Morgunblaðið - 02.03.1961, Síða 5
Fimmtudagur 2. marz 1961
MORGVISBLAÐIÐ
5
7 4 f ij
Illli lli J öBii Í. iiiiií
ÍSLENZK kaupsýslukona, frú
Inga Björnsson, sem búsett
er í Kaupmannahöfn, kom
hingað til landsins í s.l.
mán., en er nú á förum.
Frú Inga á og rekur fyrir-
tæki í Kaupmannahöfn, sem
selur húsgögn til útflutn-
ings. Við hittum hana að
máli og spurðum hana fyrst
hvernig væri að verða kaup-
sýslukona í Danmörku.
Öll byrjun er eðlilega
erfið og ýmis vandamál við
að glíma, en ]»egar m iður
er búinn að koma undir sig
fótunum, held ég að skil-f:
yrði séu hvergi betri.
— Hver voru tildrög þessf
að þér hófuð verzlun með
húsgögn?
— Ég fór til Danmerkur
1933 og vann fyrst á skrif-
stofu hjá dönsku gjaldeyris-
nefndinni, en svo kom löng
unin til þess að verða sjálf-
stæður. Ég setti því á stofn
listmunaverzlun og rak hana
öll stríðsárin. Eftir stríðið
fór stórt verzlunarfyrirtæki
þess á leit við mig, að ég
grennslaðist fyrir um mark
að fyrir húsgögn hér á ís-
landi. Ég gerði það og horf-
urnar voru mjög vænlegar.
Ég hafði hugsað mér að
selja listmuni hingað til
lands, en sá, að markaður
fyrir þá var fremur lítill,
þess vegna skipti ég um og
fór að verzla með húsgögn
til útflutnings. Fyrstu tvö ár
in eftir stríðið flutti ég
mjög mikið af húsgögnum til
fslands, en þá komu inn-
flutningshöftin og gerðu
þennan útflutning ókleifan.
Fyrirtæki mitt blómgaðist
og er nú orðið mjög um-
fangsmikið og krefst mikillar
vinnu. Nú hef ég aðeins sam
starf við fremstu verksmiðj-
ur Danmerkur og flyt ég
aðallega út til V-Þýzka-
lands, Sviþjóðar, Bandaríkj-
anna og ftalíu. Dönsk hús-
gögn eru afar vinsæl erlend-
is og er útflutningur á þeim
stöðugt að aukast. Danir
hafa um aldaraðir verið
mjög framarlega í húsgagna-
gerð og lagt mikla áherzlu
á að vanda vöruna sem mest.
Mjög strangt eftirlit er með
framleiðslunni og öll hús-
gögn skoðuð og stimpluð,
áður en þau eru sett á
markaðinn, enda er reynsl-
an af þeim mjög góð.
— Seljið þér ekkert inn-
an Danmerkur?
— Nei, til þess hef ég eng-
an tíma. Einnig borgar sig
fyrir mig að halda mig ein-
gövigu að útflutningnum, því
að á því sviði hef ég sérhæft
mig.
— Hvaða viður er mest
notaður í húsgögn núna?
— Tekk, tvímælalaust og
mun áreiðanlega verða áfram.
Einnig er eikin að koma tals
vert aftur. Mest ber á henni
í húsgögnum í svokölluðum
„almuestil“, en það er sami
stíll og var á húsgögnum á
bóndabæjunum í gamla daga.
Á þessi húsgögn eru mikið
notuð röndótt áklæði, og í
því samhandi má geta þess
að áklæði hafa verið flutt
inn frá íslandi bæði rönd-
ótt og einlit og líka þau
sérstaklega vel .
— Maðurinn yðar er arki-
tekt?
— Já, og listmálari. Hann
teiknar t. d. húsgögn bæði
fyrir mig og aðra. Hann heit
ir Hansson og er dani af
sænskum ættum.
— Þér dvöldust í Dan-
mörku á stríðsárunum?
— Já, þetta kom svo óvænt
að maður gerði sér ekki
grein fyrir því að Danmörk
yrði hernuminn svona fljótt,
annars hefði maður reynt að
komast heim. Stríðsárin í
Danmörku voru hrein mar-
tröð, maður gat ekki um
frjálst höfuð strokið og fékk
engar fréttir af heiman.
— Hvaðan eruð þér ættuð?
— Ég er fædd á Hofi á
Kjalarnesi, en ólst upp í
Engey, þar bjuggu faðir
minn Björn Magnússon og
móðir mín Ólafía Lárusdótt-
ir, prests frá Selárdal. Þegar
ég var unglingur fluttu for-
eldrar mínir til Reykjavík-
ur og svo fór ég utan 1933,
eins og áður er sagt og var
þar samfleytt þar til eftir
stríð, síðan má segja að ég
hafi heimsótt Island á
hverju ári.
\
s
\
\
s
s
s
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
í
i
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s’
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
j
s
s
)
s
s
s
s
Eimskipaféla^ Reykjavíkur hf. —
Katla er á leið til Danmerkur. Askja
er í Reykjavík.
Skipadeild SÍS.: — Hvassafell er á
leið til Rostock. Arnarfell er á Akra-
nesi. Jökulfell er í Hull. Dísarfell los-
ar á Austfjarðahöfnum. Litlafell er í
Faxaflóa. Helgafell er á leið til Ham-
borgar. Hamrafell er á leið til Batumi.
Eimskipafélag íslands hf.: — Brúar-
foss er í New York. Dettifoss er á Siglu
firði. Fjallfoss er á leit til Weymouth.
Goðafoss er í Keflavík. Gullfoss er á
leið til Khafnar. Lagarfoss er í Rotter-
dam. Reykjafoss er í Hamborg. Sel-
foss er í Gdynia. Tröllafoss er á leið
til New York. Tungufoss er á leið til
Ventspils.
80 ára er í dag Sigríður Þor-
valdsdóttir, Fífuhvammsvegi 17,
Kópavogi, fyrrum húsmóðir að
Uppsölum, Eiðaþinghá. í dag er
hún stödd á Framnesveg 55, Rvk.
Loftleiðir hf.: — Snorri Sturluson er
væntanlegur frá New York kl. 8.30. Fer
til Glasgow og London kl. 10. Edda er
væntaleg frá Hamborg, Khöfn, Gauta-
borg og Stafangur kl. 20. Fer til New
York kl. 21.30.
Flugfélag íslands hf.: — Hrímfaxi er
væntanlegur til Rvíkur kl. 16:20 1 dag
frá Khöfn og Glasgow.
Innanlandsflug: I dag til Akureyrar,
Egilsstaða, Flateyrar, Kópaskers, Pat-
reksfjarðar, Vestmannaeyja, Þingeyrar
og Þórshafnar. A morgun til Akureyr-
ar, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, Isa-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vest
mannaeyja.
Hafskip hf.: — Laxá er á leið til
Kúbu.
Jöklar hf. — Langjökull er á leið til
New York. Vatnajökull er í Osló.
Skipaútgerð ríkisins. — Hekla fer
kl. 19 1 kvöld vestur um land í hring-
ferð. Esja er á Austfjörðum. Herjólf-
Nonni litli átti að gera ritgerð
um bíla og átti hún að vera 300
orð. Ritgerðin var svona:
— Frændi minn keypti sér bíl.
ur fer frá Vestmannaeyjum í dag til
Rvíkur. Þyrill er á leið til Rvíkur.
Skjaldbreið kemur til Rvíkur í dag.
Herðubreið kemur til Rvíkur í dag.
Læknar fjarveiandi
Arinbjörn Kolbeinsson til 16. marz.
(Bergþór Smári).
Gunnar Guðmundsson um óákv.
tíma (Magnús Þorsteinsson).
Gunnlaugur Snædal fjarverandi frá
9. febrúar um mánaðartíma. Staðgeng-
ill: Tryggvi Þorsteinsson.
Haraldur Guðjónsson óákv. tima Karl
Jónasson).
Oddur Ólafsson óákv. tíma. (Árni Guð
mundsson).
Sigurður S. Magniisson óákv. tíma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
Víkingur Arnórsson um óákv. tíma. —
(Ölafur Jónsson, Hverfisg. 106, sími
18535).
Einn dag ók hann út af og bíll-
inn fór í rúst. Þetta eru 16 orð.
Orðin sem vantar eru þau, sem
frændi sagði á leiðinni heim.
Kvesfólk — Keflavík Sauma kvenkjóla, sníð einn ig og þræði saman ef óskað er. — Anna Sveinsdóttir Bergi — Sími 1956 Keflavík 3 herb. og eldhús til leigu strax, lág leiga. Uppl. í síma 23870 fyrir kl. 12 á hádegi næstu daga.
Vantar vanan Herbergi óskast
vélamann á netabát. Uppl á Hótel Skjaldbreið, herb. nr. 12. fyrir léttan iðnao sem næst Miðbæinn. Uppl. í sima 12149 kl. 12—4.
Vantar vanan skipstjóra á góðaii netabát Til greina getur komið að gerast sameignar maður. Uppl. í síma 24613 kl. 6— 10 á kvöldin. Tapað Sl. laugardag tapaðist lítil gullfesti, með gulrauðum perlum, við Njarðargötu — Laufásveg — Bergstaða- stíg. — Sími 13680.
Góð tækifærisgjöf Æviminningabók Vigfúsar „víðförla“ (Æskudagar) fæst ennþá í fáeinum bóka búðum. Eiguleg vinargjöf. Stúdínur 1961 Til sölu lítt notuð stýdínu dragt. Stærð 14—16. Mjög gott snið. Uppl. í síma 34788.
Til sölu í Chevrolet ’51, sjálfskiptur gírkassi, krómhlíf, bretti, hurðir, kistulok; húdd aft urrúða, grind o. fl. Uppl. í síma 50909. Bókband Einnig gert við gamlar bæk ur. Uppl. Tómasarhaga 37 eða síma 23022 Uppl. eftir kl. 6 e.h. (Geymið auglýs inguna).
Barnarúm Bílkrani til sölu
kr. 630,00. Verzl. BÚSLÓÐ Njálsgötu 86 — Sími 18520 með þremur lengingum. — Ekki vökvadregnar í góðu lagi. Uppl. í síma 32525.
Austfirðingafélagið Reykjavik
Síðasta spilakvöld félagsins verður í Breiðfirðinga-
búð föstudaginn 3. marz kl. 8,30 stundvislega.
(Ath. heildarverðlaun verða veitt).
~'jölmennið og takið með ykkur gesti.
SXJÓRNIN.
heldur árshátíð sína í Tjarnar-
ceifé nk. laugardag 4. marz
kl. 9.
Aðalfundur og stjórnarkjör.
Vegna takmarkaðs húsrýmis eru félagsmenn beðnir
að tilkynna þátttöku sína sem fyrst í síma 17194
og 24881.
STJÓRNIN.
ÁUhagafélag
Sandara
Nýft einbýlishús
60 ferm. kjallari hæð og rishæð í Smáíbúðahverfi
til sölu. Laust strax ef óskað er.
Nýja fasteignasalan
Bankastræti, 7 sími 24300
og kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546.
T I L S Ö L U
8 herb. íbúð
efri hæð 135 ferm. 5 herb., eldhús og báð og rishæð
sem í eru 2 herbergi, salerni, þvottahús og geymsla
við Skaftahlíð. Sérinng. og sérhiti. Eitt herbergi með
sér inng. í kjallara fylgir. Bílskúrsréttindi.
IMyja Fasleignas?Jan
Bankastræti 7 — Sími 24300
kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546.