Morgunblaðið - 08.03.1961, Side 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 8. marz 1961
Svona lið þarf
bætta aðstöðu
— Við förum út, kom-
umst í lokakeppnina og
þegar við komum heim,
þá verðutr búið að byggja
fyrir okkur nýja glæsi-
lega íþróttahöll með full-
stórum handknattleiks-
sal og rúmgóðu áhorf-
endasvæði“.
Þessi orð mælti Ásbjörn Sigur-
Hinn sígTaði gleymir ekki hamingjuóskum. Gunniaugur réttir
hinum fræga danska fyrirliða, Per Theilmann höndina að
Ieikslokum og óskar honum til hamingju með sigurinn 24:13.
Theilmann lék þarna sinn 75. landsleik fyrir Dani — Gunnlaug
ur sinn 8. fyrir ísland.
Daninn Stenberg flýgur að islenzka markinu og skorar eitt af 24 mörkum Dana móti okkar
liði. Sólmundur markvörður hefur rétt út höndina til varnar — án árangurs, að öðru leyti en
því að myndin verður skemmtilegri.
Ósigur Sviss fyrir Islandi 12:14 gaf íslandi inngöngu i loka-
úrslitin, dæmdi Svisslendinga til heimferðar. „Þetta var sann-
kallaður sorgarleikur“, sögðu Svisslendingamig, „því við
ætluðum okkur að sigra í Wiesbaden“. Sigurinn var aðeins í
seilingarfjarlægð frá Svisslendingunum — eins og boltinn á
þessari mynd. En ísland náði knettinum og sigrinum. Það er
Pétur Antonsson, sem krækir í knöttinn frá Lehmann bezta
leikmanni Sviss.
örlögin eru óumflýjanleg fyrir Svisslendinga. Ragnar Jónsson flýgur með geysihraða inn i
markteig þeirra og innsiglar örlög Sviss í keppninni. Hinum ágæta markverði Sviss, Peter Fáh
tókst ekki að verja markið í þetta sinn.
jónsSon formaður Handknattleiks
sambandsins og aðalfararstjóri
ísí. landsliðsins skömmu fyrir
förina. Þau voru að sjálfsögðu í
gamni sögð en þessu gamni
fylgdi nokkur alvara, — alvara
sem allir skilja.
Og ættu piltarnir sem gert hafa
ísl. íþróttir frægar á skammri
stund í Þýzkalandi það ekki skil-
ið að fá sómasamlegar aðstæður
til æfinga og keppni. Þeir hafa
sannarlega sýnt með afrekum sín
um að ekki má lengur dragast
að skapa viðunandi aðstæður hér
á landi fyrir þessa grein, sem
hæst ber afrekslega hjá okkar
þjóð.
Jafntefli íslendinga og Tékka
s.l. sunnudag gerði íslarjd frægt
á einum degi. Um alla Evrópu —
og sjálfsagt víðar t. d. í Japan
og Brasilíu þar sem handknatt-
leikur er mikið iðkaður — birt-
ust frásagnir af íslendingum —
liðinu sem mest kom á óvart í
keppninni, — hinni óþekktu stærð
sem skákaði því liðinu sem millj
ónir manna trúðu og trúa enn
að fari með heimsmeistaratitil-
inn með sér heim
Íþróttasíðunni bárust í gær
myndir frá fyrstu tveim leik-
um íslandinganna teknarafHanns
Apfel. Baráttan í undanriðlinum
var hörð og tvísýn. Misheppn-
aður leikur okkar manna gegn
Dönum gat orðið liðinu dýrkeypt
ur. Og sigurinn yfir Sviss hékk
á bláþræði þar sem Sviss hafði
þrjú mörk yfir er komið var
langt fram í síðari hálfleik. En þá
sameinaðist liðið á örlagastund
og lék handknattleik eins vel og
bezt gerizt meðal reyndustu
þjóða í greininni. Þetta var sam-
dóma álit allra blaða og sigur-
inn yfir Sviss var verðskuldaður
þó kæmi á síðustu stundu.
Og í aðalkeppninni hafa fs-
lendingar sýnt að þeir áttu
þangað erindi. Þeir hafa fengið
mjög lofsamlega dóma. Þeir
þykja fastsæknir, harðir í horn
að taka og ákveðnir mjög, hug-
myndaríkir, skyttur góðar og það
sem mest er um vert — þrátt
fyrir allt — nota sér vel stóran
völl til að opna vamir góðra liða
og ná árangri sem vekur athygli
um gervalla Evrópu, svo ekki sé
meira sagt.
Vart er um annað talað hér
heima en góða frammistöðu þessa
liðs og er það að vonum. En
gleymum henni bara ekki strax
aftur. Svona lið þarf bætta að-
stöðu og það helzt áður en þessir
liðsmenn eru hættir keppni og
orðnir gamlir menn. — A. St.