Morgunblaðið - 22.03.1961, Page 2
*
2
MORCVWBLAÐIÐ
Miðvilíudagur 22. marz 1961
Ágætur fundur
Sjálfstæðismanna
í Mýrarsýslu
FUIXTRÚARÁÐ SJÁFSTÆÐISFÉLAGANA í Mýrasýslu hélt
fund í Borgarnesi s.l. mánudagsskvöld kl. 9 Fundurinn var fjöl-
sóttur og voru fulltrúar mættir víðast að úr sýslunni, þrátt
fyrir erfiðar samgöngur um þessar mundir.
Skipulagsmál og vegamál
Fundarstjóri, Símon Teitsson
í Borgarnesi, bauð fundarmenn
velkomna og raeddi síðan nokk
uð um störf fulltrúaráðsins, en
gaf síðan framsögumanni fundar
ins, Ásgeiri Pétunssyni deildar-
stjóra orðið.
í upphafi ræðu sinnar skýrði
Ásgeir Pétursson frá þróun sam
göngumálanna í Mýrasýslu.
Ræddi hann almennt um áhrif
samgöngubóta á afkomu fólks og
sýndi fram á hve vegamálin eru
þýðingarmikill þáttur í afkomu
manna. Sagði hann að enn væru
fjöldi bæja í Mýrasýslu, sem ekki
væri kominn í vegasamband.
Gerði hann og grein fyrir því í
aðalatriðum hvar í sýslunni á-
standið væri verst í þessum efn
um. Benti Ásgeir á að ekki væri
við því að búast að fólk gæti til
lengdar unað því, eins og búskap
arhættir eru orðnir, að búa við
vegleysur og mætti því gera ráð
fyrir að fólk kynni að flosna upp
af heimilum sínum, ef eigi væri
reynt að bæta úr þessu sem fyrst,
Síðan gerði ræðumaður grein
fyrir fjárveitingum, sem til
vega hefðu fengizt á undanföm
um árum og hvernig þær hefðu
verið notaðar. Skýrði hann frá
því að nú væri í ráði að hefja
brúargerð á Norðurá hjá Króki
á vori komanda, en þá myndu
skapast skilyrði til þess að leggja
veg með Norðurá að sunnanverðu
og kæmi því „hringvegur“ í Norð
urárdal. f>á var og gerð grein
fyrir ýmsum smærri framkvæmd
um, sem áformaðar eru.
Sagði ræðumaður loks um vega
málin að æskilegt væri að sem
nánust samvinna væri innan
Vesturlandskjördæmis um þessi
mál, þannig að fyrst yrði leyst
úr þar sem skórinn kreppir helzt
að.
í niðurlagi ræðu sinnar ræddi
Ásgeir Pétursson um félagsmál
og skipulagsmál Sjálfstæðis-
Ráðstefnu Vöku
lýkur á föstu-
dagskvöld
Eins og kunnugt er, hélt
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, ráðstefnu hér í bæn
um um s.I. helgi, þar sem tekn
ir voru til umræðu nokkrir
þýðingarmestu þættir þjóð-
málanna og málefni stúdental
og háskólans. Ekkí reyndist
unnt að Ijúka ráðstefnunni á
sunnudagskvöld, eins og áform
að hafði verið, þar eð eftir
var að afgreiða álit einnar
nefndar, utanríkisnefndar.
Verður álit nefndarinnar
tekið til afgreiðslu á fundi á
föstudagskvöld og ráðstefn-
unni þá slitið. Fundurinn verð
ur haldinn í Tjarnarkaffi uppi
og hefst kl. 20,30. Fulltrúar
eru hvattir til að mæta stund
víslega.
Yfirlýs
'sing
VEGNA frétta í dagblöðum
bæjarins af aðalfundi Sjó-
mannadagsráðs vil ég undir-
ritaður f. h. stjórnar Sjómanna-
dagsráðs taka það fram, að
fréttimar eru ekki frá mér
eða stjóminni komnar.
Harmar stjórnin fréttaflutn-
ing sumra dagblaðanna, en
hún mun bráðlega senda þeim
fréttatilkynningu af fundinum.
Einar Thoroddsen.
flokksins í Mýrasýslu og í Vest
urlandskjördæmi í heild.
Umræður um nefndakjör.
Að framsöguræðunni lokinni
hófust almennar umræður. Til
máls tóku Símon Teitsson vél-
smiður í Borgarnesi, Bjarni
Helgason garðyrkjubóndi, Varma
landi, Tómas Hallgrímsson hrepp
stjóri Álftaneshrepps, Borgar-
nesi, Þorleifur Grönfelt, kaup-
roaður Borgarnesi, Kristófer Þor
geirsson garðyrkjuroaður, Varrna
landi, Helgi Helgason bóndi,
Þurustöðum, Hörður Jóhannes-
son lögreglumaður, Borgarnesi,
Eyvindur Ásmixndsson verzlunar
maður, Borgarnesi, Björn Ara-
son kennari, Borgarnesi, Þor-
steinn Sigurðsson bóndi, Brúar-
reykjum og Eggert Einarsson hér
aðalæknir, Borgarnesi.
Að umræðum loknum var tek
in upp sú nýbreytni í sambandi
við störf fulltrúaráðsins að kosn
ar voru tvser starfsnefndir til
þess að athuga og gera tillögu
um vegaroál og skipulagsmál.
Hlutverk vegamálanefndar verð
ur að semja skýrslu um vega-
mál í sýslunni og gera tiliögur
um úrbætur. í nefndina voru
Framh. á bls. 23.
, TÍMINN OG VIГ eftir J. B.|
Priestley gengur enn hjá Leik
félagi Reykjavíkur, við góða
aðsókn. í kvöld kl. 8,30 er 29.
sýningin. — Á meðfylgjandi
mynd eru þau Þóra Friðriks-
dóttir og Gísli Halldórsson í
hlutverkum sínum.
Sumarleikhúsið:
Allra meina bót
//
NK föstudagskvöld frumsýnir
sumarleikhúsið í Austurbæjarbíói
nýjan íslenzkan gleðileik með
söngvum og tilbrigðum — Allra
meina bót. Höfundarnir kalla sig
Patrek og Pál. Leikurinn er með
söngvum og eru lögin eftir Jón
Múla Árnason en Magnús Xngi-
marsson hefur útsett þau. Leik-
stjóri er Gísli Halldórsson en
með aðalhlutverk fara, auk hans,
Brynjólfur Jóhannesson, Kristín
Anna Þórarinsdóttir, Steindór
Hjörleifsson, Árni Tryggvason og
Karl Guðmundsson, en alls eru
leikendur tólf að tölu.
Hljómsveitarstjóri er. Jón Sig-
urðsson trompetleikari en aðrir
hljóðfæraleikarar: Þorvaldur
Steingrímsson, Jóhannes Eggerts
son, Jón Möller og Hjörleifur
Björnsson. Leiktjöld eru eftir
Steinþór Sigurðsson listmálara.
Leikurinn er í þremur þáttum
gerist í Reykjavík vorra daga og
„fjallar um ýmis mannleg mein
og mörg þeirra ævaforn".
Frumsýning verður, eins og
fyrr segir, á föstudaginn kemur
24. marz kl. 23.30. Aðgöngumiða-
sala hefst kl. 2 í dag í bíóinu.
Stjórnarflokk-
arnir sigruðu á
Blönduósi
SÍBASTA sunnudag fór fram
sýslunefndarkosning á Blönduósi.
Var það aukakosning, vegna þess
að bæði aðal- og varasýslunefnd-
armenn voru fluttir burt úr
sýslunni. Tveir listar voru í fram
boði. Annar studdur af Sjálfstæð
ismönnum og Alþýðuflokksmönn
um. Hinn af Framsóknarmönn-
um og kommúnistum,. Listi stjórn
arflokkanna sigraði með 33 at-
kvæða meirihluta og voru kosniri
Hermann Þórarinsson, hrepps-
stjóri, aðalmaður og Guðmann
Hjálmarsson húsgagnasmiður,
varamaður.
Viiistrisinnar
sækja á
VIENTIANE, 21. marz. Herstaða
hægrisinna í Laos fer nú mjög
versnandi. í dag tilkynnti stjórn
þeirra í Vientiane að herlið
hinna vinstri sinnuðu Pathet-
Laomanna sækti fram í áttina
til Mekong-fljóts og væru fram
varðarsveitir þeirra komnar til
bæjarins Kam Keur, aðeins 60
km frá fljótinu. Með þessari sókn
eru vinstrisinnar að reka fleyg
milli hersveita hægrisinna
Þorsíeinn Þorskabítur
jjm • r • f • •
og Þjoðvsl§snn
ÞAÐ er vissulega ánægjulegt að
verða þess áskynja, að dagblöð
höfuðstaðarins hafa áhuga á
atvinnumálum strjálbýlisins, þó
að oft virðist skorta á skilning í
þeim efnum.
f sunnudags- og þriðjudags-
blaði Þjóðviljans er rætt um tog
arann Þorstein Þorskabít — og
væntanlega viðgerð á skipi og
vél, en togarinn fór til Englands
seinni hl. desembermán., þar sem
flokkunarviðgerð á honum
átti að fara fram. Fór togarinn
fullhlaðinn af saltfiski á vegum
Sif. — og gerðu eigendur skips-
ins sér vonir um að viðgerð gæti
hafist skömmu eftir að skipið
hefði losað saltfiskinn. Það er
rétt hermt hjá Þjóðviljanum, að
eigendur togarans höfðu loforð
fyrir láni í Englandi til greiðslu
á viðgerðarkostnaðinum, ef viss-
um skilyrðum yrði fullnægt.
Allar ásakanir Þjóðviljans á
hendur Gunnari Thoroddsen,
í GÆR var hlýtt um allt land,
eða 6—10 stig á láglendi um
hádegið. Hlýjast var austan
lands og á Dalatanga við Seyð
isfjörð var hitinn 11 stig um
morguninn. Lægðin milli Vest
fjarða og Grænlands var á
hreyfingu austur fyrir norðan
land. Köldu skilin á Græn-
landshafinu fylgdust með, svo
að horfur voru á, að ekki yrði
eins hlýtt í veðri í dag.
í Vestur-Evrópu er komin
norðan átt, svo að þar hefur
kólnað í bili. Gekk á með
skúrum og krapaéljum í Hol-
landi og V-Þýzkalandi í gær.
Veffiurspáin kl. 10 í gærkvöldi
SV-land til Vestfjarða og
miðin: Allhvass vestan og SV,
smáskúrir en bjart á milli.
Norðurland, norðurmið og
NA-mið: Hvass vestan og
sums staðar skúrir í kvöld og
nótt, hægari SV og léttskýjað
á morgun.
NA-land, til SA-lands, Aust
fj.mið og SA-mið: Allhvass
vestan eða NV í nótt, hægari
á morgun, víðast léttskýjað.
600 lestum
minnn en í fyrru
FRAM til 15. marz lögðu bátar
upp 6078 lestir af fiski í Keflavík,
eða rúmum 600 lestum minna en
á sama tíma í fyrra. Af þessum
afla fiskuðu línubátar 5069,7 lest-
ir í samtals 795 róðrum, netabát-
ar 714,6 lestir í samtxals 120 róðr
um og aðkomubátar lögðu á land
293,7 lestir. Aflahæstur línubát-
ar var Fram með 289,4 lestir, en
af netabátum var Ólafur hæstur
með 142 lestir. Á þessum tíma
reru 29 bátar á línu og 11 bátar
með þorskanet.
Afli Sandgerðisbáta var á þess-
um tíma 3556 lestir í 476 róðrum,
og síldarafli 872,5 lestir. Mesta
síld hafði Víðir II. eða 339 lestir
(og að auki 121,3 lestir af öðrum
fiski). Mest af öðrum fiski en
síld hafði Hamar 332,8 lestir (var
ekki á síld).
Grindavíkurbátar höfðu 4055,6
lestir af fiski á þessum tíma í 529
róðrum. Aflahæstur er Hrafn
Sveinbjarnarson með 270,3 lestir.
Frá Grindavík reru 25 bátar.
fjármálaráðherra, um loforð
hans til eigenda togarans um á-
byrgð ríkissjóðs eða aðra fyrir-
greiðslu, vegna viðgerðar á tog-
aranum í Englandi, eru uppsþuni
frá rótum.
Þá er það hrein fjarstæða af
blaðinu að halda því fram, að við
reisnarráðstafanir ríkisstj órnar-
innar hafi orðið þess valdandi,
hversu erfið afkoma skipsins
reyndist á árinu 1960. Óvenjulegt
aflaleysi alls togaraflotans á sl.
ári, svo og 90 daga stöðvun Þor-
steins Þorskabits, vegna vélabil-
unar, olli þeim fjárhagslegu eríið
leikum, sem eigendur togarans
eiga nú við að stríða. Það er
vissulega ekki til hagsbóta fyrir
fólkið í strjálbýlinu — eða væn-
legt góðu málefni til sigurs —
er slíkum áróðri er haldið uppi,
eins og Þjóðviljinn lætur sér
sæma, í þeim eina tilgangi að ná
sér niðri á pólitískum andstæð-
ingi. Slíkar greinar væru betur
óskrifaðar.
Sig. Ágústsson.
Tannlæknmgar
skólabarna
Blaðinu hefir borizt eftir-
farandi frá Tannlæknafélagi
íslands:
VEGNA auglýsingar stjómar
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur um tannlækningar fyrir
l|&>kvísk skólaböm, er birzt hef
<«r í dagblöðunum, biður Tann-
læknafélag íslands yður, herra
ritstjóri vinsamlegast að birta
eftirfarandi athugasemdir i
blaði yðar.
1. Tannlæknafélagið á engan
þátt í þessari tilhögun og er
hún gerð án samþykkis félags-
ins.
2. Skólabörn hafa engan for-
gangsrétt á einkatannlækninga-
stofum umfram aðra sjúklinga.
3. Hvort fyrirkomulag þetta,
sem stjórn Heilsuverndarstöðv-
ar Reykjavíkur hefur auglýst,
sé ákjósanlegt fyrir tannað-
gerðir reykvískra skólabarna
skal ekki rætt opinberlega að
sinni. En hinsvegar harmar
Tannlæknafélag íslands að það
fyrirkomulag, sem verið hefur
á barnaskólatannlækningum hér
í í 35 ár skuli nú lagt niður.