Morgunblaðið - 23.04.1961, Síða 8
8
MORGVNBL'AÐtÐ
Sunnudagur 23. apríl 1961
Sigurður A. IVEagnússon
Hvaða munur er á
Messiasi og Ben Gurion
Ekki v»titar hana kvenleikann, þó umúðirnar séu ekki beint
árennilcgar.
Á ÞEIM níu árum sem liðin eru
síðan ég heimsótti fsrael síðast
hafa gerzt þar undur og stór-
merki. Árið 1952 var ríkið í
frumbernsku og vandamálin
ógnvænleg, þrátt fyrir næstum
yfirmannleg afköst frumbýlings
áranna. Landið var enn að
nokkru eyðimörk og framleiðsl-
an á byrjunarstigi. Innflytjend-
ur dreif að úr öllum áttum, og
hvarvetna blöstu við augum
bráðabirgðabúðir aðkomufólks-
ins. Ýmsar nauðsynjavörur voru
stranglega skammtaðar: t. d.
varðaði það allt upp í sex mán-
aða fangelsi að kaupa þrjú egg
á svörttun markaði.
í dag er fsrael komið langt-
um lengra á þróunarbrautinni en
nokkurt ríki í Asíu eða Afríku
og þó lengra væri jafnað. Land-
ið hefur verið klætt gróðri svo
það minnir mest á frjósaman
aldingarð, og efnahagurinn er
með miklum blóma. Bvo til allir
innflytjendur hafa fengið nýtízku
býbýli, og er þó íbúatalan kom-
in upp í ca. 2.140.000. Hún hefur
þrefaldazt á 14 árum. Nú fram-
leiðir ísrael árlega kringum 700
milljónir eggja og flytur út mik-
ið magn af þeim, t. d. til Aust-
urríkis, ftalíu og Sviss. Sömu
sögu er að segja af grænmetis-
framleiðslunni.
ísrael nútímans er bæði í eig-
inlegum og óeiginlegum skiln-
ingi vin í eyðimörkinni við
austanvert Miðjarðarhaf. Þar býr
þjóð sem skarar í flestu tilliti
langt fram úr nágrannaþjóðun-
um og er m. a. af þeim sökum
umsetin af óvinum, en hún held-
ur æðrulaus stefnu’sinni til nýrr-
ar og enn betri framtíðar.
Saga hins nýja Ísraelsríkis
minnir um ótrúlega margt á
fornar sagnir Gamla testamentis
af þrekraunum, viljafestu og af-
rekum "'hinnar litlu þjóðar sem
stóð af sér allar hörmungar kúg-
unar, herleiðinga og alls kyns
óárans, hélt fast við fornhelgar
hefðir og þróaði jafnframt með
sér þjóðskipulag sem var mörgum
öldum á undan sínum tíma. Saga
gyðinga fram á þennan dag er
í senn einn mesti harmleikur og
eitthvert mesta undur veraldar-
sögunnar. Að því hníga þungvæg
rök að hið unga ríki eigi enn
eftir að gegna merkilegu hlut-
verki í sögunni, og má t. d. í
því sambandi benda á hinn stóra
skerf sem það hefur lagt til upp
byggingarinnar í Afríku. ísra-
elar voru þjóða fyrstir til að
koma auga á þörf hinna ungu
ríkja Afríku fyrir tæknilega að-
stoð og siðférðilegan stuðning.
Sú framsýni á eflaust eftir að
verða þeim giftudrjúg þegar
fram líða stundir.
Kibbutz — haluziut
Sú eigjnd gyðinga sem bezt
hefur dugað þeim á öllum öld-
um er samheldnin, félagshvötin.
Nú á dögum kemur hún hvað
áþreifanlegast fram í hinum stór
merkilega samyrkjubúskap sem
rekinn hefur verið í ísrael allt
síðan 1909. Samyrkjubúin
(kibbutzim) eru óháð ríkinu, þau
eru sameign allra sem á þeim
vinna. Þangað fer enginn nauð-
ugur og menn geta horfið þaðan
hvenær sem þeim sýnist. En all-
ir kibbutz-félagar eru eigna-
lausir, eða réttara sagt eiga allt
sameigninlega og fá þarfir sín-
ar uppfylltar í samræmi við efna
hag samyrkjubúsins. Þessi bú
skipta nú hundruðum í ísrael,
og á hverju þeirra vinna allt
upp í þúsund manns. Það er haf
ið yfir allan efa að þessi bú-
skaparháttur hefur orðið efna-
hagslífi ísraels ómetanleg lyfti-
stöng, enda er kibbutz-hreyf-
ingin orðin voldugt afl í land-
inu. Mörg búin eru vellauðug og
hafa forgöngu um margs konar
menningareflingu.
í raiminni má segja að kibbutz
hreyfingin sé einasta dæmið um
það, hvernig framkvæma má
sameignarhugsjón kommúnism-
ans með árangri. Það verður að-
eins gert á grundvelli fullkom-
ins frelsis og sjálfræðis hvers
einstaklings. Þegar ríkisafskipti
og þvinganir. koma til sögunnar
verður hugsjónin anntað hvort
blóðlaus eða hún umhverfist í
andstæðu sína. í sameign felst
það að tveir eða fleiri einstakl-
ingar eigi eitthvað saman og
njóti góðs af því, en ríkiskomm-
únisminn felur í sér útþurrkun
einstaklingsins og algert vald
þeirrar afströktu hugmyndar
sem nefnd er ríki.
ísraelar nefna hugsjón
samhyggjunnar „haluziut“; hún
felur í sér viðleitni einstaklingsw
ins til að skapa sér og með-
bræðrum sínum mannsæmandi
líf þar sem réttlæti helzt í hend«
ur við þjóðlegt og andlegt frelsi.
Áherzlan'liggur á samstarfi og
sameiginlegu átaki hópsins, gagn
kvæmri hjálp, vinnu, glaðværð.
fjölskyldulífi og þátttöku í kjör-
um meðbræðranna. Þessi hug-.
sjón er engan veginn ný af nál.
inni með gyðingum, en hún hefur
fengið mjög nýstárlega mynd i
rekstri samyrkjubúanna.
Kibbutz-hreyfingin hefur kom
ið tvennu til leiðar í fsrael: hún
hefur breytt eyðimörk í aldin-
garð, og hún hefur mótað nýja
manngerð, félagsveru sem setur
hag heildarinnar ofar persónu-
legum þörfum eða óskum.
Sundurlyndi
Að sjálfsögðu er þetta aðein*
ein hlið á lífi ísraela. Þar
eru aðrar hliðar, sumar kannski
miður aðlaðandi.. Taka má t. d.
stjórnmálalífið. Þar ríður sund-
urlyndið við lausan taum. Stjórn
málaflokkar eru margir og deil-
ur illvígar. Þar takast einstakl-
ingar tíðum harkalega á, og
urðu slík átök tveggja einstakl-
inga ekki alls fyrir löngu þess
valdandi, að rjúfa varð þing og
efna til nýrra kosninga í ágúst.
hálfu öðru ári áður en kjörtíma-
bili er lokið.
Þó sameignarhugsjónin ríkl
á samyrkjubúunum og gefist
vel, þá er mjög hörð samkeppni
í viðskiptalífi fsraels, og þakka
margir henni hinn mikla upp-
gang sem verið hefur í efnahaga
lífinu undanfarin ár. Má vel
vera að það sé rétt, enda mál
fróðra manna að hinn gullni
meðalvegur „blandaðs efnahags-
lífs“ sé affarasælastur.
Ríkur í ei:.a viku
f ísrael blandast saman gam.
alt og nýtt með furðulegum
hætti. Enda þótt trúarbrögðin
eigi lítil ítök í íólkinu, heldur
ríkið samt fast við ýmsar forn-
helgar venjur. í ffáskavikunni
er t. d. hvergi hægt að fá venju-
legt brauð, bjór eða annað það
sem-gerjað er. Gengur þetta svo
langt að sjálft ríkið verður að
selja allar birgðir sínar af þeim
varningi sem bannaður er í helg-
um ritum. Varningurinn er
seldur Araba fyrir páskavikuna
og síðan keyptur aftur á sama
verði, sem er auðvitað aldrei
greitt, því þetta er bara á papp-
írnum. Strangt tekið er sennilega
umræddur Arabi ríkasti maður
í ísrael þessa einu viku!
.Á hinn bóginn er menningar-
lífið með mjög nýtízkulegum
hætti og mikil gróska í því, eink
um í tónlistarlífi og leiklist.
Listaverkasýningar eru einnig
tíðar og mjög vel sóttar. Áhugi
Hið nýja hringleikaliús háskólans í Jerúsalem.
BHK
KRAFTUR - ÖRYGS9 - ENDENG
S t se r ð i r :
4ra strokka — 34/55 hö — 1250/2250 snúningar
6 strokka — 50/86 hö — 1250/2250 snúningar
Tækniþ jónusta:
Vélaverkstæði BJÖRNS & HALLDÓRS
Siðumúla 9 — Reykjavík ■— Sími 36036
EINKAUMBOÐ:
St,
einauor
Norðurstíg 7 — Reykjavík — Síml 24123
Lf.
FORD-diesel bátavél