Morgunblaðið - 22.03.1961, Síða 5
Miðvikudagur 22. marz 1961
MORGTJNBL AÐIÐ
5
MENN 06
= MALEFNI=
EINS og sagt var frá í blaðinu
lézt einn frægasti liljómsveit-
arstjóri heims, Sir Thomas
Beecham, af heilablóðfalli 8.
marz sl. 81 árs að aldri.
Heilsu hans hnignaði stöð-
ugt frá því, að hann fékk
lungnabólgu á ferðalagi um
Bandaríkin í febrúar 1960. Þó
hann fengi albata á lungna-
bólgunni og gæti lokið ferða-
lagi sínu, fóru kraftar hans
dvínandi og hann fékk fyrsta
heilablóðfallið nokkrum mán-
uðum seinna, þegar hann var
í leyfi í Sviss. Frá þeim tíma
hefur hann ekki stjórnað
hljómsveit.
Af tónlistaruinnendum var
Beeeham álitinn einn bezti
hljómsveitarstjóri heimsins,
og einnig var hann þekktur
fyrir hnitmiðaða fyndni. Ef á-
heyrendur gerðust hávaðasam
ir, á meðan á tónleikum stóð,
gat komið fyrir að hann hætti
að stjórna hljómsveitinni,
snéri sér að áheyrendum og
flytti reiðilegan fyrirlestur um
hvernig sæmilegt væri að
hegða sér. Hann sagði einu
sinni áheyrendum á tónleikum
í London, að þeir væru „hópur
villimanna".
Við annað tækifæri gaf hann
þessa yfirlýsingu: — Það eru
tvær gullvægar reglur, sem
hljómsveitir ætliu að fara eftir.
Allir meðlimirnir eiga að
byrja samtímis og hætta sam
tímis. Áheyrendur skipta sér
ekkert af því, sem skeður þess
á milli.
Faðir sir Thomas Beecham
átti Iyf javerksmiðju og græddi
mikið á henni, sonur hans
erfði auðæfin og eyddi þeim
öllum í þágu tónlistarinnar.
Beecham var fæddur í Lancas
hire í Norður-Englandi í apríl
1879, og var sonur sir Josephs
Beecham, stofnanda hinnar
frægu töflu-verksmiðju.
Það er sagt, að sem drengur
hafi Thomas eytt stórum hluta
hvers dags á heimili sínu við
að hlusta á tónlist og lært ut-
an að f jöldan allan af tónverk-
um. Þegar hann var 7 ára gam
all kunni hann „Macbeth“ ut-
an að. Hann notaði mjög sjald
an nótur, er hann stjórnaði
óperum, en þær munu hafa
verið um 100.
Sir Thomas og þriðja kona hans
Þegar hann var 19 ára stjórn
aði hann Hallé hljómsveitinni
i Manchester, í forföllum Ric-
hters, nákomins vinar og túlk
anda Richards wagner.
Fyrir fyrri heimsstyrjöldina
kynnti sir Thomas Beecham
Lundúnabúum óperur og ball
etta, stórkostlegri en þeir
höfðu nokkurntíma áðlur verið
vitni að. Setti hann á svið
þekkt rússnesk verk, óperur
Richards Strauss og léttar
franskar óperur.
Beecham var aðlaður 1916 og
einnig erfði hann titil föður
síns að honum látnum.
„Hann aðstoðaði Englending-
inn Fredrick Delius meira en
nokkur annar hljómsveitar-
stjóri við að koma verkum
hans á framfæri og tengja
menn ósjálfrátt verk þessa
blinda og lamaða tónskálds
við nafn Beechams.
Af 100 óperum er Beecham
setti á svið stjórnaði í Eng-
landi voru minnsta kosti 40
sem aldrei höfðu verið fluttar
þar áður. Hann fékk Diaghilev
ballettinn til þess að skemmta
Lundúnabúum, einnig fékk
hann hinn heimsfræga söngv-
ara Shjaljapin og hinn unga
Stravinsky og marga fleiri til
þess að miðla þcim af list
sinni. Hann stofnaði The Imp-
erial League of Opera 1927 og
kostaði það hann offjár. 1931
varð hann gjaldþrota og skuld
aði margar millj. króna. Þetta
myndi hafa orðið flestum að
falli ,en sir Thomas var ham-
ingjusamt barn. Hann hafði
ennþá tekjur af lyfjaverk-
smiðju og grat tiltölulega fljótt
hafizt handa að nýju. Þetta
ævintýri kenndi honum að
vera varkárari. Hann setti á
stofn Philharmoníu hljómsveit
Lundúna 1932 og eftir síðari
heimsstyrjöldina stofnsetti
hann konunglegu philharmon
íu hljómsveitina.
Beecham ferðaðist nokkrum
sinnum um Bandaríkin og
hreif áheyrendur þar með
frjálslegri framkomu á svið-
inu.
Á árum siðari heimsstyrjald
arinnar dvaldizt hann um tima
í Ástralíu, Canada, Bandaríkj
unum og Meikó, en sneri heim
til Englands 1944.
Árið 1950 fór hann til Banda
ríkjanna með konunglega phil
harmoniu-hljómsveitina og
hélt tónleika í 53 borgum.
Beecham var þrí-giftur.
Fyrstu konu sinn Uticu Well
es frá New York, kvæntist
hann 1903 og eignuðust þau
tvo syni. Þau skildu 1943 og
kvæntist hann skömmu siðar
píanóleikaranum Betty Hum-
by. Hún lézt af hjartaslagi í
Buenos Aires 1958. Árið eftir
kvæntist hinn 80 ára gamli
hljómsveitarstjóri í þriðja
sinn Shirley Hudson, sem þá
var 27 ára gömul.
Fyrir átta árum var Beecam
spurður, er hann kom fram í
brezka útvarpimi: — Hve
lengi álítið þér að hljómsveit-
arstjóri eigi að halda áfram að
stjórna.
Hann svaraði: — Ég hef
mjög ákveðna skoðun á því
máli. Ég ætla að halda áfram
þar til ég hníg niður, en ég
vona að allir mínir samtíðar-
menn á þessu sviði séu ekki
sömu skoðunar.
síraujárnið, sem þú ert búinn að
lofa mér?
★
Kennarinn: -— Hugsið ekkert
um dagsetningarnar. Svörin við
sparningunum eru hið þýðingar-
n.:3 ta.
Nemandinn: — Já, en ég vildi
helz.t hafa eitthvað rétt á blað-
inu.
★
Prófessorinn: — ftg hef verið
rændur gömlu gulldósunum min
um.
Eiginkonan. — Fannstu ekki
þegar hendj var stungið i vasa
þinn.
— Jú, en ég hélt að það vseri
min eigin hönd.
Skrifstofustjórinn (við dreng,
sem kom hálfri klukkustund of
seint): — í>ér hefðuð átt að vera
kominn hér kl. 9.
Skrifstofudrengurinn: — Nei.
Hvers vegna, hvað kom .fyi^ir?
Loftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson
er væntanlegur frá N.Y. kl. 08:30.
Fer til Stafangurs, Gautaborgar og
Kaupmh. og Hamborgar kl. 10.00.
H.f. Jöklar: — Langjökull fór frá
Vestmannaeyjum í gær til Breiðafjarð
ar- og Vestfjarðahafna. — Vatnajökull
er í Amsterdam.
H.f. Eimskipafélag íslands: — Brúar-
foss er á leið til Rotterdam. — Dettifoss
er í N.Y. — Fjallfoss er á leið til Is-
lands frá N.Y. — Goðafoss fór frá Karls
krona í gær til Helsingfors. — Gull-
foss er í Hamborg. — Lagarfoss fer
frá Hamborg í dag til Antwerpen. —
Reykjafoss fór frá Siglufirði í gær
til Isafjarðar. — Selfoss er í Rvík.
Tröllafoss fór frá N.Y. í gær til Rvíkur.
— Tungufoss fór frá Hvalfirði í gær
til Keflavíkur, Hafnarfjarðar og Vest-
mannaeyja.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Vest
fjörðum. Esja er í Rvík. Herjólfur fer
frá Rvík kl. 21 í kvöld til Vestmanna-
eyja. Þyrill er á Austfjörðum. Skjald-
breið er á Akureyri. Herðubreið kemur
árdegis í dag til Rvíkur.
Hafskip h.f.: — Laxá er í Havana.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell fór 20.
þ.m. frá Odda til Akureyrar. — Amar-
fell er í Keflavík. — Jökulfell kemur í
dag til Reyðarfjarðar. — Dísarfell fór
frá Hull í gær til Rotterdam. — Litla-
fell er í olíuflutningum í Faxaflóa. —
Helgafell er í Keflavík. — Hamrafell
er á leið til Reykjavíkur.
Eigi er ein báran stök.
Yfir Landeyjasand
dynja brimgarða blök,
búa sjómönnum grand,
búa sjómönnum grand.
Magnast ólaga afl. —
Einn ferkuggur í land.
Rís úr gráðinu gafl,
þegar gegnir sem verst.
Níu, skafl eftir skafl,
skálma boðar í lest. —
Eigi er ein báran stök. —
Ein er síðust og mest.
Búka flytur og flök,
búka flytur og flök.
Grímur Tliomsen: Ólag.
Að elska og öðlast er bezt, að elska og
missa næstbezt. — W. M. Thackeray.
Þeir inna einnig þjónustu af hendi,
sem aðeins standa og bíða. —
J. Milton.
Harmurinn yfir því, að til skuli finnast
illt í því bezta, er fyllilega bættur
af gleðinni yfir því að finna gott i
því versta. — H. Riggs.
Ef það þyngala bjargasl, bjargaat
fleira. — Norskt.
Það sem þú gerir í málinu, skiptir
engu. Spurningin er aðeins, hvað þú
getur fengið fólk til að halda, að þú
hafir gert. — A. Conan Doyle.
Vantar tvo vana menn Notað mótatimbur
og matsvein á handfæra- veiðar. — Uppl. eftir kl. 7 e. h. síma 13457. til sölu, nokkur þús. fet. Einnig vinnuskúr. Sími 34566.
VefstóII Skúr
óskast keyptur. — Uppl. í óskast til kaups, 40—60
síma 14112. ferm. Uppl. í síma 37280.
Til leigu í Ytr*-Njarðvík forstofu- herbergi í nýju húsi að Hólagötu 9. — Uppl. á staðnum. 2ja herb. íbúð til leigu frá næstu mánaðamótum. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir föstuda.g; merkt: — „K. 34 — 1595.“
Páskaskóri&ir
á börnin komnir
Austurstræti
Samkoma
helguð minningu sr. Friðriks Friðrikssonar verður
haldin íl húsi KFUM og K fimmtudaginn 23. þ.m. kl.
8,30. — Allir velkomnir.
KFUM — KFUK
Byggingafélag alþýðu, Reykjavík
Aðalfundur
félagsins árið 1961 verður haldinn sunnudaginn 2.6
marz kl. 2 e.h. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Dagskrá:
1. Venjuieg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórnin
Breiðfirðingaheimilið h.f.
Aðalfundur
Breiðfirðingaheimilisins h f.
verður haldinn í Breiðfirðingaouð föstudaginn 21.
apríl 1961, kl. 8,30 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Reikningar félagsins liggja frammi hluthöfum til
athugunar 10 dögum fyrir fund hjá gjaldkera, Skip-
holti 17, Reykjavík.
Stjórnin
Vörugeymsla óskast
Óskum eftir 50—100 ferm. vörugeymslu
með góðri aðkeyrslu sem næst Snorrabraut.
Samkaup h.f.
Snorrabraut 50 — Sími 19788
N auðungaruppboð
það, sem auglýst er í 11., 12. og 13. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1961 á v. s. Frigg RE 113, eign Ragnars
Þórðarsonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka Is-
lands, Gunnars Þorsteinssonar hrl. og Daníels Þor-
steinssonar & Co h.f. við skipið á skipasmíðastöð
við Bakkastíg hér í bænum, föstudaginn 24. marz
1961, kl. 2,15 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík