Morgunblaðið - 23.03.1961, Síða 2
2
/
MORGUNBLAÐlh
Fimmtudagur 23. marz 1961
Unnum almenningsálit-
ið / heiminum til stuðn-
ings við okkur
'Álif merks íslendings erlendis á lausn
fiskveiðideilunnar
MBL. barst nýlega bréf frá
gagnmerkum íslendingi, sem
lengi hefur verið búsettur er-
lendis og minntist hann þar
m. a. á lausn fiskveiðideilunn-
ar við Breta og hinn mikla
sigur hins íslenzka málstaðar.
Var þar komizt að orði á þessa
leið: „Þetta hefði einhvem-
tíma þótt mikill viðburður í
sögu íslands og ótrúlegt að
slíku hefði verið spáð á meðan
við stóðum í sjálfstæðisbar-
áttunni við Dani. En nú erum
við víst orðnir svo stórir upp
á okkur að við fögnum engu
og gleðjumst aldrei, jafnvel
þótt við hljótum aðdáun al-
mennings um allan heim.
Ég álít að aðalatriðið í þess-
ari baráttu hafi verið að vinna
almenningsálitið í heiminum
til skilnings á okkar málstað
og að hljóta samúð manna,
bæði valdhafanna og fóllusins
út um víða veröld.
Þetta sagði hinn merki ís-
lendingur í bréfi sínu. Xelur
Mbl. sjálfsagt að almenningur
á íslandi fái að kynnast skoð-
un hans á þessu örlagaríka
máli og hinni heillaríku lausn
þess, sem meginhluti þjóðar-
innar telur sem betur fer mik-
inn sigur fyrir hinn íslenzka
málstað. , .
/'NAIShnútor 5 V SOhnútor ¥: Snjó/coma p 0S/mm Sf S/eúrír K Þrumur mss, KuMaskil Hifaski! H Hm» 1 L LauS 1
Bgryqy1* v ■ vaar
Orörómur
um handritin
DÖNSK blöð hafa undanfarið skrifað ýmislegt um hand-
ritamálið. Hafa þar komið fram margvíslegar bollalegg-
ingar, óstaðfestar og rangar. í gær barst Mbl. svohljóðandi
einkaskeyti frá fréttaritara sínum í Kaupmannahöfn, Páli
Jónssyni: -
Ekstrabladet skýrir frá því í
dag að danska stjórnin hafi i
hyggju að leggja í næsta mánuði
fram í þinginu lagafrumvarp um
að afhenda íslendingum hand-
ritin. Undanfamar vikur hafa
farið fram viðræður menntamála
ráðherra Dana og íslendinga xun
málið og hefur danska stjórnin
á ráðherrafundi samþykkt af-
hendingu á grundvelli lagafrum-
varps sem Jörgensen mennta-
málaráðherra er að ljúka við að
semja. Fmmvarpið verður vænt-
anlega la®t fyrir næsta ríkis-
stjómarfund og síðan strax fyrir
þingið.
ÁBNASAFN
Menntamálaráðherrann óskar
eftir því að farið verði verulega
að óskum íslendinga og nýtur í
þessu máli stunðings rektors há-
skólans. Þess vegna er talið að
í frumvarpinu verði lagt til að
3vo til öll handritin í Árnasafni,
sem eru um 2000, verði afhent
og auk þess ýms skjöl úr konung-
lega bókasafninu, þar sem meðal
annars er að finna Flateyjarbók.
ÁGREININGUR
í Danmörku ríkir mikill ágrein
Dagskrá Alþingls
Fundir eru boðaðir 1 báöum deildum
kl. 1.30 I dag. Á dagskrá efri deildar:
1. Landnám, ræktun og byggingar I
sveitum, frv. — 1. umr.
3. Alþjóðlega íramfarastofnunin, frv.
— 3. umr.
3. Seðlabanki íslands, frv. — 3. umr.
4. Landsbanki Islands, frv. — 3. umr.
5. Útvegsbanki Islands, frv. 3. umr.
3. Stofnlánadeild sjávarútvegsins,
frv. — 2. umr.
T. Sildarútvegsnefnd o. fl., frv. 2. umr
8. Meðferð opinberra mála.
3. Lögreglumenn.
Dagskrá neðri deildar:
1. Sveitarstjómarlög, frv. Frh. 2.
umr. (Atkvgr.)
3. Viðskipti fjármálaráðuneytisins
við Axel Kristjánsson og h/f As-
fjall, þáltill. — Hvemig ræða skuii.
3. Minnispeningur Jóns Sigurðsson-
ar, frv. — 1. umr.
4. Jarðhitasjóður og jarðboranir
rikisins, frv. — 2. umr.
5. Ríkisábyrgðir, frv. — 3. umr.
8. Sala Hellu og Helludals i Breiðu-
víkurhreppi, frv. — 3. umr.
7. Happdrætti Styrktarfélags van-
gefinna, frv. — 1. umr.
8 Lögskráning sjómanna, frv. 2. umr.
9. Sala Þingeyjar i Skjáifandafljóti,
frv. — 2. umr. — Ef leyft verður.
ingur um málið og verður senni-
lega alls ekki auðvelt að fá það
samþykkt í þinginu. Andstaðan
er aðallega frá vísindamönnum,
en stjórnmálamenn álíta hins
vegar heppilegt að ná samkomu-
lagi við íslendinga með tilliti til
einingar á Norðurlöndum. Lög-
fræðilega séð er varla unnt að
draga eignarétt Dana á handritun
um í efa, en stjórnmálalega lítur
málið öðruvísi út og á þeim grund
velli byggist jákvæð stefna ríkis-
stjórnarinnar.
í samibandi við þessa frétt ósk-
aði Mbl. eftir staðfestingu á henni
frá nokkrum aðilum í Danmörku.
Bengt A. Koch ritstjóri Kriste-
ligt Dagblad, sem einnig er for-
maður hinnar sjálfskipuðu
dönsku handritanefndar, en í
henni eiga sæti ýmsir þekktir
borgarar, sem vinna að afhend-
ingu handritanna, símaði blaðinu:
Upplýsingar Ekstrabladet eru
fljótfærnislegar og of bjartsýnar.
Enginn ábyrgur aðili vill láta
hafa eftir sér ummæli um málið.
Páll Jónsson fréttaritari símaði:
Hef frétt eftir áreiðanlegum heim
ildum að Ekstrabladet hefur upp
lýsingar sínar ekki frá ríkisstjórn
inni og má því ekki taka þær of
alvarlega. Stefán Jóh. Stefánsson
sendiherra vill ekkert um málið
segja að svo stöddu.
Ritzau fréttastofan símar: Ekki
er unnt að fá fréttina staðfesta á
fundi kennslumálaráðherra Norð
urlandanna í Helsingfors. En
frétt blaðsins sennilega rétt og
hefur birzt á fleiri stöðum í
Kaupmannahöfn. t
HLÝJA þokuloftið var
skammt undan Suðurlandi í
gaer, og regnbeltið, sem fylgdi
náði hingað. í jaðri þess
var þó snjókoma. Um Vestur
og Norðurland var 1—2 stiga
hiti, en hnúkaþeyr á Suðaust-
urlandi, og var 9° hiti á Hól-
um í Hornafirði kl. 11.
Veffurhorfur kl. 10 í gærkv.:
Suðvesturland til Norðaust
urlands og miðin: Vestan og
NV víða stinningskaldi. Smá
él.
Sprenging
í Ábnrðnr-
verksmiðjunni
Á LAUGARDAGINN varð
sprenging í amoniakvinnusal
Aburðarverksmiðju ríkisins í
Gufunesi. Rúður brotnuðu í saln
m en ekki sakaði nærstadda.
í gær sksýrði Hjálmar Finns-
son framkvæmdarstjóri blaðinu
svo frá, að gerðar hefðu verið ráð
stafanir til að fyrinbvggja að
slík atvik gætu endurtekið sig.
Leki hafði komið að pípu sem
liggur að vatnsefnisblöndu, en
við það mydnaðist hvellloft í
dælunni og orsakaði það siðan
sprenginguna. Hin nýja dæla og
aðrar varúðarráðstafanir
hafa verið gerðar í samvinnu við
öryggiseftirlit ríkisins, sagði
Hjálmar.
Lá við strandi út af Grdttu
BREZKI togarinn Lifeguard
frá Hull var hætt kominn
við innsiglinguna hingað til
Reykjavíkur í gær. Varðskip
ið Óðinn kom togaranum til
hjálpar og beindi honum á
rétta leið og fór allt vel að
Iokum.
Stefndi á sker og boða
Lifeguard leitaði hér hafnar
vegna bilunar á spili. Var dimmt
yfir hér við Reykjavík í gærmorg
un. Togarinn mun hafa farið
grunnt með landi. Frá varðskip
inu Óðni sem einnig var á leið
inn, höfðu menn tekið eftir að
togarinn tók stefnu innan skerja
og var brátt kominn svo langt,
að það var yfirvofandi, að hann
strandaði á boðunum milli
Akureyjar og lands. Óðinn hafði
flautað með eimpípu sinni hættu
aðvörun og þá nam togarinn
staðar. Hafði togarinn síðan sam
band við Óðin. Fékk togarinn þá
vitneskju um að hann væri kom
inn svo innundir boða og sker,
að hann yrði að bakka út úr ó-
göngunum. Gerði togarinn það
og sigldi síðan í kjö'lfar Óðins hér
inn á höfnina.
Gamall kunningi
— >að hefði getað orðið erfitt
hjá honum, ef hann hefði strand
að á boðunum þarna, sagði Eirík
ur Kristófersson skipherra. Þetta
er gamall kunningi úr „þorska-
stríðinu" — það er að segja skip
ið en ekki maðurinn. Við ætluð
um einu sinni að setja um borð
í hann menn, en skipsmenn sner
ust til varnar með bareflum og
sjóðandí vatni.
Olíupramminn fór innan skerja
Það sem mun hafa valdið
Golda IVieir
í heimsókn
FRÚ GOLDA MEIR utanríkis-
ráðherra ísraels mun koma í op
inbera heimsókn til Islands dag-
ana 16.—23. maí í boði utanríkis
ráðuneytisins.
__ (Frá utanríkisráðuneyt>nu)
Sókn í Laos
Vientiane, Laos, 22. marz
(Reuter)
HÆGRI STJÓRNIN í Vienti-
ane, tilkynnti í dag að her
kommúnista frá Norð<ur-Viet-
nam hefði gert harða árás
að borginni Kam Keut í Suð-
ur-Laos. Erlendir sérfræðing-
ar telja tilkynningu þessa
mjög ýkta, en viðurkenna að
á þesssu væði sé mikið um
Pathet Lao skæruliða sem
geri stjórninni erfitt að verja
veginn, sem liggur milli Kam
Framhald á bls. 23.
þessu var að olíuprammi á leið
inn á Skerjafjörð hafði komið
á móti togaranum og farið inn
an skerja. Það eru ekki nema
nokkur ár síðan flugbáturinn
Rán kom togara til hjálpar, sem
hafði villzt af leið og vax eins
og Lifeguard að því kominn að
stranda.
Skemmtun fyrir
BarnaspitaKa-
sjóðinn
HRINGKONUR halda stöðugt
áfram að safna í Barnaspítala-
sjóð sinn. Þær hafa afhent 4.672
þús. kr. í nýja Barnaspítalann,
nú síðast í vetur 4 þús. krónur,
en betur má ef duga skal. Ýmis-
legt láta konurnar sér detta í
hug til að afla fjár og leggja
mikið á sig. í haust höfðu þær
skemmtun með uppboði, lengi
unnu þær að munum, sem seldir
voru á bazar í jólakaffinu þeirra,
í vetur og í vor láta þær sér
detta í hug blómasölu.
Nú á föstudagskvöldið halda
Hingkonur bingókvöld í Sjálf-
stæðishúsinu til fjáröflunar fyrir
Barnaspítalasjóðinn. Veitt verða
ágæt verðlaun, svo sem ferð til
útlanda með Eimskipafélagsskipi,
málverk eftir Kjarval, prjóna-
vél o. fl. Og á eftir verður dans-
að. Nánar má sjá um þetta í aug-
lýsingu í blaðinu.
Austfirðir og Suðausturland
og miðin: NV kaldi eða stinn
ingskaldi, víða léttskýjað.
Neita
framsali
Cariberra, Ástralíu,
22. marz. (Reuter).
AÐSTOÐAR utanríkisráðhr.
Ástralíu, sir Garfield Bar-
wick, skýrði frá því í dag,
að ríkisstjórnin hefði neitað
kröfu Rússa um að fram-
selja þeim Estlending nokk-
urn Ervin Viks a ðnafni,
sem Rússar saka um stríðs-
glæpi.
Viks, sem varð ástralskur
ríkisborgari árið 1957, er af
Rússum sakaður um að hafa
drýgt stríðsglæpi í Estlandi
árið 1941.
SKÁK
Botvinnik — Tal
f FRÉTTUM ríkisútvarpsins I
gærkvöldi var frá því skýrt að
fjórða skákin í keppni þeirra
Botvinniks og Tals, um heims-
meistaratitilinn í skák hafi farið
í bið 1 gær. Fyrstu og þriðju
skákina vann Botvinnik, en aðra
skákina vann Tal og standa því
leikar 2:1.
í þessari fjórðu skák þeirra
hafði Tal hvítt og lék kóngspeði
fram í fyrsta leik, en Botvinnik
svaraði með Karokan vörn ein.?
og í annari skákinni. Tal brá út
af venjulegum leiðum sínum
þegar í þriðja leik og urðu brátt
flækjur í skákinni, sem héldust
áfram þótt drottningaruppskiptl
yrðu í 14. leik, Botvinnik náði
liðsyfirburðum, en Tal fann sí-
fellt af fundvísi sinni nýjar
gagnhótanir.
Þegar skákin fór f bið hafðl
Botvinnik þrjú peð yfir, en menn
Tals eru það vel staðsettir, að
enganveginn er einsýnt um úr-
slit þegar biðskákin verður tefld
í dag. Biðstaðan er sem hér segir:
Hvítt, Tal: Kb5, Ha7, Rc5, og
peð b6, og c2.
Svart, Botvinnik: Ke7, He3,
Bh2, og peð d4, e6, f5, g6 og h6.
Samkvæmt þessu hlýtur Bot-
vinnik að hafa leikið biðleikinn.
HEIMDELLINGAR
t kvöld verffur í Valhöll við
Suffurgötu kvikmyndasýrtór^g á
vegum Heimdallar, F.U.S. Sýnd
ar verða ýmsar frófflegar og
skemmtilegar myndir. öllum
Heimdellingum heimill aðgangur
meffan húsrúm leyfir. Sýningin
hefst kl. 8,30 stundvíslega.
«