Morgunblaðið - 06.04.1961, Side 6
6
MORGUN3LAÐ1B
Fimmtudagur 6. april 1961
«
Tyler Thompson.
Sendiherraskipti
BANDARÍSKA utanríkisráðu-
neytið hefur tilkynnt, að sendi-
herra Bandarikjanna á íslandi,
Mr. Tyler Thompson, verði kall-
aður heim til Washington, þar
sem hann taki við starfi i utan-
ríkisráðuneytinu. Óvíst er, hve-
nær sendiherrann fer héðan, og
ekki er heldur vitað, hver tekur
við starfi hans.
í Washington mun T. Thomp-
son verða yfirmaður starfsliðs ut-
anrikisþjónustunnar (Director
General of Foreign Service).
Það embætti heyrir beint und-
ir þann aðstoðarutanríkisráð-
herra, sem sér um rekstur utan-
ríkisþjónustunnar. Mr. T. Thomp
son mun verða aðalráðgjafi ut-
anríkisráðherra um öll atriði, er
varða rekstur og stjórn þjón-
ustunnar.
Mr. G. Soulen mun gegna störf
um sendiherra hér unz nýr verð-
ur skipaður.
Gunnhildi
náð á flot
ÍSAFIRÐI, 4. apríl. — Vélbátn-
um Gunnhildi, sem strandaði
fyrir skömmu á Óshlíðarströnd-
inni, var náð út aðfaranótt annars
páskadags. Marsellius Bernharðs-
son, skipasmíðameistari á ísafirði,
stjórnaði þessu björgunarstarfi.
Báturinn verður settur í slipp hér
á ísafirði. Hann er allmikið brot-
T^v v^v
y T^>
ÍSLANDSMÓTTNU í bridge lauk
nú um helgina. í sveitakeppninni
bar sveit Stefáns J. Guðjohnsen
sigur út býtum, hlaut 24 stig af
28 mögulegum og tapaði þannig
aðeins einum leik fyrir sveit
Ragnars Þorsteinssonar. Keppn-
in var afar hörð, og var sveit
nr. 2 með sömu tölu-vinninga, en
sveit Stefáns hafði hagstæðari
Kvennaverkfall
i Keflavlk hefur
lltil áhrif
Keflavík, 4. apríl.
VERKFATJ, kvenna við frysti-
húsin og aðra tímavinnu í Kefla
vík er algjört. Þrátt fyrir það
hefur verkfallið ekki lamandi á-
hrif á róðra bátanna, því fiskur-
inn er nú saltaður eða hengdur
upp til herzlu. Netafiskurinn,
sem nú berst að, er betur fallinn
til herzlu og söltunar og eru því
frystihúsin óðum að snúa sér
að þeirri verkun.
Engir fimdir hafa verið boðað
ir af sáttasemjara eða deiluaðil-
um heima fyrir og er lítið útlit
fyrir að svo verði gert á næst-
unni. —lisj.
Tæknin og kirkjan
AKRANESI, 4. april. Morgun-
messa átti að vera hér í kirkj-
unni á páskadag kl. 10, en þegar
byrja skyldi, voru bilaðar raf-
magnsleiðslur í kirkjunni, svo að
fresta varð messunni til kl. tvö
e.h., meðan viðgerð fór 'fram. Raf
magnskynding er í kirkjuhúsinu,
en frost talsvert. —Oddur
Sveit Stefáns J. G-uðjohnsens sigraði
falutföll EBL-stiga. f sveit Stefáns
eru, auk hans, Jóhann Jóhanns-
son, Jófaann Jónsson, Stefán
Stefánsson, Eggert Benónýsson
og Sveinn Ingvarsson. Endanleg
röð sveitanna varð þessi:
stig
Sveit Stefáns J. Guðjohnsen 24
Sveit Sigurhjartar Péturss. 24
Sveit Halls Símonarsonar 18
Sveit Einars Þorfinnssonar 17
Sveit Jakobs Bjarnasonar 13
Sveit Ragnars Þorsteinsson 12
Sveit Guðríðar Guðmundsd. 12
Sveit Jóns Magnússonar 12
Sveit Ólafs Guðmundssonar 11
Sveit Halldórs Helgasonar 11
Sveit Bernharðs Guðmundss. 10
Sveit Einars Bjarnasonar 4
íslandsmeistarar í tvímennings
keppni urðu Jón Arason og Sig-
urður Helgason. í 2. sæti urðu
Árni M. Jónsson og Sigurhjörtur
Pétursson og nr. 3 Ásmundur
Pálsson og Hjalti Elíasson.
Björn Sveinbjörnsson, varaforseti Bridgesambands Islands, af-
hendir Stefáni J. Guðjohnsen farandbikar Bridgesambandsins. ,
Á myndinni sjást einnig, talið frá vinstri: Jóhann Jónsson, y
Jóhann Jóhanusson og Sveinn Ingvarsson.
Úrslitin voru mjög tvísýn og fylgdust menn spenntir með stigaútreikningi að leik Ioknum,
Ljósm.: Sv. Þormóðsson.
inn. — G.K.
Páskahátíðin
í Keflavík
Keflavík, 4. apríl.
PÁSKAHÁTÍÐIN fór vel og
virðulega fram. Margir tóku þátt
í ferðalögum og annarri skemmt
an, sem á boðstólum var annars
staðar, aðrir létu sér nægja að
fara á smáfjöll hér í kring og
með skauta sína og skíði í ná-
grennið.
Krikja var vel gótt og Lúðra-
sveit Keflavíkur hafði kirkju-
tónleika á annan Páskadag, sem
voru vel sóttir og vel fluttir. Þar
komu fram Lúðrasveitin og sam
kór undir stjórn Herberts Hri-
berscheks, Árni Arinbjarnarson
lék á kirkjuorgelið, og einsöngva
sungu þeir Böðvar Pálsson og
Sverrir Olsen. Helgi S. Jónsson
las upp kafla úr Fjallkirkjunni.
Tónleikar þessir þóttu takast
mjög vel og komust færri að en
vildu. —hsj.
H. H. skrifar um ömefnið
,,Skeiðhóll“ í Hvammsfjalli
Kjós, sem ég vil færa H. H.
þakkir fyrir að reyna að kveða
niður nafnið „5taupasteinn“*
sem fékk þetta nýja heiti
nokkru eftir að bílfært var
inn með Hvalfirði 1933.
Mér hefir ætíð verið mikil
raun að þessu nafni „Staupa-
steins" og hefi reynt að leið-
rétta við hvem þann sem ég
heyri nefna þessu nafni, eink
um vegagerðar menn sem mið
uðu ýmislegt varðandi
skemmdir og færð á veginum
við „Staupastein“. Þess vegna
var sett þarna upp merkið:
,,Skeiðhóll“ og fleiri „merki"
sem voru sett upp á merk ör-
nefni í Hvalfirði sem hafa
lifað síðan á Söguöld.
• Presturinn eða
karlinn í Skeiðhól
En „steininn“ í Skeiðnól
hefi ég aldrei heyrt nefndan
annað en „Préstinn" í Skeið-
hól, eða „Karlinn" í Skeiðhól.
Ég hefi gert mér far um
að vita hvort nafnið væri
réttara, spurt um það marga
Kjósaringa, og svtarið hefir
verið: „Presturinn eða Karl-
inn í Skeiðhól".
í fyrra sumar norður á
Blönduósi átti ég tal um þetta
við frú Guðbjörgu Guðmunds
dóttur, konu Páls V. Kolka
læknis; og sagði hún: að það
Ihefði verið kallaður „Prestur-
inn í Skeiðhól". En heyrt hafði
hún nefndan ,,Karlinn“. Vel
má frú Guðbjörg vita þetta
með vissu, þar sem hún er
frá Hvammsvík í Kjós og
Skeiðhóll er í Hvammsvíkur-
landi.
Aldrei hefi ég heyrt nafnið
„Steðji“ þó það geti vel verið,
og hefi ég þó gert mér far um
að vita um tflest örnefni í
Hvalfirði og víðar.
í tilefni þessa umrædda
örnefnis „Skeiðhóll" voru
merkt fleiri örnefni sem eiga
sína 1000 ára sögu, og vissu-
lega ber okkur að varðveita
og virða fom örnefni, sem
hafa gefið sögu okkar ómetan
legt gildi.
En hvernig tekur fólkið
þessu sem um vegina fara?
• Merkispjöld
Það voru sett upp áletruð
merkispjöld í fyrra haust við
þessi örnefni: „Tíðaskarð” hjá
Saurbæ, Kjalarnesi. Skeið-
hóll“, „Hlaðfaamar" sunnan
við gamla vaðið á Botnsá
„Helgufaóll", sem er vestan
við Skipalág, neðan við bæinn
Þyril.
„Flestir fslendingar þekkja
harmsögu Helgu Haraldsdótt-
ur, þegar hún flúði úr Hólm-
inum um nóttina að bjarga
lífi sínu og sona sinna,
og synti með þá í land og
flúði á fjall, þegar búið var
að drepa manninn hennar.“
Ég fór nokkmm vikum síð-
ar inn Hvaltfjörð. Þá var búið
að brjóta niður öll þessi merki.
Lágu flest kersluð niður á
staðnum. Það var ekki látið
hér við sitja. Merkin voru
sett upp að nýju í vor leið,
úr sterkum málmplötum fest
á rörstuðla steypta niður.
Stuttu síðar, var skafið af
nafnið Hlaðhamar og það svo
vandlega að ekki sást litur
eftir of grunnmálningunni
undir nafninu. Það er mín
skoðun að svona skemmdar-
verk séu ekki gerð af krökk-
um, né heldur unglingum.
Það er mikið af fornum og
merkum örnefnum i Hvaltfirði
sem sannarlega á að varð-
veita frá gleymsku og nýjum
orðmyndunum.
-----1 ]--ICflc:
CXI I \h loOGff
^ ^
FERDIIM AIMP
☆
•- _Sw Con—
--☆s.
Po* 6 Copenhogen
z' i"1