Morgunblaðið - 21.02.1961, Side 24
I VERKFALL í EYJUM f M í r^til ^|r íþróttir
j Sjá bls. 10. pjj . Sjá bls. 22.
42. tbl. — Þriðjudagur 21. febrúar 1961
Flytja Loftleiðir
til Keflavíkur?
Viðrœður um rekstur flugvallarhátelsins
komnar á lokasfig
A L L T bendir til þess að
Loftleiðir taki að sér rekstur
flugvallarhótelsins á Kefla-
víkurflugvelli í vor. Við-
ræður hafa staðið milli ut-
anríkisráðuneytisins og for-
ráðamanna Loftleiða um mál
ið síðan í haust og í gær
sagði Hörður Helgason,
deildarstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, í viðtali við Mbl.,
að þessum viðræðum væri
enn ekki lokið, en væntan-
lega yrðu niðurstöður þeirra
ljósar í næsta mánuði.
Sem kunnugt er annast varn-
arliðið rekstur flugvallarhótels-
ins, en væntanlegar breytingar
á varnarliðinu, þ. e. að flotinn
taki við af flughernum, munu
hafa valdið einhverjum töfum
á að endanleg niðurstaða feng-
ist. Þó ekki hvað veitingasöl-
unni viðkemur, heldur varðandi
rekstur gistihússins.
Þá munu Loftleiðir hafa hug
á að tryggja sér flugskýli til
eigin þarfa á Keflavíkurflugvelli
og verður það væntanlega und-
anfari þess, að félagið komi sér
upp viðgerðarverkstæði hér,
því allt viðhald á flugvélum
Loftleiða fer fram í Noregi sem
kunnugt er.
*
Flugvélar Loftlefoa hafa jafn-
an áætlaða viðkomu í Reykja-
vík á ferð yfir hafið, en oft á
tíðum verða Cloudmastervélarn-
ar að koma við í Keflavík
vegna þess, að Reykjavíkurflug-
völlur nægir þessum flugvélum
ekki þegar þær eru fullhlaðnar
— nema við hagstæðustu veður-
skilyrði.
Ef niðurstaðan verður sú, að
Loftleiðir taki við rekstri hót-
elsins á Keflavíkurflugvelli, má
vænta þess, að lendingum vél-
anna fækki verulega í Reykja-
vík — og umferðinni verði frek-
ar beint um Keflavíkurflugvöll.
✓ ✓
Samið á
Akranesi
FRÉTTARITARI Mbl. á Akra-
nesi símaði Mbl. í gær að þar
hefðu samningar tekizt milli sjó
manna og útgerðarmanna og
væri sjómannaverkfallinu lok.
ið. Verkfallinu hefði verið aflýst,
og ef ekki hefði verið óhagstætt
veður, hefðu a.m.k. sumir bát-
anna farið í róður í gær.
Kjarasamningurinn mun í
höfuðatriðum vera byggður á
grundvelli landssamningsins, en
samið var um nokkur sér
ákvæði er varða Akranes sérstak
lega.
„Eg vildi æskja jbess að enginn
skríll fari að vaða hér uppi
Ummæli Hannibals á verkalýðsfundi
i Eyjum
SL. LAUGARDAG héldu verka-
lýðsfélögin í Vestmannaeyjum
fund um verkfallsmálin í tilefni
þess að Hannibal Valdimarsson
forseti Alþýðusambands íslands
var kominn til Eyja. Töluðu hann
og Hermann Jónsson, formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
fyrstir og reyndu að stappa stál
inu í verkfallsmenn. Heldur voru
undirtektir daufar í salnum, sem
var þéttskipaður, og þótti mönn
um þetta lítil frægðarför forseta
Alþýðusambandsins á fund Vest
mannaeyinga.
• Fátækleg rök.
Að ræðum þeirra loknum var
orðið gefið frjálst. Bað Guðlaug
ur Gíslason bæjarstjóri þá laun-
þegasamtökin um að færa fram
rök fyrir því að atvinnurekend-
ur í Vestmannaeyjum hefðu það
betri rekstrargrundvöll en aðrir
atvinnurekendur í landinu, að
þeir gætu greitt svo miklu hærra
kaup. Engin svör fékk hann við
því önnur en þau, að allar þær
kröfur sem Vestmannaeyingair
gætu knúið fram mundu strax
koma á eftir annars staðar á
landinu.
Aðrir ræðumenn á fundinum
voru Júlíus Ingvarsson og Karl
Guðjónsson. Lagði Júlíus á-
herzlu á, að ef vinnustöðvun
þyrfti að vera, þá væri sann-
gjarnt að verkamenn um allt land
tækju þátt í henni og styttu með
því verkfallstíman*.
þessu er baráttu okkar ómetan-
legur styrkur.
Jafnframt þakka verkalýðs-
félögin í Vestmannaeyjum mik-
ilsverða fjárhagsaðstoð, sem bor
Framh. á bls. 23
> Þakkir meira en samúðar
verkfall.
Tvær tillögur komu fram
fundkium. Jón Pálsson bar fyrst
fram svohljóðandí tillögu: Fund
ur haldinn sameiginlega í Verka
lýðsfélagi Vestmannaeyja og
Verkakvennafélaginu Snót skor
ar að lokinni atkvæðagreiðslu á
Verkalýðsfélagið Dagsbrún í
Reykjavík að styrkja baráttu okk
ar með samúðarverkfalli með lög
mætum fyrir vara.
Er hún hafði komið fram,
fékk Hermann Hannibal hana
og Hannibal honum aðra í
augsýn fundarmanna, sem Her
mann bar síðan fram. Var hún
svohljóðandi:
Sameiginlegur fundur Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja og
Verkakvennafélagsins Snótar
þakkar þá mikilsverðu aðstoð,
sem veitt hefur verið af Dags-
brún og öðrum félögum með sam
úðaraðgerðum, svo sem af-
greiðslubanni á gátum og skip-
um frá Vestmannaeyjum. Að
Beinbrot og meiðsl
SJÚKRABÍLARNIR voru oft á
ferðinni í gærdag. Tvennt meidd
ist vegna hálku á götum. Elín
Kafliðadóttir Laugarnesv. 59
féll á götu og lærbrotnaði. Jó-
a hann Oddgeirsson, Rauðarárstíg
3, hlekktist á vegna hálku á
Hofsvallagötu og meiddist Þá
hafði maður að nafni Benoný
Salomonsson Skipasundi 51,
orðið með fótinn undir kassa í
Landsspítalabyggingunni nýju.
Var hann fluttur heim til sín
í gærkvöldi.
Mikill sigur lýðræðis-
sinna meðal múrara
LÝÐRÆÐISSINNAR unnu glæsi
legan sigur í stjórnarkosningun-
um í Múrarafélagi Reykjavíkur
er fram fór um s.l. helgi. Hlaut
Hrakiarir
nista i
STJÓRNARKJÖR hefur farið
fram í Hinu íslenzka prentara-
félagi og hafa atkvæði verið
talin, en endanleg úrslit atkvæða
greiðslunnar verða birt á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn
verður á næstunni.
Vitað er þó, að lýðræðissinn-
ar juku enn fylgi sitt í félag-
kommú-
H.I.P.
fóru
inu og að kommúnistar
hinar mestu hrakfarir.
Stjórn félagsins er nú þannig
skipuð: Óskar Guðnason, form.,
Sigurður Eyjólfsson, varaform.,
Pétur Stefánsson, ritari, Kjartan
Ólafsson, gjaldkeri, og með-
stjórnendur: Ingólfur Ólaf=c'"i
og Jón Ágústsson.
listi eirra 109 atkv. og alla menn
kjörna, en listi kommúnista og
stuðningsmanna þeirra fékk 82
atkv. Er þetta hæzta atkvæða-
tala sem lýðræðisinnar hafa
fengið í kosningum í Múrarafé-
laginu.
Við stjórnarkjör í fyrra urðu
úrslit þau, að lýðræðisinnar
fengu 96 atkv., en kommúnistar
77 atkv. Er því atkvæðamunurinn
nú 27 atkv., en voru 19 atkv.
í fyrra.
Stjórn Múrarafélagsins er nú
þannig skipuð: Einar Jónsson,
form., Jón G. S. Jónsson, vara-
form., Stefán Einarsson, ritari,
Hilmar Guðlaugsson gjaldkeri fé-
lagssjóðs og Pétur Þorgeirsson,
gjaldkeri styrktarsjóðs.
AHur bátafloti Vestmannaey-1
inga liggur bundinn við {
bryggju. Þar gefur að lítal
70—80 báta. Fremst á mynd-h
inni sést þar sem unnið er að T
því að stækka Friðarhöfnina (
vegna þarfar á auknu bryggju
plássi. Fram til þessa hafa
fastir starfsmenn hafnarinnar
getað haldið áfram vinnu á
dýpkunarskipinu á einni vakt,
þrátt fyrir verkfallið, en nú
hafa verkfallsmenn tilkynntj
að olía verði ekki afgreidd til |
skipsins framar. Ljósm. Sigur(
geir Jónasson.
Kaffihlé
Á MIÐNÆTTI í nótt sat sátta-
semjari ríkisins að kaffidrykkju
ásamt samninganefndarmönn-
um í sjómannadeilunni. Hafði
samningafundur byrjað í Alþing
ishúsinu klukkan 8,30. Þegar
kaffihléið hófst var deilan enn
óútkljáð. Menn treystu sér ekki
til að spá um það hvort miðnæt-J
urkaffið myndi eitthvað geta
þokað samningum nær en verið
hafði áður en kaffidrykkjan
hófst.
6 kindur drápust
þoldu ekki ormalyf
JÓNAS Pétursson, alþingis-
maður á Skriðuklaustri,
skýrði Mbl. svo frá í gær,
að nýlega hefðu 26 kindur á
Þorgerðarstöðum í Fljótsdal
drepist af afleiðingum orma-
lyfsgjafar, „Dungallyfs. —
Kvaðst alþingismaðurinn
hafa átt samtal við Jón Pét-
ursson, héraðslækni á Egils-
stöðum um fjárdauða þenn-
an. —
Dýralæknirinn hafði sagt að
hann teldi að fylgt hefði verið
fyrirmælum um sveltu fyrir og
eftir inngjöfina og ennfremur
um það, að féð kæmist ekki í
kvistbeit rétt á undan inngjöf.
Ánum er fyrst gefinn lítill hey-
skammtur nær sólarhring eftir
ormalyfsgjöfina. Mjög margar
kindanna éta þá ekki. Á næstu
klukkutímum fór svo féð að
drepast og voru flestar kindurn-
ar dauðar eftir 2 sólarhringa.
Það taldi Jón dýralæknir mjög
óvenjulegt, því að venjulega
liðu 4—5 sólarhringar þegar
svona kæmi fyrir.
Við krufningu á þessum kind-
um sýndu sig eitrunareinkenni,
garnir blóðhlaupnar og lítils- ;
háttar lifrarbólga. Dýralæknir-
inn óskaði að taka fram, að j
hann hefði ekki getað fundið
að neitt hefði verið athugavert
við inngjöf. En reynslan virtist
sýna að lítil hætta væri að gefa
lyfið snemma vetrar, en er
kæmi fram á þorra væru svona
tilfelli mun tíðari, þótt þetta '
væri eitt hið alvarlegasta, er
hann vissi um, þegar 26 kindur
drepast af um 220 fjár. Vildi
hann ráða mönnum frá að gefa
þetta lyf eftir áramót.
Kalkvöntun í fénu myndi oft
vera til staðar frekar, þegar
kæmi fram á vetur, en þar gæti
verið að leita skýringar á vax-'
andi hættu eftir því sem á vet-
ur liði.
Jón dýralæknir taldi annars
að skepnuhöld á Austurlandi
væru með bezta móti í vetur,
miðað við þau ár er hann hefur
gegnt dýralæknisstörfum.