Morgunblaðið - 21.03.1961, Side 3
Þriðjudagúr 21. marz 1961
MORGUNBLAÐIÐ
3
að geta
hiklaust
Mikill munur
tekið skipin
— sagði Þórarinn Bjórnsson,
skipherra á Þór
TOGARINN Othello H 581 frá
Hull lá utan á Þór við Austur-
garðinn í gærmorgun, er við
komum niður á bryggju. Skip-
in voru nýkomin inn. Lög-
regluþjónar voru um borð í
togaranum, sem er 600—700
lesta kolaskip frá Hellyers
skipafélaginu
— Það er ekki nokkur vafi
á að hann var fyrir innan
mörkin á Selvogsbanka,
meira að segja innan við
gömlu 12 mílna mörkin, sagði
Þórarinn Björnsson, skip-
herra á Þór, er við hittum
hann um borð.
Þórarinn, sem tók þennan
fyrsta brezka togara við ólög-
legar veiðar eftir að Bretar
viðurkenndu 12 mílna mörkin,
tók einnig fyrsta brezka tog-
arann í landhelgi eftir að
fjögurra mílna mörkin voru
sett 1952. Það var York City
frá Grimsby, og urðu í því
máli þriggja daga réttarhöld
í Reykjavik.
Þórarinn skýrði svo frá að
milli kl. 4 og 5 síðdegis á
sunnudag hafi Þór komið að
togaranum Othello að veiðum
með trollið úti norðan við
Geirfugladrang. Þá var vonzku
veður 6—9 vindstig og mikill
sjór
— Við settum út dufl, og
sendum þrjá menn í gúmmí-
bát yfir í togarann. Hefðum
við ekki haft gúmmíbátinn, þá
hefðum við ekki komizt um
borð. Þeir eru mikið þarfa-
þing, sagði Þórarinn.
Togaramenn tóku bátinn
upp og létu herskipið Puma
vita hvernig komið var, en
það var statt vestan við Bjarg.
Herskipið óskaði eftir að mæla
staðinn og Þórarinn féllst á
að bíða eftir því. En um ellefu
leytið voru varðskipsmenn
búnir að missa af duflunum og
þá var enginn ástæða til að
bíða, að því er Þórarinn sagði
Herskipinu var tilkynnt um
það og það sagði skipstjóran-
um á togaranum að hlýða Þór
og fara með honum inn.
^ — Það er geysilegur munur
fyrir okkur sem réttargæzlu-
menn að geta tekið togarana
alveg hiklaust, sagði Þórarinn
Björnsson. Þetta gátum við
ekki gert áður en samkomulag
náðist. Togararnir keyrðu þá
bara blákaldir út og kölluðu
á herskipin. Næðist ekki til
þeirra, komu hinir bara á vett-
vang og ætluðu að keyra á
okkur. Þeir hafa víst séð
stærri byssur en okkar
— Er erfitt fyrir fiskiskipin
að staðsetja sig þarna?
-— Ekki ef þau hafa góða
ratsjá.
— Hafið þið áður komizt
í kast við þennan togara?
— Við þekkjum skipið úr
þorskastríðinu, en ég veit ekki
hvort sami skipstjóri er á h.on-
um. Ég hefi ekki sjálfur talað
við hann, því veðrið var svo
slæmt að illfært var milli skip
anna. En ég held að hann hafi
fallizt á að hann væri ekki
á réttum stað, þegar okkar
menn komu um borð.
Vil ekki lenda í klandri
Skipstjórinn á Othello, Rii.
í Sakadómi Reykjavíkur í
gær: Dómendurnir við borð-
ið, Pétur Björnsson, skipstjóri,
Valdimar Stefánsson, sakadóm
ari og Jónas Jónsson skip-
stjóri. — Gengt þeim við borð-
ið eru Taylor skipstjóri, og
hönd undir kinn styður dóm-
túlkurinn Snæbjörn Jónsson.
— Bak við Taylor sést Bjarni
Helgason fyrsti stýrimaður á
Þór. — (Ljósm.: Ó. K. M.).
Richard Taylor
I
'I
Þelr voru ekkert hrlfnir af því að vera komnir í höfn í Reykjavík í stað þess að draga fisk úti
á Selvogsbanka þesssir brezku sjómenn á Othello m m m m_
hard Taylor að nafni, er mynd
arlegur ungur maður, 29 ára
gamall. Hann var niðri í káetu
sinni með sjókortið fyrir fram
an sig. Brian Holt, ræðismaður
Breta var að fara frá honum,
er við komum um borð.
— Sjáið þið, ég er með nýju
línurnar merktar hér inn á
kortið, sagði hann og benti
á sjókortið sitt. Við fórum frá
Bretlandi á sunnudegi og á
laugardag höfðu þær gengið í
gildi.
— Við vorum að veiðum
lVz sjómílu fyrir utan mörkin
og í nánd við okkur svona einn
tugur brezkra togara Ég
hafði sett út gott dufl og tog-
aði út frá því.
— Ég hef aldrei lent í
klandri af neinu tagi, og kæri
mig ekki um að lenda í neinu
Ég var svo viss um að ég væri
í fullum rétt, að ég sagði við
strákana þegar varðskipið
kom: „Þeir eru í eftirlitsferð“.
Og svo skiptum við okkur ekk
ert af þeim. Varðskipið setti
út dufl, en svo liðu 45 mínútur.
Það var V-NV vindur og bæði
duflið og skipið rak inn. Þá
settu þeir út annað dufl, en
það hefur líka rekið inn. Við
létum herskipið vita og það
ætlaði að koma. En klukkan
11 kölluðu þeir á okkur og
Framh. á bls. 23-
STAKSTEIMAR
Hvað segja bændur um
kommúnisma
Framsóknar?
Séra Gunnar Gíslason ræddi
m.a. um það í útvarpsræðu sinni
um vantrauststillögu stjórnar-
andstöðunnar um dagipn, hver af
staða bænda væri til kommún-
istadekurs Framsóknarflokksins.
Komst hann þá> m.a. að orð'i á
þessa leið:
„Og ég spyr: Hvað segið þið
bændur og búalið, sem til þessa
hafið fylgt Framsóknarflokknum
að málum? Er ykkur það fagnað-
arefni að forystulið ykkar geng-
ur til liðs með kommúnistum til
þess að viðhalda illindum milli
okkar og einnar mestu lýðræðis-
þjóðar heims, þjóðar sem við um
langan aldur höfum haft góð
samskipti og viðskipti við, þar til
þessi deila bar skugga á? Er ykk-
ur það fagnaðarefni að forystu-
lið ykkar er með framferði sínu
vitandi eða óvitandi að leiða ykk-
ur inn fyrir járntjald kommún-
ismans? Nei, ég veit að ykkur er
þetta áhyggjuefni en ekki gleði-
efni. Allt kommúnistadekur er
fjarlægt vilja og hugsunarhætti
íslenzkra bænda, enda vita þeir
hvað þeirra bíður, ef ríki komm-
únismans kæmist hér á“.
Ótrúlegt er að bændur iniran
Framsóknarflokksins leggi bless-
un sína yfir þetta framferði Fram
sóknarleiðtoganna. Berast fréttir
af því víðs vegar frá af landinu,
að mikil óánægja ríki meðal
Framsóknarmanna með frain-
komu flokksforystu sinnrar.
Þingslit fyrir páska
Það mun áform ríkisstjórnar-
innar að Alþingi Ijúki störfum
sínum að þessu sinni fyrir pá.ska.
Mun nú verða lögð áherzla á að
hraða afgreiðslu þeirra mála, sem
nauðsynlegt er að gangi fram. Eru
enn allmörg mál, sem eftir er aff
afgreiða, en allar líkur beirda þó
til að þingið ætti að geta lokiff
störfum sínum í þessum mánuði.
Ef það tekst verður þetta þing
allmiklu styttra en þing undan-
farinna ára. Er það vissulega vcl
farið. Alþingi hefur oft setið vik-
um og jafnvel mánuðum saman
aðgerðalítið. Núverandi ríkis-
stjórn hefur hins vegar tekizt aff
'uirdirbúa mál sín svo vel og
leggja þau það snemmta fyrir
þing, að þinghald hefur ekki taf-
5zt úr hófi fram.
Eldhúsdagsumræður munu
væntanlega fara fram áður en
þingi verður slitið. Mun þeim
samkvæmt venju verða útvarp-
að. Verður því ekki annað sagt
en útvarpshlustendur hafi átt
þess góðan kost að fylgjast með
þingstörfum, þar sem betta eru
þriðju útvarpsumræðurnar á
skömmum tíma.
Kommúnistar
í miklum vanda
Kommúnistar eru mi í miklum
vanda staddir. Þeir finna, að yfir-
gnæfandi meirihluti þjóðarinnar
fagnar lausn landhelgisdeilunn-
ar og telur að ríkisstjórnin hafi
haft um hana farsæla forystu.
Æsingar og uppná.m kommúirista
í þessu máli falla því í gryttan
jarðveg.
Við þetta bætis-t svo það, að
mikil andúð ríkir meðal almenn-
ings gegn hinu pólitíska verk-
fallsbrölti kommúnista. Kom
það greinilegast í Ijós í Iðju-
kosningunum, þar sem kommún
istar fóru hinar herfilegustu
hrakfarir.
Þegar á allt þetta er litið finna
kommúiristar að aðstaða þeirra
er mjög veik um þessar mundir.
Verður því að teljast ólíklegt,
að þeir áræði að leggja út í trek-
ari verkfallsævintýri að sinni.