Morgunblaðið - 18.05.1961, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 18. maí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
;
■ MENN 06
= mi£FN/=
JAMES K. Penfield, sem ný-
lega var útnefndur ambassa-
dor Bandaríkjanna á íslandi,
er væntanlegur hingað hinn
23. þessa mánaðar. Hinn nýi
ambassador vann embættiseið
sinn í Washington 5. maí, en
hann hefur að undanförnu
starfað sem aðstoðardeildar-
stjóri um málefni Afríku í
bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu. Við-embættistökuna sagð-
ist hinn nýi ambassador hafa
starfað á Grænlandi um rúmra
tveggja ára bil á stríðsárun-
um. Þá kvaðst hann hafa haft
tækifæri til að kynnast hin-
um ógnvekjandi náttúruöflum,
er hefðu mótað hugarfar fs-
lendinganna, þeirrar þjóðar,
sem hann hefði heyrt svo
margt gott um. Hann kvaðst
vona, að honum yrði unnt að
leggja eitthvað af mörkum til
að treysta enn meir vináttu-
bönd fslands og Bandaríkj-
anna.
Mr. Penfield er fæddur í
New York árið 1908 og lauk
BA-gráðu við Stanford há1-
skóla 1929. Hann hóf starf sitt
í utanríkisþjónustunni ári
seinna og dvaldist á hennar
vegum í Mexikó, Kína og
Mansjúríu. Árið 1940 varð
hann fyrsti fulltrúi ríkisstjórn
ar Bandaríkjanna á Græn-
landi, en hélt þaðan aftur til
Kína og siðan til Washington
þar sem hann starfaði til árs-
ins 1948 er hann fór til Prag
og síðan til London. Hann
varð varaformaður sendinefnd
ar Bandarikjanna í Vín 1954,
og ráðUnautur í sendiráðinu í
Aþenu 1956. Hann fluttist til
Washington 1958 og hefur
starfað síðan í utanrikisráðu-
neytinu. Myndin hér að ofan
var tekin af James K. Pen-
field ásamt eiginkonu hans
eftir að hann tók við embætti
ambassadors á íslandi.
— Gettu þrisvar.
Skotinn ætlaði að kaupa atlas-
kort handa syni sínum og fór
eðlilega í fornbókaverzlun.
— Gerir nokuð til, þótt það
sé gömul útgáfa? spurði af-
greiðslumaðurinn.
■— Nei, nei, svaraði Skotinn.
En helzt ekki svo gamalt að Ame
ríka fyrirfinnist ekki í því.
—o—
Skoti nokkur sat inni á krá og
sagði ýmsar lognar frægðarsögur
af sjálfum sér. Að lokum var
einum gestanna nóg boðið og
hann sagði:
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína, ungfrú Elísabet Ester Lunt,
Skúlagötu 66 og Halldór Margeir
Ingólfsson, Sóleyjargötu 23.
65 ára er í dag frú Guðlaug
Jónsdóttir, Þverholti 18. Hún
dvelst í dag á heimili Ingólfs
sonar síns á Selfossi.'
Sl. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Elín Jó-
hannesdóttir, Mávahlíð 23 og Páll
Samúelsson frá Siglufirði. Heim-
ili þeirra er að Kaplaskjólsv. 51.
— Segið mér frá einhverju sem
þér getið ekki gert og ég skal
framkvæma það.
— Já, sagði Skotinn, ég get
ekki borgað reikninginn.
—o—
Eitt sinn er Maurice Chevalier
ætlaði að halda söngskemmtun
fékk hann slæmsku í hálsinn.
Hann leitaði þá til kollega síns
Louis Armstrongs og spurði hvort
hann gæti nokkuð hjálpað sér.
Armstrong sendi honum þá
blöndu, sem hann sagðist taka
í hvert skipti, sem hann ætlaði
að syngja. En blandan samanstóð
af 50% hunangi og 50% glycirini.
Chevalier tók inn blönduna, batn
aði samstundis og söngskemmtun
in gekk að óskum. Að henni lok-
inni sagði hann: — Hvernig ætli
Louis myndi syngja, ef hann
tæki ekki inn þessa blöndu?
Það var sveinspróf hjá rakara-
nemum og eitt verkefnið var að
klippa og laga hár á ungri stúlku.
Þegar prófinu var lokið spurði
einn sveinanna: — Má maður
hafa sveinsstykkið með sér heim?
I»að er með hjarta konunnar eins og
mánann, það er sibreytilegt, en samt
alltaf karlmannsandlit f þvi.
Þótt kona væri á leið til aftöku
sinnar, mundi hún krefjast örlitils
tíma til þess að snyrta sig.
Fögur kona gleður augað, en góð
kona gleður hjartað.
Lygarinn verður að hafa gott minni.
Ef vér gætum lesið sögu óvina vorra
niður f kjölinn, mundum vér komast
að raun um, að í lífi allra gætir svo
mikilla þjáninga og harma, að óger-
legt er að bera haturshug til nokkurs
manns.
Reynslan er nafnið sem menn gefa
mistökum sínum.
Flugfélag íslands.
Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Væntan-
legur aftur kl. 22:30 í kvöld. Fer til
Glaskow og Kaupmannahafnar kl.
08:00 í fyrramálið.
Innanlandsflug:
I dag: til Akureyrar, (2 ferðir). Eg-
ilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þórshafnar.
A morgun: til Akureyrar (3 ferðir),
Egilsstaða, Fagurhólsmýrar, Horna-
fjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust-
urs og Vestmannaeyja (2 ferðir).
Pan American flugvél kom til Kefla-
ur f morgun frá New York og hélt á-
leiðis til Glasgow og London. Flugvél-
in er væntanleg aftur í kvöld og fer
þá til New York.
Eimskipafélag islands h.f.: — Brúar-
foss fór frá Rvík í gær til Akraness.
—* Dettifoss ér í N.Y. — Fjallfoss fór
frá Kotka í gær til Gdynia. — Goða-
foss er á leið til Siglufjarðar. — Gull-
foss er í Kaupmh. — Lagarfoss er í
Rvík. — Reykjafoss fór frá Húsavík 16.
til Dalvíkur. — Selfoss er í Rvík. —
Tröllafoss er á leið til Rvíkur. —
Tungufoss fór frá Isafirði í gær til
Bíldudals.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla kem-
ur til Rvíkur í dag. — Esja er á Vest-
fjörðum. -— Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl. 22 í kvöld til Rvíkur.
— Þyrill er i Reykjavík. — Skjaldbreið
er á Húnaflóa á leið til Akureyrar. —
Herðubreið er í Reykjavík.
H.f. Jöklar: — Langjökull er á leið
til Rvíkur. — Vatnajökull er í Vest-
mannaeyjum.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Archangel. — Askja
er í Kenitra.
Skipadcild SÍS
Hvassafell losar á Húnaflóahöfnum.
— Arnafell er á leið til Archangelsk. —
Jökulfell kemur til Hamborgar í dag.
— Dísarfell er á leið til Mantyluoto. —
Litlafell fer I dag frá Reykjavík til
Norðurlandshafna. — Helgafell er á
leið til íslands. — Hamrafell er í Ham
borg.
tfLÖÐ OG TÍMARIT
Kirkjuritið 4. hefti 27. árgangs flytur
minningargreinar um Sr. Friðrik Frið-
riksson eftir séra Bjarna Jónsson
vígslubiskup og Sigurbjörn Einarsson
biskup. Þá er grein sem nefnist: Upp-
kast að barnalærdómi í ensku kirkj-
unni, Gísli Magnússon ritar Stiklað á
stóru. I ritinu birtist einnig grein eftir
Dag Hammarskjold sem nefnist Trú
mín, pistlar, ljóð o.fl. Hitstjóri Kirkju
ritsins er séra Gunnar Arnason.
Ráðskona
einhleyp um fertugt, ósk-
ast í nágrenni Reykjavík-
ur. — Sími 19333.
íbúð
óskast til leigu^ 3 herb. —
Uppl. í síma 10731.
Keflavík
2 herb. og eldhús óskast
strax eða um mánaðamót.
Uppl. í síma 1602, Keflavík
í dag.
Vil kaupa
kamb og pinjón í Reno ’46
módel. Uppl. í síma 35400.
Ógangfær
Bradford til sölu. Uppl.
1 síma 14667 í dag og næstu
daga.
2ja—3ja herbergja íbúð
til leigu. Uppl. í síma
3-22-25 frá kl. 12—2 í dag.
Passap-prjónavél
til sölu ,— mjög lítið notuð
— og vel meo farin. Verð
kr. 1800. — Uppl. í síma
34502.
Segulbandstæki
Til sölu er mjög gott Segul
bandstæki KB 100,11 —
Verð 3.500,00. Uppl. í síma
23508.
Ný sérleyfisleið
Reykjavík — Stafholtstunga — Hvítársíða
(Kalmanstunga)
1. Áætunarferð laugardag. 20. maí kl. 2 frá Reykjavík
Frá Síðumúla mánudag kl. 16. Þar næst verða farnar 2
ferðir í viku.
Frá Reykjavík fimmtudag, laugardag kl. 2.
Frá Síðumúla föstudag kl. 8 og sunnudag kl. 16 til
Reykjavíkur.
Gjörið svo vel að panta sæti í Síðumúla, Svignaskarði
daginn á,ður og Bifreiðastöð Islands.
Magnús Gunnlaugsson, Akranesi
Ráöskona
Sandgræðslu Islands vantar ráðskonu nú þegar að
Gunnarsholti, Rang. — Ráðningartími yfir sumarið.
Umsóknii sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi laugar-
daginn 20. þ.m. merktar: „Gunnarsholt — 99“.
TIL SÖLU
Buick-bíll
sjálfskipting, lítið ekinn (41000 km), sem nýr. Til
sýnis í Fornhaga 20 miðvikudag og fimmtudag
17. og 18. maí kl. 4—7. — Tilboð merkt G.H.—1337“,
sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi 19. maí.
Bústaðaskipti
Við viljum vekja athygli viðskiptamanna okkar á
því, að nauðsynlegt er að tilkynna bústaðaskipti
strax. Brunatrygging innbús og annars lausafjár er
eigi í fullkomnu lagi nema það sé gert.
Samviinnutryggi igar
Sími 17940