Morgunblaðið - 18.05.1961, Blaðsíða 14
14
MORCVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 18. maí 1961
HlíðardalsskólS
Sumargistihós — Hressingarheimili
opið almenningi 18. júní — 1. sept.
(upppantað til 25. júní)
Nuddlækningar, Finsen
ljós, finnsk baðstofa,
ýmisskonar böð
Nuddlækningar annast
J. M. Langelyth
Forstöðukona
frú Ingibjörg Jónsdóttir
Matráðskona
frk. K. Nielsen
fyrrv. matráðskona á
Skodsborgarheilsuhæli
Forstjóri
Júlíus Guðmundsson
Staðurinn er ákjósanlegur til hvfldar og hressingar í
sumarleyfinu fyrir einstaklinga og félagshópa.
Pöntunum veitt viðtaka í síma 13899
Sigurjón Ólafsson
skipstjóri — minning
SIGURJÓN Ólafsson skipstjóri
andaðist 14. þ. m. í Dvalarheim-
ili aldraðra sjómanna, þar sem
hann hafði búið síðan heimilið
var opnað. Sigurjón var fæddur
í Vestri-Leirárgörðum 19. febr.
1881. Foreldrar hans voru Ólaf-
ur Jónsson og Ásgerður Sigurð-
ardóttir á Stóru-Fellsöxl í Skil-
mannahreppL Sigurjón var
þriðji í röðinni af tíu börnum
þeirra hjóna. f>egar Sigurjón var
5 ára fluttu foreldrar hans frá
Leirárgörðum að Stóru-Fellsöxl
og bjuggu þar til aldamótaárs-
ins, en þá fluttu þau til Reykja
víkur með sinn stóra barnahóp.
Hugur Sigurjóns hneygðist
snemma til sjómennsku. Hann
tók próf frá Sjómannaskólanum
árið 1903 o^ varð brátt skip-
stjóri á skútum og síðar á tog-
urum, þekktastur sem skipstjóri
á togaranum Rán og síðar fram
kvæmdastjóri Ránarfélagsins. —
Síðari starfsár sín stundaði
hann aðallega síldarútgerð fyrir
Norðurlandi. Árið 1923 keypti
Sigurjón Norður-Gröf í Kjalar-
neshreppi og stundaði þar bú-
skap til ársins 1934. Hann setti
þar upp stórt kúabú, miðað við
það sem þá tíðkaðist, ræktaði
og stækkaði túnið og byggði
stórt íbúðarhús úr steinsteypu
og einnig skepnuhús og hey-
hlöðu, allt rúmgott og með
myndarbrag, enda var bú hans
með þeim stærri hér í hreppn-
um um þessar mundir. Jafn-
framt þessu stundaði Sigurjón
síldarútgerð fyrir norðan.
Þeir sem hofo pontoð
O RIO N-E L E C T RI C rafmagnsprjónavélar
eru vinsamlega beðnir um að sækja þær fyrir hádegi á föstudag.
T
ORION ELECTRIC er fyrsta
2ja nálaborða rafmágnsprjóna-
vélin, sem á markað hefur kom-
ið og reynzt svo frábær, að
hvarvetna er beðið með óþreyju
eftir nýrri sendingu frá verk-
smiðjunum.
ORION-umboðið
Bolholti 6, sími 37320
BÁTAEIGE
M D II
Stærð Þyngd Verð án tolla Verð með tollum
5 ha. 130 kg- Kr. 17,500.— 21.800,—
42—82 ha. 880 kg. Kr. 137.000,— 169,600,—
59—103 ha. 1000 kg. Kr. 167.600,— 207,000,—
Vélunum fylgir gír, skrúfuútbúnaður, aflúttak
að framan m/kúplingu, niðursetningarhlutir o. fl.
Einkaumboð:
Gunnar Ásgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200
Sigurjón var bráðgjör í æsku
og myndarlegur maður að vall-
arsýn, þéttur á velli og þéttur í
lund, sjálfstæður og ákveðinn i
skoðunum og lét eigi af mein-
ingu sinni, hver sem í hlut
átti, ef því var að skipta.
Sigurjón var kvæntur ágætri
konu, Guðlaugu Sigurðardóttur
frá Seli í Reykjavík. Var það
hans mesta lífshamingja. Guð-
laug er látin fyrir allmörgum
árum. Hjónaband þeirra var
barnlaust, en þau ólu upp dreng,
Bjama Sigurðsson Þórðarsonar
frá Eyjum í Kjós. Auk þess
voru tveir systkinasynir hans
langdvölum hjá þeim hjónum,
þeir Ólafur Magnússon og Ás-
geir Ó. Einarsson, dýralæknir.
í lífi Sigurjóns skiptust á
skin og skúrir, eins og hjá fleiri
mönnum. Hann var hugsjóna-
maður, sem vildi vinna þjóð
sinni allt það gagn, sem hann
mátti. Til dæmis skal það nefnt,
að þegar til mála kom að selja
vatnsorku okkar stærstu fossa
Títanfélagmu, samdi Sigurjón
stóra ritgerð til að mótmæla
þessu og útbýtti þessari ritgerð
meðal þingmanna Alþingis og
annarra málsmetandi manna.
Þau 11 ár, sem þau Sigurjón
og Guðlaug bjuggu í Norður-
Gröf, voru þau mjög vinsæl í
sveitinni, nær og fjær. Sigurjón
tók mikinn þátt í félagsmálum.
Hann var að vísu ekki í sveitar
stjórn eða öðrum trúnaðarstörf-
um, því eins og áður er getið,
var hann í síldarútgerð fyrir
norðan og því oft ekki heima
langan tíma. En samt sem áður
fylgdist hann vel með málum
sveitarinnar og héraðsins, sótti
fundi og hélt þar vel á áhuga.
málum sínum. Hann var ágæt-
lega máli farinn, frjór í hugsun,
mjög vel greindur og hafði fjöl-
hæfa þekkingu, og á ég þar
ekki aðeins við þau mál sera
hann hafði unnið við lengst af
á sinni ævi, sjávarútveginn,
heldur einnig sveitabúskapinn.
Hann var ef til vill full bjart-
sýnn og á undan sínum tíma,
en hugkvæmur og félagslyndur,
Á heimili þeirra hjóna héld*
ust í hendur gestrisni og mynd-
arskapur, húsfreyjan glæsileg,
öllum hjálpleg, Ijúf og góð og
vel heima í öllu, eins og hún
hefði aldrei gert annað en að
stunda sveitarbúskap. í næsta
nágreinni við Norður-Gröf, þar
sem túnin liggja saman, var
svo traust vinátta á milli fólks-
ins, að nú þegar þau eru bæðl
farin þaðan fyrir löngu, og nú
horfin, helzt enn sama tryggðin
og vináttan hjá uppeldissynl
þeirra við gömlu nágrannana,
Má þar glöggt sjá uppeldis-
áhrifin góðu, sem að vísu hafa
fallið í góðan jarðveg.
Og nú þegar Sigurjón Ólafs-
son skipstjóri er kvaddur, meg-
um við samtíðarmenn hans I
Kjalarneshreppi vissulega minn-
ast þeirra Norður-Grafar-hjóna
með þökk og virðingu.
Jónas Magnússon,
ELDGAMLA vE,!,"”
vekjaraklukkur — veggklukkur
í stofu og eldhús — silfurplett
skeiðar, gafflar, hnífar —■
stálföt og diskar — borðbún-
aður — keramik vasar —
kveikjarar, hálsfestar — arm-
bönd — silfurhringar o. fl.
MENIÐ
Kjörgorði
Lougnvegi 59