Morgunblaðið - 21.02.1961, Side 1

Morgunblaðið - 21.02.1961, Side 1
24 siður 48. árgangur 42. tbl. — Þriðjudagur 21. febrúar 1961 Prentsmiðja Morgunbladsins 6 vinir Lum- umba líflátnir Sameinuðu þjóönunum, New York, 20. febr. D A G Hammarskjöld, aðal- framkvæmdastjóri SÞ, skýrði öryggisráðinu frá því í dag, að sex stjórnmálamenn í Kongó, sem allir voru stuðn- íngsmenn Lumumba, hafi verið fluttir frá Leopoldville til Suður-Kasai-héraðs og •þar teknir af lífi. Vakti fregn ■i»essi almennan viðbjóð og 'hrylling þeirra er á hlýddu. Frétt þessa hafði Hammar- skjöld eftir fulltrúa sínum í Leopoldville, Indverjanum Rajeshwar Dayal. Þegar fulltrúar höfðu lýst við bjóði sínum á atburðinum, ósk- aði George Padmore, fulltrúi Líberíu, eftir að hlé yrði gert Lumumba flúði ekki — segir meðfangi hans Dar es Salaam, Tanganyika, 20. febr. (NTB). EINN af fyrri meðföngum Lumumba sagði í dag í Dar es Salaam að Lumumba og samstarfsmenn hans tveir, sem drepnir voru með hon- um, hafi alls ekki flúið fangelsið í Katanga, heldur verið teknir af lífi hinn 8. febr. s.l. Semji Satchou, sem er rit- ari í þjóðernishreyfingar- Lumumba var í haldi í sama fangelsi og forsætisréðherr- ann fyrrverandi ,og voru að- eins tveir klefar á milli þeirra. Satchou tókst nýlega að flýja til Tanganiyka. Hann áttl í dag viðtal við dag blað eitt og sagði þá að Lum uirjba og félagar hans tveir hafi verið sóttir í farrgelsið kl. 2 aðfaranótt 8. febr. s.l. og fluttir á aftökustað. á fundi öryggisráðsins meðan fulltrúar áttuðu sig betur á því sem skeð hafði. Kvaðst hann vilja nota tímann til að ráð- færa sig við aðra fulltrúa Afríkuríkja, ef ske kynni að þeir vildu breyta afstöðu sinni til Kongómálsins, sem hann sagði að væri fyrst og fremst mál Afríkulandanna. Grimmd og lögleysa Fulltrúi Bandaríkjanna, Adlai Stevenson, kvaðst vilja lýsa yfir hryllingi, fyrirlitningu og gremju Framih. á bls. 23 40 ráðherrar á þingi Norðurlandaráðs Kaupmannahöfn, 20. fébrúar. ' Einkaskeyti frá Páli Jónssyni. NÍUNDA þing Norðurlanda- ráðs hófst í Kaupmannahöfn á laugardaginn. — Þar eru mættir 40 ráðherrar og 69 þingmenn frá öllum Norður- löndum. — Gísli Jónsson, alþingismaður, fráfarandi for seti ráðsins, setti þingið, en síðan var kosið í stjórn þess og nefndir. Forseti ráðsins var kjörinn Erik Eriksen, fyrrverandi for sætisráðherra, en varaforset- ar Gísli Jónsson, Fagerholm frá Finnlandi, Hönsvald frá Noregi og Ohlin frá Svíþjóð. Nefndarkjör. íslenzku fulltrúarnir voru kjörnir í nefridir sem hér seg- ir: Magnús Jónsson í laganefnd, Gísli Jónsson í menningarnefnd, Einar Olgeirsson í félagsmála- nefnd Ásgeir Bjarnason í sam- göngumálanefnd, Sigurður Ingi mundarson í fjármálanefnd og Haraldur Kröyer í ritnefnd fyrir Nordisk Kontakt. Eriksen forseti ráðsins til- kynnti að meðal þeirra mála sem fjrrir lægju, væri tillaga um að banna kjarnorkuvopn á Norður löndum. Flytjendur eru Hertta Kuusinen frá Finnlandi og Einar Olgeirsson. í umræðunum á laugardag var mikið talað um nauðsyn á samvinnu Norðurlandanna. í þeim umræðum sagði Norð maðurinn Wikbork að hann hefði aldrei fundið jafn mik- ið til norrænnar samstöðu og á Lögbergi í fyrra, þegar þingið var haldið á íslandi. Kæða Ólafs Thors. Áður en fundi lauk á sunnu- dag héldu forsætisráðherrar allra Norðurlanda ræður. Ólafur Thors forsætisráðherra lýsti ánægju sinni yfir að vera aftur kominn til Kaupmannahafnar, en þangað hefði hann síðast komið fyrir 30 árum. Hann flutti kveðjur frá Islandi til þeirra þingfulltrúa, sem í fyrra heimsóttu íslands og skildu þar eftir dýrmætar endur minningar, sem ekkj gleymast: Við komum hingað til að stofna til kynna, sagði forsætisráðherr ann. Kunningsskapur er bezta leiðin til að draga úr skoðana- mun. Persónulegt viðhorf mitt gagnvart Norðurlandaráðinu svo og viðhorf meðráðherra minna, er eigingjarnt. ísland, veiga- minnsta grein hins norræna stofns þarfnast sem mestrar nor rænnar samvinnu á mörgum svið um og áhugi okkar á Norður- landaráði er vaxandi. Mörg af málum þeim sem hér eru rædd, snerta okkur ekki beinlínis, en við viljum vera framtakssamari. Við óttumst ekki þegar sagt er á íslandi að það gangi hægt. Ég segi löndum mínum að ef við Verkfall hefur nú staðið yfir I í Vestmannaeyjum frá ára-J mótum. ÖIl vinna liggur ger- samlega niðri í bænum. Mynd þessi er tekin fyrir helgina af Sighvati Bjarnasyni, fram- kvæmdastjóa Vinnslustöðvar- innar, sem er stærsta fyrir- tækið í bænum. Hann stendur arna í auðum pökkunarsaln- um í Vinnslustöðinni, þar seml um þetta leyti ættu 180 stúlk-| ur að keppast við að vinna. Nánar er sagt frá heimsókn til Vestmannaeyja á síðu 3 og 10 í blaðinu. Ljósm. Sigurgeir Jónasson. sameinum kraftana og lyftum upp blysi sannleikans, fylgi þjóð in okkur. Róm var ekki byggð á einum degi. Norðurlandaráð er ekki eins og Pallas Aþena stokk in út úr enni Zeivs og hefur ekki þegar náð fullkomnun. Ölafur Thors lauk máli sínu með þessum orðum: ,,Ég geri Framh. á bls. 23 Flugslys, sjóslys og sprenging verða fjölda manns að bana London, Rovigo, Darla, Tokio, 20. febrúar (Reuter). ANSON flugvél úr brezka flug- hernum rakst í dag á fjallstind á eyjuirni Man. Sex menn voru í vélinni, og fórust þeir allir. Vélin var á leið til Norður-ír- lands frá Wyton í ensku Mið- löndum. Sprenging varð í dag í skipa- smiðastöð lálægt Rovigo á ítal- íu. Þrír starfsmenn stöðvarinrr- ar fórust í sprengingunni en sjö aðrir særðust. Við sprenginguna þeyttust allt að hálfs tonns málm stykki 200 metra vegalengd. TJm | 70 menn voru víð vinnu erj sprengingin varð. í einni fréttj segir að oliuflutningaskip, sem verið var að vinna við, hafi rifnað í þrjá hluta. Eldur brauzt út í stöðinni, en varð fljótt slökktur. Gluggarúður brotnuðu í 500 metra fjarlægð frá skipa- smíðastöðiimi. — • — Fylkisstjórinn í Austur Paki- stan hefur fyrirskipað rannsókn á því er fljótabáti hvolfdi á Meghna fljóti sl. miðvgcudag. Óttazt er að um eitt hundrað manns hafi drukknað. Bráða- birgðaskýrsla hefur verið gefin út um slysið og er þar aðallega stuðzt við framburð íbúanna í nágrenni við slysstaðinn, en þeir segja að á bátnum hafi verið 250 farþegar. Eigendur bátsins segja hinsvegar að ekki hafi ver ið nema 120 farþegar um borð, enda er það leyfilegt hámark. Samkvæmt fréttum voru fljóts- bakkarnir þaktir líkum farþeg- anna, sem margir gátu synt í Iand í ísköldu vatninu en létu lífið er þangað kom. Ekki er Framh. á bis. 23 Mótmæla morð- unum í Kongo MORGUNBLAÐINU hefur flýtt fyrir þeirri lausn með borizt eftirfarandi yfirlýsing slíkum ógnaraðgerðum. frá alþjóðaráði samtakanna Ráðið vill benda á að Congress for Cultural Free- Frjáls menning er alþjóða dom, sem hér á landi nefnist félagsskapur menntamanna Frjáls menning. Yfirlýsingin og hefur mótmælt pólitísk- er dagsett í París 14. þ. m.: Yfirlýsing varðandi morðin á Patrice Lumumba, Maurice M’Polo og Joseph Okito Alþjóðaráð Frjálsrar menn ingar lýsir yfir reiði sinni vegna morðanna á kong- ósku stjórnmálaleiðtogunum Lumumba, M’Polo og Okito og hvetur til þess að óhlut- dræg alþjóðleg rannsókn verði framkvæmd á þeim óhugnanlegu atburðum, sem umlykja dauða þessara þriggja manna. Án þess að vilja á nokkurn hátt dæma fyrirfram þá stjórnmálalegu lausn, sem finna verður á vandamálum Kongó, er ráðið sannfært um að ekki verður um ofsóknum hvar í landi sem slíkar ofsóknir hafa ver- ið framdar, þar á meðal í Sovétríkjunum og á Spáni. Samtökin hafa átt forystuna í alþjóðlegum mótmælum gegn pólitískum réttarhöld- um í Austur-Evrópu og gegn aftöku Imre Nagy og ann- arra stjórnmálaleiðtoga ung- versku byltingarinnar. Frjáls menning fór þess einnig á leit við forseta Bandaríkj- anna að hann breytti dauða- dómunum í málum Rosen- berghjónanna og Chessmans. Gjörðir Frjálsrar menningar hafa byggzt, ekki á flokks- sjónarmiðum, heldur á rétt- læti og manngæzku, sem eru grundvöllur frelsis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.