Morgunblaðið - 17.02.1961, Síða 6

Morgunblaðið - 17.02.1961, Síða 6
 MORGUHBLAÐIÐ Föstudagur 17. febr. 1961 r Bæjarþing Oraíors MYNDIN hér að ofan er tekin í Bæjarþingi Orators í gær. Eins og frá var skýrt hérí í blaðinu, var hátíðisdagur laganema í gær, og einn liður í hátíðahöldunum var æfing í málflutningi. Fyrir var tekið mál nr. 1 1961. f>að hafði Lovísa Valgerður Jónsdótt- ir höfðað gegn fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs vegna Bannsókn- arstofu Háskólans. Málið er of flókið til þess að hægt sé að gera því Skil hér, en upphaf þess var, að Lovísa ól bam fyrir nokkrum árum, sem hún kenndi kaup- manni einum 1 sama kauptúni Hann viðurkenndi að hafa haft máið samband við Lovísu einu sinni, en fleiri mundu koma til greina. Blóðrannsókn leiddi í ljós, að kaupmaðurinn gat ekki verið faðirinn, en nokkrum árum síð- ar kom í ljós, að ritvilla hafði orðið í blóðrannsóknarvottorði kaupmannsins, sem Rannsóknar- stofa Háskólans hafði gefið, svo að ekki var hægt að útiloka hann frá faðerninu. Var nú málið upp þeir, að kl.,10 um morguninn flutti Jóhann Hafstein erindi, og síðar um daginn afhenti háskóla rektor, prófessor Ármann Snæv- arr, laganemum herbergi í skól- anum Þá fjölmenntu laganemar mjög í heimsókn til bandaríska sendiráðsins og bandarísku upp- lýsingaþjónustunnar. Þeim voru sýnd öll húsakyni sendiráðsins og upplýsingaþjónustunnar og starfsemi þeirra kynnt og skýrð. Fyrirlestra fluttu Mr. Alfred P. Dennis, 1. sec. consul, Mr Halvor O. Ekarn, 1. sec. consul, Mr Benjamin B. Warfield, attaché, yfirmaður Upplýsingaþjónustunn ar og Mr. Thyler Thompson, am- bassador. Ræddu þeir um starf- semi sendiráða, viðskipti íslands og Bandaríkjanna, lögfræðileg atriði í sambandi við sendiráð og sendiráðsmenn o. fl. Voru laga nemar mjög ánægðir með þessa heimsókn, enda yoru allar mót- tökur með ágætum. í gærkvöldi var svo hinn árlegi íagnaður Orators haldinn í Leik hússkjallaranum. Tillögur Hammarskjölds t Kongómálinu; SÞ fái heimild fi! oð \kalla saman þing Kongó HAMMAR.SK J ÖLD hefur neitað að verða við kröfu Rússa um að segja af sér, sem framkvæmdastjóri SÞ. Var lauslega greint frá þessari á- kvörðun hans og ræðu er hann flutti í Öryggisráðinu í fyrrakvöld. Nú hafa nánari fregnir bor- izt af ræðunni og fara nokkrir kaflar úr henni hér á eftir: Hann hóf ræðuna með því að lýsa því yfir skýrt og skor- inort, að hann hefði ekki í hyggju að segja af sér. „Ég get fullvissað Sovét- ríkin um það, að ég hef hug- rekki til að mæta öllum af- leiðingum þessarar ákvörðun- ar minnar, jafnvel þó það kosti það að ég verði að sitja áfram í embætti án þess stuðn ings sem nauðsynlegur er og þó þau tæki, sem ég hef yfir að ráða séu mjög veik í samanburði við þær kröfur sem gerðar eru til mín. ★ Ákvörðunin um setu mína í framkvæmdastjórn SÞ er þannig einmitt í höndum þeirra þjóða, sem Sovétríkin þykjast mæla fyrir, — því að ég mun að sjálfsögðu hlíta sérhverri ákvörðun, sem þessi samtök sjálf taka í málinu. Dag Hammarskjöld sagði að það mætti æra óstöðugan, að elta ólar við menn sem líta á sannleikann sem flokksmál og réttlætið, sem fram- kvæmdaatriði stjórnmála- flokks. En hann benti á það, að ef hann hyrfi úr embættinu núna, gætu Sovétríkin hindr- að um aila eilífð með neitun- arvaldi sínu, að nokkur mað- ur yrði kjörinn framkvæmda- stjóri samtakanna. Með því gætu Rússar eflt svo neitun- arvald sitt, að það næði til allra starfa og framkvæmda samtakanna. Það sem hér er deilt um, sagði Hammar- skjöld, er því ekki fyrst og fremst ég eða persónuleiki minn, heldur stofnunin, og til- raunir mannkynsins til að ryðja brautina til réttarskip- unar og friðsamlegrar sam- búðar. ★ Við snerumst með árangri gegn öllum tilraunum hvaðan sem þær spruttu upp, til að gera Kongó, að veiðilendum erlendra hagsmuna. Þegar snúizt er gegn slikum hags- munum, þá er við því að bú- ast að þeir reiðist sem sjá fyrirætlunum sínum koll- varpað. Enn einu sinni er svo kom- ið í Kongó, að innanlands- styrjöld er yfirvofandi, styrj- öld, sem mjög er hætt við að geti breiðzt út og orðið að alþjóðastyrjöld. Ég ítreka það, að eina leiðin til að koma í veg fyrir svo hörmulega þróun málanna, e. t. v. að heimsstyrjöld brjótist út, er að sameina sem flestar þjóðir um örugga varðstöðu innan SÞ gegn þvlíkri hættu. ★ Hammarskjöld óskaði þess að samtök SÞ veitti honum heimild til nýrra aðgerða í Kongó, sem hann taldi upp í fimm liðum: 1) Alþjóðleg rannsókn fari fram á morði Lumumba og tveggja félaga hans og skorið verði úr því, hver ber ábyrgð á því. 2) Herlið SÞ í Kongó fái heimild til að vernda almenna borgara fyrir árásum- her manna, án tillits til þess hverjum þeir þjóna. 3) Herlið SÞ fái heimild til að koma í veg fyrir vopn- aða árekstra í Kongó og megi beita til þess vopnavaldi, að skilja bardagaaðila. 4) SÞ fái heimild til að end- ^ urskipuleggja þjóðher Kongó |> og bannað verði að Kongóher eða herforingjar skipti sér af innanlandsstjómmálum. Hammarskjöld, sagði að þótt þessir fimm liðir væru engin heildaráætlun, þá væru þeir undirstöðuatriði, sem myndu treysta aðstöðu her- liðs SÞ til að halda uppi röð og reglu í Kongó. ★ En auk þessa, sagði Hamm- arskjöld, að heimila yrði her- Framhald á bL. 17. tekið að nýju og kaupmaðurinn dæmdur til að greiða meðlag frá því að nýja málið vatr höfðað. Getur Rannsóknarstofa Háskólans greitt með barni Lovísa höfðaði þá mál það, sem fyrir var tekið í gær, gegn rann- sóknarstofunni. Krefst hún þess, að stofnunin verði dæmd til að greiða barnsmeðlag frá fæðingu barnsins og til þess dags, er kaup maðurinn hóf greiðslur. Fleiri kröfur gerði hún á hendur stofn- uninni, svo sem bótakröfur fyrir óþægindi og álitsspjöll Á myndinni sézt verjandinn, Ragnar Aðalsteinsson, flytja mál sitt, en til hægri situr sækjand- inn, Skúli Pálsson í þungum þönk um. í baksýn er Árni Grétar Finnsson. Dómforseti var Bjarni Beinteinsson, en með honum dæmdu þeir Jóhannes Árnason og Björn Pálsson. Dómur í málinu var upp kveð- inn í hófi Orators í Leikhúss- kjallaranum í gærkvöldi, en ekki vitum vér, hvernig hann hljóð- aði. Heimsókn í sendiráð Bandaríkjanna Aðrir liðir hátíðisdagsins voru • Sjónvarpið Sjónvarpsmálið komst á dag skrá hér á dögunum, þegar bandariskur sjónvarpsfrömuð ur kom hingað og bauð að- stoð sína til að koma upp lít illi sjónvarpsstöð fyrir Reykja vík og nágrenni. Sennilega hefðu almennar umræður um sjónvarpsmálið orðið meiri, ef við hefðum ekki bjórinn til að þjarka um þessa stundina. Menn hafa sýnt bjórmálinu slíkan áhuga, að þeim öfga fyllstu (með og á móti bjór) entist það vafalaust í fimm eða sex ár. * Vegheflar skaðlegir Hætt er við að sagan endur tæki sig, þegar sjónvarpið kemst á dagskrá. ólíklegustu menn hlaupi upp til handa og fóta og sjá annað hvort svart eða hvítt, ekkert þar í milli. Margir munu aðeins sjá það slæma við sjónvarpið, telja það innleiða spillingu og allt þar fram eftir götunum og má þá gjarnan minnast þess að áður og fyrr börðust marg ir af oddi og egg gegn síman um, bílnum útvarpinu og yfir leitt öllum meiriháttar fram faramálum. Þess er skemmst að minnast, að laust eftir stríð ið kvaddi framámaður í kaup stað úti á landi sér hljóðis og lýsti þeirri skoðun sinni, að vegheflar gerðu ekkert annað en eyðileggja vegina. Okkar malarvegum væri ekki hægt að halda við öðru vísi en aka möl í hjólbörum í holurnar. Hi-tt er vafalaust rétt. Það er hægt að misnota veghefl- ana, halda áfram að hefla og sarga þar til slitlagið er horf ið af veginum. Sama er að segja um sjónvarpið. Erlendis er kvartað yfir því, að oft flytji sjónvarpið lélegt efni, mikið af lélegu efni — og það sé tímaþjófur. w. * Hver veldi ckki.. . ? Ekki er þar með sagt að við þyrftum að sjónvarpa lélegu efni, enda þótt við fengjum sjónvarp. Vissulega yrði efn ið misjafnlega gott, og ein- stakir þættir ekki við allra hæfi, en enginn vafi leikur á því að sjónvarp er gagnlegt fræðslu- og skemmtitæki ef rétt er á haldið. Hver vildi ekki sjá nýjustu fréttamyndir I A íKi FERDINAMO frá Öryggisráðinu, Kongó, blaðamannafundum Kenne- dys, flugslysinu í Brussel, sjó sókn á íslandi eða gufuborun í Hveragerði og Krísuvík I fréttatímum sjónvarpsins? —■ Væri ekki skemmtilegra að sjá leikritin í sjónvarpi?. — Þannig mætti lengi telja, en kostnaður yrði sjálfsagt mik- ill, enda yrði farið hægt al stað. * Að velja og hafna Þegar rætt er um ýmis mál, er varða þjónustu við al- menning, virðast furðumargir gleyma því, að fólkið hefur rétt til að hafna og velja. Ef menn vilja ekki heyra það, sem útvarpið býður, eða það sem sjónvarpið mun hafa á sinni dagskrá, þegar þar að kemur, er ósköp einfalt að skrúfa fyrir. Þær raddir heyr ast oft í blaðaviðtölum við menn og konur, að of mikið sé af sinfóníum, eða of mikið af danslögum í útvarpinu. En góðir hálsar, því ekki að skrúfa fyrir, þegar ,,leið» inlega efnið kemur? Þið get- ið ekki ætlazt til þess að allt sé miðað við ykkar smekk og sjálfsagt hafa mjög margir gaman af því, sem fer í taug- arnar á yður, lesandi góður. • Frá 35 kr upp í 80 kr. ■■■■—— ii■ iii—>hii nii .atx. i.. jM í gær hringdu tvær konur, sem leigja út grímubúninga, til Velvakanda út af þeim ummælum, að búningar væru leigðir út á kr. 100,00. Sagði önnur, að algengasta leiga á barnabúningi væri kr. 45,00 en þeir allra vönduðustu á kr.: 80,00. Hin konan sagðist legja búningana frá kr. 35,00 upp í kr. 80,00. Bæru þær skað- ann, ef búningarnir skemmd- ust.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.