Morgunblaðið - 02.03.1961, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIh
Fimmtudagur 2. marz 1961
Jacqueline
PEYSURNAR fást hjá okkur.
Tízkulitir.
Verzlun ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Skólavörðustíg 3 — Sími 13472.
Katipmenn — Iðnrekendur
Nýtt fyrirtæki, sem er að hefja starfsemi sína, tekur
að sér hverskonar
Umboðssölu og vörudreifingu
Það mun einnig sjá um að „auglýsa upp“ vörur ef
óskað er. Það hefur unga, duglega og algjörlega reglu
sama sölumenn í þjónustu sinni, sem munu koma
vöru yðar í verð. Skrifið í pósthólf 224 og við mun-
um hafa samband við yður hið fyrsta og veitum
fúslega allar nánari upplýsingar.
Ullarefniskjólar
Verð frá kr. 790.00.
Skólavörðustíg 17 — Sími 12990.
Snurpubátar — Bílar
Viljum athuga um kaup á Snurpubátum úr járni
(Pari) í skiptum fyrir vörubíl eða fólksbíl. Jafnvel
hvorttveggja. Upplýsingar í síma 34550.
Stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í skóverzlun. Upplýsingar
um aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl.
fyrir 5. þ.m. merkt: „1745“.
Nauðungaruppboð
á bifreiðinni G-840 sem er I.F.A. Horch-diesel vöru-
bifreið fer fram við lögreglustöðina í Hafnarfirði
föstud. 10. marz nk. kl. 2 e.h. Ennfremur verður
seld Federal bifreið óökufær.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
RoÆasjonspressa til solu
16 síðu duplex-pressa í góðu standi, sem var keypt
sem ný frá GEBRUDER BUHLER, Sviss, 1950 með
lit á fyrstu og öftustu síðu og með möguleika til að
prenta 8, 12 og 16 síður (tablio) til sölu vegna kaupa
á stærri vél. Vélina er hægt að fá að sjá í notkun.
Upplýsingar í Norlandsprentsmiðju, Bodp,-Norge.
Innihurðir Útihurðir
Teak
Almur
Olivenaskur
Mahogany
Teak
Afromozia
Afzelia
Spónlagðar þyljur allsk.
Fura.
Hurðirnar seljast járnaðar eða ójárnaðar og lakkaðar
eftir vali.
Byggir hf.
Sími 36485.
Tveir dropar
í deigluna
Tveir dropar í deiglu........11
VINUR minn, Árni G. Eylands,
ritar hugvekju um búnaðar-
fræðslu í Mbl. nú nýlega vegna
ummæla minna um vanþekkingu
okkar á ýmsum framleiðslu-
greinum landbúnaðarins, svína-
rækt, hænsnarækt o. fl. í greina-
flokki mínum um „landbúnað í
deiglu“. í sambandi við van-
rækslu búnaðarfræðslunnar'
finnst mér ekki vera hægt að
benda á neina sérstaka aðila og
segja: þú ert sekur. Málið er
ákaflega fjölþætt og þarfnast
gagngerðrar rannsóknar og yfir-
vegunar viturra og menntaðra
manna, og ekki sízt tel ég það
nauðsynlegt, að yfirstjórn þess-
ara fræðslumála í landinu, Land
búnaðarráðuneytið, taki sjálft
upp jákvæða forystu í málinu.
Vinnumenn bóndans ættu helzt
ekki að þurfa að segja fyrir um,
hvað gera skuli af framkvæmd-
um og umbótum. Sem betur fer
hefur núverandi landbúnaðarráð-
herra, Ingólfur Jónsson, tekið
upp nýja stefnu í þessum málum
og leggur höfuðáherzlu á um-
bætur í búnaðarfræðslunni. M. a.
skipaði hann á sl. ári f'imm
manna nefnd, sem á að gera til-
lögur um þessi mál, bæði um úr-
bætur á kennslufyrirkomulaginu,
aukna fjölbreytni 1 kennslu og
búrekstri um byggingarfram-
kvæmdir á bændaskólunum.
Beðið er eftir niðurstöðum og til-
lögum þessarar nefndar. Málið
er hið mikilvægasta fyrir land-
búnaðinn og þróun hans.
Björn Stefánsson, nemandi á
Landbúnaðarháskólanum í Ási í
Noregi, hefur ritað greinaflokk
í Mbl. út af sömu greinum mín-
um.
Ég sé enga ástæðu til að svara
greinum þessa námsmanns.
Tvennt kemur þar til. í fyrsta
lagi eru þær svo lausar í reipum
og óhnitmiðaðar, að honum tekst
hvorki að sannfæra lesandann
um góða þekkingu á efninu eða
heilsteyptar skoðahir. Að vinna
efni greinanna væri einna líkast
því að taka sér hrífu í hönd og
fara að raka saman í drýli úr
þunnri sinudreif á þýfðum mýr-
Ráðsmaður
Vill ekki einhver yngri maður, helzt úr sveit, taka
að sér að sjá, um stórt sauðfjárbú, á einni beztu
sauðfjárjörð á suð-vesturlandi, frá 1. maí í vor. —
Kaup: Kindur eða peningar, eftir samkomulagi. —-
Nafn, heimilisfang og helzt meðmæli, sendist Morg-
unblaðinu fýrir marzlok, merkt: „Sauðfjárrækt .—
1810“.
Jörð til sölu
Ein af beztu jörðum Landmannahrepps ásamt nýlegu
íbúðarhúsi. Fjós fyrir 30 nautgripi, fjárhús fyrir
allt að 200 fjár, stór nýbyggð hlaða ásamt súrheys-
geymslum. Allur heyskapur á ræktuðu landi. Raf-
magn frá Sogsvirkjunni. Skipti á húseign í Reykjavík
möguleg. Uppl. veitir fyrir hönd eigandans.
HJALTI LVÐSSON
Snorrabraut 67.
Til sölu
4 herb. íbúðarhæð í sambyggingu við Sólheima.
Ibúðin er ekki alveg fullgerð en samt íbúðarhæf.
250 þús. kr. lán fylgir til 15 og 25 ára. Útb. ca. 100
þús.
Fasteignasala Áka Jakobssonar
og Kristjáns Eiríkssonar
Sölumaður: Ólafur Asgeirsson
' Laugavegi 27 — Sími 14226.
HALLÓ!
HALLÓ!
Kjarakaup á Langholtsvegi
Kvenpeysur, Drengjapeysur, Barnapeysur, Golf-
treyjur, Sloppar, Kvennærfatnaður, Barnabolir,
Bleyjubuxur, Sokkabuxur, Undirkjólar, Náttkjólar,
Herrasokkar, Kvensundbolir, Kvenblússur,
Allskonar metravara og ótal m. fl.
AÐEINS ÞESSA VIKU.
litsalan á Langholtsvegi 19
arfláka. Slíkt búskaparlag var að
mestu lagt niður hér á landi á
þeim árum, er Björn var saklaus
sái í biðsal endurfæðingar og bjó
sig undir að blanda geði við óbil-
gjarna jarðarbúa.
í öðru lagi er Björn í greinum
sínum með talsvert af tilefnis-
lausum og að því er virðist alveg
ástæðulausum, skætingi í minn
garð. Það væri mér raunar al-
gerlega ósárt um, ef í þessum
glefsum hans væri vottur af
„humor“. Mér þykir maðurinn
því óskemmtilegur eins og hann
birtist í rithætti sínum og hef
mjög litla löngun til frekari
kynna; tek þó fram, að af honum
hef ég engin persónuleg kynni
haft, en hef mætur á fólki hans.
Aðeins eitt vil ég taka fram,
sem mér finnst Björn hafa mis-
skilið. í greinum mínum áttu
ekki að birtast neinir dómar og
því síður spádómar, aðeins vildi
ég setja fram ýmis viðhorf tii
umþenkingar um þessi mál, —
viðhorf, sem komið hafa fram
og rædd hafa verið erlendis, en
hafa ekki verið kynnt hér. Slík
viðleitni til að rýna inn í fram-
tíðina og kryfja vandamál af
nokkru miskunnarleysi til mergj-
ar telst ekki til stórsynda frá
neinum sjónarhól séð, en kann
hins vegar að hrella þá, sem
liggja á milli þúfna og horfa á
puntstráin, sem golan veifar yfir
höfði þeirra.
Gunnar Bjarnason
<VI ALFLUTNIN GSSTOF A
Einar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorláksson
Guðmundur Pétursson
Aðalstræti 6, III hæð.
Somkomur
Hafnarfjörður
Felix Ólafsson krjstniboði tal
ar á samkomunni í samkomuhúsi
K.F.U.M. og K. kl. 8.30 í í kvöld.
Kór Hafnarfjarðarkirkju syngur
Kristniboðsvikan
K.F.U.K. Ud.
Stúlkur munið fundinn í kvöld
kl. 8. Kvikmynd, hugleiðing.
Sveitarstjórar
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8,30.
Kristín Sæmunds. og Sjgurður
Lárusson tala. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
í kvöld-kl. 20,30: Almenn sam
koma. Cand. theol. Erling Moe og
Thorvald Fröytland, söngprédik
ari syngja og tala. Föstudaginn
kl. 21, Samkoma i Stjörnubíói.
Moe og Fröytland. Strengja- og
Lúðrasveit. Herganga frá Lækjar
torgi að Stjörnubíói kl. 20,30. —
Allir hjartanlega velkomnir.
K.F.U.M. Ad.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Dr.
Árni Árnason flytur erindj um
alþjóðleg samtök í þágu siðgæðis
Allir karlmenn velkomnjr.
I. O. G. T.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 20,30. —.
Barnastúkan Sunna heimsækir.
Ýmis skemmtiatriði. Félagar fjöl
mennið og mætið stundvíslega.
Æ.T.
Stúkan Frón nr. 227.
Systrafundurjnn hefst í Templ
arahöllinni í kvöld kí. 20,30.
DAGSKRÁ:
1. Vígsla nýliða.
2. Ávörp og kveðjur.
AÐ LOKNUM FUNDI:
1. Uppboð á skrautlegum böggl
um með margskonar kræs-
ingum, sem systurnar koma
með, til ágóða fyrir Styrkt-
arsjóð Stúkunnar Fróns nr.
227.
2. Sest að kaffiborðum.
3. Dans.
Fjölmennið, bræður sem systur
Stjórn Styrktarsjóðs stúk-
unnar Fróns nr. 227.