Morgunblaðið - 17.02.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.02.1961, Blaðsíða 24
Alþingi Sjá blaðsíðu 8. íþróttir Sjá bls. 22. 39. tbl. — Föstudagur 17. febrúar 1961 Loftsiglingafræðingurinn á belgísku botunni átti ísl. konu SÚ frétt barst blaðinu í gær, að loftsiglingafræðingurinn á belgísku þotunni, sem fórst Þorste'nn Þor- steinsson lótinn ÞORSTEINN Þorsteinsson fyrr- verandi sýslumaður og alþingis maður andaðist á sjúkrahúsi hér í Reykjavík í fyrrakvöld. Hann var 76 ára. Hann var kvæntur Áslaugu Lárusdóttur, systur próf. Ólafs Lárussonar. Va- hún látin fyrir nokkrum árum. Þorsteinn sýslu- manns var minnzt á Alþingi í gær og birtist sú minning á bls. 8. Dýr kók KONA nokkur kom að máli við lögregluna í fyrrakvöld. Hafði hún fundið veski á Laugarnesveginum með 10 þúsund krónum og 50 dollur- um. Til eigandans náðist svo í gærmorgun, og hafði hann þá ekki enn saknað veskisins. SagðLst hann hafa skroppið út kvöldið áður til þess að fá sér kók, og myndi hann hafa týnt veskinu á heimleiðinni. Hann uggði hins vegar ekki, hvers hann hafði misst og lagðist rólegur til svefns. Hann var konunni að vonum afar þakklátur og greiddi henni 3000 kr. í fundarlaun. — Dýr kók það. Samningar tókust ekki FULLTRÚAR útgerðarmanna og sjómanna í Reykjavík, Hafnar- firði og Akranesi sátu á fundi með sáttasemjara, Torfa Hjart- arsyni tollstjóra, fram undir kl. 4 í gærmorgun, án þess að sam- komulag næðist. Sjómenn hafa fellt landssamninginn og gert ýmsar kröfur í sex atriðum. Út- gerðarmenn hafa aftur á móti boðið að 200 þús. króna líftrygg- ingin og öryggistryggingin, sem samið hefur verið um fyrir yfir- menn, ná einnig til háseta. Samn ingar náðust hins vegar ekki á þessum grundvelli. Frá Reykjavík er róið upp á væntanlega samninga, og margir Hafnarfjarðarbátanna róa frá höfnum á Suðurnesjum. Er afli þeirra fluttur til Hafnarfjarðar til vinnslu. í gærkvöldi hafði ekki verið L boðað til nýs fundar með deilu- í fyrradag við Briissel, hafi verið kvæntur íslenzkri konu. Hann hét Lusien Edu- waere, en kona hans var Hulda Fanney Ásbjörnsdótt- ir. — Lucien Eduwaere mun fyrst hafa komið hingað til lands á belgískum togara, og kynntist hann þá konuefni sínu. Síðar gerð ist hann loftskeytamaður og seinna loftsiglingafræðingur. Flaug hann fyrst í Afríku en síð- ar á helztu flugleiðum um heim allan. Lucien Eduwaere naut mik ils álits í starfi sinu, þótti örugg- ur og traustur, enda var hann einn af fyrstu starfsmönnum Sabena-félagsins, sem lærði á þotu. Hann var einn elzti og reyndasti starfsmaður félagsins, þegar hann fórst, komin á fimm- tugsaldur. Átti vini hér Lucien Eduwaere átti marga vini og kunningja hér á landi. Hann kom hingað nokkrum sinn um, og eins heimsóttu margir ís- lendingar þau hjón í Briissel, en þar hafa þau verið búsett um 20 ára skeið. Þau eignuðust tvo syni sem nú eru 17 og 18 ára. Halldór Káxness Nýtt leikrit ettir Halldór Laxness FRÉTTAMADUR Morgunblaðs- ins hitti Nóbelsskáldið að máli í gær og spurði hvort rétt væri, að hann hefði samið nýtt leikrit. Skemmdarvargar eydileggja biðskýli S.V.R. kostar tugum jbús. til þeirra STRÆTISVAGNAR Reykja- víkur hafa orðið að kosta tugum þúsunda til viðhalds farþegaskýlanna, vegna þess hve umgengni fólks er slæm í þeim. Er nú svo komið, að í athugun er að flytja skýli í burtu af nokkrum biðstöðv- um, vegna þess hve stórfellt tjón er unnið á þeim, nærri því um leið og búið er að lagfæra þau. Á Ólýsanlegur sóðaskapur Eitthvað á þessa leið fórust Haraldi Þó /'arssyni formanni á Trésmíðaverkstæði S. V. R. orð er blaðamaður frá • Mbl. hitti hann við biðskýli eitt við Klepps veg fyrir nokkrum dögum. Þá var rétt nýlokið að framkvæma mjög kostnaðarsama viðgerð á skýli þessu. Haraldur sagðí að í bænum væru nú 12 slík Iokuð far- þegaskýli á biðstöðvum. Frá því þau voru fyrst tekin í notkun, hefur borið á því, að þeir sem fá útrás við að skemma og eyðileggja, hafa látið þessa ónáttúru bitna tÚrt) Síld og ýsa á Akranesi AKRANESI, 16. febr. — Sigurð- ur AK fékk 600 tunnur af síld í nótt. Landar hann síldinni í Reykjavíkurtogarann Narfa til útflutnings. Sigurður SÍ fékk 150 tunnur, en Höfrungur II, sem var þriðji síldarbáturinn úti í nótt, fékk ekkert. Dekkbáturinn Sporð ur, 12 tonna og þrír á, fiskaði um 3 lestir á línuna í dag. f gær var afli Sporðs rúmar 3 lestir. Allt var það ýsa. Enginn stóru bátanna hefur ró- ið á línu enn, og enginn er látinn fara að beita línuna, en hitt er víst, að skipshafnirnar á öllum bátunum vinna nærri því dag og nótt við að gera línuna klára, svo hægt sé að róa um leið og samningar verða undirritaðir. Oddur. mjög á þessum skýlum. Oft hefur verið gengið srvo langt í sóðaskapnum að vart er hægt að lýsa því í blaði. Iðulega hefur mannasaur fundizt í þeim. Á Rúður brotnar í hverju þessara skýla eru fjórar rúður. Það var auðvitað gagnslaust að setja venjulegar rúður, svo til þess varð að grípa að setja í þær plastgler. Algengt er að þessum rúðum ásamt gúmmírömmum sé stolið. Ef ekki þá er plastið rispað og eyðilagt á þann hátt, en rúðurn- ar kosta um 4000 kr. Haraldur kvaðst fullyrða að meðan svo horfir sem nú um alla umgengni fólks um biðskýli strætisvagnanna, þá getur fólk ekki vænzt þess að sett verði upp fleiri slík skýli, sem þó ann- ars er víða þörf. ^ Á glæ kastað í einu hverfanna gekk skemmd arfýsnin svo langt, að einn dag var skýlið tekið upp og flutt á annan stað. Viðskiptavinir stræt- isvagnanna voru langt komnir með að jafna skýlið við jörðu. Og í nokkrum hverfum bæjar- ins er umgengnin um þessi skýli svo fyrir neðan allar hellur, að í ráði er að flytja þau burtu nú í vor ef ekki verður einhver breyting á. Það kostar S. V. R. milli 50—60 þúsund krónur að endurnýja plastglerið í biðskýl- unum, sagði Haraldur og hann bætti við, þetta fé er tekið af rekstrarfé fyrirtækisins. Segja má að allt fé sem farið hefur til þess að viðhalda biðskýlunum hafi verið á glæ kastað. Halldór Laxness svaraði því til, að það væri rétt. Kvaðst hann hafa byrjað á verkinu um jólin og lokið því 10. janúar sl., en þó ætti hann eftir að leggja siðustu hönd á það, og ynni hann nú að því. — ★ — Fréttamaður blaðsins spurði skáldið hvort hann vildi segja nokkuð um efni leikritsins. Hann svaraði: Þetta er skemmtileikur í þremur þáttum með sjö eða átta persónum. Hann er ekki bundinn við neinn sérstakan stað, en gæti alveg eins gerzt í Reykjavík og hvar annars staðar. Og éruð þér búnir að gefa leikritinu nafn? Ég hef látið mér detta í hug að kalla það „Strompleikinn". Þó er það ekki fullráðið ennþá, en ég held að það ætti vel við efnið. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær leikritið verður sett á svið. ♦ ★ ♦ Þess má að lokum geta, að leik rit Halldórs Laxness, „Silfur- tunglið", var sýnt í Þjóðleikhús- inu árið 1954. Síðan var það leik- ið víðar, m.a. í Helsinki og Moskvu. Nú er einnig búið að þýða það á kínversku, og sýndi skáldið fréttamanninum þýðing- una sem hann fékk senda fyrir þremur dögum. Dýnamit stuldur LÖGREGLUSTJÓRINN á Kefla- víkurflugvelli hefur beðið blaðið að birta eftirfarandi: íslenzkir aðalverktakar hafa í dag (16. febrúar) tilkynnt, að stolið hafi verið úr læstri, af- girtri geymslu félagsins utan flug vallarins nokkrum kössum a£ Atlas-Powder ICC-dýnamíti, er ber nafnið Giant Gelatin. Dýna- mit þetta er nokkurra ára gamalt. Hvellhettum var eigj stolið, en erfitt er talið að notfæra sér það án þeirra. Þeir, sem kynnu að hafa orðið varir við dýnamit greindrar tegundar, eru beðnir að láta næstu lögregluyfirvöld vita af því. Somkomulag ú Vestfjörðum SAMKOMULAG náðist á þriðjudagskvöld milli sainn- inganefnda sjómanna og út- vegsmanna á Vestfjörðum um bátakjörin, og höfðu fundir þá staðið yfir síðan á sunnudag. Byggist sam- komulagið í höfuðatriðum á landssamningum um kjör bátasjómanna. Samkomulag ið undirrituðu fulltrúar sjó- mannasamtakanna innan A1 þýðusambands Vestfjarða og fulltrúar L.Í.Ú., þeir Haf steinn Baldvinsson og Ágúst Flygenring, sem höfðu til þess umboð frá útgerðar- mönnum á Vestfjörðum. Ver ið er nú að bera samkomu- lagið undir hin einstöku félög. Afhenti emhættisskilríki HINN 9. febrúar sl. afhenti Pét- ur Thorsteinsson forseta Sam- bandslýðveldisins Þýzkalands trúnaðarbréf sitt sem ambassa- dor íslands í Sambandslýðveld- inu Þýzkalandi. (Frá Utanríkisráðuneytinu) Gin veiki og klaufa- Danmörku i Kaupmannáhöfn, 16. febr. Frá Páli Jónssyni. ÞAÐ hefur nú skotið Dönum miklum skelk í bringu, að orðið hefur vart við gin- og klaufa- veiki á tveimur búgörð- um á austurhluta Sjá- lands. Heilbrigðisyfirvöldin hafa brugðið mjög skjótt við og var öllum bústofninum á þessum bæjum slátrað miskunn- arlaust. Á öðrum bæn- um var slátrað 27 kúm og 128 svínum, en hin- um 30 kúm og 70 svín- um. Voru dýrin grafin í stórri fjöldagröf. -<♦>' 9,5 millj. kr. lán til verk- smiðju S.H. í Hollandi BLAÐUD hefur aflað sér upp- lýsinga um það, að nýlega hafi Import-Export bankinn í New York veitt Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna 250 þús. dala lán eða 9.570.000 ísl. krónur. Lánið er veitt til véla- og á- haldakaupa til fiskvinnslu- verksmiðju Sölumiðstöðvar- innar í Delfzijl í Hollandi. Skv. viðtali, sem blaðið áttl við Jón Gunnarsson, frkvstj. S. H., í gærkvöldi, aðstoðaðl Thor Thors, ambassador. viff lántökuna vestra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.