Morgunblaðið - 26.03.1961, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.03.1961, Blaðsíða 6
6 mor rrN «?ra btð Sannuðagur 26. marz 1961 Osigur kommúnismans Með því að leggja niður 24 þús. samyrkju- bú hafa kommúnistar játað, að kínverski j bóndinn viti bezt sjálfur hvernig rækta | skuli land hans. ^ Kommúnistaleiðtogarnir í Kína hafa beðið mikinn ósigur. Samyrkjubúin, sem Mao Tse- tung ætlaði að mundu gera Kínverja að forystuþjóð meðal kommúnistaríkjanna, eru nú óð- um að hverfa og sveitalífið að færast í sitt gamla horf, þar sem þorpin voru miðstöð hvers einstaks héraðs. Samyrkjubúin eru reyndar ennþá til á pappímum, en af leiðbeiningabæklingum, sem gefnir hafa verið út síðustu vikurnar má sjá, að menn eru að hverfa frá þeirri hugmynd að safna milljónum bænda sam an í einni gífurlegri vinnubúð, sem rekin sé með hálfgerðum eða algerum heraga. Stórir flokkar verkamarma, sem unnu undir sterkri allsherj- arstjórn og þeyttust frá einu svæðinu til annars, hafa verið leystir upp. Og samyrkjubúin hafa verið svipt yfirráðum yfir mannafla, verkfærum, búfénaði og landi. Þess í stað er verið að gera sérhvert sveitaþorp í Kína að smáframleiðslusveit, sem ákveður sjálf starfsáætlanir, hef ur umsjón með vinnunni, verk- færunum og búfénaðinum og fær án efa meira af hagnaðin- um í sinn hlut en áður. Hinar stóru byggingar sam- yrkjubúanna munu eftir sem áður standa eins og þær eru nú. Flestir bændur hafa þegar ver- ið neyddir til þess að gefa sam- yrkjubúunum alla sína potta og pönnur og eiga nú ekkert til þess að elda með. Þorpin munu áfram reka barnaheimilin og vöggustofurnar, því að komm- únistaforingjarnir hafa áreiðan- lega ekki i hyggju að leyfa húsmæðrunum að hverfa aftur til heimila þeirra — þeir þarfn- ast vinnuafls þeirra á ökrunum. Nauðungar- i vinna bænda En þarna má sjá fram á endalok samyrkjubúanna. Stjórn in hefur ákveðið að 95% sveitabúskaparins skuli rekinn með þessum hætti, en aðeins 5% með samyrkjubúum. Gersamlega uppgefnir Deilurnar um samyrkjubúin hófust í Kína árið 1959. Um mitt sumar 1960 gerði stjórnin sér ljóst að mörgu var ábóta- vant í rekstri samyrkjubúanna, því að framleiðslan minnkaði í stað þess að aukast. Víðtækar ráðstafanir hiöfðu verið gerðar til þess að auka framleiðsluna. Aðstaða til áveitu hafði verið stórbætt og mikið af landi ræst fram og þurrkað. En plæging gerð af handahófi og rangar að- ferðir við sáningu, eyðilögðu stór svæði ræktanlegs lands. Og flokksforingjarnir horfðu hjálp- arvana á framleiðsluna minnka frá ári til árs. í fyrstu reyndi stjórnin að bjarga því sem bjargað varð með því að senda milljónir skrifstofumanna, námsmanna og verkamanna ríkis og bæjar út í sveitimar, en ekkert dugði. — Bændurnir voru orðnir gersam- lega uppgefnir eftir tveggja ára nauðungarvinnu og þeir voru Framh. á bls. 23. Th&uAAHS: Manngildi Þ E K K T annars flokks tónskáld, sem heima átti í lítilli þýzkri borg, skrifaði Beethoven einhverju sinni og kvartaði sáran yfir hinu sveitalega umhverfi, þar sem hann lifði tilgangslausu lífi. Ah! Ef örlögin hefðu bara veitt honum rúm meðial menntaðs fólks í höfuð- borg, þá hefði hann orðið allt annar maður. Beethoven svaraði: „Það er ekki löngun mín, að benda á sjálfan mig sem fyrirmynd, en þetta get ég þó sagt yður: I langan tíma bjó ég, eins og þér, í ó- merkilegri smáborg, og það breytti engu. Hvað svo sem ég varð þar eða hér, þá varð ég það af sjálfum mér....“. Beethoven hafði á réttu að standa. Andlegir hæfi- leikar ná allsstaðar þroska og því er jafnvel fremur þannig farið nú á dögum, því að hver minnsta borg hefur nú gott alþýðúbókasafn, útvarp og sjónvarp hjálpar körlum og konum til að haldast í snertingu við umheiminn. Sannar gáfur hljóta viðurkenningu hvaðan sem þær koma. Maður gæti jafnvel sagt, að litla borgin hentaði listamanninum betur. í stórborg fær hann of mörg tækifæri til að skemmta sér. Fögur kona í stórri borg er svo eftirsótt, að hún hefur ekki lengur neinn tíma til lesturs. Þú kannt að segja sem svo, að í stórborg hefði hún tækifæri til að hlýða á fyrirlestra, hljómlist, sjónleiki. En nú á dögum eru góðir fyrirlestrar haldnir hvarvetna og auk þess er ekkert því til fyrirstöðu, að hún fari til borgarinnar öðru hverju. Sú skoðun, að úti á landsbyggðinni hitti gáfað fólk, karlar og konur, síður, eða alls ekki, verð- uga jafningja sína, er algerlega röng. Miklir gáfu- menn finnast þar, ekki síður en annarsstaðar. William Allen White, einn gáfaðasti Ameríkumaður, sem ég | hef þekkt, átti heima í Emporia, Kansas. Þú kannt að segja: „Það voru ekki margir hans líkar þar“. Að vísu ekki, en heldur þú að þeir séu margir í New York eða Chicago? Þarfnast maður margra sér líkra vina, til þess að lifa hamingjusömu lífi? Nei, þrír eðá fjórir eru meira en nóg. Það er jafnvel betra þannig. Of margir vinir, enginn sannur vinur. Það er enginn tími til að stofna til náinnar vináttiy Til hvers er að hitta þá, sem mað- ur elskar, í svo fjölmennum samsætum, að maður getur aðeins byrjað samræður og aldrei lokið þeim? Flestir miklir listamenn, sem skapa frægð og álit Parísar, fæddust í litlum sveitaþorpum. Flestir amer- ískir forsetar koma frá afskekktum stöðum. Umhverf- ið skapar ekki mikinn mann. Ef hann raunveruelga er landi sínu mikils virði, verður það vitað og viður- kennt, fyrr eða síðar. Hver sannur listamaður, hver gáfuð kona, kemst áfram í lífinu. Hvað aðra snertir, þá er hin sanna hamingja þeirra komin undir gildi, ekki fjölda. • Engin helgispjöll að ferðast PÁSKARNIR nálgast, einn bezti frítími vinnandi fólks á árinu. Margir eru farnir að búa sig undir að nota vel þessa fridaga frá vinnu. Páskarnir eru snemma í betta sinn óþarf- lega snemma segja sumir ferðagarpamir. Aftur á móti finnst skíðamönnum það tals- verð trygging fyrir því að þeir fái snjó. Páskamir eru orðnir meiri háttar „ferðahelgi“, enda tíð- arandinn sá, að þessa helgi- daga sé ekkert leyfilegt að gera sér til ánægju og afþreyingar í byggð. En þegar komið er til fjalla, spillir það ekkert helginni að klífa fjöll, eða þeysast um í ferða- bílum syngjandi María og Því ertu að horfa svona alltaf á mig. Það er sennilega ástæð- an fyrir því að fólk streymir svo úr bænum þessa daga, jafnvel þó páskahelgin sé fyrr á árinu en fólk almennt tel- ur kominn ferðatíma, Ofurlítið virðist þó verða gert fyrir þá sem heima sitja að þessu sinni. Málverkasýn- ingar eru á ferðinni á tveimur stöðum a. m. k., frumsýning í Þjóðleikhúsinu á annan páskadag, taflmót fyrir þá sem þeirri íþrótt unna o. s. frv. Svo vonandi leiðist byggðasætunum ekki heldur þessa ferðahelgi. • Mikil fyrirhöfn Þeir sem ferðast, hafa mikið af veðri að segja. Ekki eru veðurfræðingar famir að spá páskaveðrinu löngu fyrir fram, þó það væri óneitan- lega þægilegt. En þær upp- lýsingar sem við fáum daginn eða tveimur dögum áður koma þó mörgum ferðamann- inum að gagni. Vel má hug- leiða, ekki sízt í tilefni þess að um þessar mundir er fyrsti alþjóðlegi veðurdagurinn, að áður en veðurfræðingarnir geta gert veðurspá fyrir land- ið, sem við heyrum á nokkr- um mínútum, berast þeim upplýsingar frá 93 veðurstöðv- um, auk upplýsinga frá skip- unum. Þetta er ekki svo lítil fyrirhöfn. Á 93 stöðum á land- inu gáir fólk til veðurs og sendix frá sér athuganir sín- ar, sem veðurfræðingarnir taka á móti nær allan sólar- hringinn, setja niður á kort og draga ályktanir af. * Falleg heiti Samt er veður á landi eins og okkar syo breytilegt, að dreifðar athugunarstöðvar e. u ekki með öllu fullnægjandi. T. d. sagði mér veðurfræð. ingur um daginn, að við Hval vatn væru regnmælar í kring- um vatnið og þar sannist að regnið á suðurbakkanum er 70% minna en á norðurbakk- anum. Sænskur veðurfræð- ingur á að hafa sagt að at- huguðu máli, að í Svíþjóð þyrftu að vera regnmæling- ar á 100 þús. stöðum, til að gefa nægilega nákvæma mæl- ingu. Það samsvarar að hér væru regnmæiar á 20 þús. stöðum. Og úr því ég er farinn að tala um regn, beinist hugur- inn að skýjunum. Varla er hægt að hugsa sér að til séu á öðrum málum fallegri og betri nöfn yfir skýin en á ís. lenzkri tungu. Þetta varð mér ljóst er ég fletti Skýjabók- inni. Tökum t. d. orð eins og blika, Maríutása, netjuský, gráblika regnþykkni kembur, hnökrar, klakkar, fjaðrir, strýjuð ský o. s. frv.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.