Morgunblaðið - 20.05.1961, Blaðsíða 24
f fáum orðum sagt
Sjá bls. 10
111. tbl. — Laugardagur 20. maí 1961
Albert Schweitzer
Sjá bls 13.
Verkfall 29. maí?
Stjórn Dagsbrú'nar fekk fundar-
samþykkt fyrir því í gær
I GÆRKVÖLDI efndi Verka
mannafélagið Dagsbrún til
fundar í Gamla Bíói og var
til umræðu tillaga um heim-
ild til handa trúnaðarmanna
ráði félagsins um að efna
til vinnustöðvunar 29. þ.m.
ef ekki hefðu tekizt samn-
ingar við vinnuveitendur fyr
ir þann tíma.
Eðvarð Sigurðsson fylgdi til-
lögunni úr hlaði og rakti samn-
ingaviðræður við atvinnurek-
endur, sem staðið hefðu frá því
15. jan. í vetur án árangurs.
Tillagan hljóðar svo:
„Fundur í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún, haldinn í Gamla
Bíói 19. maí 1961 samþykkir að
trúnaðarmannaráð félagsins lýsi
yfir vinnustöðvun frá og með 29.
þ m. hafi ekki fyrir þann tíma
tekizt samnmgar við atvinnurek-
endur um kaup og kjór verka-
manna.“
Var hún samþykkh
Fram kom á fundinum gagn-
rýni á það að jafn örlagaríkt
mál sem þetta, væri til lykta
leitt á fundi, þar sem enginn
möguleiki væri á að meira en
þriðjungur félagsmanna gæti
Tvœr heið-
ar óruddar
í MORGUN átti að fara
fyrstu áætlunarferðina til
Siglufjarðar frá BSÍ. Siglu-
fjarðarskarð opnaðist í gær
og þá hafa aliir fjallvegir
á aætlunarleiðutn Bfaí opn-
azt að undantek aura íveim-
ur heiðam á Vestfjörðum —
að því er BSÍ upplýsti í gær.
Þorskafjarðarheiði er enn
lokuð svo og Breiðadals-
heiði, en það er fyrsta heið-
in, sem farið er i"n á leið-
inni frá ísafirði til Reykja-
víkur.
Verkfoll
boðuð á
Akurni
AKUREYRI, 19. maí. — Iðja, fé-
lag verksmiðjufólks á Akureyri,
hefur boðað vinnustöðvun frá og
með 29. þ.m. hafi ekki tekizt
samningar þá. í kvöld er sam-
eiginlegur fundur hjá Verka-
mannafélagi Akureyrar og Verkn
kvennafélaginu Einingu og mun
trúnaðarmannaráð félaganna
leita umboðs til þess að lýsa yfir
vinnustöðvun.
SÍÐARI FRÉTTIR:
Á fundinum í gærkvöld
fengu trúnaðarmannaráðin um
beðna heimild. Skutu ráðin þeg
ar á fundi og samþykktu að
boða verkfall frá og með 29.
þ. m. — Þar með hafa þrjú
verkalýðsfélög hér boðað verk-
fall í lok mánaðarins.
látið álit sitt í ljós með atkvæða-
greiðslu.
Bent var á að eðlilegast væri
að allsherjaratkvæðagreiðsla
skæri úr um þetta mál.
Að lokinni frumræðu for-
manns iélagsins tilkynnti fund-
arstjóri Guðmundur J. Guð-
mundsson að tillagan yrði bor-
in upp ekki seinna en kl. 10,30.
Var hún borin upp um kl. 11,
en síðan var orðið ekki gefið
frjálst, en umræðum slitið á
þeim forsendum að enginn væri
á mælendaskrá.
Hvítasunnuferð
LAGT verður a' stað í hvíta-
sunnuferð ungra Sjálfstæðis-
manna til Vestmannaeyja kl.
2.30 í dag frá Valhöll við
Suðurgötu. Allar upplýsingar
eru veittar í Sjálfstæðishúsinu
sími 17100.
Frá Dagsbrúnarfundinum í gærkveldi.
(Ljósm. Mbl.; Markús)
Tími kominn fyrir íslendinga
að ákveða sig í viðskiptamálum
Gylíi Þ. Gíslason segir fra Osló-fundi og
stofnun samstarxsnefndar atvinnuvieganna
EF BRETAR og einhverjar
aðrar þjóðir í Fríverzlunar-
svæðinu tengjast Markaðs-
bandalagi Evrópu, þá verð-
ur það mikllu brýnna en áð-
ur fyrir okkur íslendinga að
athuga okkar gang í þessum
málum.
Þannig mælti Gylfi Þ.
Gíslason viðskiptamálaráð-
herra er Mbl. átti stutt sam-
ttal við hann í gær um
skyndiför hans og Jónasar
Haralz ráðuneytisstjóra á
fund viðskiptamálaráðherra
Norðurlanda.
Ráðherrann upplýsti blað-
ið einnig um það, að ríkis-
stjórnin ynni nú að því að
koma á fót samstarfsnefnd
atvinnuveganna til þess að
veita hinum ýmsu stofnun-
um og þáttum atvinnulífsins
upplýsingar um, hvaða þýð-
ingu nánari þátttaka íslands
í efnahagssamstarfinu hefði
og hvað það gæti kostað
okkur að standa þar fyrir
utan. Fram að þessu hefur
sérfræðinganefnd verið starf
andi í málinu, en nú fer að
koma að því að fulltrúar at-
vinnuveganna verði kallaðir
til viðræðna við ríkisstjórn-
ina um málið.
Bretar ræða við sexríkin
Gylfi Þ. Gíslason sagði að það
hefðu verið viðskiptamálaráðherr
ar Norðurlandanna, sem sátu
skyndifundinn í Osló og Jens Otto
Krag utanríkisráðherra Dana,
sem átti nýlega persónulegar við
ræður í London við brezku rík-
isstjórnina um þróun viðskipta-
málanna.
Tilefni var að viðræður hafa
farið fram að undanförnu milli
Breta og sexríkjanna í Markaðs
bandalaginu um hvernig leysa
megi þann ágreining, sem varð
þess upphaflega valdandi að
Bretar urðu utanveltu við
Markaðsbandalagið. Ef til þess
kemur að Bretar gangi í Markaðs
Frh. á bls. 23
Handrita-
málið til
umræðu 6.
og 7. júní
KAUPMANNAHÖFN, 19. mai.
(NTB) — Handritamáliö svo-
nefnda kemur til afgreiðslu
í danska þjóðþinginu dagana
6. og 7. júní n. k., að því er
tilkynnt vax í Kaupmanna-
höfn í dag. (
Verður handritamálið (þ. e.
frumvarpið um að afhenda
íslendingum hluta þeirra
handrita í dönskum söfnum,
sem sérstaklega snerta ísland)
eitt síðasta málið, sem til um-
ræðu kemur í þinginu áður
en því verður slitið — hinn
8. júní.
Sprengiefni frá stríðs-
árunum fannst eystra
AUSTUR á Seyðisfirði mun hafa
fundizt allmikið magn af sprengi
cfni, sem þar hefur legið i jörðu
frá styrjaldarárunum. Ekki er
fullkannað, hvort það er virkt, en
það er grafið undir klettum,
um 200 metra ofan við hafnar-
bryggjuna.
* * *
Ungur maður úr Reykjavík
var á ferð fyrir austan í vikunni.
Maður þessi hefði í bernsku átt
heima á Seyðisfirði jg séð til
Breta, er þeir grófu sprengiefn-
ið á fyrrgreindum stað (að því
er næst verður komizt).
Kirkjuvígsla við Úlfljófs-
vatn á morgun
Á MORGUN vígir biskupinn yfir 1 endurnýjun kirkjunnar.
íslandi, herra Sigurbjörn Einars- Athöfnin hefst kl. 2 á hvíta-
sem nýlega hefur verið endur-1 sunnudag og viðstaddir verða
son, kirkjuna að Úlfljótsvatni,
byggð og bætt.
Þetta er gömul bændakirkja,
sem féll í hlut Rafmagnsveitna
ríkisins, er þær keyptu jörðina.
séra Gunnar Jóhannesson, próf-
astur að Skarði, og sóknarprest-
urinn, Eiiikur Eiríksson. Vígslu-
vottar verða séra Ingólfur Ást-
marsson og prófessor Jóhann
Þegar hann heimsótti Seyðis-
fjörð núna, nær tuttugu árum síð
ar, rifjaðist þetta upp fyrir hon-
um og fór hann að hyggja að
sprengiefninu og gróf það upp.
Ekki reyndist Mbl. unnt að fá
nákvæma lýsingu á þessum fundi
í gærkvöldi, en sprengiefnið mun
vera í „túbum“, í málmkössum.
Hafa fundizt 2—3 „hrúgur“ í hol
um með nokkurra metra milli-
bili, en ekki er ljóst hvort
sprengiefnið í holunum er terígt
saman.
Þegar ungi maðurinn kom
aftur til Reykjavíkur gerði hann
lögreglustjóra aðvart. Varðskip-
ið Þór fór inn til Seyðisfjarð-
ar og fóru varðskipsmenn á
land til þess að athuga málið.
Ekki hreyfðu þeir við neinu,
þar eð þeir töldu sig ekki hafa
fullkomna reynslu í að eiga við
sprengiefni sem þetta. Varð-
skipið hélt frá Seyðisfirði í
gær.
í dag mun sérfræðingur lög-
reglunnar, Þorkell Steinsson,
fljúga austur til að kanna hvort
Staður sá, er sprengiefnið
fannst á, er fjarri alfaraleið.
Sáttasemj-
ari til
Húsavíkur
Húsavík, 19. maí
VERKFALLI® skellur á hér ann
að kvöldi, ef ekki takast samn-
ingar á morgun. Atvinnurekend-
ur gerðu tilboð á miðvikudaginn
en því var hafnað.
Sáttasemjari fyrir Norður-
landi, Steindór Steindór.sson_
menntaskólakennari, kemur hing
að á morgun og hefur hann boð-
að fund með atvinnurekendum
og verkalýðsfélaginu. — Geysi-
góður afli er nú á handfæri. Sex
þilfarsbátar róa héðan svo og
30 trillur og 10—20 trillur bætast
við næstu daga, ef ekki verður
verkfall. En skelli verkfallið á
stöðvast alir róðrar oe alt at-
Hafa Rafmagnsveituinar annazt Hannesson.
sprengiefnið er virkt eða ekki. vinnuíf lamast.