Morgunblaðið - 21.02.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.02.1961, Blaðsíða 2
2 MORCryPT. AÐ1Ð Þriðjudagur 21. febrúar 1961' Næg afvinna hjá iðnaðarmönnum B L Ö Ð stjórnarandstæðinga hafa látið að því liggja og jafnvel fullyrt, að um „sam- drátt í efnahags- og atvinnu- lífinu, væri nú að ræða. Þau höfðu einnig marglýst því yfir, að stórkostlegt atvinnu- leysi yrði skollið á upp úr áramótum 1960/1961. Reynd- in hefur orðið öll önnur, og létu t. d. ekki nema 8 menn skrá sig atvinnulausa í þess- urn mánuði. Stjórn Sveino- félogs skipa- smiðn AÐAUPUNDTJR Sveinafélags skipasmiða í Reykjavík var hald inn sl. sunnudag. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundar- störf og ákveðið var að gefa út sögu félagsins í tilefni þess að íélagið á 25 ára afmæli 1. marz nk. Stjórn lýðræðissinna var öll endurkjörin, en hana skipa: Sigurður Þorkelsson, form; Halldór Örn Þórðarson, vara- form.; Jón Óskarsson, ritari og meðstjórnendur Einar Einars- son, og Jón Eggertsson. Gjald- keri utan stjórnar: Magnús Jón asson. Varastjórn: Jón Óli óia- son og Leifur Grímsson. Trún- aðarmannaráð: Svavar Sigur- jónsson, Björn E. Björnsson, Magnús Vilhjálmsson og Helgi Arnlaugsson. Varamenn: Jón Guðlaugsson, Guðmundur Jónas son, Emil Guðmundsson og Kjartan Einarsson. Endurrvoð- endur: Hafliði J. Hafliðason og Magnús Þorsteinsson. Til vara: Bragi Guðnason. Á f jórða himdrað manns í H^s- kirkju BOLUNGAVÍK, 20. febr.: — Síð astl. sunnudag fór fram í Hóls- kirkju hátíðleg nainningarat- höfn um skipverjana tvo sem drukknuðu af vélbátnum Krist. jáni Hálfdáns, hinn 9. þ.m., þá Guðmund Birgú Þórðarson og Þórarinn Sigurgeirsson. Hátt á fjórða hundrað manns var við minningarathöfnina og urðu nokkrir kirkjugesta að standa úti fyrir kirkjudyrum, en þar hafði hátalara verið komið upp. Sóknarpresturinn sr. Þorbergur Kristjánsson flutti sérstaklega áhrifaríka og hugljúfa minning- arræðu. Kirkjukór Bolungavík- ur söng. Sýndi minningarathöfn þessi ljóslega að Bolvikingar allir vildu votta aðstandendum hinna ungu manna samúð sína, enda vox-u þeir vaxandi menn á framtíðarvegi, hvor á sínu sviði og mikill og óbætanlegur ekaði að fráfalli þeirra. — Fréttamaður. Umferðarráð- stafanir BÆJARRÁÐ hefur fyrir nokkru samþykkt tillögur umferðarnefnd ar, varðandi bílaumferð um Báru götu og Ránargötu, á því svæði sem götur þessar liggja milli Garðastrætis og Ægisgötu. Bíla- stöður verða aðeins leyfðar öðru meginn götunnar, og verða bíla- stæðin afmörkuð. Skortur á rafvirkjum Blaðið átti tal við Árna Brynjólfsson, formann Félags löggiltra rafvirkjameistara, og spurði hann um horfur í at- vinnumálum rafvirkja. Kvað hann fjarri því, að hrakspár um atvinnustöðvun og samdrátt hefðu rætzt, atvinnulifið í grein sinni virtist með svipuðum hætti og áður. Hann nefndi sem dæmi, að sig hefði nú um tíma bráð- vantað rafvirkja í vinnu, en hingað til hefði hann auglýst eftir þeim án nokkurs árangurs, og hjá sveinafélaginu væri eng- in á lausum kili í bili. Nægileg vinna hjá málurum Þá hafði blaðið tal af Jóni E. Ágústssyni, formanni Meistara- félags málara. Hann sagði, að sér virtist sem nægileg vinna hefði verið meðal málara að undanförnu og ekki síður lxf í iðngreininni nú en venjulegt væri um þetta leyti árs. Þess bæri hins vegar að gæta, að atvinna er ávallt með minnsta móti hjá málurum í janúar og febrúar, og miðað við árstím- ann mætti ástandið teljast ágætt. Eins og vant væri, hefðu margar sveinar fremur lítið að gera í þessum mánuðum, en þeir, sem þannig væri ástatt um, væri alts ekki fleiri en venjulega. Ýsan er 4 og fimm ára FORSTÖÐMAÐUR Fiskideildar- innar, Jón Jónsson fiskifræðing- xxr, sagði Mbl. í gær að deildin væri nú að vinna úr þeim gögn- um sem starfsmenn hennar hefðu aflað varðandi smáýsuna sem veiddist fyrir helgina út af Gróttu. Ýsan er aðallega tveir árgang- ar 4 og 5 ára, sem eru báðir mjög sterkir. Við höfum orðið þeirra varir fyrr, strax árið 1957 urðum við varir við gífurlegt magn af þeirri ýsu sem nú er 5 ára. Þegar við höfum unnið úr gögn unum, mun ég gefa skýrslu til sjávaiútvegsmálaráðherra. Jón Jónsson fiskifræðingur bætti því við, að hann myndi þar fjalla um álit Fiskideildarinnar á þessum veiðum. Með listdómi um sýningu Kjarvals, sem birtist í blaðinu sl. sunnudag, eftir Valtý Pétursson, birtist mynd, sem sögð var heita „Mosfellsheiði“. Þetta reyndist rangt. Myndin heitir „Lesið á gullbók“, en hér birtist myndin, sem átti að fylgja listdóminum og ber nafnið „Mosfellsheiði“. Glataði mánaðarbjörg FYRRI hluta síðustu viku varð öldruð kona, Sveinbjörg Ólafs- dóttir, fyrir því óláni að glata veski sínu, sem innihélt allan mánaðarlífeyri hennar, auk gler- augna, sjúkrasamlagsbókar, bóta- skírteinis og annarra smáhluta, sem henni er annt um. Sveinbjörg sneri sér til Morg- unblaðsins í gær og bað um að óhapps hennar yrði getið. Sagð- ist hún umræddan dag hafa far- ið að sækja lífeyri sinn, um 1100 krónur, upp í Tryggingarstofnun og gengið síðan niður í miðbæ til að verzla. Þegar hún kom heim hafði hún týnt veskinu. Ennfrem- ur sagði Sveinbjörg, að veskið hefði hún keypt nýlega á útsölu, og væri það brúnt að lit. Sveinbjörg hefur verið heilsu- lítil undanfarin ár og ellilífeyrir- Slys á Súðavíkurvegi UNGUR MAÐUR, Ólafur Vetur liðason, liggur nú allþungt hald inn í spítalanum á ísafirði. Ólaf ur, sem er starfsmaður vegagerð arinnar, hafði fengið stein í höf uðið, er hann var að vinna við ræsi á Súðavíkurvegi s.I. laugar dag. Hafði þann dag verið mikil leysing og steinn fallið úr kletti ofan við veginn. Var Ólafur að losa um stíflu sem myndazt hafði í ræsið er hann slasaðist. Var haim fluttur meðvitundarlaus til ísafjarðar. Hefur ekki verið hægt að kanna meiðsl hans sem skyldi vegna þess hve maðurinn hefur verið þimgt haldinn. /* NA /5 hnútar / SV50hnútor X Snjófoma f Ú&i V Shúrír K Þrumur Wz, KutíosM v' HiUikil H Hmi L& Lmnt •> ttttt 1,1 ll í.b '7* Jrf 'iTÍ Mo 'jjto v í gær var útsynningur um allt Suður- og Vesturland, hvassar haglhryðjur og sums staðar skruggur, en bjart á milli, eins og venjan er. Á Norðurlandi var bjart og gott sem við er að búast í slikri veðráttu. Ný lægð er á ferð inni austur af Nýfundnalandi og ber með sér landsynning. Þoka liggur enn yfir Evrópu. Veðurspáin kl. 10 í gær- kvöldi. SV-land og Faxaflói og mið in. SV-átt með allhvössum éljum vaxandi SA-átt á morg un hvassviðri eða stormur cxg rigning síðdegis. Breiðafjörður, Vestfirðir og miðin: SV-átt með allhvöss- um éljum, þykknar upp með SA-átt á morgun, stinnings kaldi og slydda eða rigning með kvöldinu. Norðurland og norðurmið: SV-stinningskaldi, él vestan til, þykknar upp með SA-átt á morgun, sums staðar rigning með kvöldinu. NA-land, Austfirðir og mið in: SV-kaídi og léttskýjað í nótt, þykknar upp með all- hvassri SA-átt og rigningu þeg ar líður á daginn. SA-land og miðin: SV-átt með allhvössum éljum, þykkn ar upp með SA-átt á morgun, hvasst og rigning síðdegis. inn einu peningaruir, sem hún hefur sér til lífsviðurværis. Er því tjón hennar tilfinnanlegt. Skil vís finandi er vinsamlega beð- inn um að afhenda veskið til Morgunblaðsins eða lögreglu- stöðvarinnar, svo Sveinbjörg fái peningana, gleraugu sín og skil- ríki sem allra fyrst aftur. Viðrœður um Alsír París, 20. febrúar. (NTB/Reuter) í D A G var frá því skýrt í París að þegar væru hafnar leynilegar viðræður Frakka við fulltrúa útlagastjórnar- innar í Alsír til undirbún- ings á samningum til að binda endi á sex ára stríðið í Alsír. Aðspurður um sannleiksgildi þessara upplýsinga, svaraði tals- maður de Gaulle fonseta: Við erum ekki reiðubúnir til að mótmæla þessum upplýsingum opinberlega. Fréttir af viðræðunum birtust fyrst í timaritinu Afrique Action, sem gefið er út í Túnis, en tímaritið hefur fréttina eftir Krim Belkacem, ráðherra í út- lagastjórninni. Upplýsingamálaráðherra Túnis Mohammed Masmoudi mun eiga fund með de Gaulle forseta í fyrramálið til að undirbúa við- ræður hans við Bourgiba for- seta Túnis um Alsírmálið. Málfundanám- skeið Heimdallar MÁLFUNDANÁMSKEIÐ Heim- dallar heldur áfram í kvöld. — Umræðuefni verður tilkynnt 4 fundinum. — Fundurinn hefst I Valhöll kl. 8,30. Heimdellingar! Mætið vel og stundvíslega. I minningu Pasternaks París, 20. febr. (Reuter). í DAG hófu franskir og ann- arra þjóða rithöfundar undir- skriftasöfnun undir áskorun um að hlífa Olgu Ivinskaya og dóttur hennar Irinu, sem báð- ar eru í fangelsi í Sovétríkjun- um vegna meintrar misnotkun ar á gjaldeyristekjum af skáld sögunni Zhivago læknir eftir Boris Pasternak. Meðal þeirra er standa að náðlunarbeiðninni eru Francois Mauriac, Georges Duhamel, Gabriel Marcel, Denis de Rougemont og Ignazio Silone. Segja þeir að áskorunin sé sett fram „í minningu Boris Pasternaks, en verk hans munu ætíð halda rússneskum bókmenntum í heiðri". Bjargaði manni úr H ornafjarðarfljóti HÖFN, 15. febr. — Miðvikudag- inn 8. febr. gerði hér foráttuill- viðri með austan rigningu. Þenn an morgun var jeppabifreið að koma úr Suðursveit austur yfir Homafjarðarfljót, sem voru ísi- lögð og höfðu verið keyrð á ísi undanfarna daga, en algengt er að fara þarna á isi. Þegar bifreiðin var rétt að komast að Skógey, sem er austan suðurfljóta, brast ísinn allt í einu og bifreiðin á kaf. Bifreiðastjórinn Ragnar Sigfús son á Skálafelli bjargaði sér fljótt aftur úr bifreiðinni en auk hans voru 2 farþegar, þeir Ás- grímur Halldórsson kaupfélags- stj., og Jón Eiríksson fyrrv. hreppsstj. frá Volaseli, Jón er kominn yfir áttrætt og því eðli lega þungt um og stirður. Var það fyrsta hugsun Ásgríms að reyna að bjarga honum, þar sem hann vissi hann algerlega hjálp arvana, tókst honum að draga Jón aftur úr bifreiðinnj og synda með hann til lands. Dýpi var þarna það mikið að aðeins sást á eitt homið á bílíhúsinu, en hins vegar vax spölur sá sem Ásgrímur þurfti að synda með Jón mjög stuttur, verður að telja að Ásgrímur hafi sýnt mikið snar ræði við þetta. Eins og áður seg ir var foráttu illveður og gljá mikil, en æði langt til næsta bæjar, var þeim þá það tii liapps að bifreið bar þarna að rétt eft ir að þetta var afstaðið og fluttl hún hrakningsmennina til bæja. Bifreiðinni tókst svo að ná upp síðar um daginn með miklum erl iðismunum. — Gunnar. Aðaliundur Prentmyndn- smiöu AÐALFUNDUR Prentmynda- smiðafélags Islands var haldinxi sl. laugardag. í stjóm félagsina voru kjörnir: Gunnar Heiðdal, formaður, Þorsteinn Oddsson, rit ari, og Sveinn Ingvarsson, gjald keri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.