en þriðja manninn, oddamann,
skal forseti Alþjóðadómsins eða
annað yfirvald, sem skipað er
samkvæmt reglum stofnunarinn
ar, skipa, nema aðilar komi sér
saman um annað. Hefur odda-
maður vald til að úrskurða um
öll atriði varðandi málsmeðferð,
þegar aðilar eru ósammála þar
um“.
Kosið frá kl. 17-22
f AUGLÝSINGU í blaðinu í gær
er sagt að allsherjaratkvæða-
greiðsla um stjórnarkjör í Starfs
mannafél. Reykjavíkurbæjar sé
í dag (föstudag) kl. 17—19. Átti
að standa kl. 17—22. Einnig er
kosið á morgun. Kosið er í Hafn-
arstræti 20.