Morgunblaðið - 06.04.1961, Qupperneq 1
24 siður
18. árgangur
76. tbl. — Fimmtudagur 6. apríl 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsim
Engin átök, þegar
Sléttbakur landaði
í Grimsby í nótt
sem löndunin fór fram,
en ekki þurfti að grípa til
neinna aðgerða vegna ó-
eirða eða átaka.
Fulltrúi Sambands bafnar-
verkamanna — en í því eru
löndunarmenn — sagði við
fréttamann Morgunblaðsins:
Okkar menn framfylgja
stefnu okkar, sem er í því
fólgin að standa við gerða
samninga. Það er skoðun
okkar að framkoma þeirra sé
að öllu leyti rétt.
Þess má að lokum geta,
að hundruð áhorfenda söfn-
uðust saman á hafnarbakk-
anum í Grimsby í gærkvöldi
þcgar Sléttbakur sigldi að
bryggju með farm sinn. Bú-
izt er við að eftirspurn verði
mikil á fiskmarkaðinum,
þegar afli togarans verður
boðinn upp með morgninum.
(Sjá einnig- frétt á bls. 2 og 24).
Island æ mikilvægara
í vörnum NATO
vegna vaxandi kafbátaflota Rússa
Fréltaritari IVIbl. á blaðamannafundi í INIorfolk
Morgunblaðinu barst í
nótt einkaskeyti frá
fréttaritara sínum í
Grimsby, þar sem segir
að ekki hafi dregið til
neinna tíðinda við löndun
úr togaranum Sléttbaki
þar í borg. Öflugt varalið
úr brezku lögreglunni var
á verði við höfnina þar
Syrtir að
í Laos
WASHINGTON, 5. april — (Reut
er — NTB) í dag barst banda-
ríska utanríkisráðuneytinu til-
kynning um að fallihlífarher-
menn stjómar Boun Oums í
I.aos hefðu hafið sókn gegn
Bkæruliðum Pathet Lao ekki all-
fjarri Vientiane. Talsmaður ut-
enríkisráðuneytisins, Lincoln
ÍWhite, kvaðst ekki geta svarað
Bpumingum fréttamanna um það
hvort þessar aðgerðir stjórnar-
hermannanna væru srvo alvar-
legs eðlis að þær gætu haft á-
hxif til hins verra á friðarumleit
anir í Laos-deilunni sem virðast
hafa borið einhvern árangur sið
ustu daga. White sagði að Kenne
dy og Mcmillan hefðu þegar feng
ið að vita alla málavexti, en þeir
Bitja að viðræðum í Hvíta hús
inu.
Fjrrr I dag var almennt talið,
eð Bretland og Sovétríkm mundu
innan tveggja sólanhringa óska
eftir því við hina stríðandi aðila
í Laos að þeir semji vopnahlé og
síðan verði Laos-nefndin köll-
uð saman. En við fregnimar í
dag setti aftur að mönnum ugg.
Indverjar eru því viðbúnir að
alþjóðanefnd verði kölluð saman
um Laos málið án nokkurs telj-
andi fyrirvara og haldi fundi í
Nýju Delhi.
Nýr forseti Al-
þjóðadómstólsins
HAAG, 5. aipríl — (Reuter NTB)
Bohdan Winiarsky dómari frá
•Póllandi var í dag kjörinn for-
seti alþjóðadómstólsins í Haag.
Winiarsky er 77 ára að aldri og
hefur verið dómari við dómstól-
inn síðan 1945.
Ennfremur var Ricardo Alvaro,
dómari frá Panama kjörinn vara-
forseti dómsins. Alvaro er 7« ára
Einkaskeyti til Mbl.
frá Haraldi J. Hamar.
Norfolk, Bandaríkjunum, 5. apr.
Á FUNDI, sem flotaforingj-
ar Atlantshafsbandalagsins
héldu með íslenzkum frétta-
mönnum í gær, sagði Denni-
son aðmíráll, yfirforingi flota
bandalagsins, að ísland væri
einna mikilvægasta varnar-
stöðin í kerfi Atlantshafs-
bandalagsins. — Ef herstöðin
þar yrði lögð niður, sagði
Dennison, myndaðist þar
eyða, sem óvinur okkar yrði
án nokkurs vafa fljótur að
fylla upp í.
450 kafbátar
Á fundi þessum, þar sem við-
staddir voru m. a. flotaforingjar
frá Kanada, Frakklandi, Noregi,
Hollandi og Bandaríkjunum,
kom greinilega fram, hversu
mikilvægt ísland er vörnum
Atlantshafsbandalagsins. Og mik
ilvægi þess íer stöðugt vaxandi,
vegna kafbátahættunnar rúss-
nesku, sem sífellt eykst.
Kanadíski foringinn Mulv-
hill sagði, að ísland væri
Atlantshafsbandalaginu mik-
ilvægara nú en nokkru sinni
fyrr. — Rússar eiga stærsta
kafbátaflota heims, sagði
hann — 450 kafbáta, en þess
má geta, að Þjóðverjar áttu
aðeins 57 kafbáta þegar þeir
hófu síðari heimsstyrjöldina.
_ Framh. á bls. 23.
Alþjóða-
mál á
breiðum
grundvelli
Washington, 5. apríl
(Reuter—NTB) —
VIÐRÆÐUR þeirra Harold
Macmillan, forsætisráðherra
Bretlands og Kennedy Banda
ríkjaforseta hófust í Washing
ton í dag. Munu þeir ræða
ýmis alþjóðleg vandamál á
breiðum grundvelli, að því er
tilkynnt hefur verið opinber-
lega, en Kennedy Banda-
ríkjaforseti hefur látið í ljós,
að áhugi hans beinist mest
að viðræðum um friðsamlega
lausn Laos-deilunnar.
Á fundinum i dag voru rædd
ýmis vandamál varðandi Atl-
antshafsbandaiagið, samræmingu
Framh. á bls. 23.