Morgunblaðið - 22.03.1961, Qupperneq 1
24 síður
18. árgangur
67. 'tbl. — Miðvikudagur 22. marz 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vesturveldin reyna
samningsvilja Rússa
Dean leggur fram nýjar tillögur
á ráðstefnu um bann vid
atómtilraunum
\
GENF, 21. marz. (Reuter).
— Stórveldaráðstefnan um
bann við atómvopnatilraun-
um hófst í dag að nýju í
. Þjóðabandalagshöllinni eftir
15 vikna fundarhlé. Er þetta
fyrsta ráðstefna Austurs og
Vesturs síðan Kennedy tók
við völdum í Bandaríkjun-
um.
Fulltrúi Bandaríkjanna Art-
hur Dean tók fyrstur til
máls. Flutti hann ræðu með
nýjum tillögum Vesturveld-
anna, sem fólu í sér enn
frekari eftirgjöf þeirra gagn
vart Sovétríkjunum en áður
var orðið.
Dean sagði að tillögur
þessar væru mikilvægt fram
lag Vesturveldanna, sett
fram af einlægni og í þeirri
von, að takast mætti skjót-
lega að ná samkomulagi um
bann við kjarnorkuvopnatil-
raunum.
I lok ræðu sinnar lýsti
Dean því yfir, að Banda-
ríkjamenn hefðu ekkert að
fela. Þeir vildu leyfa Rúss-
um að skoða öll tæki sín í
sambandi við kjarnorkutil-
raunir og vera viðstaddir
hverjar þær tilraunir sem
framkvæmdar yrðu í vísinda
legum tilgangi.
• Bilið mjókkar
Eftirgjafirnar í tillögum Vest-
urveldanna eru þessar að sögn
Arthur Deans:
1) Vesturveldin fallast á að
kjarnsprengjutilraunir neðan-
jarðar verði bannaðar næstu
þrjú ár. Áður vildu Vesturveld-
Leitað að
stúlku
i t ALLA fyrrinótt leituðu lög
reglan í Reykjavík, hjálpar-
sveit skáta og leitarsveit- Slysa
vamarfélagsins að ungri
stúlku, sem talin var ástæða
til að óttast um.
Leitin var hafin um mið-
nættið og leitaðir allir vegir
í nágrenni bæjarins, en und
ir morgun fannst bifreið
stúlkunnar í Keflavík. Var
hún þar hjá islenzku kunn-
ingjafólki sínu, og ekkert að
henni.
in takmarka bannið við tvö ár,
en Rússar fjögur til fimm.
2) Framkvæma má 20 eftirlits-
aðgerðir árlega í Bretlandi og
Bandaríkjunum hvoru fyrir sig
og 20 eftirlitsferðir í Sovétríkj-
unum. Áður höfðu Vesturveldin
stungið upp á að heimilar eftir-
litsferðir, yrðu 20 samanlagt í
Bretland og Bandaríkjunum. í
fyrra vildu Rússar aðeins leyfa 3
eftirlitsferðir á ári í Sovétríkjun-
um.
3) I»á fallast Vesturveldin á
þá tillögu að skipuð verði eft-
irlitsnefnd ellefu þjóða og eigi
sæti í henni fjórir fulltrúar frá
Vesturveldunum, fjórir frá Rúss-
landi og þrír frá hlutlausum
þjóðum.
4) Einnig fallast þau á að fækka
eftirlitsstöðvum í Sovétríkj unum
úr 21 í 19, en Rússar höfðu áður
fallizt á 15 eftirlitsstöðvar þar.
Framh. á bls. 23.
Bandaríkjanna. Dean á sæti í
stjórnum fjölmargra fyrir-
tækja og í stjómum banda-
rískra og alþjóðlegra lögfræði
félaga. Hann var sérfræðing-
ur í löggjöf um alþjóða fjár
mál.
Þegar Dulles félagi hans
varð utanríkisráðherra 1953
leið ekki á löngu áður en hann
fól Dean ýmis ábyrgðarstörf
á sviði utanríkismála og má
þar sérstaklega nefna að hann
var fulltrúi Bandaríkjanna í
vopnahléssamningum í Kóreu.
Á landhelgisráðstefnunni í
Genf kom Arthur Dean mönn
um þannig fyrir sjónir, að
hann væri skjóthuga og skap-
Kunningi í Cenf
FULLTRtfl Bandaríkjanna á ríkur og duglegur samninga
ráðstefnu þeirri sem nú er maður, en hvorki virtist hann
hafin í Genf um bann við andríkur ræðumaður né sér-
kjarnorkuvopnatilraunum, lega rökfastur í viðræðum.
heitir Arthur H. Dean. Hann Það var talið að hann hefði
er íslendingum áður nokkuð sýnt mikinn dugnað í að
kunnur, því að hann var aðal safna atkvæðum um banda-
fulltrúi Bandarikjanna á land rísk-kanadisku málamiðlunar-
helgisráðstefnu í Genf á s.1. tillöguna, en þó urðu úrslit
ári og kom þar mikið við sögu. lokaatkvæðagreiðslunnar þá
Dean er nú 63 ára að aldri. honum mikill ósigur, þvi að
Hann er meðal kunnustu lög þjóðir sem hann hafði talið
fræðinga í Bandaríkjunum. Á öruggar með tillögunni sner
yngri árum gerðist hann mál- , . __ , _ . ,
flutningsfélagi John Foster USt gegn henn‘ a slðustu
Dulles og ráku þeir eina fræg stundu »g vantaði eitt atkvæði
ustu málflutningsskrifstofu upp á lögmætan meirihluta.
Gromyko ræðst ákaft
á Hammarskjötd
NEW YORK, 21. marz (NTB).
— 1 dag hófust umræður í Alls-
herjarþingi SÞ um Kongó-mál-
þar til tiðinda,
ín.
Bar
Baráttan harÖnar í
Verkam.ilokkn um
LONDON, 21. marz. (Reut-
er). — Deilurnar í brezka
Verkamannaflokknum eru
komnar á nýtt stig og hafa
aldrei risið hærra en ein-
mitt nú. Er nú talið, að Gait
skell sé í meiri hættu
nokkru sinni fyrr.
en
3 mán, fangelsi
í meiðyrðamáli
Strangur dómur í Hjalf-málinu
Hæstlréttur Dana kvað nýlega
upp dóm í hinu svonefnda Hjalf-
máli. Martin Nielsen ritstjóri
kommúnistablaðsins Land og
Folk hlýtur í þessum dómi ein-
hverja ströngustu refsingu, sem1
um getur í meiðyrðamáli. Stafar
það af því árásir og ærumeiðing-
ar komuúnistablaðsins voru ákaf-
lega alvarlega eðlis.
Ritstjóri kommúnlstablaðsins
er dæmdur í 3 mánaða fangelsi
óskilorðisbundið. Hann verður að
greiða Viggo Hjalf herforingja
25 þúsund danskiar krónur eða
um 137 þúsund ísl. kr. Auk þess
verður hann að greiða 8 þús. d.
kr. í málskostnað fyrir Hæsta-
rétti.
• Sakaður um svik
Aðalatriði Hjalfs-málsins að
Land og Folk hó^ mikla árásar-
herferð gegn Viggo Hjalf, einum
æðsta foringja danska hersins.
Sakaði blaðið hann um svik gegn
dönsku neðanjarðarhreyfingunni
Framh. á bls. 23.
Brottrekstur fimm þingmanna,
þeirra Michael Foots og félaga
í s.l. viku hefur kveikt ófriðarbál
ið að nýju meðal flokksmanna
um helgina og hefur birzt áskor
un 76 þingmanna Verkamanna-
flokksins til Gaitskells og flokks
forustunnar um að taka Michael
Foot og fjóra félaga hans aftur
inn í þingflokkinn. Askorun
þessa telja margir jafngilda al-
gerri uppreisnaryfirlýsingu,
vegna þess að endurupptaka þing
mannanna kemur ekki til greina
nema því fylgi lítillækkun fyrir
flokksforustuna.
Það hefur vakið sérstaka at-
'hygli, að í hópi þeirra sem und
irrituðu áskorunarskjalið til
Gaitskells eru ekki aðeins vinstri
sinnaðir stuðningsmenn Michael
Foot, heldur sjást þar menn úr
hægri armi flokksins eins og
Chuter Ede, fyrrum innanríkis
ráðherra. Þar er og Emanuel
Shinwell fyrrum landvarnaráð-
herra Bretlands.
Hér virðist því vera meira á
seiði en uppreins vinstriseggja.
Málgagn brezka Verkamanna-
flokksins sagir j morgun, að
deilan fjalli ekki lengur ein-
vörðungu um kjarnorkuvopn,
heldur snúist hún einfaldlega um
það hverjir eigi að fara með
forustu flokksins.
Það má heita viðtekin regla,
ef einhverjir þingmenn eru rekn
Framh. á bls. 23.
að Gromyko utanríkisráðherra
Rússa réðist heiftarlega á Hamm
arskjöld. Endurtók Rússinn
kröfur Krúsjeffs um að Hamm-
arskjöld yrði vikið úr embætti
og i stað hans skipuð þriggja
manna framkvæmdanefnd með
fulltrúa frá Austri, Vestri og
hlutlausu ríki. Þá krafðist hann
þess að þeir Thsombe og Mo-
butu í Kongó yrðu þegar hand-
teknir.
Bandarískur leppur
Gromyko staðhæfði að Hamm
arskjöld væri aðeins skutilsveinn
Bandaríkjamanna í samtökunum
og seta hans í embætti fram-
kvæmdastjóra spillti möguleik-
unum á samkomulagi milli
Austurs og Vesturs í alþjóða-
málum.
Ef Hammarskjöld fær að
sitja áfram í þessu embætti,
sagði Gromyko, þá fer svo á
endanum, að hann m- í stór-
læti að líta á sjálfan sig sem
forsætisráðherra heimsins og
jafnvel segja við sjálfan sig: —
Sameinuðu þjóðirnar, — það er
ég.
Andi kalda stríðsins
Á eftir Gromyko tók Adlai
Framh. á bls. 23.
95 lestir
AKRANESI, 21. marz. Allir bát
arnir eru á sjó hér í dag, utan
einn, Höfrungur I, sem er að
steina niður þorskanetin og hætta
á línunni. í gær fiskuðu bátarnir
alls 95 lestir. Aflahæstur var
Sigurvon með 9,5 lestir.
Hér liggur ms. Helgafell við
hafnargarðinn og lestar harðfisk.
—Oddur
Botvinnik
vinning yfir
ANNARRI skákinni í heimsmeist
araeinvíginu lauk á laugardag
með sigri Tals. Skák þessi var
sviplaus og vann Tal fremur á
aðgerðarleysi Botvinniks en að
hann hefði sjálfur teflt svo vel.
í byrjuninni virtist Botvinnik
ná heldur betri stöðu, en honum
urðu á nokkur óskiljanleg mis-
tök, svo engu var líkara en hann
væri utan við sig, og fékk Tal
betri stöðu við það. Botvinnik
gerði nú aftur tilraun til að ná
frumkvæðinu, en komst við það
í tímahrak og gerði enn fleiri
skyssur.
Eftir aðra skákina voru þeir
Tal og Botvinnik því jafnir, hvor
með sinn vinninginn.
Ríkisútvarpið skýrði frá því í
gærkvöldi, að Botvinnik myndi
hafa unnið þriðju skókna og hef
ur hann þá einn vinning yfir.
Atakanleg
réttarhöld
SYDNEY, 21. marz. Barnsránið
í Ástralíu í júlí s.l. er nú rifjað
upp fyrir réttinum. Eru þetta
mjög átakanlegar stundir, eink-
um fyrir foreldra drengsins sem
rænt var, en þeir eru viðstaddir
réttarhöldin yfir ræningjanum
Stephen Bradley.
í dag bar lögregluþjónn vitni
um hótun barnsræningjans í
síma við móður drengsins. Hafði
lögregluþjóninn hlustað og heyrt
ókunna rödd segja: „Ég vil fá 26
þús. pund fyrir kl. 5. Ef ég ekki
fæ þau kasta ég drengnum fyrir
hákarlana.