Morgunblaðið - 08.03.1961, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 8. marz 1961
MORGV1SBLAÐ1Ð
23
Loksiris — og þó
♦
EINS CXl kunnugt er hafa
stjórnarandstæðingar í sí-
fellu haldið því fram í umræð
unum um lausn landhelgis-
málsins að undanfömu, að ís
lendingar ættu rétt á miklu
fleiri grunnlínubreytingum en
gert er ráð fyrir í orðsending
unni til brezku stjórnarinnar
og hefðu ekkert þurft að
sækja til Breta í þessum efn
um.
Svo virðist þó sem stjórnar-
andstæðingar hafi ekki haft
mikla trú á þessum fullyrð
ingum sínum, því að þeir hafa
í allan vetur háð fyrir því
harða baráttu á Alþingi, að
gömlu grunnlínurnar frá 1952
yrðu lögfestar.
Og þrátt fyrir það, að ráð-
herrar og stjórnarþingmenn
hafi reynzt nær óþreytandi að
benda þeim á, hve ófiyggilegt
slíkt væri, endurtóku þeir
þessa tillögu sína í nefndará-
liti um lögfestingarfrumvarpið
nú síðast fyrir rúmum hálfum
mánuði.
í útvarpsumræðunum s. 1.
fimmtudagskvöld og í umræð-
unum á Alþingi undanfarna
daga hefur þessi tvöfalda af-
staða þeirra verið dregin ó-
spart fram í dagsljósið, en allt
hefur komið fyrir ekki, þar
til seint í gærkvöldi, að þeim
hugkvæmdist loks að bera
fram breytingartillögur um
grunnlínubreytingar varðandi
samkomulagið við Breta. Ó-
samræmið er þó slíkt, að enn
dettur þeim ekki í ■ hug að
draga til baka fyrra frumvarp
sitt um lögfestingu gömlu
grunnlínanna!
Tveir játa barnsránið
I engu hugmyndina við lestur glæpasogu
Kvikmyndadísin enn
mjög þungt haldin
Nýtt lyf var sent frá New York i gær
ANNECY, Frakklandi, 7.
marz. (Reuter). — Tveir
menn, Pierre Larcher (38
ára) og Raymond Rolland (25
ára), játuðu í dag, að þeir
hefðu í apríl sl. framið barns
rán í París, sem mjög varð
umtalað, og krafizt 100 þús.
dollara lausnargjalds fyrir
drenginn, Eric Peugot (4
ára), sem er sonur bílafram-
leiðandans Rolands Peugot.
Faðirinn greiddi lausnargjald
ið, og drengnum var skilað
aftur, ómeiddum, en síðan
hefir franska lögreglan lagt
sig alla fram við að leita
barnsræningjanna.
þeirri leit lokið.
Nú
er
L.ONDON, 7. marz. (Reuter). —
Kvikmyndaleikkonan Elizabeth
Taylor er enn mjög þungt hald-
in af inflúensunni, en í morgun
sögðu læknar hennar, að henni
hefði greinilega létt talsvert um
nóttina. — Blaðafulltrúi leikkon
unnar, Richard Hanley, tjáði
hins vegar í kvöld fjölda blaða-
manna og aðdáenda hennar, sem
biðu utan við sjúkrahúsið, að
sjúkdómsástandið væri óbreytt
síðan í morgun — og „baráttan“
væri enn upp á líf og dauða. —
Flugvél kom í dag frá New
York með nýtt lyf, sem ætlað
er að vinna á staffylokokkun-
um, hinum harðgeru sýklum, er
valdið hafa lungnabólgunni, en
læknar upplýsa þó, að leikkon-
an sé enn of veikburða til þess,
að vogandi sé að gefa henni
þetta sterkka lyf.
★
1 Fjöldi vina og aðdáenda Liz
hafa komið í sjúkrahúsið, en að- j
eins eiginmanni hennar, söngvar-
anum Eddie Fisher, hefir verið
leyft að koma inn í sjúkrastofuna,
þar sem 7 læknar berjast við að
bjarga lífi leikkonunnar. Stöðug
ur straumur er til sjúkrahússins
af símskeytum, blómvöndum og
öðrum gjöfum frá aðdáendum
víða um heim.
Eddie Fisher, sem vakað hefir
yfir konu sinni nær stanzlaust
síðan hún veiktist sl laugardag,
er nú að vonum orðinn mjög
illa farinn á taugum, og varð að
gefa honum róandi lyf í nótt sem
leið. — í gærkvöldi komu for-
eldrar leikkonunnar til Lundúna,
ásamt kvikmyndaleikstjóranum
Joseph L. Mankiewicz, sem er ná
inn vinur hennar, og stjórnar
myndinni „Kleopötru' sem
tvisvar hefir orðið að slá á frest
vegna veikinda Liz.
+ FJÁRKRÖGGUR
Annar fyrrgreindra manna,
Larcher, skýrði svo frá eftir
handtökuna, að því er lögreglu-
yfirvöldin upplýsa, að hann hefði
fengið hugmyndina að barns-
ráninu, þeggar hann las glæpa-
söguna „Kapt“ eftir bandríska
höfundinn Lionel White. Larcher
kvaðst hafa verið í mjög mikl-
um fjárkröggum um þær mund-
ir og því ákveðið að gripa til
þessa örþrifaráðs. — Mennirnir
tveir sögðu lögreglunni, að eng-
ir aðrir en þeir hefðu tekið
þátt í ráninu. — Lögreglan hef-
ir hins vegar í haldi tvo aðra
karlmenn og danska fegurðar-
dís, Ingelise Bodin, í sambandi
við mál þetta — og munu þau
öll verða kölluð fyrir rétt við
frekari rannsókn þess. Önnur
stúlka, sem handtekin var, hef-
ir verið látin laus, þar sem
sannað þykir nú þegar, að hún
hafi á ekki á nokkurn hátt ver-
ið við barnsránið riðin. — Bíla-
kóngurinn, faðir Erics litla, hef-
ir fengið að sjá hina handteknu,
og hefr tjáð lögreglunni, að
4.240 km.
hroði á klst.
Edwardsflugstöffinnt, Kali-
forníu, 7. marz. fNTB — Reut
er) — Ný gerff af bandarísku
tilraunarflugvélinni X-15, sem
gengur fyrir eldflaugahreyfl-
um náffi í dag 4,240 km hraffa
á klst., sem er 600 km meira
en metiff, sem tilraunarflug-
maðurinn Bob White setti fyr
ir mánuffi, en sú vél hafffi
nokkru veikari hreyfla. White
var einnig viff stýriff í dag.
— • —
Elns og fyrr var X-15 vél-
inni sleppt frá risastórri
sprengjuþotu í mikilli hæð,
og náffi White fyrrgreindum
hraffa meff því aff nota ca.
% af afli hreyflanna, en þá
hitnaði málmurinn í vélinni
svo að ekki var hætt á aff fara
hraffar.
— Vinnuveitendur
•
Framh af bls. 6.
Vinnukaup fyrstu tvær stundirn-
ar eftir að vakt lýkur, hvenær
sem er sólarhringsins, eftir það
næturvinnukaup.
/
Vélgæzla á loftpressu
Inn komí ákvæði, sem taka af
vafa um að vélgæzlumanni á loft-
pressu, sé skylt að vinna önnur
Btörf með gæzlunni.
Brezkur sjómaður síelur
áfengi á Seyðisfírði
SEYÐISFIRÐI, 7. marz. Sl. nótt
var brotizt inn í áfengisverzl-
unina hér á staðnum. Innbrotið
mun sennilega hafa verið framið
um kl. 3, en ekki var eftir því
tekið, fyrr en Hjalti Nielsen, út
sölustjóri, kom í verzlunina kl.
9 í morgun. Sá hann þá verksum
merki, og að um 40 flöskur vant
aði, aðallega af whiskyi.
Um nóttina hafði legið inni
brezkur togari, Dinas frá Fleet-
wood, en eins og skýrt var frá
í Mbl. í gær, kom hann inn með
veikan skipstjóra sinn, sem ligg
ur nú hér í sjúkrahúsinu. Þar
sem sjómennirnir höfðu verið
drukknir i landi kvöldið áður,
féll þegar grunur á þá. Þeir
höfðu og verið með smáóspektir,
stolið skíðasleðum (smáföl var
á), farið í bila og skemmt þá
lítilsháttar. Hinir tveir lögreglu
þjónar staðarins brugðu við,
fengu menn í lið með sér og hófu
leit að áfenginu. Fundu þeir þá
árabát sokkinn skammt frá
bryggjunni, sem togarinn lá við,
og í bátnum 13 flöskur af
whiskyi. Var þá hafin þjófa-
leit í skipinu.
Nokkru eftir hádegi kom stýri
maður, sem bar ábyrgð á skipinu
í fjarveru skipstjóra, að máli við
leitarmenn og vísaði þeim á all
margar flöskur af víni, sem voru
niðri í skipsbotni. Jafnframt
sagði hann einn hásetanna, sem
heitir hinu góðkunna whisky-
nafni Haigh, vera sökudólginn.
Henry Haigh, sem er 32 ára gam
all, játaði þegar í stað fyrir rétti,
að hafa stolið áfenginu. Sagðist
hann hafa brotizt inn í vínbúðina
og tekið með sér 2 kassa af
whiskyi og eitthvað meira. Síð
an tók hann árabátinn trausta-
taki, hlóð hann feng sínum, og
damlaði áleiðis að togaranum.
Komst hann við illan leik til
bryggjunnar, þar sem togarinn
lá, og var kænan þá orðin hálf
full af sjó enda lek og umbúðirn
ar um áfengið rennandi blautar.
Á meðan hann var að koma sjálf
um sér og þýfinu í land, mun
báturinn hafa sokkið. Er hann
nú brotinn og sennilega ónýtur.
Togarinn Junalley kom hér um
hádegið í dag. Einn háseti á
honum hafði skipstjórnarrétt-
indi, og tók hann við stjórn á
Dinas. Létu skipin bæði úr höfn
síðdegis í dag, en sakborningur
situr eftir í gæzluvarðhaldi.
— Sveinn
Frásögn af
fræðsludegi
í frásögn af fræðsludegi sjávar
útvegsins féll í gær niður eftir-
farandi klausa:
Fulltrúar frá Eimskipafélagi
íslands og Skipadeild S.Í.S.
fræddu unglinga um millilanda
siglingar í stofu 5. Þar var kom
ið fyrir glæsilegum skipslíkön-
um og korti sem sýndi allar sigl
ingar ísl. skipa. Einkennisbúnir
yfirmenn voru forstj. fræðslu-
deildanna til aðstoðar og ríkti
mikil gagnkvæm ánægja í þess
ari deild.
hann hafi í þeirra hópi þekkt
aftur manninn, sem hann af-
henti lausnarféð á sínum tíma.
♦ SÓUDU Á BÁÐA BÓGA
Lögregluyfirvöldin hafa upp
lýst, að fylgzt hafi verið ná-
kvæmlega með öllu framferði
þeirra Larchers og Rollands sl.
fjóra mánuði, eftir að þeir tóku
að ausa peningum á báða bóga
í stórum stíl, án þess að vitað
væri til, að þeir hefðu nokkrar
verulegar tekjur. Þannig hefir
t.d. Rolland keypt sér nokkra
„lúxus“-bíla — þar á meðal nýj-
ustu gerðina af Peugot! — Þeir
kumpánar hafa sagt lögregl-
unni ,að þeir eigi nú aðeins eft-
ir um það bil 15 þúsund dollara
af lausnargjaldinu. — Eitt af
því, sem sannfærði lögregluna
um þátt Rollands í barnsrán-
inu, var það, að hann hafði
fengið lánaða ritvél hjá fyrr-
verandi konu sinni nokkrum
dögum áður en Eric litla var
rænt — en á þessa ritvél voru
einmitt rituð bréfin, þar sem
krafizt var lausnargjaldsins fyr-
ir drenginn.
Krefjast
trygginga
af Soames
HULL, 7. marz. — Félag skip
stjóra og stýrimanna á togur
um í Hull hefur nú samþykkt
meff miklum meirihluta aff
krefjast tryggingar brezku
stjórnarinnar fyrir því, aff ís
Iendingar færi ekki út land-l
helgina eftir þrjú ár. Fáistj
ekki trygging Soames, fiski-
málaráffherra, segjast togara-
mennirnir ætla aff berjast1
gegn löndunum islenzkra tog
ara í Bretlandi. — Mikill hiti
hefur veriff í togaramönnum
aff undanförnu vegna sam-
komulagsins viff Ísland og
hafa fundarhöld staðiff í
nokkra daga. — Sama er aff
segja meff skipstjóra og stýri
menn í Grimsby. Þeir hafa
látiff í veffri vaka, aff þeir
muni beita sér gegn löndun
um Islendinga, en ekki hafa
þeir tekiff endanlega ákvörff
un enn.
BEZT AH AUGLÝSA
í MORGUNBLAÐINU
Ég þakka innilega öllum sem minntust mín á áttræð-
isafmælinu. Ég hefði gjarnan viljað þakka hverjum ein-
stökum, en eins og er leyfir heilsa mín það varla.
Kaupmannahöfn, Bredgade 10
Jón Stefánsson, málari
Hjartans þakkir til ykkar £illra, vina og vandamanna
fjær og nær, sem glöddu mig á sjötugsafmælinu 21.
febrúar með heimsóknum og árnaðarkveðjum, blómum
og höfðinglegum gjöfum.
Lifið öll heil.
Kristín J. Sigurðardóttir
Móðir okkar
ÞÓRA EIRlKSDÓTTIR
andaðist 7. marz að heimili sínu Skerseyrarvegi 2, Hafn-
arfirði,
Guðiaug Magnúsdóttir, Guðrún E. Magnúsdóttir
SIGURÐUR STEINSSON
frá Keldu, Reykjarfjarðarhrepp, N-ísafjarðsarsýslu
andaðist á Landspítalanum í Reykjavík 6. þ.m. — Minn-
ingarathöfn verður í Fossvogskirkju, föstudaginn 10.
marz kl. 10,30 f.h.
Aðstandendur
Jarðarför föður míns, tengdaföður og bróður
GARÐARS H. STEFANSSONAR
sem andaðist að Landakotsspítala 27. febrúar fer fram í
Fossvogskirkju fimmtudaginn 9. þ.m. 10,30 f.h.
Einar Þór Garðarsson, Kristín Guðlaugsdóttir
Geir Stefánsson, Hjálmar Steindórsson,
Okkar hugheilu þakkir öllum þeim er sýndu okkur
vinarhót og samúð við andlát og útför mannsins míns
föður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR EGILS KRISTJÁNSSONAR
Jónína Hermannsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn
Alúðar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vin-
áttu við andlát og útför
RÓSU FINNBOGADÓTTUR
kennara
Sérstaklega þökkum við dr. Óskari Þórðarsyni, öðr-
um læknum og starfsliði Bæjarspítalans, frábæra hjúkr-
un og umönnun í hinum löngu veikindum hennar.
Ágúst Atli Guðmundsson, Auður Pálsdóttir,
Sigríður Finnbogadóttir, Guðríður Finnbogadóttir
Svanhvít Sigurðardóttir, Gisli Páisson,
Guðríður Guðmundsdóttir,