Morgunblaðið - 19.05.1961, Qupperneq 1
24 siður með Barnalesboli
«r. árgangur
110. tbl. — Föstudagur 19. maí 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Dagur friðarins hlýtur
að renna upp
sagði Golda Hieir við ísienzka
fréttamenn
í GÆR M. 5 átti Golda Meir, utanríhisráðherra ísraels,
fund við blaðamenn á Hótel Borg. Hún hóf mál sitt með
því að skýra frá grundvallaratriðum í utanríkisstefnu
ísraels og lagði áherzlu á þrjú atriði: í fyrsta lagi vill
Xsraelsstjórn hafa vinsamleg samskipti við allar þjóðir
heims, án tillits til þess hvers konar stjórnskipulag þær
húa við. I öðru lagi er það meginstefna Israelsstjórnar að
koma á friðsamlegri sambúð við Arabaríkin eins fljótt og
kostur er. í þriðja lagi hafa ísraelar skuldbundið sig til
að efla áhrif Sameinuðu þjóðanna með hverju því ráði
sem tiltækt er, þar sem þær eru öflugasta verkfæri heims-
ins til að varðveita friðinn. Við gerum allt sem í okkar
valdi stendur til að framfylgja stefnu Sameinuðu þjóð-
anna, sagði frúin.
Síðan var blaðamönnum gef-
!nn kostur á að leggja fyrir hana
spurningar. Fyrst var hún spurð
Ihvort nokkrar horfur væru á ein
hvers konar lausn á deilunni við
Arabaríkin. Hún kvaðst ekki sjá
nein merki þess í náinni framtíð,
en hins vegar væri ekkert sem
þyrfti að hindra slíka lausn. Það
er jafnmikilvægt fyrir Araba-
ríkin og okkur að binda enda á
hervæðingarkaupphlaupið, sagði
hún, og ég er þess fullviss að
dagur friðarins rennur upp. Hjá
því getur ekki farið. Það er bæði
hörmulegt og heimskulegt að
eyða öllum þessum mannafla og
ollum þessum verðmætum í til-
gagnslausan vígbúnað. Það er
miklu stter að eyða fjármunum
ckkar í jákvæða uppbyggingu.
Við erum reiðubúnir að mæta
hverskonar ögrun eða ógnun, ef
því er að skipta, en umfram allt
erum við reiðubúnir til að setjast
við samningaborðið Og ræða þau
égreiningsatriði sem skapað hafa
misklíðina. Við erum reiðubúnir
að ræða hvers konar möguleika
á samkomulagi, hvort heldur er
friðarsamninga, griðasamninga
eða annað það samkomulag sem
bundið geti enda á núverandi
ástand.
Samkeppni
um hátíða■
tfóð
HÁSKÓLARÁÐ hefír ákveðið
að efna til samkeppni um há-
tiðaljóð i tilefni af 50 ára af-
mæli Háskóla Islands á þessu
ári. Ein verðlaun verða veitt,
að fjárhæð 15000 kr., fyrir
þann Ijóðaflokk, sem beztur
þykir og verðlauna er verður
að mati dómnefndar, er há-
skólaráð mun skipa á næst-
unni. Fyrirhugað er, að hátiða
Ijóð þessi verði flutt á há'skóla
hátið 6. okt. n.k. Ljóð skulu
hafa borizt rektor Háskóla fs-
Iands fyrir 1. ágúst n.k., og er
hess óskað, að þau séu auð-
kennd með dulnefni.
(Frá Háskóla fslands).
Golda Meir bað menn hafa hug
fast að ekki væri rétt að líta
á Arabaríkin sem eina heild.
Meðal þeirra væri margs konar
ágreiningur, og því fjarri að allir
Arabar hefðu þá stefnu að gera
út af við ísraelsmenn.
Hún sagði að síðan 1056 hefði
verið miklu friðsamlegra á landa
mærum ísraels, og væri þar um
að ræða gertæka breytingu frá
árinu 1949, þegar fsrael var ógn-
að úr öllum áttum. Við erum nú
reiðubúnir til sjálfsvarnar, sagði
hún, en við höfum engan áhuga
á að auka landrými okkar eða
breyta landamærunum. Hins veg
ar þvingar hinn stöðugi vopna-
straumur til Arabaríkjanna Okk-
ur til að vera sífellt á verði. Hún
kvað Sínaí-herförina hafa verið
mikilvæga í þeim skilningi að
hún færði Aröbum heim sann-
in um herstyrk ísraels. Hins veg-
ar var sú herför eingöngu farin
í sjáifsvarnarskyni, sagði hún.
Frúin var spurð, hvort landa-
mærin við nágrannaríkin væru
stöðugt lokuð og svaraði því til,
að ísrael ætti landamæri við
fjögur lönd: Líbanon, Sýrland,
Jórdaníu og Egyptaiand. Á landa
mærum Líbanons hefði allt verið
með kyrrum kjörum, en á landa
i Framh. á bls. 3
hershöfðingi, forustumaður byltingarinnar
Lokasigur herforingjanna
í Suöur-Kóreu
Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkianna og Dean
Rusk utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræðast við í fundar-
hléi á Genfarráðstefnunni um Laos.
s
Ríkisstjórn Changs hefur
sagt af sér
Seoul, 18. maí (NTB-Reuter)
JOHN CHANG forsætisráð-
herra Suður-Kóreu, sem ver-
ið hefur í felum frá því bylt
ingarráð herforingja tók
stjórn landsins í sínar hend-
ur á þriðjudag, kom í dag
aftur fram í dagsljósið og
baðst lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt.
Herforingjastjórnin til-
kynnti í dag að allar deildir
hers, flota og flughers hefðu
lýst yfir stuðningi við bylt-
inguna.
í tilkynningu herforingja-
IMeitunarvaEd rætt í Genf
Genf, 18. maí — (Reuter)
GENFARRÁÐSTEFNUNNI
um framtíð Laos var haldið
áfram í dag. Fulltrúar Vest-
urveldanna eru að kanna til-
lögur Rússa frá í gær, en
þar er gert ráð fyrir að
þriggja ríkja eftirlitsnefndin
í Laos — skipuð fulltrúum
Indlands, Kanada og Pól-
lands — vinni ásamt fulltrú-
um Sovétríkjanna og Bret-
lands að rannsóknum og eft-
irliti með vopnahléinu í
Laos. —
NEITUNARVALD
1 tillögum Rússa er gert ráð
fyrir því að allar samþykktir
nefndarinnar aðrar en forms-
atriði verði að hafa einróma
stuðning allra aðildarríkja. En
á þann hátt hefðu Sovérikin
og Pólland neitunarvald í öll-
um framkvæmdum nefndarinn-
ar. —
Tillögum Rússa hefur því ver
ið tekið með varúð, en ekki
óvinsamlega. Home lávarður,
utanríkisráðherra Breta, sagði að
Frh. á bls. 23
stjórnarinnar segir að herlið
hafi umkringt höfuðborgina til
að fyrirbyggja aðgerðir andbylt
ingarsinna. Herliðið var kallað
til borgarinnar frá landamærum
Norður- og Suður-Kóreu. Önn-
ur herdeild hefur verið kölluð
heim frá landamærunum til að
tryggja samgöngur milli helztu
borga landsins.
32 MANNA STJORN
Eftir að John Chang baðst
lausnar var skipuð 32 manna
stjórnarnefnd til að fara með
völdin í landinu til bráðabirgða.
Allir eru nefndarmenn háttsett-
ir foringjar úr her, flota og
flugher.
Lausnarbeiðni Changs og
stuðningur hersins við stjórnina
hafa komið í veg fyrir áfram-
haldandi tilraunir Bandaríkj-
anna og Sameinuðu þjóðanna til
að koma fyrri ríkisstjórn aftur.
til valda.
Talsmaður bandaríska sendi-
ráðsins í Seoul var að því spurð
ur hvað hann hefði um lausn-
arbeiðni Changs að segja og
svaraði hann því til að hann
hefði ekki heimild til að láta í
ljós álit á málinu. Og talsmað-
ur SÞ í Suður-Kóreu svaraði:
Ekert að segja að svo stöddu.
Forustumaður byltingarinnar,
Chang Do Yung herforingi, verð
ur áfram forstöðumaður stjóm-
arnefndarinnar.
Framh. á bls. 23