Morgunblaðið - 17.02.1961, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.02.1961, Blaðsíða 3
Föstudagur 17. febr. 1961 MORCVNBLAÐ1Ð 3 ♦ ♦♦♦♦♦♦« ■♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦« B L A Ð IÐ hitti fyrir skömmu að máli Jón bónda og hænsnaræktar- mann Guðmundsson á Reykjum í Mosfellssveit og rabbaði við hann um Ameríkuferð, en þangað fór Jón til þess að kynna sér nýjungar í búnaði og þá fyrst og fremst hænsna rækt og eggjaframleiðslu. Jón fór vestur með Karla- kór Reykjavíkur, en þar er hann söngfélagi. — Þar sem ég var staddur vestra leitaði ég fyrir mér um fyrirgreiðslu til þess að kynna mér hænsnarækt. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar brugðust mjög vel við þess- ari málaleitan minni og stóð mér til boða fjögurra mán- aða dvöl í Bandaríkjunum mér að kostnaðarlausu. 1 þessu sambandi kom og til Jón Guðmundsson á Reykjum með Mr. Babcock, sem er einn kunnasti hænsnakynbótamaður Bandaríkjanna og eigandi risakynbótabús. Astand eggjafram- leiöslunnar bágborið fyrirgreiðsla Búnaðarfélags Islands og bandaríska sendi- ráðsins hér í Reykjavík, sagði Jón í upphafi samtals- ins. — Vegna starfa minna hér heima gat ég því miður ekki þegið nema tvo mánuði af hinu góða boði og stóð ferða- lag mitt í 66 daga. Hófst það í Washington og var skipu- lagt af einni af undirnefnd- um innanríkisráðuneytisins. — Frá Washington hélt ég í heimsókn til tilraunastöðv- arinnar í Beltswille í Mary- land. Það er risavaxin til- raunastöð, rekin af sambands stjórn Bandaríkjanna. Hefur hún verið hið leiðandi afl í kynbótum búfjár og tilraun- um landbúnaðarins. — Frá Maryland hélt ég svo til Minnesota-háskóla og þaðan til Missouri-háskóla og var þá komið að jólum. Á nýársdag hófst ferðin að nýju og dvaldist ég þá fyrst við háskólann í Raleigh í North-Carolina og fleiri borg um í því fylki. Þaðan hélt ég til Williamsburg og Win- cester í Virginia-fylki. í Williamsburg er mjög þekkt þjóðminjasafn og eyddi ég þar tveimur dögum. Þaðan fór ég til íþöku með við- komu í Washington, þar sem ég gaf skýrslu um förina. í íþöku er Cornell-háskóli, mjög þekkt menntasetur, og var ég þar í 6 daga. — Að lokum sótti ég ráð- stefnu kjöt- og eggjaframleið- enda í Suðurríkjunum. Við spurðum Jón um nokk ur atriði, er vöktu sérstaka athygli hans á ferðalaginu. — Allar heimsóknirnar í háskólana voru með svipuðu sniði. Ég bar upp ýmsar spurningar og ræddi fjölda vandamála við prófessorana og sérfræðingana sem vinna við þessar menntastofnanir. Að öðru leyti var ég á veg- um héraðsráðunautanna og með þeim skoðaði ég fjölda tilraunastöðva og allskonar fyrirtæki, sem rekin eru í sambandi við hænsnarækt. — Ég tel mig hafa haft mjög mikið gagn af allri þessari ferð og raunar mun er líka það eina, sem það hefur haft bolmagn til. Það hefur enda stundum haldið því fram að þetta væri frexn- ur iðnaður en landbúnaður, en iðnaðurinn vill ekkert hafa saman við okkur að sælda. — Þegar þannig er ástatt með einn atvinnuveginn í þjóðfélagi okkar, er vart von að vel fari, enda hefur hann orðið fyrir miklum árásum af hendi neytenda, og kannski ekki að ófyrirsynju. — Það skal einnig fram tekið að hænsnaræktin nýtur engrar upplýsingaþjónustu, nema það litla, sem B. í. hef- ur getað af hendi leyst af einskærri greiðasemi með er- lendum upplýsingum og þýð- ingum, sem þá að sjálfsögðu miðast við staðhætti þar og oft ólíkt því sem hér er. — Eggjaframleiðsla okkar Islendinga er að verðmæti yfir 30 milljónir króna á ári. Er þá ótalið allt kjöt af hænsnum, sem eru vart minna en 50 þús. stk. ár- lega. Þar að auki eru svo kjúklingar. Af þessu má glöggt sjá að full ástæða er til að sinna þessari atvinnu- grein meira en gert hefur verið. Við verðum í þessari stuttu blaðagrein að taka aðeins fá dæmi, þeirra mörgu, er Jón á Reykjum getur bent á. — Ég vil benda á að ég hef komizt að raun um að fortakslaust eigi aðeins að láta hænurnar verpa eitt ár. Ilænsni að nokkru á grindagólfi og að nokkru á taði. (Ljósm.: J. Guðm.) Hænsnaslátrun með rafiosti. meira en ég bjóst við í upp- hafi. Þakka ég það fyrst og fremst því hve ferð mín var vel skipulögð og hve auðvelt var að vinna með þeim mönn um, sem ég átti samskipti við. Við ræðum næst ástand hænsnaræktarinnar hér á landi og spyrjum Jón hvaða ábendingar hann vilji leggja áherzlu á eftir að hafa kynnt sér þennan atvinnurekstur vestan hafs. — Það er óhætt að segja að ástand þessa atvinnuvegs hér á landi sé frefnur bág- borið. Félagmál eggjafram- leiðenda eru og hafa alltaf verið meira og minna í mol- um. Hið opinbera hefur aldrei gert neitt þessum at- vinnuvegi til stuðnings svo ég viti til nema að inn- heimta söluskatt af fram- leiðslu þeirra, sem eru í sam- tökum eggjaframleiðenda. — Hefur hann orðið að bjarg- ast á eigin spýtur eins og bezt hefur látið hverju sinni. Búnaðarfélagið hefur alltaf svnt honum velvilja, en það Ég byggi þetta á því að meðalvarp sæmilegra hænsna er yfir 200 egg á 1. ári en 40—80 stk. minna á 2. ári. Hæna, sem búin er að verpa eitt ár þarf 6—10 vikur til fjaðrafellingar. Sá tími kost- ar á hvern fugl ca. 25 kr. í fóðri einu saman. Gera má ráð fyrir 30—40 kr. verði á ársgamalli hænu til slátrun- ar. Þessi mismunur, fóðrið, frálagsverðið og eggjatapið á 2. varpári er nálægt því verði, sem 5 mánaða ungi kostar, en það er sá aldur er hann þarf að ná til þess að geta farið að verpa. — Ég tel óhjákvæmilegt að koma hér á fót sláturhú.sí fyrir alifugla. Þá getur neyt andinn fengið mun meira úr- val og tryggingu fyrir góðri og vel verkaðri vöru. Einnig er þetta auðsær hagur fyrir framleiðendur, sem margir hverjir fá lítið sem ekkert verð fyrir afsláttarfugla. — Bandaríkjamenn eiga mörg góð varpkyn og einnig góð kjötkyn, en eins og et Framh. á Hs. 22. •♦♦♦♦♦♦♦•^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦^^^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦^^^^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^ STAKSTEINAR Gerðardómurinn og Karl Guðjónsson Eins og kunnugt er, hefur Karl Guðjónsson þingmaður kommún- ista flutt, ásamt Lúðvík Jósefs- syni, frumvarp um gerðardóm 1 ákveðnum vinnudeilum. Gerðar- dómur þessi á að ákveða hlut- deild sjómanna, útgerðar og vinnslustöðva í aflaverðmæti. Á hann þannig að hafa úrslitaáhrif á kjör sjómannastéttarinnar. MeS tilliti til þess að Karl Guðjóns- son ber höfuðábyrgð á verkfail- inu í Vestmannaeyjum, sem svift hefur flesta bæjarbúa atvinnu, hafa menn búizt við því að hana mundi flytja nýtt frumvarp un almennan gerðardóm, eða a.m.k. að settur yrði gerðardómur til aS leysa úr því hver kjör landverka- fólks í Vestmannaeyjum skuB vera, úr því hann vill að gerðar- dómur áikveði kjör sjómanna. Á þessu nýja gerðardómsfrumvarpi hefur þó enn ekki bryddað og virðist Karli því eðlilegt að verk- fallið standi enn um hríð. En gera verður ráð fyrir að hann beri frumvapið fram áður en langt un líður, því að sjálfsagt vill hann vera sjálfum sér samkvæmur. 'Ór því hann vill ákveða kjör sjó- manna með gerðardómi, þá viil hann vafalaust líka að gerðardóm ur fjalli um kjör landverkafólks. Játa samstarf við kommúnista Á æskulýðssíðu Tímans í gær er rætt um „samstarf Framsókn- armanna í launþegasamtökunum við kommúnista“. Síðan segir: „f því tilviki, sem hér um ræð- ir, hafa Framsóknarmenn og kommúnistar átt samleið". Framsóknarflokkurinn fer þann ig ekkert dult með það lengur, að full samstaða er með honum og kommúnistum í tilraununum til þess að reyna að eyðileggja efnahag landsins. I greininni seg- ir einnig, „að stefna Framsóknar- flokksins er jafn andstæð komm- únisma og íhaldi“. Á öðrum stað segir: „Á sama hátt mundu þeir (þ.e. Framsóknarmenn) að sjálfsögðu vinna að sérhverju hagsmunamáli þjóðarinnar með íhaldi, er svo bæri undir að íhaldið sinnti þeim máhim“. í þessum orðum felst það, að Framsóknarmenn gera engan greinarmun á erindrekum heims- kommúnismans og íslenzkum lýð ræðisflokki. Þeir segja að þeim sé jafnkært að styðja ofbeldis- og öfgastefnu eins og að starfa með lýðræðisflokki. Þessi hugs- unarháttur er í fullu samræmi við álróður þann, sem kommúnistar nota meðal nytsamra sakleys- ingja. Þar er hamrað á því, að vestrið og austrið séu álíka slæm og þannig reynt að afla þess hlut- leysis, sem kommúnistum er nauð synlegt til að koma fram áform- um sínum. Skilgreining ritstjóra Æskulýðssíðu Tímans á Fram- sóknarflokknum er því býsna rétt. Hann gerir nú orðið lítinn greinarmun á kommúnisma og lýðræði. Á sumum sviðum %tyður hann beinlínis ofbcldisöflin en á öðrum reynir hann að ala á hlutleysi gagnvart þeim. Árg-einingur í Framsókn Því er hins vegar ekki að leyna, að innan Framsóknar- flokksins er fjöldi manna, sem andvígur er þessari stefnu for- ystunnar og flokksblaðsins. Þeir eru í dag í minnihluta í forystn flokksins, en enginn veit hvað ofan á verður á morgun. Vissu- lega hljóta allir góðir menn að vænta þess að Framsóknarflokk- urinn verði áfram lýðræðissinn- aður en ekki handbendi heims- kommúnismans beint eða óbeint.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.