Morgunblaðið - 08.03.1961, Side 1

Morgunblaðið - 08.03.1961, Side 1
24 slður AlXsherfarþiifgið sett á ný: Stdrveldin slá af kröfum Nkrumah forseti Ghana talar fyrir Kongó-tillÖgum sínum NEW YORK, 7. marz. (NTB/ Reuter). —- Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kom að nýju saman til funda í kvöld. Setti forsetinn, Frederick Bo- land frá írlandi, þingið kl. 7 f kvöld (ísl. tími), að flestum fulltrúum viðstöddum. — Að- alíulltrúi Bandaríkjanna, Adl (ii Stevenson, lýsti því yfir í upphafi fundarins, að Banda- Eftir þessar yfirlýsingar stór veldanna, virðist augljóst, að Kongó-málið (þar undir m.a. fjár framlög til starfsemi SÞ) og af- vopnunarmálin verði aðalvið- fangsefni Allsherjarþingsins að þessu sinni. — Sovétsendinefnd- in krafðist þess rétt áður en fundur hófst, að afvopnunarmál- in yrðu rædd með tilliti til þess að ná samkomulagi um grund- völl framhaldsviðræðna og samn inga, svo sem um skipun nefnd- Framh. á bls. 14 ríkin væru fús til að fresta umræðum um ýmis mál, sem lögð hafa verið fyrir þing- ið, á meðan unnið sé að því að bæta hið „alþjóðlega and- rúmsloft“ — með sérstöku tilliti til afvopnunarviðræðna. Er hér um að ræða mál eins og Tíbet, Ungverjaland, á- kæru Kúbu vegna meintra árásarfyrirætlana Bandaríkj- anna, ýmis vandamál í Mið- Austurlöndum o. s. frv. — Áður höfðu Sovétríkin lýst því yfir, að þau mundu falla frá því, að Allslierjarþingið ræddi kæru þeirra á hendur Bandaríkjunum vegna U-2 njósnaflugsins sl. sumar. „Fishing News": Efar ekki viðurkenn- ingu Breta BBEZKA BL.AÐIB „Fisíhing News“ ræðir mikið um sam- komulag tslands og Bretlands í fiskveiðideilunni í tölublað inu, sem út kom 3. þ. m. — M.a. er greint frá samkomulag inu í aðalfrétt á forsíðu, þar sem birt er kort af Islandi og fiskveiðimörkunum umhverf- is og merkt þau svæði, sem Bretar fá að veiða á um tak markaðan tíma á ári hverju næstu þrjú árin. — Frétt blaðsins hefst á þessa ieið: „Eftir 13 ára gerræðislega ákvörðun fiskveiðimarka, hef ir ísland nú fallizt á, að frek ari deilur um slík efni verði lagðar undir dóm Alþjóðadóm stóisins“. Síðan segir blaðið orðrétt: , Tillögurnar, sem birtar voru á mánudag ("27 febr.) í Lundúnum og Reykjavík, fela í sér, að BRETLAND VIÐUR KENNIR ÞEGAR t STAÐ (Leturbv. Mbl.) 12 mílna fisk veiðimörk tslands ... 44 Lúðvík á næturfundi: Semjum við Breta um áframhald deilunnar! LÚÐVÍK Jósepsson glopraði því út úr sér á þingfundi seint í fyrrinótt upp á hvað kommúnistar vilja semja við Breta í landhelgismálinu. Lýsti Lúðvík því umbúðalaust yfir, að hann „vildi semja við Breta um það, að þeir héldu áfram að veiða undir herskipa- vernd innan 12 mílnanna í nokk- ur ár“. Taldi hann að með þessu væru íslenzk fiskimið bezt „frið- uð“! Að fengnum þessum upplýsing um þarf því engan að undra, þótt kommúnistar hamist af öllum mætti gegn því samkomulagi, sem tryggir, að brezk herskip komi ekki fram ar inn í íslenzka fiskveiðilögsögu. Það er nú orðin yfirlýst stefna þeirra að fá Breta tii þess að halda áfram of- beldi sínu ís- lenzkri landhelgi og að viðhalda því ástandi, sem reynzt hefur ís- lenzku þjóðinni allri til stórskaða og íslenzkum sjómönnum lífs- hættulegt. * ★ Þó að Lúðvík Jósepsson segði vissulega fátt í hinni 3% klst, löngu ræðu sinni í fyrrinótt, sagði hann þó nóg til þess, að það kæmi í ljós, hvað það er, sem kommún- istar raunverulega vilja koma í veg fyrir með andstöðu sinni gegn lausn fiskveiðideilunnar við Breta. Lýsti Lúðvík því í löngu máli, hvernig viðskipti íslend- inga mundu beinast til Englands og V-Þýzkalands eftr lausn deil- unnar, og var auðheyrt á honum, að honum var ekkert um það gef- ið, að íslendingar beindu viðskipt um sínum til þessara landa. Leyndi sér ekki, að hann taldi austurviðskiptunum stefnt í bráða hættu með samkomulag inu. Morgunblaðið láir mönnum það ekki, þótt þeir eigi erfitt með að trúa því, að hér sé rétt með farið; svo ótrúlegt er það, að nokkur íslendingur skuli bein- línis óska eftir því, að erlent ríki beri vopn á íslenzku þjóð- ina, og þá sérstaklega sjómenn hennar. — Og það er lítt trú legt, að nokkur fslendingur skuli láta hafa sig til þess að hamast gegn lausn á hættulegri milli- ríkjadeilu vegna þess að hann sér fram á, að lausn hennar muni leiða til hagstæðari og heppilegri viðskiptasambanda fyrir þjóðina En hvort tveggja þetta er ómeng- aður sannleikur. Má nú segja, að Lúðvík hafi í þessari næturræðu sinni flett hulunni fyrir fullt og allt af stefnu kommúnista í land helgismálinu, og blasir þá tvénnt við: Kommúnistar krefjast bein- línis áframhaldandi stríðs á ís- landsmiðum og vilja umfram allt koma í veg fyrir lausn deil- unnar til þess að þjóðin geti ekki notið hagstæðustu viðskiptasam- banda. Annarleg rodd utan úr heimi: Island lét undan þvinpnum Breta — segir Izvestia í Moskvu Auðséð, hvaðan Lúðvík tékk línuna LONDON, 7. marz (Reut- ísland). — Samkvæmt er-einkaskeyti til Mbl.) — frásögn Tass-fréttastofunn Moskvublaðið Izvestia, mál ar rússnesku, sagði Izvest- gagn sovétstjórnarinnar, ia m.a.: „Bretar og aðrir lét svo um mælt í dag, að stjórnarherrar Atlantshafs ísland hefði „látið undan bandalagsins vilja ekki að- þvingunum“ af hálfu eins halda íslandi áfram Breta í nýgerðu samkomu- sem herstöð fyrir NATO, lagi um fiskveiðimörk (við Frh. á bls. 2 Sigurgleði — þreyta — gleði- tár. Augnablikið þegar laun mikils og langvarandi erfiðis voru uppskorin. ísland hefur unnið Sviss og tryggt sér rétt tii þátttöku í lokaúr- slitum heimsmeistarakeppn- innar, þar sem enn stærri og óvæntari atburðir biðu ísl. landsliðsins. Á þessu augna- bliki var ísland á margra vörum fyrir ágæta frammi- stöðu. Það er því engin furðai þótt Birgir Björnsson fyrir- liði, Hallsteinn Hinriksson þjálfari og Ásbjörn Sigurjóns son „primus motor“ hand- knattleikssambandsins brosi gieitt og felli jafnvel gleðitár. Liðið sem á engan fullstóran völl á heimalandi sínu hafði skákað liinum stærri og ríkari þjóða liðum. Á bls. 10 er myndasiða frá leikum Islendinga í Þýzka- landi. A1á/jbó/íð hetdur áfram. STJÓRNARANDSTÆÐING- AR héldu áfram málþófi sínu um landhelgismálið í allan gærdag og fram á nótt. Lengdist ræðutíminn með hverjum ræðumanni, en eng- um hafði þó tekizt að hnekkja meti Lúðvíks frá því í fyrrinótt (3V2 klst.), þeg- ar blaðið fór í prentun. Rétt fyrir miðnætti höfðu þessir talað af hálfu stjórn- arandstæðinga: Gunnar Jó- hannsson, Ingvar Gíslason, Skúli Guðmundsson, Karl Kristjánsson og Karl Guð- jónsson, en aðeins einn stjórn arþingmaður, Guðmundur L Frh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.