Morgunblaðið - 20.04.1961, Side 8

Morgunblaðið - 20.04.1961, Side 8
8 MORGVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 20. apríl 1961 Kristján Guðmundsson í Seli við Seljaveg föður minn fullan. Væri hann blindfullur og í verulega vondu skapi þá mátti ég vera viss um ill viðri. Annars fór veðrið eftir á- standi hans og því í hvernig skapi hann var. Það kom fyrir að ég hætti við að leggja línu ef mig löngu fyrir sumar má búast við góðu vori. — Og svo megum við ekkj gleyma straumunum. Veðrið fer svo mikið eftir þeim, segir Jón að síðustu. Treysti betur nútímatækni Auðunn Oddsson, gamall sjó- sóknari úr Eyjum, var einmitt að gá til veðurs, er við hittum ENNIRNIR NU á sumarmálum mun mörgum hugleikið að fá að vita um hvernig veðrið verð- «r í sumar. Svo margir eiga Jífsafkomu sína undir sól og vindum að vissulega mun hugur þeirra bundinn veður farinu öðru fremur. Blaða- menn Mbl. brugðu sér því á vit nokkurra fróðra manna í þessum efnum, snéru sér fyrst til veðurfræðinga vorra Og freistuðu að rekja úr þeim garnirnar en brugðu sér síð an í heimsókn til nokkurra öldunga og lögðu fyrir þá spurningar. Þessir öldnu spekingar hafa lengst af æf- innar átt allt sitt undir veðr- inu og hefir það þroskað hjá þeim gáfumar að spá fyrir veðri um lengri og skemmri tíma. Fyrst gefum við veðurfræð ingunum orðið. Við þessu má búast. Jón Eyþórsson, sagði að skv. reynslu síðustu 20—30 ára ætti sumarveðrið, þ.e.a.s. hiti og úr koma, að vera sem hér segir: Meðalhiti í Reykjavík: maí júní júlí ágúst sept. 7,2 st. 10 st. 12 st. 11 st. 9 st. Og úrkoman: 40mm 40mm 50mm 70mm 75mm Meðalhiti á Akureyri: 6,4 st. 9,5 st. 11 st. 10 st. 8 st. Og úrkoman: 20mm 20mm 35mm 40mm 50mm í Reykjavík rignir ca annan hvern dag í maí, júní og júlí og 18—20 daga í ágúst og september. Á Akureyrl rignir minna, eða 6 daga í mai, 8 daga í júní, 10 daga í júli, 11 daga í ágúst og 12 daga í september. Þessir tveir staðir, annar á Norðurlandi hinn á Suð urlandi, gefa hugmynd um sum arveðrið í landinu. Reynslan hefur kennt okkur að þetta er það sem við megum búast við, sagði Jón. En út af því getur svo brugðið, orðið ann að hvort óvenjulega kalt eða óvenjulega heitt. En það er eng in sýnileg ástæða til að búast við óvenjulegum kuldum núna hvað sem á daginn kann að koma. Fram að páskum, hefur vet urinn verið mildur, enginn ís er nærri landinu og ætla má að sjór inn sé í hlýrra lagi eftir vetur- inn. Umhleypingasamt næstu árin. Þá áttum við tal við Borgþór Jónsson, sem starfar á veðurstof unni á Keflavíkurflugvelli. En hann hefur ásamt bandarískum veðurfræðingum undanfarinn mánuð verið að rannsaka veður- athuganir frá Reykjavík síðan farið var að gera þær 1882. Hann hafði á orði að þetta væri yfir- borðsleg athugun, þar sem tími væri stuttur og lítið af vélum til útreikninga. í fljótu bragði sýndist þeim félögum að búast mætti við meiri úrkomu og umhleypinga- samari tíð næstu 2—3 árin en undanfarin ár. Hér hefur gengið fremur þurrt tímabil að undan- teknu árinu 1959, sem var vætu samt. S.I. vetur hefur t.d. verið þurr alveg frá því í febrúar. En nú má búast við að lægðirnar, sem yfirleitt hafa farið langt fyr ir sunnan landið, fari að hafa norð lægari brautir og komi nær land inu. Þeir félagarnir hafa lagt mestu áherzlu á að athuga veðurfarið að vetrinum, en sumrin ættu einn- ig að verða umhleypingasamari og gæti það þá byrjað með þessa sumri, sem nú gengur í garð. Vont veður, ef karlinn var fullur. Inni í Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna, hittum við fyrir í forsalnum Torfa skip- I stjóra Halldórsson hressan og kát an að vanda og spyrjum hvort hann hafði ekki dreymt fyrir veðr inu í sumar. — Nei, nú er mig alveg hætt að dreyma fyrir veðri síðan ég hætti skipstjórn. Ég sé bara hvermg veðrið verður þennan og þennan Torfi Halldórsson daginn. Ég sá að það yrði austan gjóla þennan síðasta dag vetrar ins, þegar ég leit út í morgun. Ég læt mér sem sé nægja að spá fyrir einum degi í senn. — Og hvað dreymdi þig nú fyrir veðrum hér áður fyrr með an þú stundaðir sjóinn? — Það brást ekki vont veður eða að óhapp kom fyrir um borð hjá mér, ef mig dreymdi karl FRÁ FÓSTBRÆÐRUM FRÁ FÓSTBRÆÐRUM GrHsending til styrktarmelma 45 ára afmælis kórsins verður minnst með hófi í Sjálfstæðishúsinu n.k. laugardag 22. þ.m. kl. 7 e.h. Styrktarfélögum er velkominn þátttaka meðan húsrúm leyfir. FJÖLBREYTT SKEMMTISKRÁ- Aðgöngumiðar afhentir í leðurverzlun Jóns Bryniólfssonar, svo og í Vonarstræti 4, III. hæð, fimmtudag (smardaginn fyrsta) kl. 4—6. SAMKV ÆMISKLÆÐN AÐUR KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR hafði dreymt gamla manninn. Oft ast hafði ég gott af því, en fyrir kom þó að ég sat af mér með þessu því veðrið kom þá seinna en ég hafði búizt við. Oftar varð þó hitt. En ef þig langar til að vita eitthvað um veðrið fram í tímann þá skulum við tala við hann Jón Magnússon. Hann veit hvað hann syngur. Uppþotasamur framan af. Við náum nú tali af Jóni Magn- ússyni, sem ættaður er af Mýrum og Snæfellsnesi og réri ungur á skútum frá Vestfjörðum, en stundaði síðan verzlunarstörf. Jón er maður um sjötugt, nokkr um árum eldri en Torfi. y ' ,r Jón Magnússon -— Ég er hræddur um að hann verði uppþotasamur framan af sumri, segir Jón. —En það fer að taka upp fönn ina, bætir hann við. — Sú fönn, sem kemur seint á vetri, er sjald- an lengi að hverfa. Hér sunnan lands er fönnin áreiðanlega búin að vera. — Og hvernig stendur á því að þú býst við uppþotum framan af sumri? — Ég byggi það á því hvernig hann tók til um páskana.. Það gæti orðið kalt vor. Mér finnst jörðin eitthvað svo köld. Ég hef líka tekið eftir því að þegar hörð frost geysa á JanMayen þá leggur kulda þaðan að norðan og hér suð ur yfir landið. Það eru einmitt mikil frost þar núna. Það gerir minna til þótt kalt sé á Græn- landi. — Hafið þið tekið eftir því að brumknappar væru orðnir greini- legir á trjám, spyr Jón okkur. — Nei við höfðum ekki tekið eftir því og töldum að svo mundi ekki vera. — Það getur nefnilega farið talsvert eftir því hvernig vorar. Ef brum eru komin á trén all- hann á Dvalarheimilinu. Hann beið þess að gæfi á sjóinn, svo hann gæti lagt af stað við annan mann til Ólafsvíkur á 4 lesta trillu, sem hann á. Þar ætlar hann að vera á handfærum í sumar, þó kominn sé yfir sjötugt. — Ætli Auðun Oddson ég fari ekki í kvöld, ef Veður* stofan spáir ekki verr, sagði hann og horfði upp í loftið. — Sjáðu, þegar skýin eru svona slétt og langur bakki á himmn um, eins og þessi þarna, þá er venjulega vindur þar uppi. En ég held hann sé nú að draga niður. — Hvort treystirðu betur á Veðurstofuna eða eigin athugun? — Ég trúi betur á nútíma tækni, held ég. Ætli ég láti Veð urstofuna ekki ráða. Maður verð ur að gera það . . . Æ, ég veit það samt ekki. — Hvernig heldurðu að veður farið verði í sumar? — Mér lízt illa á það. Ég held að hretin og kuldinn hafi komið of seint. Þegar fer að grænka á þorranum, þá fáum við venjulega köld vor. Ég er þá hræddur um að það verði kalt a.m.k. fram á hvítasunnu. En um framhaldið vil ég ekkert segja. Ég hefi alltaf trúað því að veðrið að sumrinu verði eins og það sr á sumardag inn fyrsta, svo kannski ég gæti sagt þér það eftir morgundaginn. Annars er veðurfarið á fslandi orðið svo breytt frá því áður var, bætti Auðunn við. Það er orðið eins og Krukkur sagði: „Með langviðrum og lagaleysum mun land vort eyðast". Þetta er orðið hérumbil sama veðrið alltaf. Og því er minna að marka trú gömiu mannanna en áður var. Þá var tii mikið af veðurglöggum mönnum, — Og eftir hverju var farið? — Maður fór eftir útliti á loftl, skýjafari og sjónum, en þetta er nokkuð sem ekki er hægt að lýsa, Framh. á bls. 23. Atvinna Oss vantar nú þegar eða 1. maí bílstjóra. 2 duglegar afgreiðslustúlkur í matvöru- búðir. — Upplýsingar á skrifstofunni, á morgun kl. 10—12 og 4—6. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis ROI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.