Morgunblaðið - 23.04.1961, Side 14
14
MORCVTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. apríl 1961
Skemmtibátur
16 feta bátur, yfirbyggður að framan, smíðaður úr
org-pine og mahogony til sölu„ Báturinn er útbúinn
fyrir innanborðsvél. Uppl. í síma 33349.
íbúð óskast
fyrir starfsmann minn í Vogunum eða sem næst
Álfheimum. Ennfremur kemur til greina í Hlíð-
unum. Fyrirframgreiðsla.
Uppl. í símum 37541 eða 37737.
Útboð
Áburðarverksmiðjan h.f. ósk'ar eftir tilboðum í að
losa og aka brott jarðvegi vegna byggingar nýrrar
birgðageymslu. Lýsingar á verkinu og skilmála má
vitja á skrifstofu Áburðarverksmiðjunnar h.f. í
Gufunesi eftir hádegi þriðjudaginn 25. apríl n.k.
Réttur er áskilinn tli þess að taka hvaða tilboði,
sem berast kann, eða hafna öllum.
Áburðarverksmiðjan h.f.
Sölumaður
Röskur og ábyggilegur sölumaður óskast
nú þegar.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Samemac&jVf/famtyua/greiðsfan
BRXDRAtORCAMIK 7 - REYKMVIK
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 13.
missi 350—400 millj. króna i
gjaldeyristekjum. Verst er, að
það afhroð, sem með þessu er
goldið, er eins Og hinn mikli afla
maður í Vestmannaeyjum Binni
í Gröf minnir á í samtali sínu i
Morgunblaðinu á sumardaginn
fyrsta, að nokkrU leyti verkfall-
inu að kenna. Fiskurinn var ekki
veiddur á meðan unnit var.
Fögur
minningargjöf
V IÐ hátíðamessu í Háagerðis-
skóla, síðastliðinn páskadag,
barst væntanlegri Bústaðakirkju
dýr og fögur minningargjöf. —
Voru það tveir sjö arma kerta-
stjakar úr silfri, gerðir í Sví-
þjóð eftir sérstakri teikningu,
einfaldri, en mjög smekklegri.
Gefendur stjakanna eru frú
Margrét Runólfsdóttir á Mela-
völlum (nú Rauðagerði 23,
Rvík) og böm hennar. Eru þeir
gefnir til minningar um eigin-
mann Margrétar, Hjört Jónsson,
alkhnnan merkis- og atorku-
mann, sem lézt 12. des. 1957, að-
eins 48 ára að aldri.
Hjörtur Jónsson var £ safnað-
arnefnd hins nýja Bústaðasafn-
aðar og er vissulega vel til fall-
ið, að af minningu hans skuli
í framtíðinni bera birtu um
þann helgidóm, sem hann hafði
áhuga á að risi sem fyrst af
grunni innan sóknarinnar. Þótt
honum entist ekki aldur til að
vinna nema að fyrsta undirbún-
ingi þessa máls, standa nú von-
ir til, að skriður komist á fram-
kvæmdir þessar innan skamms.
Slík gjöf, sem hér er getið, herð
ir m.a. á því.
Undirritaður prestur safnaðar-
ins og Axel L. Sveins, formaður
safnaðarnefndar, færðu gefend-
unum innilegar þakkir fyrir ör-
læti þeirra og hlýhug. Og vöktu
stjakarnir óskipta aðdáun kirkju
gesta.
Gunnar Árnason.
Rósir
Pottaplöntur
Pottamold
Pottagrindur
Blómaáburður
Gróðrastöðin við Miklatorg.
Simar 22-8-22 og 1-97-75
Lokadansleikur Handknattleiks mótsins
í Sjálfstæðishúsinu kl. 9 í kvöld — Verðlaunaafhending.
ÓMAR RAGNARSSON kemur kl. 12
Hljómsveit Svavars Gests og’Ragnar Bjarnason. Dansað til kl. 2.
Ármann — KR — ÍR