Morgunblaðið - 03.03.1961, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.03.1961, Blaðsíða 13
Föstudagur 3. marz 1961 MORCVHBLAÐIÐ 13 Hroðalegustu svikin, sem auðið er að fremja væru að svíkjast um að semja Mikið og viðkvæmt deilumál hefur ver/ð leyst Usvarpsræba Olafs Thors forsætis- rádherra á Alþingi í gærkvöldi A ÖNDVERÐU þessu þingi þáru Alþýðubandalagið og Framsókn- arflokkurinn fram lagafrumvarp í efri deild, en síðan þingsálykt- unartillögu í Sameinuðu þingi varðandi fiskiveiðalögsöguna úti fyrir ströndum íslands. í um- ræðunum, sem þá fóru fram gerði hæstv. dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og hæstv. lutanríkismálaráðh., Guðmundur í. Guðmundsson, ítarlega grein fyrir málinu. Þeir skýrðu m. a. frá því, að ríkisstjórnin teldi mjög æskilegt að eyða deilunni við Breta, ef ekki þyrfti að sæta neinum afarkostum, og drápu á eum helztu rökin er að því hníga. Eins og þá stóðu sakir var ekki auðið að segja allt um málið, án þess að eiga á hættu að skaða hagsmuni íslendinga. Nú, þegar málið er á lokastigi, og við höfum bindandi tilboð frá Bretum um lausn þess, þarf engu að leyna. Þátttaka í Genfarráðstefnunni Rétt tel ég að benda á, að með- ferð landhelgismálsins eftir Genfarráðstefnuna 1958 var af íslands hálfu með þeim hætti, að sú gagnrýni, sem að okkur hefir verið stefnt af þeim sök- um, er vel skiljanleg, og hæpið að smáþjóð geti oft leikið slikan leik. Menn athugi, að Genfar- ráðstefnarv var haldin til þess að ákveða víðáttu landhelginnar. ís- lendingar tóku þátt í ráðstefn- tinni án alls fyrirvara, og viður- kenndu í rauninni með því, a. m. k. að vissu leyti, að á- kvarðanir ráðstefnunnar skyldu marka stefnuna. Okkar óskir lutu þar í lægra haldi. Við héld- um heim og tilkynntum, að þrátt fyrir þetta hefðum við á- íkveðið að skammta sjálfum okkur 12 mílna fiskveiðiland- 'helgi. Bretar svöruðu: Þetta er ólöglegt athæfi. Úthafið er af- rétt okkar beggja og raunar margra annarrá. Við munum v§rnda hagsmuni fiskimanna ©kkar. Bátum okkur a. m. k. ræða málið. Svar okkar var: Við ykkur höfum við helzt ekkert að tala. Það er þá, sem Bretar senda herskip sín hingað. Ég hefi alltaf talið, að hyggi- legra hefði verið að halda öðru visi á málinu. Um það má auð- vitað alltaf deila og þýðingar- laust úr þessu. Og hvað sem öðru líður er það staðreynd, að þegar menn berjast fyrir hags- munum þjóðar sinnar, gilda nokkuð önnur lögmál en í einka viðskiptum manna. Og vilji ein- hver á okkur deila út af máis- meðferðinni, hverfum við án efa í Ijósi eða skugga þeirrar yfir- sjónar Breta, að senda flota sinn inn í landhelgi okkar. Fullar sættir milli vinaþjóða í hinni itarlegu greinargerð, sem fylgir þingsályktunartillögu stjórnarinnar, er saga landhelgis málsins rakin og rökin lögð á borðið. Hæstv. utanríkismála- ráðherra hefir nú einnig skýrt málið. Ég skal ekki endurtaka þessi rök nema að litlu leyti, heldur aðeins lýsa gleði minni yfir því, að með þessari lausn málsins hefir mikið og við- kvæmt vandamál verið leyst, og fullar sættir tekizt milli gamalla vinaþjóða. Ég fer ekki dult með, að mér er mikið gleðiefni að sáttagerðin ber órækt vitni um sáttfýsi Breta og sýnir, að þeir skilja hvorttveggja, að öll af- kðma fslendinga veltur á land- helginni sem og hitt, að vestræn samvinna fær aldrei staðizt, ef stærsti bróðirinn brýtur upp búrhurð hins minnsta, leggur sér matarforða hans til munns og skilur hann eftir í svelti. Og þetta gildir alveg jafnt, hvort svo sem slíkt atferli á stoð í lög- um eða ekki. Þetta er og verður kjarni málsins. En hitt ber að játa, að frá brezkum sjónarhól blasir margt fleira við og erum við menn að meiri, ef við reyn- um einnig að sjá þeirra hlið á málinu. Samtalið við Macmillan í haust, þegar forsætisráð- herra Breta, hr. MacMillan, samkvæmt ósk íslenzku ríkis- stjórnarinnar kom við á fslandi á leið sinni til New York, átti ég við hann nokkurra stundá viðtal. Ræddumst við við einir og af fullri hreinskilni. Ein af þeim myndum, sem forsætisráð- herrann þá brá upp fyrir mér, var af brezku togaramönnunum. Hann sagði eitthvað á þá leið, að þeir væru kjarni enska sjó- liðsins, sem ætti hvað veiga- mesta þáttinn í því, að Bretar og bandamenn þeirra unnu báð- ar heimsstyrjaldirnar, Þessir menn væru því hans og margra annarra uppáhald, sem brezka þjóðin og raunar allur hinn frjálsi heimur stæði í þakkar- skuld við. Öll skerðing á af- rakstrinum af starfi þeirra ylli því brezkum stjórnarvöldum miklum sársauka o. s. frv. Þá rökstuddi hr. MacMillan mjög vel það sjónarmið, að meðan Bretar ekki viðurkenndu 12 mílna fiskveiðilandhelgina, bæri stjórninni skylda til að hindra töku og refsingu brezkra skipa. Frá brezku sjónarmiði hefðu þeir ekki brotið af sér, og ís- lendingar gætu ekkj með sann- girni krafizt þess, að Bretar beygðu sig fyrir einhliða ákvörð unum um, að fslendingar helg- uðu sér úthafið sem einkaeign og vildu ekki svo mikið sem ræða málið við Breta. Vona ég, að ég brjóti engin þagnarheit, þótt ég nú að leikslokum greini frá þessum hluta af okkar löngu viðræðum. Reistar á lóeum og rétti Mín gagnrök skipta fslendinga minnu. Þau eru öllum kunn. En mesta áherzlu lagði ég á þetta: Ég tel aðgerðir íslendinga reistar á lögum og rétti. Að minnsta kosti kann ég engin lög og engar reglur, sem banna 12 mílna fiskveiðilandhelgi. En hvað sem því líður, hvort held- ur mannanna lög eru með okkur Ólafur Thors forsætisráðherra. eða móti, þá eru Guðs lög með okkur, þ. e. a. s. helgur réttur lítillar, dugmikiilar menningar- þjóðar, til þess að lifa frjáls og öðrum óháð í landi sínu. Og þennan rétt má enginn skerða meðan við eigum dug og áræði til þess að berjast við vetrar- myrkur storrna og stórsjóa og sækja í greipar Ægis þá fjár- muni, sem 180 þúsund sálir þurfa til að lifa menningarlífi í stóru landi. Landauðn — eða landhelgi fslenzka ríkið væri tilraun minnstu þjóðar veraldarinnar til að lifa menningarlífi á borð við stærstu menningarþjóðirnar. Til raun, sem væri einstök í ver- aldarsögunni, — tilraun, sem myndi heppnast, ef við kynnum fótum okkar fórráð og ef ekki yrði framið innbrot í fjárhirzlu okkar, þ. e. a. s. fiskveiðiland- helgina. Allir íslendingar vissu, að í okkar lögmáli stæði: land- auðn eða landhelgi. Ég rek ekki frekar viðræður mínar við forsætisráðherra Breta. Ég skal heldur ekki tí- unda hér þau hin sterku rök, sem aðrir ráðherrar hafa fram borið okkur til styrktar. En þar eiga þeir hæstv. utanríkisráð- herra og hæstv. dómsmálaráð- herra fyrst og fremst hlut að máli. Minni ég í því sambandi m. a. á sakaruppgjöf dómsmála- ráðherrans, að aflokinni Genf- arráðstefnunni, og viðræður utanrikisráðherra við utan- ríkisráðherra Breta rétt fyr- ir áramótin. En hvort tveggja á ómetanlegan þátt í þeirri prýðilegu lausn, sem nú hefir náðst. Þeir sköpuðu okkur samúð En, segja menn: Yfir hverju er verið að býsnast? Er það nokkuð að miklast af, • að láta Breta svínbeygja sig? Nei, ekki ef svo er. En sé það Bretinn, sem hefir látið undan síga, þá ef það að sönnu honurn mest til sóma, en kannske líka nokkuð ríkisstjórn fslands og þá einkum þeim ráð- herrunum, sem málið fellur undir og samninganefndarmönnun? þeirra, en allir þessir menn hafa skýrt þarfir og rétt okkar og með sterkum rökum, hóflegum en einörðum málflutningi, hefir þeim tekizt að skapa okkur þá samúð, sem ein gat leitt til þessa ágæta samkomulags, sem við nú eigum kost á. Hófst sú viðureign í Genf sl. vor, og hefir staðið nær linnulaust alla tíð síðan. Tilboð vinstri stjórnarinnar En er þetta þá nokkurt afrek, sem unnið hefir verið, spyr einhver. Þeim, sem vilja gera sér rétta grein fyrri því, er hollt að hafa til samanburðar það tilboð, sem vinstri stjórnin gerði NATO, og þá fyrst og fremst Bretum, þeg- ar lcitazt var við að fá þá til að viðurkenna rétt okkar til 12 milna landhelginnar, sumarið 1958, rétt áður en reglugerð okkar um 12 mílurnar var gefin út, og einnig skömmu áður en hún tók gildi. Skeytin, sem Her- mann Jónasson, forsætisráð- herra vinstri stjórnarinnar, þá sendi Spaak, framklvæmdar- stjóra NATO, með samþykki Finnboga Rúts Valdemarssonar, og án efa með vitund ráðherra Alþýðubandalagsins í ríkis- stjórninni, þeirra Lúðvík Jósefs sonar og Hannibals Valdemars- sonar, hafa verið birt og eru því þjóðinni kunn. Af þeim er ljóst, að Hermann Jónasson bauð þá Bretum full afnot af ytri 6 míl- unum í 3 ár og gegn því einu, að Bretar, að loknu því tímabili viðurkenndu einkarétt íslend- inga á 12 mílunum, auk lítilshátt ar breytinga á grunnlínum Þessu tilboði höfnuðu Bretar þá. Nú, hinsvegar, fá Bretar að- eins lítinn hluta þessara fríð- inda. Nú fá þeir aðeins rétt til að vera frá 3—8 mánuði á ári á ytri 6 mílunum í 3 ár, þ.e.a.s. frá 9—24 mánuði alls á öllu timabilinu, í stáð 36 mánaða samkvæmt tilboði vinstri stjór- arinnar. Sé eingöngu miðað við flatar- mál veiðisvæðanna og lengd veiðitímanna á hverju veiði- svæði, kemur í ljós, að fríðindi Breta jafngilda aðeins rúmum Vt hluta þess, sem vinstri stjórn in bauð 1958. Hún bauð þá afnot allra ytri 6 mílnanna, sem eru um 20500 ferkm. í 3 ár, allt ár- ið, alls staðar og alltaf. Fáum stórá viðauka á úthafinu Nú heimilast Bretum hins veg ar aðeins veiðar á sem svarar 5500 ferm svæði í 3 ár, og gegn því, að ísland fái sem einka- eign þegar í stað að heita má jafn stóran viðauka af úthafinu, utan 12 mílnanna, eða 5065 fer- km. og ekki aðeins til 3ja ára, heldur um alla framtíð. Þetta er ótrúlegt, segja menn. Já, það er satt. En samkomu- lagið er okkur samt sem áður enn hagstæðara en þessar tölur gefa til kynna. Það stafar af því, að auðvitað höfum við af fremsta megni leitazt við, að miða við þann tíma ársins, sem veiðar Breta eru okkur skað- minnstar. En auk þessa er svo á hitt að líta, sem afar miklu skiptir, að á aðal aflamiðum ís- lendinga er veiðitíminn stytzt- ur og grunnlínustækkanirnar mestar, eins og bezt sézt af því, þegar athugað er, að á svæðinu frá Vestmannaeyjum til Stykkis hólms veiddist árið 1959 70,3% af heildaraflamagni bátaflotans. Á öllu þessu svæði er veiðitími Breta í 3 árin samtals aðeins 9 mánuðir. Er þá loks þess ógetið, sem mestu skiptir, en það er, að á þessum helztu veiðistöðvum okkar fá Bretar aðeins 3ja ára afnot af sem svarar 755 km.2, en viðurkenna fyrir sitt leyti að afhenda íslendingum strax nýja og um alla framtíð óafturkallanlega stækkun friðunarsvæðisins utan 12 mílnanna, sem nemur hvorki meiru né minna en 3060 km.2. Menn taki eftir: Á lang dýr mætustu fiskimiðunum lánum við Bretum afnot af 755 ferkm. svæði í ein 3 ár, en fáum á þessum stöðum í staðinn auk alls annars, nú þegar og um alla framtíð meir en fjórum sinnum stærra svæði utan 12 mílnanna eða 3060 ferkm. Þetta leyfi ég mér að kalla tíðindi. 12 mílur fyrir Vestfjörðum Enn er þess ógetið, að fyrir (Ttl- um Vestfjörðum og á nokkrum örðum stöðum viðurkenna Bret- ar 12 mílna landheigina þegar í stað. Mcð öðrum orðum — það, sem við nú látum, er aðeins lítið brot af því, sem vinstri stjórnin bauð árið 1958 En það, sem við nú fáum, er hins vegar svo ósam- bærilega margfalt meira en vinstri stjórnin bað um, að tæp- lega er samanberandi. V-stjórnin vanrækti grunnlínurnar Ég skal ekki um það dæma, hvort eða að hve miklu leyti fs- lendingar hefðu getað fengið sér tildæmdan einhvern rétt til út- færslu á grunnlínunum fyrír al- þjóðadómstóli. En það er ljóst, að mat núverandi stjórnarand- stæðinga á líkunum til þess, hef- ir ekki einkennzt af bjartsýni. Um það vitnar sú staðreynd, að þegar landhelgin var færð út árið 1958, var ekki hirt um að færa út grunnlínurnar og ber hitt þó ennþá meiri vott skeytingarleys- is eða svartsýni af hendi þessara monna um hugsanlegan rétt ís- lendinga í þessum efnum, að fyr- ir þessu þingi liggur lagafrum- varp, flutt af Alþýðubandalag- inu og Framsóknarflokknum, þar sem iagt er til að lögfestar verði núgildandi grunnlínur, en ekki svo mikið sem minnzt á þá 5065 km.2 útfærslu þeirra, sem við nú höfum fengið viðurkenningu Breta á okkur til handa. Þessi lítilþægni s!|jórnarand- • stæðinga er ekki til fyrirmynd- ar, heldur víti, sem núverandi ríkisstjórn hefir haft vit á að varast. Höldum baráttunni áfram Þá vil ég aðeins víkja að þvl örfáum orðum, að þrátt fyrir þetta samkomulag munu Islend- ingar að sjálfsögðu halda áfram baráttunni á alþjóðavettvangi fyrir útfærslu fiskveiðilögsög- unnar og hagnýta sérhvern auk- inn rétt, jafnóðum og hann fell- ur til að okkar mati. Islendingar munu án efa telja sér hagkvæmt að rasa ekki um ráð fram, þ. e. a. s. að gera ekki aðrar ráðstaf- anir en þær, sem við teljum að Framhald á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.