Morgunblaðið - 23.03.1961, Side 24
Iþróttir
Sjá bls. 22
Alþingi
Sjá bls. 8.
68. tbl. — Fimmtudagur 23. marz 1961
Vertíðaraflinn 36 þús. tonn-
um minni en í fyrra
EFTIR þeim upplýsingum er
Morgunblaðið hefur aflað sér
um aflabrögð í verstöðvun-
uin milli Hafnar í Horna-
firði og vestur í Stykkishólm,
Vilja
rannsókn
TVEIR ÞINGMENN Alþýðu-
bandalagsins, Geir Gunnars-
I son og Karl Guðjónsson, flytja
í neðri deild Alþingis svohljóð
andi þingsálykOunartillögu:
„Neðri deild Alþingis álykt
ar að skipa 5 manna nefnd
j samkvæmt 39. gr. stjómar-
skrárinnar til þess að rann-
saka viðskipti fjármálaráðu-
neytisins og Axels Kristjáns-
sonar, Hafnarfirði, og hluta-
félagsins Ásfjalls í sambandi
við ríkisábyrgð, sem heimil
uð var í 22. gr. fjárlaga 1959,
svo og útgerð Axels Kristjáns
sonar í ábyrgð ríkissjóðs á
togaranum Brimnesi.
• Nefndin skal hafa rétt tij
að heimta skýrslur, skriflegar
og munnlegar, bæði af embætt
ismönnum og einstökum aðil
I um“.
226 fórust
DACCRA, Pakistan, 2i2. marz —
(Reuter). Tilkynnt var í dag að
fellibylur hafi orðdð 226 manns
að bana í Austur Pakistan um síð
ustu helgi en 1200 manns hafi
særzt.
Segir í tilkynningunni að rúm
lega 2 þús. hús hafa fallið í byln
um sem fór um 300 km. breitt
belti yfir hrísakra og þorp og
þeytti mönnum, skepnum og bát
um hátt á loft upp.
mun beildarafli bátanna hafa
verið tæplega 32.000 tonn af
óslægðum fiski, hinn 15.
marz sl. Er þetta miklu
minni afli en kominn var á
land um miðjan marzmán-
uð á vetrarvertíðinni í fyrra.
Lætur nærri að aflinn sé nú
um 36.000 tonnum minni.
13000 tonnum minna
en í fyrra í Eyjum
Vinnustöðvanir á bátaflotan-
um segja að sjálfsögðu ti] sín.
T. d. má geta þess að um miðjan
marz, var aflinn í Vestmanna-
eyjum aðeins um 3500 tonn á móti
16,500 tonnum á sama tíma í
fyrra. Stormasöm tíð hefur einnig
dregið úr aflabrögðum.
Hér á eftir fer yfirlit yfir afla-
brögðin eins og þau voru um
miðjan marz í verstöðvunum og
eru í sviga samanburðartölur frá
því 15. marz í fyrra.
Homafjörður 1598 tonn (1735)
Vestam.-eyjar 3500 — (16500)
Stokkseyri og
Eyrarbakki 379 — ( 541)
Þorlákshöfn 872 — (1835)
Grindavík 4020 — (6696)
Sandgerði 3997 — (5665)
Keflavík 5738 — (9690)
Vogar 505 — ( 630)
Hafnarfjörður 1646 — (4670)
Reykjavík 2000 — (5100)
Akranes 1500 — (5565)
Rif 1093 — (1100)
Ólafsvík 5245 — (5177)
Grundafjörður 1095 — (1892)
Stykkishólmur
um 700 — (1205)
Auk þess sem vinnustöðvanir
og stonmasöm tíð hefur haft mikil
áhrif á gang vetrarvertíðarinnar,
þá er þess og að geta að margir
bátar voru á síldveiðum eftir að
vetrarvertíð hófst. Er talið að
síldaraflinn hafi alls numið um
200,000 tunnum.
Frysting s.f.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
skýrði Míbl. svo frá í gær, að
hinn 15. marz síðastl. hafi heildar
framleiðsla frystihúsanna innan
vébanda S.H. numið alls 6577
tonnum af frystum flöfcum á
móti 12,594 tonnum á sama tíma
í fyrra. Fyrst þorskflök nema nú
3720 tonnum á móti 8700 tonnum
um miðjan marz í fyrra.
Þjófnaöur
f FYRRAKVÖLD milli kl. 9—
11,45 hefur þjófur farið inn um
glugga í húsinu Mjóstræti 8A og
rændi hann þar peningakassa.
Þennan kassa átti maður sem
herbergið leigir. Voru í kassan
um 5000 kr. í peningum, tveir
víxlar, þrjár sparisjóðsbækur og
nokkur happdrættisskuldabréf.
Peningakassann hafði maður-
inni í ólæstum skáp í herbergi
sínu.
Drengur
Náttúruhamfarir
JAKARTA, Indónesíu, 22.
marz. (Reuter). — Banda-
riska spítalaskipið Hope hélt
í dag áleiðis til eyjunnar
Flores í Indónesíu, þar sem
miklir jarðskjálftar hafa geis
að og eldfjallið Bulobo er
tekið að gjósa. Skipið var
statt nálægt Lombok eyju er
þrír snarpir jarðskjálftakipp-
ir gengu yfir Flores síðastlið-
inn fimmtudag. Síðan hafa
jarðskjálftar haldið áfram og
eldgos.
Ekki hafa borizt fréttir um
manntjón, en um 80% höfuð
borgarinnar Endeh á Flores
er í eyði.
Húsið bundið
Þá hefur aðstoð verið send til
Vavau og Haabai eyjarklasanna,
sem eru 1000 kílómetrum fyrir
austan Fiji. Þar hefur gengið
yfir hvirfilvindur og valdið tjóni
sem metið er á rúml. tvær millj.
króna.
í fréttum sem borizt hafa til
Fiji er sagt frá því að 32 menn
í höfuðborg Vavau eyjaklasans,
Neiafu, hafi komið böndum á
hús eitt þar í borg og fest því
þannig meðan flóðbylgja skolaði
öðrum húsum burt. I húsi þessu
var fjöldi kvenna og barna sem
öll björguðust.
af slysförum
ENN HEFUR orðið hörmulegt slys hér í bænum. Lítill
drengur lét lífið í sjúkrahúsi í fyrrakvöld af völdum
meiðsla, er hann hlaut deginum áður í leik. Litli dreng-
urinn hét Guðmundur Gunnarsson til heimilis að Goð-
heimum 24. Hann hafði verið með spýtu í einhvers konar
sverða- og spjótaleik og stakkst spýtan upp í augað.
Guðmundur litli var úti við,
rétt heima við Goðheima 24,
ásamt dreng á svipuðum aldri.
Klukkan var milli 6—7 á mánu-
dagskvöldið. Systir hans, sem er
11 ára, hafði verið þar spöl korn
frá og hún heyrt er slysið varð,
án þess þó að hún sæi með hverj-
um hætti það gerðist. Kom hún
bróðir sinum til hjálpar er hún
heyrði að hann hljóðaði og fór
með hann heim.
-fc Á slysavarffstofuna
Það var strax farið með Guff
mund í slysavarffstofuna og
einnig til augnlæknis. Á leið-
inni var Guðmundur meff
fulla meðvitund, og hann tal-
affi um aff hann hefffi stung-
spýtunni upp í augað. Er
talið senniiegt að hann hafi
dottiff á spýtuna. Læknir bjó
um sáriff, og ekki taldi læknir-
inn aff augaff hefði skuddazt.
Var drengurinn látinn fara
heim til sín eftir þessa læknis-
hjálp.
Strax á þriðjudagsmorgun-.
inn fóru foreldrar hans á ný
Ráðheira tók upp hanzk-
ann fyrir farþeganna
ÞAÐ DRÓ til tíðinda í flug-
stöðinni við Óslóarflugvöll á
sunnudagskvöldið. Ástæðan
var sú að hópur íslendinga
sem var á heimleið með Loft
j leiðaflugvél, fékk um það til-
kynningu um hátalarakerfið,
að þeir gætu ekki komizt
með þeirri flugvél sem þeir
höfðu pantað far með.
Ráffherra tók af skariff
Tilk. þessi hafði vakið mikla
gremju meðal farþeganna. í
hópi íslendinganna, en þó ekki
þeirra er skilja átti eftir, voru
utanríkisráðherra Guðmundur í.
Guðmundsson og Agnar Kl. Jóns
son ráðuneytisstjóri. Þeir höfðu
þá þegar skipað sér við hlið
þessara farþega. Lét utanríkis-
ráðherra og ráðnueytisstjórinn
það boð ganga til umboðsmanns
I.oftleiða þar á flugvellinum að
þeir myndu ekki stíga upp í flug-
véiina, fyrr en allir þeir sem
þarna voru og fara áttu með flug-
vélinni, væru komnir til sæta
sinna.
Þessi einarðlega afstaða ráð-
herrans og ráðuneytisstjórans
hafði orðið til þess, að umboðs
maður Loftleiða gerði þá þegar
ráðstafanir til þess að fjarlægja
flutning úr flugvélinni, svo að
enginn var skilinn eftír þegar til
kom. Flugferðin heim tók nokk
uð lengri tíma en ella vegna
þess hve dimmt var yfir í Kefla
vík og lendingaskilyxðin erfið
hér í Reykjavík.
Mbl. frétti í gærkvöldi að ráða-
menn Loftleiða myndu nú þegar
láta rannsaka þetta mál og gera
ráðstafanir til þess að slíkt geti
ekki endurtekið sig.
Þessar frúr hlutu verfflauna i
miffana í Þjóffleikhúsinu s.1. j
þriffjudag. 1. verfflaun hlautl
frú Kristín Beek (í miðið)'
Granaskjóli 21, Tvo affgöngu-j
miffa á frumsýningar á þessu j
ári og 1000 kr. í penin<gum. (
Aukaverðlaun. Frú Margrét
Petersen og frú Ingibjörg Ey-
fells. Vorfflaunahafar sem
milljónustú leikhúsgestir
verffa allar á sýningunni í
kvöld á Tvö á saltinu.
meff Guffmund til læknis,
Hann fékk að fara heim aftur
eftir þá aðgerff, en síffdegis
þennan sama dag, á þriðjudag
inn, versnaffi honum á ný og
var þá farið með hann í sjúkra
hús um kilukkan 5,30 um kvöld
iff. Var drengurinn þá þungt
haldinn. Vm klukkan 9 um
kvöldiff var hann látinn.
Foreldrar Guðmundar, sem var
aðeins fimm ára, voru hjónin frú
Erla Guðmundsdóttir og Gunnar
Mekkinósson húsgagnabólstrari,
en þau eiga nú fjögur börn.
Valliúsgranrts-'
baujuna rak
NOKKUR ylgja var bér fyrir
utan í gær og braut þó nokkuð
á skerjum og boðum. Hin víð
kunna Valhúsagrunnsbauja hafði
losnað. Varðskipið Sœbjörg fór
á vettvang. Var baujan kon»
in inn í brimgarðinn við boðana
út af Álftanesi. Varð skipið frá
að hverfa og verður að bíða þeiss
að veður og sjó lægi svo hægt
verði að sækja baujuna og leggja
áenni á grunnið „aftur.
Leki keniur a5
bátum i róðri
SANDGERÐISBÁTAR hrepptu
slæmt veður í fyrrinótt.
Tveim bátanpa hlekktist á, en
slys hafði ekki orðið á mönnum.
Annar þessara báta var Mummi.
Hann hafði slegið úr sér og brotn
að eitthvað, og var fylgt inn til
Keflavíkur. Þangað inn hafði
varðbáturinn Gautur komið til
að dæla úr honum sjó sem kom
inn var upp á miðja vél. Hinn
báturinn var Steinunn gamla,
sem slegið hafði úr sér og leki
kom að.