Morgunblaðið - 04.03.1961, Side 2
2
MORGUWBLAÐIÐ
Eaugardagur 4. marz 1961
Þrjú ár með þessum
takmðrkunum eru okk-
ur einskis virði
segir Dennis Welch
Grimsby, 3. marz. — (Frá
Haraldi J. Hamar, frétta-
ritara Mbl. —
ENNÞÁ er ekki um annað meira
rætt í Grimsby, en samkomulag-
ið í fiskveiðideilunni við ísland,
og blaðið Grimsby Evening Tele-
graph speglar vel afstöðuna til
samkomulagsins.
Blaðið segir: — Samkomulag-
ið Við Noreg var erfiður biti fyr-
ir fiskiðnaðinn brezka að kingja,
en samkomrulagið við íslending-
ana er þó enn erfiðari biti. Fiski-
mennirnir okkar hófu veiðar
undan íslandi fyrir fimm hundr-
uð árum — löngu áður en fslend-
ingar sjálfir hófu fiskveiðar. Við
unnum að þróun þessara fiski-
veiða, fundum upp gufutogarann
og kennclrum íslendingum veið-
arnar. Þetta eru launin, sem við
fáum — að vera hreinlega spark-
að út.
Skipstjórafundurinn, sem Denn
is Welch hafði boðað til í morg-
un, var vel sóttur, en engin end-
anleg ákvörðun tekin. Annar
fundur verður í næstu viku.
Togarar í Grimsby eru 171, þar
af 71 úthafstogari. f félagi skip-
stjóra og stýrimanna eru 350
menn. Eftir fundinn sagði welch,
að samkomulagið hefði komið
mjög illa við yfirmenn, — eink-
um brá þeim við að heyra um
breytinguna á grunnlínunum og
lokun miðanna fyrir Vestf jörðum.
Sagði hann, að aðstaða þeirra
væri nú slík, að mörg hundruð
manna, sem hefðu haft lífsviður-
væri sitt af kolamiðunum fyrir
Vestfjörðum ,stæðu nú frammi
fyrir því vandamáli, hvernig
þeir fengju klætt konur sínar og
börn.
Ríkisstjórnin lofar togaraeig
endum og áhöfnum fjárstuðn.
ingi meðan þeir eru að leita
nýrra miða og búa sig undir
breytta útgerð. Við hefðum
fallizt á samkomulag um tíu
ára veiðitímabil, sagði Welch,
en þessi þrjú ár með öllum
þessum takmörkunum eru
einskis virði. Við eigum ekki
togarana, við erum aðeins að
vinna fyrir brauði okkar.
Valdabarátta
Samkomulagið er enn helzta
umræðuefnið í Grimsby. Hins-
vegar virðist áhuginn minni í
Hull, þar sem úthafstogarar eru
svo miklu fleiri þar. Forystu-
menn togaramanna í Hull eru
samt sem áður mjög áhyggjufull-
ir og segja, að mikið atvinnuleysi
í borginni muni fylgja í kjölfar
samningsins.
Sjómenn á smáu togurunum í
Grimsby virðast varla trúa því,
að brezka þingið samþykki sam-
komulagið og lokun Vestfjarða-
svæðisins fyrir þeim. Menn bíða
aðgerða togaraeigenda, því að
allt er í óvissu um hvernig þeir
bregðast við samkomulaginu, þ.
e. a. s. varðandi breyttar veiðiað-
ferðir, leitun nýrra fiskimiða og
byggingu stærri skipa og enginn
af forystumönnum þeirra er til-
búinn að svara nokkru þar að lút
andi.
Orðrómur er um valdabaráttu
á bak við tjöldin. Er talið að tog-
araeigendur í Hull séu óánægð-
ir og telji að togaraeigendur í
Grimsby hafi of mikil völd. Sum-
ir telja jafnvel hættu á, að tog-
arasamtökin splundrist. Allavega
mun vera mikill skoðanamunur
og óánægja með samkomulagið.
Eða eins og einn togaraútgerðar-
maður sagði: Við bjuggumst
við hinu versta, en á svona slæmu
samkomulagi við Island áttum
við ekki von.
/ NA /5 hnútar SV50hnútar ¥: Snjókoma f OSi Skúrir ÍC Þrumur W?£, KuUaslil Hitaskit HHm* 1 L*La9» 1
- , .... ... —ijfgg w •Bo "■
KALT éljaloft blæs nú um
hafið fyrir vestan og sunnan
S-Grænland og þaðan norð-
austur um Grænlandshaf og
ísland. Hlýnar loftið smám
saman á leiðinni og er komið
rétt upp fyrir frostmark þeg-
ar það nálgast strendur lands-
ins. Um Bretlandsstrendur
leikur hinsvegar hlýtt hafloft
og er hiti þar 10—12 stig. í
suðvesturhorni kortsins má
sjá nýja lægð, sem fer vaxandi
og hreyfist í áttina að íslandi.
Má því búast við vaxandi SA-
átt og rigningu undir kvöldið.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
Suðvesturland til Vestfjarða
og miðin: V-átt með hvössum
éljum í nótt, gengur í SA-átt
og hvessir síðdegis.
Norðurland, Norðausturland
og miðin: S-gola fyrst, en geng
ur í allhvassa NA og síðar NV
átt með snjókomu síðari hluta
nætur — batnandi veður á
morgun.
Austfirðir, Suðausturland og
miðin: Hvessir snögglega af
S með slyddu og rigningu og
víða þrumuveðri — gengur í
allhvassa SA átt og léttir til
í fyrramálið, vaxandi SA þeg
ar líður á daginn.
Þingmenn brezk’a verkamannaílokksins segja samkomulagið
Fórn á altari Atlants-
hafsbandalagsins
Veldur úlfaþyt í brezka þinginu
í GÆR barst. Morgunblaðinu
einkaskeyti frá fréttaritara sín-
um i London, þar sem segir, að
samkomulagið í fiskveiðideil
unni hafi borið á góma í neðri
deild brezka þingsins á fimmtu-
dag. í skeytinu segir:
Talsmaður stjórnarinnar sagði
í dag, að fulltrúar brezka fisk-
iðnaðarins væru reiðubúnir, að
styðja samkomulagið um fisk-
veiðilögsöguna við fsland. Stjórn
arandstaðan, — verkamanna-
flokkurinn tekur samkomulag-
inu aftur á móti með mikilli tor
tryggni.
Einn af þingmönnum verka-
mannaflokksins, Anthony Cross-
land, lagði í dag spurningar
fyrir Fletcher Vane, aðstoðar
landbúnaðar- og fiskimálaráð-
herra. Crossland spurði, hvort
Vane hefði fengið ályktun um
afstöðu vinnuveitenda og verka
lýðsfélaga til samkomulagsins.
Vane svaraði því til, að full-
trúar hvorratveggja í iðnaðinum
hefðu fyrir skömmu lýst yfir
miklum áhyggjum sínum vegna
þess, hve seint gengi að ná
,Og jbú líka, barn-
/ð mitt Brútus
ÍtwuiiJiuwv "»*y" wjwwwnpippi
H‘*rm
ÞAÐ eru áreiðanlega misjafn
ar skoðanir um það hver hafi
talað bezt í útvarpsumræð-
unum í fyrrakvöld, en ekki
//
um hitt, hver hafl talað verst.
Það kemur því úr hörðustu
átt, þegar Tíminn segir um
ræðu Hermamrs Jónassonar,
það sem menn geta lesið á
myndinni hér að ofan. Höfðu
menn haldið að það stæði nær
öðrum en Þórarni Þórarins-
syni að gera grín að foringja
Framsóknarflokksins. En sjálf
ur gæti Hermann sagt: „Og
þú líka, barnið mitt Brútus“.
samkomulagi — „síðan hafa
þeir skýrt ráðherrum frá því,
að þeir væru reiðubúnir að
styðja stjórnina með því að fall
ast á samkomulag það, sem nú
liggur fyrir íslenzka þinginu“,
sagði Vane.
Crossland kVast efast mjög
um, að svar Vanes væri full-
nægjandi skýring á afstöðu,
a. m. k. annars aðila fiskiðn-
aðarins. Hann hélt því fram, að
samkomulagið væri miklum
mun verra, en fulltrúar iðnaðar
ins hefðu vænzt og mundu
verða iðnaðinum til mikils
hnekkis.
Stöðugt samband
Crossland spurði Vane enn-
fremur, hvort hann myndi „að
minnsta kosti flýta fyrir því
„að tekin yrði endanleg ákvörð-
un um aðstoð stjórnarinnar við
úthafsfiskiflota Bretlands. Svar-
aði Vane því til, að hann og ráð
herramir brezku, gerðu sér
fulla grein fyrir nauðsyn þess,
að slík ákvörðun yrði tekin sem
fyrst, en áður yrði að gera sér
fulla grein fyrir þeim áhrifum,
sem samkomulagið hefði á fisk-
iðnaðinn.
Annar þingmaður verka-
mannaflokksins, Hector Hughes,
spurði, hvort borizt hefðu álýkt
anir varandi hinn „ófullnægj-
andi grundvöll þessa svokallaða
samkomulags“. Vane svaraði:
Landbúnaðar- og fiskimálaráð-
herrann hafði um síðustu helgi
stöðugt samband við fulltrúa
skipaeigenda, yfirmanna á tog-
urum og annarra togaramanna
og hann átti ítarlegar viðræður
við þá fyrir skömmu um þá
skilmála sem samkomulagið
imundi byggjast á“.
Úlfaþytur í brezka þinginu
Þá hafa blaðinu borizt fregnir
af umræðum um samkomulagið
í báðum deildum þingsins á
þriðjudag sl. Lundúnablöðin
Daily Express og Daily Tele-
graph segja frá umræðunum svo
og Afteirposten. Öllum ber blöð-
unum saman um, að samkomu-
lagið hafi valdið miklum úlfa-
þyt innan veggja þingsalanna.
í Aftenposten segir meðal ann
ars: Frumvarpið um samkomu-
lagið til lausnar fiskveiðideilu
Breta og fslendinga mætti geysi-
legri gagnrýni í báðum deildum
brezka þingsins, þegar það var
lagt fram. Stjórnarandstaðan —
Verkamannaflokkurinn — réðst
harkalega á stjórnina fyrir að
lúta í lægra haldi fyrir íslend-
ingum, og í lávarðadeildinni bar
einn þingmanna fram þá uppá-
stungu, hvort ekki væri tími til
kominn, að Bretar færðu út fisk
veiðilögsögu sína í tólf mílur.
í lok fréttarinnar í Aftenpost.
en segir ennfremur, að fregnir
frá Hull hermi, að togaraskip-
stjórar, sem nú haldi á íslands-
mið, séu fjúkandi reiðir
yfir samkomulaginu, en ætli þó
að fara eftir því. Segir blaðið
eftir fréttamanni Daily Tele.
graph, að togaraskipstjóri einn,
hafi sagt, — rétt áður en hann
hélt úr höfn á íslandsmið, — að
þetta væru slæmir skilmálar og
þeim hefði mátt ná fyrir löngu.
Samkomulagið er „afákaplegur
ósigur fyrir Stóra-Bretland“
sagði hann, en bætti við, að
hann hefði aldrei veitt innan
tólf mílna — ekki þurft þess,
því að vel mætti fá góðan afla
utan markanna.
„Ættuð þér ekki að blygðast
yðar?“
í Daily Telegraph segir meðal
annars, að Edward Heath, að-
stoðarutanríkisráðh. hafi skýrt
einstök atriði samkomulagsins
fyrir þingheimi og sagt, að yrði
það samþykkt í íslenzka þing-
inu, yrði þess vonandi ekki langt
að bíða, að það kæmist í fram-
kvæmd.
Heath sagði, að hann og Soam
es, landbúnaðar- og fiskimála
ráðherra gerðu sér vel ljóst, að
samkomulagið útilokaði veiðar
brezkra togara á miðum, sem
væru afar mikilvæg. Engu að
síður hefðu fulltrúar hinna ýmsu
greina fiskiðnaðarins fallizt á
að styðja samkomulagið á þess-
um grundvelli.
Aðalmálflytjandi af hálfu
st j órnarandstöðunnar var Ge-
offrey De Freitas, sem mótmælti
samkomulaginu ákaflega. Hann
spurði hvort Heath gerði sér
fyllilega ljóst, hversu miklum
vonbrigðum það ylli starfsfólki
fiskiðnaðarins. Brezkir fiski
menn yrðu útilokaðir frá 10
þúsund fermílna svæði, — al-
þjóðlegum fiskimiðum, sem þeir
væru vanir að sækja. De Freitas
sagði, að brezka stjórnin hefði
getað fengið sömu skilmála og
í samkomulaginu við Norðmenn
og bætti við „Væri ekki fuli á-
stæða til að þér sýnduð vott um
blygðun, nú er þér standið hér
og tilkynnið slík tíðindi, sem
eru hinn mesti ósigur?“
Heath minnti á, að deilan hefði
nú staðið í hálft þriðja ár, og sá
tími hefði verið mikil þolraun
brezka fiskiiðnaðinum. Hann
kvaðst vera þeirrar skoðuar, að
landsmenn væru þakklátir fyrir,
að deilan yrði nú leyst og hann
hefði þegar tekið fram, að sam-
komulagið hlyti að valda nokkr.
um vonbrigðum. Engu að síður,
sagði Heath, kemst stjórnin að
því, eftir ítarlegar viðræður við
Framhald á bls. 19.
Svik
SVIK — SVIK, segja komm-
únistar um samkomulagið í
landhelgismálinu. Við vitum
um ein svik. Lúðvík Jósefs-
son og Einar Olgcirsson höfðu
lofað húsbæirdum sínum í
Kreml því, að hvað sem öllu
öðru líði þá skyldu þeir sjá
til þess, að aldrei yrði sam-
inn friður í deilumálum ís-
lendinga og Breta. Nú telja
Rússar sig illa svikna, og und
an þeim svikum svíður þá
blessaða, Lúðvík og Einar.