Morgunblaðið - 08.03.1961, Síða 9
Miðvikudagur 8. marz 1961
MORGl'TSBL AÐIÐ
9
rannsókna með þessum voldugu
eldflaugum.
Síðan þetta eldflaugakapp-
skotið á loft 7 gervitunglum. Að
eins eitt þeirra er enn á lofti og
þar sem radíótækin í því eru
biluð fá þeir engar upplýsingar
sem stendur um ástandið í hvolf
hlaup hófst hafa Rússar aðeins
inu kringum jörðina.
Á þessum sama tíma hafa
Bandaríkjamenn skotið vel
heppnað á loft yfir 30 gervitungl
um. Ég held, að um 20 þeirra
snúist enn í kringum jörðina og
meir en 10 halda áfram að senda
radíómerki með vísindalegum
mælingum.
Rússar hafa nú sent þrjú skeyti
út úr aðdráttarsviði jarðar. Eitt
þeirra lenti á tunglinu, hin tvö
halda áfram ferð sinni um sólkeÁ
ið, það síðara áleiðis til Venusar.
Bandaríkjamenn hafa sent út
tvö slík skeyti, sem munu halda
för sinni endalaust áfram um
sólkerfið.
Fiölbreyttar
vísindarannsóknir
Bandarísku gervitunglin hafa
Verið lítil, en mjög hefur verið
vandað til allskonar mæli og vís-
indatækja í þeim. Það var sagt
að margur hinna bandarísku vís_
indamanna sem unnu við rann-
sóknirnar hafi andvarpað þungt
og stunið, þegar þeir hugsuðu til
4 tonna gervitungla Rússa. Sjálf-
ir urðu þeir lengi að raða né-
ikvæmum mælitækjum í litil
gervitungl, sem vógu varla
meira en 20—30 kg.
En það er staðreynd að hin
vísindalega uppskera og afrakst
ur. Bandaríkjamanna af geim-
skotunum er meiri en hjá Rúss-
um. Þó Spútnikar hefðu snúizt
svo mánuðum skipti kringum
jörðina fengu þeir ekki skilið
hvernig lá í hinum geislavirku
lögum kringum jörðina. En
strax og fyrsta gervitungl Banda
ríkjamanna Explorer I hafði far
ið einn eða tvo hringi umhverfis
hnöttinn, hafði hinn bandariski
eðlisfræðingur Van Allen fengið
þau gögn í hendurnar sem til
iþurfti til að skilja legu og þýð_
ingu hinna geislavirku belta,
sem eru kölluð Van Alten beltin.
Ástæðan fyrir hinum mikla
fjölda bandarískra gervitungla
hefur verið að hvert þeirra um
sig hefur haft sitt sérstaka hlut
verk, við ýmiskonar rannsóknir,
t.d. á yztu lögum andrúmslofts-
ins, radíóskilyrðum, segulmagn-
sviði, hitarannsóknir t.d. í sam-
bandi við skuggahlið jarðarinn-
ar. Bandarísku vísindamennirn-
ir hafa sótt jafnt fram á öllum
sviðum. Þeir gera nú tilraunir
með stóra gervitunglsbelgi til
endurvarps á útvarps og sjón
varpsbylgjum og ótal margt
fleira sem leikmenn skilja varla.
Það er hinvergar talið furðu-
legt, hve Rússar hafa vanrækt
að nota sér þá góðu aðstöðu, sem
aflmeiri eldflaugar gáfu þeini til
allskonar rannsókna. .
Þetta hefur enn einu sinni kom
ið berlega í ljós í sambandi við
skeytið sem Rússar sendu ný-
lega til Venusar. Aflmeiri eld-
flaugar gerðu þeim hér enn
kleift að vinna það sem Banda
'rtkjamönnum var ekfki kleift.
En nú herma síðustu fréttir, að
Rússar hafi misst radíósam-
band við skeytið sem er eitt-
hvað í kringum 15 milljón km
frá jörðinni.
í þessu sambandi má rifja upp
að Bandaríkjamenn höfðu enn
samband við geimskipið „Pion-
eer V“ sem þeir skutu upp í
marz 1960, er það var í um 35
mUljón km fjarlægð.
Þetta Venusarskeyti Rússa
hefur því sáralitla visindalega
þýðingu fyrst það getur ekki
sent radíóskeyti frá næsta ná-
grenni Venusar. Nú er talið að
Bandaríkjamenn hafi yfir að
ráða radíótækni sem hefði gert
þeim fært að senda boð frá Ven_
tis í um 75 milljón km fjarlægð.
Hér hefði það því vissulega
flýtt fyrir og auðveldað vís-
indalegar rannsóknir ef þessi
tvö stórveldi hefðu viljað vinna
friðsamlega saman að þessari
Venusar- rannsókn. Rússar
hefðu getað lagt fram það sem
þeir áttu fullkomnara, öfiugar
eldflaugar, en Bandaríkjamenn
sína fullkomnari þekkingu á
sviði radíóvísindanna. En það er
víst ekki því að heilsa að þessar
þjóðir geti unnið þannig saman
í sátt og samlyndi.
Keppnin heldur áfram
Enn stendur yfir mikil keppni
milli þessara stórvelda. Það er
keppni um mikinn heiður. um
að verða fyrstir til að vinna
sögulegt afrek, — það er að
senda fyrsta manninn í fyrstu
geimferðina. Rússar og Banda-
ríkjamenn hafa beitt ólíkum að-
ferðum til að ná þessu marki.
Það er nú víst að Rússar eiga
nægilega stórar eldflaugar til að
bera fyrsta manninn á loft á
sporbraut umhverfis jörðina.
Þeir eru taldir veikari á sviði
geimlíffræði og yfirhöfuð í vís-
indalegri könnun allra aðstæðna
fyrir manninn. Þar er hinsvegar
talið að Bandaríkjamenn standi
framar, en þá vantar þá í stað-
inn nógu öflugar eldflaugar.
Þeir geta notazt við Titan-eld-
flaugar sínar til að skjóta manni
í skotboga sem snöggvast út fyr_
ir andrúmsloftið.
Báðir þessir keppinautar munu
nú vinna af kappi að því að
bæta úr því sem mest er ábóta-
vant.
Fyrir nokkru tókst Banda-
ríkjamönnum t. d. að skjóta
simpansa-apa með Titan eld-
flaug út fyrir gufuhvolf jarðar
og aftur til jarðar. Skot þetta
misfórst nokkuð svo að eldflaug
in fór bæði miklu hraðara og
lengra en reiknað hafði verið
með og tæki biluðu, sem áttu að
draga úr högginu þegar hylkið
félli aftur niður £ gufuhvolf
jarðar. Þessi frávik frá reiknaðri
braut voru svo mikil, að stjórn-
endur tilraunarinnar gerðu sér
varla vonir um að apinn gæti lif
að þetta af. En þegar hylkið
fannst og var tekið upp úr öld-
um Atlantshafsins og dyr þess
opnaðar, kom apinn blaðskell-
andi út úr því, brosandi út að
eyrum og hámaði í sig ávexti
sem honum voru bornir.
Simpansinn er sá meðlimur
apafjölskyldunnar sem skyldast
ur er manninum og kemst næst
honum að skynsemi. Hálfur sig-
ur virðist því þegar unninn og
munu Bandaríkjamenn nú þeg-
ar vera að undirbúa annað
samkonar skeyti nema hvað þá
verður maður innanborðs. Mað_
urinn getur varla verið þekktur
fyrir það að láta apann fara
langt fram úr sér.
Þorsteinn Thorarensen.
Samkosnur
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins
Hörgshlíð 12, Rvík í kvöld
miðvikudag kl. 8 e. h.
Kristniboðssambandið
Almenn samkoma í kvöld kl.
8.30 í kristniboðshúsinu Betaníu
Laufásvegi 13. Jóhannes Sigurðs-
son talar. — Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
Fíladelfía
Unglingasamkoma kl. 8.30 í
kvöld. ,
I.O.G.T.
St. Mínerva nr. 172
Fundur í kvöld kl. 20.30. —
Upplestur: Gestur Pálsson.
— Æ. T.
St. Sóley nr. 242
Munið heimsóknina til St.
Einingarinnar nr. 14 í G.T.-hús-
inu í kvöld kl. 8.30.— Mætum
öll. — Æ. T.
Stúkan Einingin nr. 14
Fundur í kvöld kl. 8.30. —
Stúkan Sóley kemur í heimsókn.
SYSTRAKVÖLD. Sameiginleg
kaffidrykkja, og ýmiss skemmti-
atriði. ÆjSstitemplar.
Félagslíl
íslandsmeistaramót í körfuknatt-
leik 1961, hefst 10. apríl 1961.
Keppt verður í eftirtöldum
flokkum:
Mfl karla: 19 ára og eldri.
2. flokki karla: 17 og 18 ára.
3. fl. karla: 14, 15 og 16 ára.
4. fl. karla: yngri en 14 ára.
Mfl. kvenna: 17 ára og eldri.
2. fl. kvenna: 16 ára og yngri.
Ennfremur verður keppt í 1.
flokki karla ef næg þátttaka
fæst.
Þátttökutilkynningar skulu
hafa borizt skrifstofu íþrótta-
sambands íslands Pósthólf 864,
Reykjavík, fyrir 12. marz 1961,
ásamt upplýsingum um aldur,
hæð, þyngd, leikmanna í meist-
araflokki.
Körfuknattleiksráð
Reykjavíkur.
Félag austfirzkra kvenna
Spilafundur fimmtudaginn 9.
þ. m. kl. 8.30 stundvíslega. —
Gleymið ekki að taka með ykk-
ur spil. — Stjórnin.
Til sölu
Sérstaklega vönduð 2ja herbergja íbúð í nýju fjöl-
býlishúsi í Vesturbænum. Hitaveita. Sameiginlegar
vélar í þvottahúsi og í straustofu. Ræktuð og girt lóð.
Svalir, um 40 ferm. í suður, austur og norður.
Upplýsingar kl. 5—7 e.h. næstu daga.
JÓN INGIMARSSON, lögmaður
Birkimel 10 — Sími 24944.
Létt rennur
GmBoú
Skrifs tofus túi ka
vön vélritun og skrifstofustörfum óskast
sem fyrst. — Upplýsingar veittar á skrif-
stofu vorri Vesturgötu 10 milli kl. 4—5
í dag.
Til sölu
er góð bújörð með allri áhöfn. Jörðin er nálægt Akra-
nesi. Veiðiréttindi í tveimur veiðiám fylgja.
MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOF A
Vagns E. Jónssonar
Austurstræti 9 — Sími 14400
4ra herbergja
ný og glæsileg íbúð í Kópavogi fæst í skiptum fyrir
góða bújörð í nærsveitum Reykjavíkur.
MÁLFLUTNIN GSSKRIFSTOF A
Vagns E. Jónssonar
Austurstræti 9 — Sími 14400.
HALLÓ ! HALLÓ !
Kjarakaup á Langholtsvegi
Kvenpeysur, Drengjapeysur, Bamapeysur, Golf-
treyjur, Sloppar, Kvennærfatnaður, Barnabolir,
Bleyjubuxur, Sokkabuxur, Undirkjólar, Náttkjólar,
Herrasokkar, Kvensundbolir, Kvenblússur,
Allskonar metravara og ótal m. fl.
Aðeins 3 dagar eftir
Ltsalan á Langlioltsvegi 19
£ nskunámskeið
fyrir börn
Síðasta enskunámskeið vetrarins fyrir börn hefst
mánudag 20. marz. Stendur það yfir til 25. maí, og
verða þrír tímar í viku í hverjum flokki. Um pásk-
ana verður sex daga hléá kennslu. Námskeiðið kostar
kr. 300.00 fyrir barnið. —
Námskeiði því, sem nú stendur yfir, lýkur 17. og 18.
marz. Þau börn, sem nú stunda nám við skólann,
eru beðin um að láta skrifstofuna vita sem allra fyrst
hvort þau hyggjast taka þátt í vornámskeiðinu.
Skrifstofan er opin alla daga kl. 5—7, sími 22865.
Málaskólinn IVfámir
Hafnarstræti 15
T ilkynning
Nr. 3/1961
Verðlagsnefnd hefur í dag ákveðið eftirfarandi há-
marksverð í heildsölu og smásölu á innlendum nið-
ursuðuvörum:
Heildsöluv. Smásöluv.
Fiskbollur, 1/1 dós 12.25 15.75
Fiskbollur, % dós 8,45 10.90
Fiskbúðingur, 1/1 dós .. .. kr. 14,95 19,25
Fiskbúðingur, % dós .... 9,00 11,60
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Að öðru leyti heldur gildi sínu tilkynning nr. 26.
frá 31. október 1960.
Reykjavík, 3. marz 1961
Verðlagsstjórinn