Morgunblaðið - 23.04.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1961, Blaðsíða 2
9RCTJWBLAÐ1Ð Sunnudagur 23. aprfl 1961 Rætt um vetrarver- tíðina og útvegsmál v/'ð Finnhoga frá Gerðum FYRIR no'kkrum dögum átti Mbl., samtal við Finnboga Guð- mundsson útgerðarmann frá Gerðum, um útgerðina og ýmis vandamál hennar í dag. / Finnbogi sagði að verkföllin 1 upphafi vertíðarinnar, hefðu haft mjög slæm áhrif. Einmitt í byrjun vertíðarinnar var aflinn góður. Það var lika óttinn við viðtækari verkföll þegar fyrir áramótin sem einnig hafði lam- andi áhrif á allan vertíðar und- irbúninginn, t. d. á mannaráðn- ingar á skipin. Fjöldi dugandi gjómanna taldi sig sjá fram á verkfall á bátaflotanum og gerðu þá aðrar ráðstafanir til þess að tryggja sér atvinnu. Á þessum tíma og mjög erfitt um öflun útgerðarlána til vetrarvertíðar- innar, vegna verkfallsóttans. Lausn þessara vinnudeilu var ttm marga hluti mjög merkiieg, sagði Finnbogi. — Landssambandi ísl. útvegs- manna tókst að ná samkomulagi við fiskvinnslustöðvarnar um nokkra hækkun á fiskverði sér- staklega á gæðamesta fiskinn. t. d. daglega lönduðum línu- fiski. Á grundvelli þessa fisk- verðssamnings reyndist mögulegt að koma til móts við nokkrar tekjuhækkunar til bátasjómanna, einkum þeirra sem landa bezta fískinum. Það er nú almennt viðurkennt af ölium, að hið nýja fyrirkomu lag: gæðamatið og fiskverðið, hafi orðið til mikilla bóta. Ef við hefðum nú fengið svipaða vertíð og sú sem var t. d. á árunum 1954—55, en þá var góð- ur afli á línu hér við Faxaflóa, hefði afkoma útvegsmanna og sjómanna nú i vetur verið mjög góð, vegna þess hve verðið á línufiskinum er hátt, þar eð hann er í fyrsta verð- og gæðaflokki. Við tilkomu gæðamatsins hef- tir öll meðferð fisksins batnað. Við eigum eftir að sjá það enn betur að ferskfiskmatið verður ó- metanlegt framlag til bess að tryggja það að íslenzkur fiskur verði ávallt sá beszti sem á boð- stólnum er. — Þeir ágætu menn sem hlut áttu að þessari stór- felldu breytingu eiga skilið þakk ir alþjóðar. Um aflaleysið á miðunum sagði Finnbogi frá Gerðum, að það væri alvarlegt mál fyrir útveg- inn. Það þarf líka mikið til að hátt á fjórða hundrað bátar í verstöðvunum milli Hornafjarð- ar og Stykkishálms afli vel yfir vetrarvertíðina. Stormasamt hef ttr Verið hér syðra í vetur og hefur það torveldað sjósókn og dregið úr afla. Á sama tíma faefur verið einstaklega góð tíð fyrir norðan. Þar hafa bátar getað stundað veiðar með betri árangri en jafnvel dæmi eru til um áður. Það er skoðun min og ýmissa fleiri að fiskisgengd hafi oftast verið norður af Austur- landi á vertíðarmánuðunum, en veðrátta er þá oftast svo hörð nyrðra á þeim tíma árs að ekki hefur verið hægt að stunda veiðar með nokkrum teljandi árangri. Vist er að nokkur tmd- •anfarin ár hefur tíðarfarið farið batnandi á hafinu norður af Austurlandinu og hefur útgerð þar eystra aukizt verulega og er með allra mesta móti nú í ár. Finnbogi kvaðst líka vera þeirrar skoðunnar að vélbátaflot inn sé ekki nógu vel mannaður. Hefðu margir bátar ekki fulla tölu manna og geta því förföll í skiprúmi undir siíkum kringum- stæðum orðið til hins mesta tjóns, því menn fást ekki til þess að fylla í skörðin. En þó nú séu erfiðleikar fram- undan hjá útgerðinni, eftir trega vertíð, megum við ekki láta hendur falla í skaut. Fiskneysl- an í heiminiun mun halda áfram að aukast mikið og ætti því verð- lag í fiski að fara hækkandi. Ég trúi því að við íslendingar eigum eftir að ausa upp miklum auðæfum á veiðisvæðunum við landið. Því megum við ekki láta stund ar erfiðleika draga úr okkur kjarkinn. Þeir sem landinu stjórna verða að sýna þrenging- Knatt - spyrna inni um útvegsins skilning. Um langa framtíð verður það fyrst of fremst fiskurinn sem við drög um úr sjónum,' sem þjóðin lifir af, sagði Finnbogi frá Gerðum að lokum. Vor- og sumarsýning opnuð í Asgrímssafni í DAG fer fram í íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelii knatt- spyrnumót innanhúss. Eru það Keflavíkingar sem að mótinú staanda en 10 lið eða 11 lði taka þátt í mótinu. Meðal þeirra eru öll 1. deildarliðin Og verður án efa gaman að sjá liðin keppa á þessum stóra velU. MikU nðsókn ' oð Noskyrn- ingunum „Nashyrningarnir“ eru sýndir við mikla hrifningu og ágæta . aðsókn í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Fá leikrit hafa vakið jafnmikla athygli og umtal hins síðari ár. Sýning Þjóðleikhússins heftir hlotið ágæta dóma þykir vönduð og nýstárleg á margan hátt. Næsta sýning verður í kvöld. Myndin er af Lárusi Páls- syni og Róbert Arnfinnssyni í aðalhlutverkum leiksins. f DAG er opnuð ný myndlistar- sýning í húsi Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74. Hún er sú þriðja í röðinni síðan safnið var opnað 5. nóv. sL, og mun hún standa frameftir sumri. Eru olíu- myndir sýndar í vinnustofunni, en vatnsUtamyndir í heimilinu. Með þessari sýningu er leitazt við að sýna þróun í list Ásgríms um þvínær sex áratuga skeið, og þá m.a. haft í huga ferðafólk, sem á þess ekki kost að skoða safnið nema endnun og eins. Elzta verkið á sýningunni er frá 1899, eh það yngsta frá 1958. Nú er sýnd í fyrsta sinni frum- Skáta - dagurinn SKÁTADAGURINN er í dag kl. 1.30 e. h. munu skátar safnast saman við Skátaheimilið, og skrúðganga um bæinn hefst kl. 2. Þeir ganga um Snorrabraut, Laugaveg, Bankastræti, Aðal- stræti, Túngötu, Hofsvallagötu, Hringbraut, Melatorg, Skothús- veg, Laufásveg, Barónsstíg. Milli 3 og hálf fjögur munu þeir koma að Austurbæj arskól- anum, og hefjast þá sýningar á ýmsum skátastörfum. Áður en sýnngar byrja, mun skátahöfð- inginn, Jónas B. Jónsson, flytja stutt ávarp. Um kvöldið verður útivarð- eldur á sama stað, og hefst hann kl. 8.30. [y* NA /5 hnútor] 1 SV Sdhnútar X Snjókomo 9 únwm V Skúrir^ fC Þrumur mss, Kukhski! Hifaski/ H H*» LéUui DÆGÐIN hefur þökazt örlítið til NV síðastliðinn sólarhring, og er það nóg til þess, að vorhlýindin hafa náð til Norð urlands. Um hádegi í gær var 9 st. hiti á Blöndósi og Nauta- búi, en á annesjum nyrðra var aðeins 2—3 st. hiti. Hlýj- ast var á Hellu á RangárvöH- um 12 stig. Á Vestfjarðamið- um var vindur allhvass svo og kuldabræla, en frostlaust. Veðurspáin á hádegi í gær: SV-mið: Austan stinnings- kaldi, þykkt löft Og dálítil rigning. — SV-land til Vest- fjarða, Faxaflóamið og Breiða fjarðamið: Austan kaldi, skýj- að. — Vestfjarðamið: All- hvass austan eða NA, rigning. Norðurland: Hægviðri, skýj- að. — Norðurmið: Austan stinningskaldi, rigning með köflum. — NA-land til SA- lands og miðin: Austan eða SA kaldi, þokuloft og rign- ing. myndin að stærstu eldgosmynd Ásgríms, sem hann nefndi Sturlu hlaup, og er síðasta olíumyndin sem listamaðurinn vann að, en tókst ekki að Ijúka við. Frum- myndin er máluð um aldamótin, og fannst hún í húsi Ásgríms eftir lát hans. Er myndin nýlega komin frá Listasafninu danska, en þar var hún í hreinsun og viðgerð. Gefið hefur verið út á vegum Ásgrímssafns lítið upplýsingarit, á fjórum tungumálum, um mál- arann og safnið. Á forsíðu er mynd af listamanninum að starfi. Þá mynd tók Ósvald Knudsen í Svínahrauni sumarið 1956. Á bakhlið er mynd af síðasta lista- verki Ásgríms Jónssonar, teikn- ing úr ævintýrinu um Sigurð kóngsson. Ásgrímssafn er opið á sunnu- dögum, þriðjudögum og fimmtu- dögum frá kl. 1,30—4. Aðgangur er ókeypis. Á FJMMT.UD'AGTNN þann 20.' apríl var afmælisdagur Hitl- I ers einræðisherra. Þá bar svo | við suður í Fossvogskirkju-1 garði, að hópur nokkurra stráka safnaðist þar saman \ og þóttust vera litlir SS-1 menn eða Gestapó karlar í j anda hins dauða einræðis- herra. Marseruðu þeir undir' gömlym kafbátafána með | hakakrossmerkinu á um i kirkjugarðinn og var þessi mynd þá tekin. Það versta' við þennan ljóta leik I var að þessir þokkapiltar | gengu að leiði þýzkra her- manna í kirkjugarðinum og1 óvirtu þá með nazistakveðj-1 um. Þennan sama dag héldu aðr ! ir einræðisvinir líka upp á' afmæli Hitlers. Það voru ung- ( kommúnistar hér í bæ, sem | minntust vináttusamnings i Hitlers Og Stalins með þvl að' lima kommúníska áróðurs- miða upp á nokkrum stöðum í bænum. Þeir piltar unnu, meðal annars það afrek að svívirða minnismerki sr. | Friðriks Friðrikssonar í Lækj . argötu með því að líma áróð- ursmiða á fótstall styttunn-1 unnar. Þannig minntust nazlstar og , kommúnistar saman afmælis' Hitler 20. apríl 1961. Mmælissýning Batböru opnuð FÉLAG íslenzkra myndlistar- manna gengst fyrir sýningu á 108 verkum frú Barböru Áma- son í Listamannaskálanum í til- IRog KFR unnu ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt- leik hélt áfram á sumardaginn fyrsta kl. 8,15. Þá fóru fram tveir leikir í meistaraflokki karla. Sigraði ÁR ÍKF með 78 stigum gegn 39 og KFR vann Ár- mann í spennandi og jöfnum leik 56:54. Að þrem mínútum liðnum var staðan 9:4 og 15:6 eftir 7 mín. Staðan í hléinu var 36:19. Síðari hálfleikur var svipaður hinum fyrri, og lauk leiknum með sigri íslandsmeistaranna 78:39. Leikur KFR Og Ármanns var geysilega spennandi, en flestir reiknuðu með yfirburðarsigri KFR, þar er Ármann vantaði tvo af sínum fceztu mönnum. En það fór á annan veg, því stigin stóðu oft jöfn og stundum hafði Ármann yfir. Spennan var enn meiri í seinni hálfleik, en þá stóðu stigin 10:9 fyrir Ármann. KFR náði betri leik í seinni hálfleik og tókst að komast yfir, en Ár- menningum tókst fjórum sinnum að jafna, og er tæp mínúta var til leiksloka stóðu leikar jafnt, 54:54. En á síðustu sekúndunum tókst leikmönnum KFR að skora, um leið Og leiknum lauk. Leikn- um lauk því með nauoaum sigri KFR, 56:54. efni fimmtugsafmælis listakön* unnaí. Sýningin var opnuð sfa föstudag og er opin dag hvern frá klukkan tvö til tíu. i Frú Barbara er mjög mikil- hæf listakona, eins og kunnugt er, og ber sýningin því glöggt vitni. Listaverkin eru 108, eins og fyrr getur, bæði vatns 1 ita- myndir og teikningar, gouache-. og pastelmyndir, tréristur, myiidir á tréspón, veggteppi, myndaskermar og mottur, og gefur sýningin mjög gott yfirlit yfir starf listakonunnar á und- anfömum áratugum. , Fjölmenni var við opnun sýn- ingarinnar í fyrradag, þar á rrteðal forsetahjónin. — Kúba Framhald af bls. 1 vera mikið. Sannleikurinn er sá, sagði hann, að eftir að við höfð- um stigið á land gátum við varla þverfótað fyrir heimavarnarliðs- mönnum, sem studdu Castro- stjórnina. Fréttamaður Reuters í Havana segir að enn sé ekki hægt að fá neina nákvæma heildarmynd af atburðunum á Kúbu, — en eitt er staðreynd. Hver einasti mað- ur sem maður talar við hefur misst einhvem kunningja sinn ýmist í valian eða í farujahúðir Castros

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.