Morgunblaðið - 18.05.1961, Blaðsíða 8
ð
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 18. maí 1961
Hittast Kennedy
Fáir staðir í Reykjavík hafa jafn mikið aðdráttarafl fyrir unga drengi og höfnin, sjálft
hjarta reykvískrar byggðar frá landnámsöld. Hér eru sex ungir borgarar niðri við höfn í
gærmorgun. Þeir eru að fylgjast með tilraunun við „að bjarga manninum, sem aldrei datt í
sjóinn“, eins og einhver komst að orði.
Datt maður í sjóinn?
SKREYTNI tíu ára strák-
hnokka varð til þess að setja
allt á annan endann við
Reykjavíkurhöfn í gaermorg-
un og reyndist dýrt spaug í
orðsins fyllstu merkingu.
Það var rétt fyrir kl. tíu
um morguninn, að tíu ára
drengur, sem var að sniglast
niðri við kolakrana, kallaði til
manns, sem þar var á göngu,
og sagði mann hafa dottið í
höfnina. Drengurinn fleygði
bjarghring £ sjóinn, en mað-
urinn ' hrópaði til annars
manns, sem hljóp inn á lög-
reglustöð.
Var þá allt sett í gang hjá
lögreglunni við að leita að
manninum, björgunarsnekkj-
an Gísli J. Johnsen kom brun-
andi á vettvang, froskmaður-
inn Andri Heiðberg var feng-
inn til að kanna undirdjúþin
og laeknir kvaddur á staðinn.
Var leitað án afláts í rúma
tvo tíma. Stór hópur áhorf-
enda safnaðist saman á bakk-
anum, og segja sumir raunar,
að algert verkfall hafi verið
við höfnina og á skrifstofum
í hafnarhverfinu, meðan á
leitinni stóð.
Lögreglunni þótti grunsam-
legt, að enginn skyldi hafa
NEI!
séð atburðinn nema drengur-
inn. Var nú skipulögð önnur
leit að honum og fannst hamn
annars staðax við höfnina.
Ingólfur Þorsteinsson. yfir-
varðstjóri, tók drenginn til
yfirheyrslu, og meðgekk hann
von bráðar, að frásögn sín
hefði verið uppspuni einber,
gerður til að gabba þann, sem
hann hrópaði til. Hins vegar
og Krúsjeff 3. júní
Froskmaðurinn sígur í sjóinn.
mun stráksi tæplega hafa
gert sér ljóst, hver rekistefna
myndi verða út af skröksög-
unni.
Ýmiss konar kynjasögur
gengu um baeinn £ gær vegna
atburðar þessa, og var mikið
bullað yfir kaffibollum af
þessu tilefni fram eftir degi
og kvöldi.
Vínarborg og Washington,
17. maí. —* (NTB-Reuter)
SENNILEGT er talið að
þeir Kennedy forseti og
Krúsjeff forsætisráðherra
hittist í Vín 3. júní n. k. að
loknum viðræðum Kennedys
við. de Gaulle forseta í París.
Ekki hefur þessi frétt feng-
izt staðfest, en búizt er við
staðfestingu þegar Kennedy
kemur aftur til Washington
frá Kanada á fimmtudag.
OPINBEF. TILKYNNING
ÓKOMIN
Talsmaður austurrísku stjórn-
arinnar sagði í Vín í dag að
vænta mætti staðfestingar á því
fljótlega að fundur þeirra Kenn
edys og Krúsjeff yrði haldinn í
Vín 3. næsta mánaðar. Sagði
talsmaðurinn að svo virtist sem
endanlega hefði verið gengið
frá tilhögun fundarins og kvaðst
vona að Bandaríkin og Sovét-
ríkin gæfu út opinbera tilkynn-
ingu um hann ekki seinna en á
föstudag. Sagði hann ennfrem-
ur að fulltrúar Bandaríkjanna
hafi spurt óformlega um það
hvort unnt yrði að halda fund-
inn í Vín, en engin fyrirspurn
hafi borizt frá Sovétríkjunum.
Fulltrúar í sendiráðum komm
únistaríkjanna í Vík telja al-
veg öruggt að fundurinn verði
baldinn og var það staðfest að
ýmsir forustumenn sendiráðs
Sovétríkjanna hafa verið kvadd
ir heim til Moskvu í þessu sam-
bandi.
KENNEDY SNÝR HEIM
í frétt frá Washington er það
haft eftir Chester Bowles, að-
stoðar utanríkisráðherra, að
Kennedy hafi enn ekki tekið
endanlega ákvörðun um að
hitta Krúsjeff í Vín. Sagði
Bowles að forsetinn yrði sjálf-
ur að taka ákvörðun um þetta
mál og kæmi væntanlega yfir-
lýsing frá honum seinna.
Opinberir starfsmenn í Was-
hington telja að fundurinn verði
haldinn 3. eða 5. júní og er
búizt við því að forsetinn haldi
blaðamannafund á fimmtudags-
kvöld, er hann kemur heim frá
Ottawa.
ÞÝZKALANDSMÁLIN RÆDD
Talsmaður Konrads Adenau-
ers, kanzlara Vestur-Þýzkalands
sagði £ Bonn £ dag að Adenauer
hafi fengið opinbera tilkynn-
ingu um að fundurinn yrði hald
inn. Sagði hann að tilkynningin
hefði komið frá sendiráði Vest-
ur-Þýzkalands i Washington. —
Sennilegt er talið að Adenauer
verði viðstaddur £ Vin þegar
viðræðurnar fara fram, þvi eitt
helzta umræðuefnið verður
væntanlega friðarsamningar við
Þýzkaland og vandamál Berlín-
ar. Austurriska stjórnin hefur
þegar hafið undirbúning að
fundinum og þeim öryggisráð-
stöfunum, sem gera þarf áður
en þjóðhöfðingjamir koma til
Vínar.
Áætlað er að um 1000 frétta-
menn og ljósmyndarar komi til
Vínar til að vera við fundar-
höldin, og verður þeim komið
'fyrir í herbúðum í útjaðri
borgarinnar. Austurríski herinn
verður um þetta leyti á her-
æfingum fjarri borginni.
Átök í Angoia og Goa
Lissabon, Portúgal, 17. maí.
— (Reuter) —■
PORTtJGALSKA fréttastof-
an Lusitania skýrði frá því
í dag að stór hópur afrískra
byltingarmanna hafi um-
kringt og ráðizt á flokk
portúgalskra hermanna í
nánd við San Salvador í
Norður-Angola. Fimm her-
menn voru drepnir og sex
særðust í árásinni.
Byltingarmennirnir voru vel
vopnum búnir og báru sumir
þeirra vélbyssur. Arásin var
gerð er herflokkurinn var að
koma að brú yfir fljótið Luc-
ossa, nólægt landamærum
LTr björgunarbátnum Gísla J. Johnsen var leitinni stjórnað
að manninum, sem drengur nokkur þóttist hafa séð detta
í sjóinn. Skröksaga drengsins kostaði engan smáskilding.
Johnson í Thailandi
Bangkok, Thailandi, 17. maí.
— (Reuter) —-
LYNDON B. JOHNSON,
varaforseti Bandaríkjanna,
er nú á ferð um ýms lönd
í Suðaustur-Asíu. — í dag
ræddi hann við Sarit Thana
rat, forsætisráðherra Thai-
lands. Sagði varaforsetinn að
fundi loknum að umræðu-
efnið hafi verið ástandið í
Asíu með tilliti til tilrauna
kommúnista til að ná yfir-
ráðum á svæðinu.
Johnson kvaðst mjög ánægð-
ur með fundinn og sagði að
ekki hafi verið lögð sérstök á-
herzla á neitt eitt land. Haft er
eftir mönnum úr fylgdarliði
Johnsons að minnzt hafi verið
á að setja upp bandarískar her-
stöðvar í Thailandi, en engin
ákvörðun tekin.
Johnson kom til Thailands í
gærkvöldi eftir að hafa heim-
sótt Suður-Vietnam, Filippseyj-
ar, Formósu og Hong Kong. —
35 sérfræðingar eru í för með
varaíorsetanum.
Kongó. í fréttum frá Luanda,
höfuðborg Angola, segir að
uppreisnarmenn hafi lagt eld í
tvö þorp í Norður-Angola og
drepið ættarhöfðingjann í öðru
þeirra. I sömu fréttum segir að
uppreisnarmenn hafi orðið fyr-
ir miklu mannfalli í átökum við
herinn.
Uppreisnarmenn hafa haldið
uppi stöðugum árásum á her-
inn í Angola frá því í síðasta
mánuði, og hefur mikill liðs-
auki verið sendur frá Portúgal
til að brjóta niður uppreisnina.
G O A
í Reutersfrétt frá Nýju Dehli
segir, að í næsta mánuði verði
haldin Goa-vika í portúgölsku
nýlendunni Goa á vesturströnd
Indlands. Tilgangur vikunnar er
að styðja baráttuna fyrir sjálf-
stæði landsins. Þar í landi hef-
ur nokkuð borið á skæruliða-
hemaði gegn Portúgölum. Þyk-
ir forsvarsmönnum sjálfstæðis-
ins nú vænlegt að herða sókn-
ina, og liggja fyrir því þrjár
ástæður:
1. Erfiðleikar Portúgala ? Ang
ola hafa valdið því að her’ið
hefur verið sent þangað frá
Goa.
2. Uppreisnarmenn þeir, sem
tóku portúgalska íarþegaskipið
Santa Maria fyrr á þessu ári,
hafa víða skapað samúð með
sjálfstæðisbaráttu nýlendanna.
3. Yfirlýst stefna Bandaríkj-
anna um stuðning við sjálfs-
ákvörðunarrétt portúgölsku ný-
lendanna.